Alþýðublaðið - 09.08.1966, Síða 4

Alþýðublaðið - 09.08.1966, Síða 4
Í ranáMMO) Kitstjórar: Gylfl Gröndal (áb.) og Benedlkt Gröndal — RitstjómarfuU- trúi: iSiður Guðnason. — Símar: 14900-14903. — Auglýsingasími: 14906. Aðsetur Alþýðuhúsið vlð Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu blaðsins. — Áskriftargjald kr. 105.00 — í lausasölu kr. 5.00 eintakið. Útgefandi Alþýðuflokkurinn. Peningar og pólitík ALÞÝÐUBLAÐIÐ skýrði fyrir nokkru frá merk- um dómi, sem fallið hefur í stjórnlagarétti Vestur- Þýzkalands. Var hann á þá lund, að ríkisstyrkur til stjórnmálaflokka 'væri ólöglegur, en heimilt væri að greiða úr ríkissjóði eðlilegan kostnað flokka af kosn ingabaráttu. Hefur þessi niðurstaða valdið miklimi ruglingi, af því að flokkarnir hafa fengið stórar fjár- hæðir frá þýzka ríkinu. í Alþýðublaðsgreininni var rætt fram og aftur um þessi mál og meðal annars á það bent, að alvar- ■leg fjárhagsvandræði væru innan allra stjórnmála- flokka á íslandi. Ekki var gerð tillaga um, að teknir væru upp ríkisstyrkir til flokka hér á landi (eins og Svíar hafa nú gert), en bent -var á hið óeðlilega vald, sem meira- eða minna óþekktir fjármálamenn geti öðlazt á bak við tjöldin, þegar stjórnmálaleiðtogar jverða háðir þeim í peningamálum. • Fyrir þessa hugvekju hefur Alþýðublaðið orðið fyrir árásum 1 tveim af stórblöðum þjóðarinnar, Morg- unblaðinu og Mánudagsblaðinu. Þessi tvö blöð hafna fyrirfram þeirri hugmynd, sem að vísu var ekki sett fram í Alþýðublaðsgreininni, að hér komi til greina opinber stuðningur við stjórnmálastarfsemi. Ef stjórnmálaflokkar gætu eingöngu lifað fjárhags- lega á félagsgjöldum kjósenda, væri það æskilegasta kerfið. En svo er ekki. Flokkarnir þurfa stórfé til jst'arfsemi sinnar og áróðurs. Ef einstök félög eða imenn leggja fé til stjórnmálaflokka og öðlast þann- ig óeðlilegt áhrifavald á þá menn, sem fólkið kýs tii áhrifa, þá er lýðræðinu hætt. ísland er eitt þeirra landa, þar sem minnst hefur verið um þessi mál rætt. Hér þurfa flokkar og fram- bjóðendur ekki að gera opinberlega grein fyrir fjár- öflun sinni, eins og talið er sjálfsagt í öllum þroskuð- um lýðræðisríkjum. Fjármálahlið stjórnmálanna er einn þýðingar- mesti þáttur þeirra, sem hefur þó verið vanmetinn af hinum almenna kjósanda hér á landi. Umræður um þessi mál eru eðlilegar og fyrr eða síðar verður þeim kbmið í fastara og lýðræðislegra form, en nú er við Íýði. ;i Ævintýri flugsins 30 ÁR eru nú liðin, síðan Haraldur Guðmundsson jþ vinnumálaráðhera skipaði 21 árs gam.lan flugmann, Agnar Koefed-Hansen, í starf flugmál'aráðunauts. Þjjar með hófust opinber afskipti af flugmálum á ís- iandi, þótt þjóðin ætti enga flugvél og engan flugvöll. tf j Nú eru flugmálin ómetanlegur þáttur í þjóðlífi ís- íðndinga og erfitt að hugsa sér landið án þeirra. Þau (éfu eitt þeirra ævintýra sem hafa skapað ísland nú- |t4nans. .4 9. ágúst 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ í; 1 .... , Ódýr skófatnaður frá Englandi Seljum næstu daga fjölmargar gerðir af enskum kvenskóm og sandölum fyrir mjög lágt verð. Skóval Skóbúð Austurbæjar Austurstræti 18. Laugavegi 100. Eymundssonarkjallara vantar barn til blaðburðar í L AU G ARNESH VERFI Lesið áiþýðublaðið áskriftasíminn er 14900 Auglýsið íáiþýðubiaðinu toglýsingasíminn 14904 ★ UMFERÐARMIÐSTÖÐIN GAGNRÝND. Eftirfarandi bréf varCandi umferðarmiðstöð- ina hefur borizt krossgötunum: „Heiðraði ritstjóri. Mig langar til að biðja þið að birta fyrir mig gagnrýni á fyrirtæki, sem Umferðarmiðstöð er kölluð. Fljótt á litið virðist þétta glæsilegt fyrirtæki, en þegar betur er að gáð, er ekki allt gull, sem glóir. Tilefni þess, að ég rifa þessa gagnrýni, er það, að ég ætlaði upp í Mosfellssveit 30. 7. Kom ég é niiðstöðina klukkan fimm og spurði, hvenær næsta férð væri uppeftir. Var mér sagt, að hún væri kl. sex. Ég hélt að ég þekkti áætlunarbílinn sem gengur uppeftir, en rétt fyrir sex sá ég eitt hvað, sem helzt líktist jarðýtu og bar einkennis stafinn 9, svo ég veitti því ©nga athygli. Þegar klukkan var rúmlega sex fór ég að spyrja afgreiðsludömurnar, hvort bíllinn færi ekki að koma. Yissu þær ekkert. Kom ég þarna nokkr um sinnum, en sá aldrei neinn mann, sem lítur eftir. Við forstjóra fýrirtækisins vil ég segja, að hann ætti að fara út á flugvöll, vera þar þegar flugvélarnár eru að fára og kynna sér umferðar fellssveit, virðist hafa meiri áhuga á öðru en að þjóna farþegum. — S.H.” ★ MISHEPPNAÐ MANNVIRKI. Því miður virðist mai-gt vera misheppnað við blessaða umferðarmiðstöðina, svo nauðsynleg þjón ustustofnun, sem hún er. Við staðsetningu henn ar hefur umferðarvandamálið sýnilega aldrei ver ð hugsað tii þrautar, enda er nú verið að gefa út nýjar umferðarreglur fyrir nágrennið til að reyna að bæta úr vaxandi öngþveiti. Þá er stöð in sjálf að ýmsu leyti misheppnuð. Sumt af þeirri starfsemi sem þar átti að vera, mun vera flutt burt nú þegar vegna ófullnægjandi aðstöðu, og annað getur ekki tekið til starfa vegna galla á lnísakynnum. Hinn furðulegi risagluggi er ekki kominn og hvernig verður að að vera i salnum, til dæmis fyrir starfsfólk sölubúðanna, þegar sólin skín inn um þennan mikla glugga? Hefði ekki verið nær að gera skýli fram yfir bílana, svo að farþegar gætu gengið í skjóli til vagna, þótt rign ing væri? Nú verður að gera eins gott úr þessu máli og unnt er. Að sjálfsögðu er aðalatriði að gera not stöðvarinnar fyrir farþega sem bezt Meðal annars verður að tilkynna komu og brottför bif- reiða mjög vel

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.