Alþýðublaðið - 23.07.1966, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 23.07.1966, Blaðsíða 8
Viöa er pottur brotinn.. Texti: Krisfmann Eiösson Myndir: Rúnar Gunnarsson ar, rólur og sölt, en enginn að- staða fyrir börnin til að æfa sig á h.jólum eða aka stignum bílum. Það væri þó ekki svo kostnaöar- samt að malbika mjóar akreinar á þessum völlum, þar sem börnin gætu aukið hæfni sína í meðferð þessara tækja, í stað þess að nota ,til þess fjölfarnar götur. Þá er hér allt of iítið af leiksvæðum og spark völlurn, sem laða börnin af göt- unni og tryggja þannig öryggi þeirra. Reynt hefur verið a@ út- -vega unglingum vinnu við þeirra bæfi en ekki tekizt að útvega líkt 'því öllum þeirra störf. Væri það ékki verðugt verkefni fyrir þessa unglinga að fara á leikvellina og aðra staði, þar sem börn eru' að Jeik, leiðbeina börnunum og örfa þau til jákvæðra leikja? Á Siglufirði eru fjölbreytt leik tæki við barnaskólann, og geta mæður komið börnum sínum þar í gæzlu gegn 10 króna greiðslu á dag. Þetta fyrirkomulag hentar vel mæðrum, sem yfirleitt hafa börnin í eigin umsjá eða þá í þeim tilvikum, þegar erfitt er að fá þau til að dvelja á leikvöllum að staðaldri. Hér vantar svona aðstöðu, þar sem þörfin er mest, -— í nýju hverfunum. í Vogahverfi sem þó telst ekki til nýjustu hverfanna, finnst ekki nema einn leikvöllur vestan Langholtsvegar. Við Vogaskóla er stórt svæði, sem vel mætti nýta fyrir börn þessa hverfis án nokkurs verulegs til- kostnaðar. Það vantar ekkert nema framtakið. — Er börnunum ekki mikil hætta búin vegna síaukinnar um- ferðar? — Jú, tala barna, sem lenda í umferðarslysum fer hækkandi hér sem í öðrum iöndum. Barnadauði af völdum umferðarslysa mun vera mestur hjá frændum okkar í Noregi. í því sambandi minnist ég atviks, sem ég varð vitni að í Noregi fyrir skömmu. Ég var á leið til aðalstöðva Trygg Trafikk, sem eru landssamtök er stuðla að auknu umferðaröryggi þar í landi. Skammt frá húsinu, sem er við umferðargötu, stóðu tvö börn og ætluðu auðsjáanlega að fara yfir götuna, en virtust afskaplega hrædd við umferðina. Mér stend ur enn fyrir hugskotssjónum ótt- inn, sem skein úr augum þeirra. Þetta dæmi sýnir okkur, að ekki má koma inn hjá börnunum hræðslu við þau vandamál, sem daglega verða á vegi þeirra. Þegar hér var komið sögu, vor- um við staddir á Kringlumýrar- brautinni, en hún er ein þeirra gatna, sem er stórhættuleg börn- um og reyndar fullorðnum líka. Gatan er ágætlega malbikuð og því greiðfær bílum, en sú hliðin, sem snýr að gangandi vegfarend- um er ekkert glæsileg. í stað gang stétta eru moldarhaugar meðfram akbrautum, sem gera fólki ókleyft að ganga annars staðar en á sjálfri götunni, og mun það ekkert eins dæmi við nýlega malbikaðar göt- ur. Á hinum svokölluðu eyjum, sem skilja að akbrautirnar, vex villtur skógur af njólum, og mun hann sízt auka á öryggi þeirra barna, sem eru á sífelldum hlaup- um yfir þessa miklu umferðar- braut. Það vakti einnig athygli okkar, Þessi lóð er við Álftamýri og sýnir hvernig hægt er að halda börn unnm frá götunni ef skilningur og vilji halðast í hendur. hve flest barnanna voru klædd dökkum