Alþýðublaðið - 11.08.1966, Side 4

Alþýðublaðið - 11.08.1966, Side 4
GÍMMM-' Bltst.iftrar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndai — Ritstjómarfuli- trúi: iiiður Guönason. — Símar: 14900-14903. — Auglýsingasími: 14906. ABsetur Alþýöuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu blaðsins — Áskriftargjald kr. 105.00 — X lausasölu kr. 5.00 eintakið. Útgefandi Alþýðuflokkurinn, Stöðvun gróöans RÁÐSTAFANIR brezku ríkisstjórnarinnar til að forða sterlingspundinu frá falli hafa að vonum vakið mikla athygli og umtal. Meðal annars hafa blöð hér á landi rætt mikið um málið og tala þá oft um „kaupbmdingu” Wilsons. Enda þótt kaupbinding í eitt ár sé einn þýðing- armesti liður þeirra ráðstafana, sem brezka stjórn- in er að gera, er í raun og veru villandi að tala um þao atriði eitt. Það verður fleira bundið en kaup- ið. Verðlag á einnig að festa eftir því sem framast er unnc, og skiptir það að sjálfsögðu megmmáli. Þá er emnig rétt að gleyma ekki, að Wilson bindur ekki áðeins kaup, heldur einnig gróða fyrirtækjá, og vérða strangar skorður settar við úthlutun arðs. Loks verða gerðar sérstakar ráðstafanir varðandi laun þeirra, sem stýra fyrirtækjunum, og er ætlunin áð knýja fyrirtækin til að veita upplýsingar um kjör þeirra. Sí/darflutningar SÁ GALLI fylgir öllum fiskiðnaði, að erfitt er að hagnýta mannvirki til hins ítrasta. Reisa verður verksmiðjur fyrir mesta hugsanlegt aflamagn, enda þótt vitað sé, að venjulega er afli minni. Síldariðnaðurinn er gott dæmi um þessa erfiðleika. Dýrar verksmiðjur hafa verið reistar, er. síldin hefur ýmist brugðizt eða fært sig til, svo að verksmiðj- urnar hafa hagnýzt illa. Nú hefur verið farið í vaxandi mæli inn á þá braut að flytja síldina til verksmiðjanna, sem fjarri eru miðunum, og'reyna þannig að hagnýta þær. Vegna slíkra flutninga er Reykjavík einn mesti síldarbærmn, og ætti að vera á sama hátt unnt að starfrækja verk- smiðjurnar á Norðurlandi. Síldarverksmiðjur ríkisins hafa nú loks eignazt myndarlegt síldarflutningaskip, Haförninn, og er von- andi, að hann færi meðal annars Siglfirðingum það hráefni, sem þeir hafa aðstöðu til að vinna í verk- smiðjum sínum. Fóstra og matráðskona óskast til starfa við Dagheimilið í Kópa- vogi frá 1. sept. n.k. Upplýsingar um störfin og launakjör veitir forstöðukona Dagheimilisins alla virka daga nema laugardaga frá kl. 10—12 f.h. Kópavogi 10. ágúst 1966 Bæjarstjóri. 4 11. ágúst 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 21. ÞING SAMBANDS UNGRA JAFNAÐARMANNA verður háð í Reykjavík dagana 23., 24. og 25. september næstkom- andi. Fer þinghaldið fram í Slysa varnafélagshúsinu á Grandagarði. Þinghaldið verður nánar auglýst síðar. Stjóm Sambands ungra jafnaðarmanna Sigurður Guðmundsson Karl Steinar Guðnason (formaður) (ritari). Flytur fyrirlestra um sjálfvirkni í vélarúmi Kominn er til landsins aðal- kennari í vélfræði við Oslo mask inistskole, Mossige verkfræðing- ur. Mun hann flytja fyrirlestra um-sjálfvirkni í vélarúmi skipa. Að hoði hans standa Vélskóli ís lands, Vélstjórafélag íslands, Vinnuveitendasamband íslands og Landssamhand ísl. útvegsmanna. Verkfræóingurinn mun flytja fyrirlestra í hátíðasal Sjómanna skólans í dag fimmtudaginn 11. ágúst kl. 10 og kl. 14, á morgun Föstudag 12. ágúst kl. 10 og kl. 14, og á laugardaginn 13. ágúst kl. 10. í fimmtudagserindinu mun sér- staklega tekið tillit til útgerðar innar, á föstudag verður véltækni hlið efnisins sérstaklega rædd og á laugardag verður málið rætt almennt