Alþýðublaðið - 24.07.1966, Qupperneq 7
— HvaS starfar hér margt fólk?
— Hér eru 13 starfsstúlkur, þar •
af fimm fóstrur.
— Eru það lærðar fóstrur? \
— Nei, það er erfitt að fá lærð-'
ar fóstrur yfir svona stuttan tíma, ]
þær eru allar í vinnu á heimilum,
sem starfa allt árið.
— Hver er matráðskona heim-1
ilisins?
— Hún heitir Þóra Guðnadótt-
ir. Hún var hér vökukona í fyrra,
hér er alltaf vökukona á hverri
nóttu til að sinna börnunum og
gæta að því að allt sé í lagi.
— Er ekki gott samkomulag hjá
börnunum?
— Jú, þeim kemur yfirleitt vel
saman.
Nú er kallað í börnin inn og
þau eiga að þvo sér áður en þau
taka til við kvöldrhatinn. Það tek-
ur nokkra stund, en um hálfsjö
er setzt að borðum. Og auðséð er
að allir eru svangir. Á bor’ðum er
skyr og smurt brauð og börnin
gera því góð skil og fljótlega er
beðið um meira og fleiri föt með
smurðu brauði eru rétt inn I borð-
stofuna úr eldhúsinu, sem er við
hlið borðstofunnar.
Og loks kemur að því að allir
eru saddir, þá þurfa sumir að þvo
sér um munninn, því að skyrið
hefur ekki allt farið á réttan stað.
En upp úr sjö færist ró yfir allt,
þá fara börnin að sofa og hlakka
til næsta, bjarta sumardags.
Þeir höfðu grafið leynigöng í gegn
um þúfu
ANNARRA
ORÐ
í NÝLEGU Tímariti Máls og
menningar (2. hefti 1966) er birt
grein um Bandaríkjamenn í Víet-
nam eftir ónefndan höfund, Ev-
rópumann búsettan þar eystra.
„Starfs síns vegna er hann í
nánum tengslum við borgarbúa og
sveitamenn, særða borgara, fanga
úr liði Víetkong, fólk sem safn-
að liefur verið saman á afgirtum
svæðum, og Bandaríkjamenn,”
segir ritið, sem fylgir ritgerðinni
úr hlaði með gífuryrtri forustu-
grein um „bandariska heimsveld-
issókn” þar sem stríðið í Víet-
nam er nefnt prófsteinn á mann-
dóm vestur-evrópskra þjóða og
almenningsálits, og .þar með nátt-
úrlega íslendinga. ,,Ef vér látum
oss á sama standa um stríðsglæp-
ina í Víetnam, munum vér ekki
eiga mikið eftir af virðingu fyrir
sjáifum oss um það er lýkur.”
Sýnilega á ritgerðin ekki einung-
is að uppfræða lesendur sína um
ástandið í Suður-Víetnam heldur
einnig að efla þá til þátttöku í
íslenzkri póiitík.
En hér var ekki ætlunin að
ræða efnislega grein hins ónefnda
höfundar, hvorki sálspaka útlegg-
ing hans á innræti og afstöðu
Bandaríkjamanna né lýsing lians
á „samtengslum bissnessins og
glæpanna” þar eystra, heldur ein-
ungis vekja athygli á málfari
greinarinnar, íslenzku þýðingar-
máli sem nú gerist æ tíðara, jafn-
vel í frumsömdum texta eftir
menntaða höfunda. Óneitanlega
fellir þetta tungutak nokkurn
fölskva á skarpleik og skynsemi
höfundarins — sem að öðru leyti
skulu ekki dregin í efa. En það
hljómar til að mynda svona; til-
vitnunin er úr niðurlagi greinar-
innar;
„Hinar sálarlegu afturhverfing-
ar sem lýst hefur verið hér að
framan, — árásarkennd tilfinn-
ingabæling í þágu æðri hagsmuna
og myndun viðeigandi sjálfsrétt-
lætingakerfis — eru vitanlega ekki
skynsemisbundin ferli. Raungildi
þeirra felst í því að hjá Banda-
ríkjamönnum hafa þær að bak-
hjarli bernskuduldir sem eru eig-
inlegar öllum púritönskum þjóð-
félögum. Hyldýpið sem gín við
bandarísku hermönnunum í Víet-
nam, þegar góðmennska þeirra er
dregin í efa, er ekki einungis
þrúgandi sektarkennd, heldur og
kvíði ungbarnsins sem leitar sér
skjóls fyrir viðbjóðnum og óttan-
um við holdið, með því að upp-
hefja og helga líkamsburði sína í
þjónustu einhverrar göfúgrar bar-
áttu (sbr. hetju Villta vestursins
gegn vonda Indíánanum). Síðan
þróast vitund þeirra um syndir
holdsins, öryggisleysið á kynferð-
issviðinu og efasemdin um karl-
mannlegan fullburðugleika þeirra
í mikilmennskubrjálæði. Mikil-
mennskuduldin birtist m. a. í
hneigð bandarískra hermanna,
skólapilta og knattleikameistara til
að flíka vöðvaafli sínu í tíma og
ótíma og eins í hinu að „öflug-
asta herveldi heimsins” virðist
um megn að viðurkenna eða jafn-
vel ímynda sér að þáð geti beðið
lægri hlut í hernaðar- eða stjórn-
málaátökum, þegar svo ber und-
ir.”