regnfötum, sem valda því, að þau sjást miklu verr úr öku- tækjum, og endurskinsmerki sáum vi'ð engin á yfirhöfnum þeirra. — Við höfum mikinn áhuga á því að fá börn og fullorðna til að nota endurskinsmerkin, en til- raunir þær, sem gerðar hafa ver- ið í þeim tilgangi, hafa ekki bor- ið nógu góðan árangur, segir Sigurður. Við erum því að vinna að gerð merkja, sem ganga í augu barna og unglinga, með þeim ár- angri vonandi, að þau verði eftir- sótt. Þéssi merki eru lífsnauðsyn, eins og þau hörmulegu slys sanna, sem oriðið hafa á fólki í nátt- myrkrijog slæmu skyggni. Við jÁlftamýrina fengum við góð dtémi, bæði um það, sem miður ér og eins hitt, sem er til eftirbreytni. Þarna eru margar blokkir með stórum lóðum, en ær- ið misjöfnum að frágangi og út- búnaði. Við eina blokkina hefur lóðin verið girt og sléttuð. Innan girðingarinnar hefur verið komið upp leiktækjum, svo sem renni- brautum og sandkössum, auk þess marki, sem gerir börnunum kleyft að iðka hand- og fótbolta. — Á þessari lóð voru nokkur börn að leikjurru þrátt fyrir rigningar- suddann og úr allri hættu af um- ferðinni, sem er nokkur fótmál frá lóðarmörkum. Við sömu götu, litlu ofar, var alls engin girðing, lóðin ófrágengin og lítt aðlaðandi til tómstundaiðkana. Börnin, sem í þessari blokk búa virðast líka hafa meiri áhuga á götunni og því, sem þar gerist, en það er ekki þeirra sök, heldur þess fólks, sem þarna býr og gæti með sam- eiginlegu átaki breytt flaginu í snyrtilega lóð, komið upp nokkrum ódýrum tækjum og þannig bægt börnunum af götunni án boða eða banna. Enn ofar í götunni voru menn að vinnu með stórvirkum vélum, sem vekja forvitni barna og á- huga, enda stóðu nokkur þeirra fast upp vi@ vinnutækin, og ist sem þeir fullorðnu létu sig engu skipta návist þeirra eða þá hættu, sem þeim gat stafað áf þessari forvitni. Og það er víðar pottur brotinn. Við ókum upp Háaleitisbraut, sunnan Miklub'rautar, og rtú gat Sigurður ekki orða bundizt. —- Alveg er það furðulegt skiþu- lagsleysi, að hafa stórar verzlana- miðstöðvar öðrum megin mikilla umferð'arræða, en íbúðahverfin hinum megin. Hérna vinstra megin Háaleitisbrautar búa þúsundir íbúa, sem verða daglega og oft á dag að sækja í verzlanir hægra megin götunnar. Við vitum, að al- gengt er að senda börn í verzlan- ir til smáinnkaupa, og með þessu háttalagi eru þau, alveg að ó- þörfu, lögð í bráða hættu Það er hreint og beint óhugnan legt, að börn skuli þurfa að leggja leið sína yfir miklar umferðaræð- ar til að komast í búðir, skóla og á leikvelli svo eitthvað sé nefnt. Við eina verzlunina í hverfinu komum við auga á ungan pilt á svokallaðri skellinöðru, með mik- inn hjálm á höfði og hinn vask- legasta. Gaf þetta mér tilefni til að biðja Sigurð að segja okkur frá þeim reglum, sem gilda um hjól- reiðar barna og unglinga. — Börn yngri en 7 ára mega ekki vera á reiðhjóli, en sé hjól- ið með hjálparmótor hækkar aldurstakmarkið upp í 15 ára. Eg fyrir mitt leyti tel, að ekki ætti að leyfa börnum yngri en 10 ára að fara með reiðhjól, og ég get bætt því við, að norskir stéttar- 3 23. julí 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.