Skugga- og kvikmyndir verða notaðar til skýringa og tæki færi gefst til að gera fyrirspurn ir Erindin verða flutt á norsku, en fyrirspurnir má eins vel gera á íslenzku og ensku. Eftir sl. áramót fór Mossige verkfræðingur í tveggja mánaða ferð á 72000 smálesta olíuflutn- ingaskipi m. t. Tiberius, vélastærð 23000 ihö. ferð 18 sm/klst. Hann hefur kynnt sér sjálfvirkni stórra skipa sérstaklega og fór þessa ferð á vegum skóla síns, sem at hugandi (observatör). Vélakerfi skipsins er alsjálfvirkt og reikn að með mannlausu vélarúmi. Sjálfvirkni og f jarstýrðar vélar í kaupskipum eru mjög á dagskrá húarvetna með |siglingaþjóðum. ; Ekki er þó lengra síðan en um 11960 að þessi mál færast á raun hæft svið og enn í dag er ekki nema lítill hundraðshluti af kaup skipaflota heimsins búinn á þenn an hátt. Þeim fer ört fjölgandi og má ganga að því nokkurn veginn vísu að eftir nokkurt árabil verði öll miðlungs og meiriháttar ný skip knúin fjarstýrðum sjálfvirkum vél um. Þessi þróun mun ganga nokk urn vegin jafnhratt og endurnýj un flotans fer fram ,en ekki er talið hagkvæmt að bæta slíkum búnaði í eldri kerfi heldur verði að gera ráð fyrir honum frá upp hafi. Eitt sjálfvirkt flutningaskip bætt ist í íslenzka flotann fyrir 4 — 5 mánuðum. Er það skip Sements verksmiðjunnar með 1320 ha. al Framhald á 11. síðu. á krossgötum ★ ASNASPARK. „Kólon” skrifar blaðinu eftirfarandi bréf: „í síðasta tölublaði Mánudagsblaðsins eru sögð þau tíðindi að vikublaðið Fálkinn sé hætt að koma út í því sambandi er minnst á síðasta ritstjórann, Sig valda Hjálmarsson, og er hann kallaður „guðspek ingur og fjallamaður”!! Einnig er honum að nokkru leyti gefið að sök hvernig farið hafi, — hann hafi t.d. gert blaðið að „pólitísku viðrini”, eins og það er orðað, með því að láta það flytja gagnrýni á alla stjórnmálaflokka. En hvernig er það með Mánudagsblaðið sjáíft? Er það þá ekki „pólitískt viðrini” lrka? Hefur það ekki gagnrýnt alla stjórn málaflokkana og það stundum mjög miskunnarlaust Eða hefur það einhvern einkarétt á slíkri gagn- rýni? — Kallar það sig ekki sjálft „blað fyrir alla”? („allragagp”)? Annars er sannleikurinn sá um Sigvalda að kaupendum Fálkans fjölgaði, meðan hann var rit stjóri, enda yar blaðið fjölbreytt, fróðlegt og skemmtilegt uridir stjórn hans. En undarlegt er það, að ekki 'skúli véfá hægt að segja frá tíðind um, eins og þeim, sem hér um ræðir, án persónu legra sleggjudóma og áreitni.” Kólon. ★ SORPBLÖÐIN BLÓMGAST. Það er sorglegt, að ekki skyldi reynast fjár- hagslegur grundvöllur fyrir útgáfu ágæts viku- blaðs eins og Fálkinn var. Á sama tíma virðist út gáfa alls konar sorptímarita blómgast, ef dæma má eftir þeim aragrúa, sem verzlanir sýna veg- farendum af þeim kræsingum Virðist aðalatriði þessarar útgáfu vera að stela úr erlendum ritum myndum af nöktu kvenfólki og breiða úr þeim á forsíðu ritsins. Á síðari árum hefur útgáfa tímarita, sem byggja tilveru sína aðallega á nektarmyndum, blómgast. Hins vegar eru hin íslenzku rit fárán legar stælingar og í rauninni til skammar Ekki er ástæða til að fárast yfir siðferðilegu gildi þess arar útgáfu á þeirri nektar- og klámöld, sem nú gengur yfir mikinn hluta mannkynsins ,en vonandi fá menn áður en Iangt um líður leið á þessu blaða efni. Það verður landhreinsun, þegar þetta tíma ritarusl með bera skvísukroppa á kápunum hverf ur úr gluggum íslenzkra bókaverzlana, sem virðast leggja sérstaka áherzlu á a@ sýna þennan þátt ís lenzkra bókmennta.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.