Alþýðublaðið - 08.09.1966, Qupperneq 3
s <V\ ' x's's, '> ^ ,">">
■
■■:. ■ ■■ ■ ' • ■
*i m-. < <-<■ W&M
■', \ f'y. . X > •.
‘t ,
|||§®|£§MpÍ||
'■:'<■'■■. ■■•:
-■
iiil:§i§§í:|g
Mf^>ÍS<»StoísSil^^
>».:•:••••:•- ■
■ .
komnir Thorvaldsen. Frú Irma
hefur nú átt við vanheilsu að
stríða mánuðum saman, en lagði
við fyrsta tækifæri leið sina á
skrifstofur blaðanna til að segja
frá kynnum sínum af húsinu, sem
nú hefur verið fært Alþingi að
gjöf. Enda þótt frúin sé þreytt
eftir veikindin, ljómar áhuginn
og dugnaðurinn enn úr augum
hennar, er hún veifar höndunum
og segir söguna með óteljandi
svipbrigðum gamaJfrægrar lista-
konu.
Maður frú Irmu, Ásmundur
Jónsson skáld frá Skúfstöðum,
var mikill aðdáandi Jóns Sig-
urðssonar og hafði oft skoðað
hina gömlu íbúð hans hið ytra,
áður en hann barði að dyrum og
kynntist frú /Jóhönnu Gertner
og yfirgarðyrkjumeistara Larsen,
Sjö af norsku skipbrots-
mönnunum farnir heim
Fregnjr herma að í gær hafi þeir
þó ráðgert að leggja til atlögu við
fjallið ásamt mönnum úr björgun
arsveit Slysavarnafélagsins á Nes
kaupstað. Ekki er talið að slkip
ið sé mikið skemmt, enda liggur
það hátt í sandinum og engir teíj
andi sjóar ná að lemja á þvl. Úti
fyrir er hins vegar hauga sjór og
engin leið að komast að því þánn
veg til björgunar. í skipinu eru
rúmar 1000 tunnur af smásíid^
Framhald á 15. síðu.
Um klukkan þrjú í gær vildi það slys til, að mannlaus bifreið
rann af stað frá húsinu númer 168 við Laugaveg, rakst á aðra
bifreið og síðan á sjö ára gamla stúlku, sem var á gangi með
móður sinni. Meiðsli stúlkunnar voru ekki talin alvarleg, en hún
kvartaði undan þrautum í fótum. (Mynd: JV.)
Sjö af áhöfn norska skipsins
Gesina frá Kopervik, sem strand
aði í Sandvík í gær, eru nú á heim
leið með norska eftirlitsskipinu
Norninni, sem nú heldur til Ler
wich í Hjaltlandseyjum. Norski
konsúllinn á Seyðisfirði mun sjá
um velferð hinna tveggja, sem eft
ir eru, þe. skipstjórans og stýri
mannsins. Eins og sagt var frá í
gær, treystist stýrimaðurinn ekki
til að ganga yfir Barðanesið, en
hann er kominn af léttasta skeiði.
MÓTI NORRÆNNA HAG-
FRÆÐAFÉLAGA LOKIÐ
Fjármagn til efnahagslegrar
ummyndunar í smærri iðnaðar-
löndum var aðalviðfangsefni 19.
móts norrænna hagfræðafélaga í
Helsinki dagana 25.-27. ágúst.
Rædd voru hin margvíslegu vanda
mál ummyndunar atvinnulífs,
byggðar og samfélagshátta, sem
eru samfara iðnvæðingu og öðr-
um hagvexti. Mótið sóttu um 400
þátttakendur frá sex hagfræða-
I félögum, þ.e. einu i hverju Norð
urlandanna nema Finnlandi, þar
j sem félögin eru tvö, finnskumæl
andi og sænslíumælandi manna.
Stóðu finnsku félögin fyrir mót
inu af myndarskap og rausn.
Gören Stjerneschantz, banka-
stjóri, var aðalstjórnandi móts-
ins.
Erik Lundberg prófessor í
Stokkhólmi flutti inngangserindi
Minningar úr húsi
Jóns Sigurðssonar
JOHANNA GERTNER hét
dönsk hefðarkona, sem í þrjá
áratugi bjó í hinni gömlu íbúð
Jóns Sigurðssonar í Kaupmanna
höfn og varðveitti minningu
þeirra húsakynna af miklu stolti
síðari árin, eftir að hún hafði
kynnzt íslendingum, sem fræddu
hana um forsetann og frægð
hans á þeim árum, er hann bjó
þar.
