Alþýðublaðið - 11.08.1966, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 11.08.1966, Blaðsíða 6
SAAB árgerð 1967 verður nú i'áanlegur með fjórgengisvél. Nýjungar í SAAB SAAB árgerð 1967 er nú að koma á markaðinn Auk hinnar kunnu gerðar með tvígengisvélinni, hafa verksmið.iurnar nú framleitt nýj an SAAB með fjórgengisvél, sem er 73 hestöfl Af öðrum þýðingar miklum breytingum má nefna diskahemla, sem verða á fram hjólum, riðstraumsrafala, stærri rafgeyma og nýja innréttingu. V—4 vélin, sem verður í hinum nýja SAAB er smíðuð í Ford verk smiðjunum í Köln, og hefur verið gerður samningur til sex ára Nýja vélin er um það bil 50 kílóum þyngri en tvígengisvélin, en þyngd arhlutföllin munu lítið raskast, þar sem þau verða 60 prósent að framan og 40 prósent að aftan, en hafa verið 58 og 42 prósent Gírar og drif eru þau sömu og í tvígeng isvélinni, framleidd í SAAB verk smiðjunni í Gautaborg. Bílnum með fjórgengisvélinni má aka hvort sem er í fríhjóladrifi eða í föstum gír eins og tíðkast á öðr um bílum. Það þýðir, að SAAB er fyrsti og eini bíllinn, sem gefur þessa möguleika, fríhjóladrif og fjórgengisvél. Útlit bílsins hið ytra verður al veg óbreytt. Þá hafa þær fréttir borizt út, að samvinna þýzku Ford verksmiðj anna og SAAB sé aðeins áfangi og að stærri gerð af SAAB bif reiðinni komi með enskri vél næsta haust Það verði fjórgengis vél, sem Triumph muni smíða sér staklega fyrir alveg nýja tegund af SAAB, og talað er um, að sú vél verði 1,5 —T,7 lítra með um 75 hestafla orku Hvað áhrærir verð og stærð, þá mun þessi SAAB verða í flokki með Amason. Hinn nýi SAAB mun verða fá enlegur hér á landi í september. í hinum nýja SAAB verður falleg og vönduð innrétting. Ur ýmsum áffum Það gerist æ tíðara, að fyrir tæki og stofnanir hafi lokað á laugardögum, einkum yfir sumar tímann. Þetta hefur haft sorgleg ar afleiðingar fyrir umferðarörygg ið. í Vestur-Þýzkalandi er umferð ín gífurleg á föstudögum þegar öll fyrirtæki loka, og allt starfsfóik ið fer á sama tíma í helgarleyfið. Afleiðingarnar eru þær, að á með an daglega verða um það bil 1300 umferðarslys að meðaltali, eru slysin á föstudögum nú yfir 1600 að meðaltali. = □= Citroen verksmiðjurnar frönsku eru nú byrjaðar að framleiða tvær tegundir leigubifreiða, ID 19 og DS 19, sem fylgja þeim reglum, sem frönsk yfirvöld settu til að tryggja öryggi leigubílstjóra og vernda þá gegn hugsanlegum árás um Bílar þessir eru með station lagi og á milli fram og aftursætis er skothelt gler Einnig er í þeim öflugt neyðarkallstæki og öryggisól ar fyrir alla farþega Hinir nýju bíl ar verða opinberlega teknir í notk un 1 janúar 1967. MIMMMMMtMMWHHMMHMM Hinn risavaxni bandaríski stálhringur United States Steel hefur látið smíða þenn an glæsilega og nýtízkulega ,station’ bíl Megintilgangur inn með smíði lians er að sýna hvaða möguleikar eru fyrir hendi í bílaiðnaðinum með notkun siáls og glers. Vagninn hefur verið skýrður Inovari og er með' fram hjóladrifi. Ford Motor Company var skráð næststærsta iðnfyrirtækið árið 19 65, og það stærsta utan Bandaríkj anna Á aðalfundi fyrirtækisins var það upplýst, að salan á Ford hef ur í heild aukizt um 100 prósent síðastliðin 10 ár. Einnig eru fram tíðarhorfur góðar. Talið er að ár- ið 1970 verði seldir um það bil 42 —43 milljónir fólks- vöru og flutn ingabíla á himsmarkaðnum og ef ur fyrirtækið því fjárfest allveru legar upphæðir í nýbyggingum og nýjungum. í heiminum eru nú um það bil 17,500 umboðsmenn fyrir Ford. = □ = Nýlega náðu brezku Ford verk- smiðjumar því marki að framleiða 1.000.000 bíla af gerðinni Anglia. í því tilefni hefur verið hafin leit að bezt útlítandi Anglia bílnum í Englandi Þessir bílar komu á mark aðinn í september 1959 ,og kunn ugt er um mikinn fjölda Anglia eig enda sem ekið hafa bílum sínum yfir 250.000 k,m. án þess að þörf hafi verið fyrir nema tímabundnar smáviðgerðir. = □= Árið 1964 urðu í Frakklandi sam tals 196,145 umferðarslys 11.184 létu lífið í slysum þessum, og 264,979 slösuðust. Á árinu 1965 jókst tala bíla um 10 prósent og tala slysa hækkaði að sama skapi eða í 214,085. í þessum slysum létu 12,335 manns lífið, en 292.681 slösuðust meira og minna. $ 11. ágúst 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ MMMHMMMMMMMMHMMHW

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.