Hvernig er það eiginlega með
þýðendur og/eða höfunda þvílíkra
texta: Staldra þeir aldrei við í
önn sinni, líta yfir það sem skrifað
stendur og spyrja sem svo: Hvað
er það nú aftur sem þarna er
sagt? Skyldi þetta merkja eitt-
hvað? Hvaða mál er það eigin-
lega, sem ég tala?
★
Eyvindur Erlendsson, ungur
leikstjóri sem í vetur vann að
tveimur sýningum í Reykjavík á
vegum Grímu, skrifar í sama
hefti Tímaritsins grein sem nefn-
ist Nýtt leikhús. Þar er lýst þeim
tíðindum að í vændum sé að stofna
nýtt leikhús í Reykjavík:
„Til voru svonefndir aldamóta-
menn sem voru frumherjar þeirr
ar hreyfingar sem nam ísland að
nýju. Það eru verk þessara
manna sem nú er verið að selja
og éta út á. Enn standa þau und-
ir sjálfstæði landsins, þótt ærið
séu nú tekin að íýjast þau breiðu
bök. En andi þeirra er að stinga
sér niður á nýjan leik með unga
fólkinu. Það vill gjarnan sjálft
byggja þetta land. Ekki aðeins
drekka út á verð þess. — Þess
vegna er ástæða til að stofna nýtt
íslenzkt leikhús. — Efniviðurinn
er til: Hugsjón, skáld, rithöfund-
ar, tónlistamenn, málarar, leik-
stjórar og leikarar. Kannski of fá-
ir. Kannski nægilega margir. —
Þetta fólk fær ekki tækifæri í
þeim leikhúsum sem fyrir eru
vegna þess að þau þjóna öðrum
tilgangi og þurfa því á annars
kongr kröfum að halda. En það
þarf að veita þessu liði tækifæri
— ekki vegna þess að það þurfi
á leikhúsihu að halda, heldur
vegna hins að leikliúsið þarf á
því að halda.”
Þetta eru niðurlagsorð Ey-
vinds; grein hans gengur út á það
hve^s könar .tækifæri” hér sé um
að ræða. Þungamiðjan í máli
hanS ér nokki-ar tilvitnanir í
Bert Brecht, eins og vænta mátti,
en beggja vegna skipað útlegg-
ingu og hugléiðingú háris frá eig-
in brjósti höfuridarins. Tvær til-
vitnánir til dæmis; - sú seinni er
ofurlítið stytt rúmsins vegna:
Framhald á 11. síðu.
íti.j'. fi íl i »kí il
ELDHUS
Stærsta sýning á fyrsta flokks eldhúsinn-
réttingum hér á landi.
Flestir raunu því geta valið sér innréttingu
á sanngjörnu verði.
Opin virka daga frá kl. 9 til 6, nema
laugardaga frá kl. 9 til 12.
EinkausnboS á ðslandi: Skorri Ii.f.
Sölustjóri: Ólafur Gunnarsson
Hraunbraut 10 — Kópavogi — Sími 4-18-58.
Ijöld; íslenzk - dönsk - sænsk
Tjaldhimnar
Tjaldhælar
Picknictöskur
Pottasett
Sólstólar
Svefnpoka
Ullarteppi
Hitabrúsa
Veiðiúlpur
Veiðistengur
2 manna
3 manna
4 manna
5 manna með himni
6 manna
Mæniá.sar
Campingsett
Matarílát
Svefnbeddar
Tjaldborð
Gassuðutæki
Gasluktir
Gasfyllingar
Bakpoka
Ferðatöskur
Filmur
Veíðigallar
Vöðlur
Skoðið vöruvalið
Ferðavörudeildin er á II. hæð.
UverpooÍ l |pg Lau9ave9 18
Auglýsingasíminn er 14906
• íc ' i k' li
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 24. júlí 1966 J