Frú Irma Weile Jónsson hefur
frá mörgu að segja um þessa
frú, sem var annars vegar af að-
albornu kyni en hins vegar komin
frá listamönnum sem voru ná-
sem þar bjuggu. Fræddi Ásmund-
ur þau um Jón Sigurðsson og gaf
frúnni mynd hans, sem honum
fannst að ætti að vera til í því
húsi. Innbú var allt gamaldags,
en mjög virðulegt, ekki sízt þeg-
ar blómaskraut og kertaljós se(tu
svip sinn á stofurnar á stórhátíð-
um. Var þá á hátíðlegum stundum
lyft gömlu krystalglasi í minn-
Framliald á 15. síðu.
mótsins um samhengið milli efna
hagslegrar ummyndunar og hag-
vaxtar og helztu jafnvægisvanda-
mála, sem upp koma í því sam
bandi. Lagði hann sérstaka áherzlu
á að meta aðstöðu hinna smærri
þjóða í þeirri tækniþróun, sem
nú á sér stað.
Jörgen H. Gelting, prófessor í
Árósum, flutti erindi um þýðingu
hinna ýmsu fjáröflunarleiða og
lilutverk fjármagnsmarkaðarins.
Johan Melander, bankastjóri í
Osló, fjallaði um þýðingu hins
alþjóðlega fjármagnsmarkaðar
fyrir ummyndunarþróun hinna
smærri iðnaðarlanda* Dr. Lars
Nabseth frá Stokkhólmi ræddi um
möguleikana á að I|afa áhrif á
skiptingu fjármagnsins milli at-
vinnugreina og landsþluta í sam
ræmi við stefnu hins opinbera í
efnahagsmálum. Lokaerindið flutti
Nils Meinander, prófessor í Hel-
sinki, þar sem hann leitaðist við
að draga viðfangsefni ráðstefn-
unnar saman í heildarmynd. Eft-
ir hvert erindi fóru fram almenn
ar umræður. Fyrirlestrar og um-
ræður mótsins koma bráðlega út
í bókarformi.
Mót norrænu hagfræðafélag-
anna eiga rúmlega hundrað ára
sögu að baki sér, hófust með móti
í Gautaborg árið 1863. Undanfar-
Framhald á 15. síðu.
Húsin í Engey horfin
í fyrrakvöld var af hálfu yfirvalda ráðist til atlögu við húsín
í Engey og þau brennd til ösku á þeim forsendum, að þau væru
of fúin og léleg til að svaraði kostnaði að halda þeim við: Er
óneitanlega að þeim nokkur sjónarsviptir.
Það var rannsóknarstofnun landbúnaðarins og lantbúnaðar-
ráðuncytið, sem fyrir því stóðu, að húsin voru fjarlægð á þenn-
an liátt, en þessar stofnanir nota eyna til að einangra þar sauð-
fé um stundarsakir í vísindalegu tilliti.
Ríkiss jóður keypti eyna af síðasta ábúandanum þar, Sig-
urði Gíslasyni frá Hamraendum og þá í þeim tilgangi, að geyma
þar hrúta til undaneldis og forða þeim frá mæðiveikinni.
DÆLUR FYRIR
SÍLDARSKEP
Rvík, ÓTJ.
Eftir um það bil tvö ár verða
síldardælur líklega taldar jafn
sjálfsagöar og kraftblökkin þykir
núna á stærri fiskiskipum. Fyrir-
tækið Sjóver hf. og Vélaverkstæði
Sig. Sveinbjörnssonar hafa tek-
ið upp samvinnu um niðursetn-
ingu og aðra tæknilega þjónustu
við Fairbanks Morse síldardæl-
umar, sem Sjóver hefur umboð
fyrir.
Á fundi með fréttamönnum
sögðu forsvarsmenn þessara fyr-
irtækja að tuttugu ára góð reynsla
væri af þessum dælum í Banda-
ríkjunum og góð reynsla hefði
einnig fengist hjá nokkrum ís-
Ienzkum skipum sem eru búin
henni. Þau eru Bjarmi II, Harald-
ur AK 10, Gullver, Óskar Hall-
dórsson, Reykjaborg og Sigurpáll.
Þeir sögðu helztu kosti dælunn-
ar vera þá a8 skipin væru fljótari
að dæla en að háfa, þar sem dæl
an afkastar 400 tonnum á klst.
og geta því fyllt sig á skemmri
tíma og komist inn til löndunar.
Framhald á 15. síffu.
Ekki krafizt
meiri aðgerða
Að aflokinni dómsrannsókn
vegna kæru 48 sóknarmanna í
Möðruvallaprestakalli í Eyjafjarð
arprófastsdæmi út af atvikum f
sambandi við prófkosningu i fyrr
greindu prestakalli hinn 8. maí sl.
hefir skipaður saksóknari af þessu
tilefni, Hallvarður Einvarðsson,
eigi krafizt frekari aðgerða vegna
máls þessa. Er málið þar með nið
ur fallið af ákæruvaldsins hájfu.
8. september 1966 - ALÞYÐUBLAÐIÐ 3