Alþýðublaðið - 24.07.1966, Blaðsíða 6
Yfir sumarið er
æskilegt, að sem
flest börn eigi kost
á sumardvöl í hollu
umhverfi. Sum
dveljast á sveita-
héimilum, önnur á
barnaheimilum víðs
vegar um landið.
Hér segir í máli og
myndum frá heim-
sókn í eitt slíkt sum
ardvalarheimili
barna, barnaheim-
ili Vorboðans í Rauð
hólum, en þar dvelj
ast nú 60 börn.
★
t
TEXTI 06 MYNDIR:
Anna Brynjúlfsdóttir
FLEST BÖRN langar til að
komast í sveit yfir sumarið, sum
fara á sveitabæi, þar sem þau
hjálpa til við búskapinn, önnur,
sérstaklega þau minni, fá dvöl á
barnaheimilum, þar sem þau hafa
nóg' svigrúm til leikja og fræðslu
undir gæzlu fóstru.
Á harnaheimili Vorboðans í
Rauðhólum, sem Verkakvennafé-
lagið Framsókn og Mæðrafélagið
sjá um rekstur á, dveljast á hverju
sumri mörg börn.
Hér í Opnunni í dag ‘segir frá
heimsókn þangað. Þegar blaðamað-
ur kom að heimilinu voru börnin
í leikjum sunnan megin við hús-
ið. Telpurnar voru í hringleikj-
um með tveimur fóstrum, — en
Forstöðukona barnaheimilisins Vorboðans, Guðrún ljartardóttir, með nokkar yngstu telpurnar.
drengirnir sátu og horfðu á.
Klukkan var orðin rúmlega sex
og börnin áttu að fara fljótlega
inn til kvöldmatar. Forstöðukona
heimilisins, Guðrún Hjartardóttir
var úti hjá börnunum og tók vel á
móti blaðamanni.
— Hvað eru mörg börn hérna,
Guðrún^
— Hér eru 60 börn, 24 stúlkur
og 36 drengir.
— Og á hvaða aldri eru börnin?
— Þau eru flest á aldrinum 5
og 6 ára. Þó eru tekin hingað
börn 4—7 ára.
— Eru hér niargir hópar yfir
sumarið?
— Nei, hér er aðeins einn hóp-
ur og dvelur í tvo mánuði frá
miðjum júní til miðs ágústmán-
aðar. Það eru sem sagt sömu
börnin allt sumarið.
— Og eru ekki börnin yfirleitt
ánægð með veruna hér?
— Jú, mér finnst þau mjög á-
nægð. Eftir tveggja til þriggja
daga dvöl eru þau öll farin að
kunna vel við sig. Það er stundum
fyrstu 1 til 2 dagana að eitthvað
ber á leiða í einstöku barni, en
það hverfur fljótt.
— Hvernig er svo deginum
varið hjá börnunum?
— Þau vakna um sjöleytið, sum
fyrr, og morgunmatur er klukkan
átta. Þá eru útileikir fram að há-
degismat. Síðan er farið með
börnin í leiki eða gönguferðir
síðari hluta dagsins, miðdegis-
mjólkina sína fá þau klukkan þrjú
og upp úr sex förum við að þvo
börnunum og svo borða þau kvöld-
mat kiukkan hálf sjö. í rúmið fara
þau svo klukkan sjö.
— En þegar vont er veður, hvað
hafa þau þá helzt fyrir stafni?
— Við höfum hérna leikskála,
þar sem börnin eru, ef veðrið er
mjög slæmt, þar hafa þau litabæk-
ur og geta teiknað og litað og
einnig er lesið fyrir þau. Annars
eru þau yfirleitt alltaf úti, veðrið
er nú yfirleitt það gott yfir há-
sumarið og þó að rigni, en íogn
sé og hlýtt, þá eru þau úti að
leika sér.
Skyrið er gott
Börnin að leik.
sHII *•
0 24. júlí 1966
ALÞÝÐUBLAÐIÐ