Alþýðublaðið - 08.09.1966, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 08.09.1966, Blaðsíða 4
mtBtjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Bcnedikt Gröndal. — Eitstjómarfulb trúi: Elöur GuOnason.. — Símar: 14900-14S03 — Auglýstngasimi: 1480®. AOsetur AlþýOubúsiO viO Hverfisgötu, Reykjavík. — Pitíitsxaíöja AlþýGu bUOains. — Askiiftargjald kr. S5.00 — I iausásölu kr. 7.00 elntaktð. Úígcfandl AlþýOuflokkurinil. VERWQERD MORÐ HENDRIKS VERWOERDS, forsætisráð- iherra Suður-Afríku, hefur vakið hryggð allra rétt- ; sýnna manna. Það er ósigur fyrir mannkynið þegar gripið er til ofbeldis og mannvíga, þar sem skoðana- skipti og afl atkivæða ætti að ráða gangi mála. Morð stjómmálamanna hafa undantekningalítið þveröfug áhrif við það, sem morðinginn óskar eftir, svo að ó- dæðið þjónar engu nema málstað hins illa. Apartheid-stefna stjórnarvalda í Suður-Afríku er umdeild um víða veröld. Hún nýtur að vísu stuðnings meirihluta fólks þar í landi, en þó virðfst forustumönn um hafa þótt óhjákvæmilegt að láta henni fylgja ó- | dulbúið lögregluríki. Stefnan og framkvæmd hennar eru því þyrnir í augum frjálslyndra manna hivarvetna. ÁFTURHALD DEILUR hafa verið um sjónvarpsmál hér á landi síðustu misseri, og eru þær þáttur í menningarlegum og þjóðernislegum umbrotum. Er varla ofsagt, að sú stefna, sem þjóðin nú tekur í þessum málum, muni hafa víðtæk ábrif á þróun menningar og þjóðernis ís- lendinga í framtíðinni. -Margar sérkennilegar og óvæntar skoðanir hafa kom ið fram í þessum umræðum. Leit mun þó vera að eins skýrri stefnuyfirlýsingu og birtist í útvarpsgagn rýni Morgunblaðsins í gær. Greinin er undirrituð af höfundi, sem ber ábyrgð á henni. En það er athyglis- vert, að maðurinn hefur verið sérstaklega ráðinn af Morgunblaðinn til að skrifa um þessi mál, og hlýtur blaðið því að telja skoðanir hans að minnsta kosti boðlegar, ef ekki sérstök ástæða til að koma beim á framfseri. Gagnrýnandinn sagði meðal annars: „Ég er á sama máli, tel sjónvarp hér ekki tímabært, þarf miklu meiri undivbúning og verður alltof dýrt ef nokkur mynd á að verða á því. Ég hef ekki sjónvarp og langar ekki til að hafa það. Hef stundum horft á 1 Keflavíkur-sjónvarpið, tel það meinlaust, — meinlaus ara en dægurlagafarganið enska eða ameríska í út- varpinu, þó er ég ekki hræddur um að íslenzk menn- ing muni líða undir lok af því. Áhugaleysi fólks á sjálfstæði landsins er miklu hættulegra og skortur á föðurlandsást hjá fjölda manna nú. Fyrir og eftir alda móíin var sjálfstæðisbaráttan höfuðáhugamál nær allra ungra manna, þrátt fyrir almenna fátækt, þá var land okkar elskað og treyst á það. Ég er nú kominn á þá’ undarlegu skoðun að nokkur fátækt sé þjóðinni hollari en mikil velmegun alls fjölda fólks, eins og nú er.“ Þetta er memiingarhugsjón gagnrýnanda Morgun- bl^ðsins. — Ekkert íslenzkt sjómvarp, bara Keflavík, Ofimikil velmegun, hér vantar fátækt. 4 8. september 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ Þýzkir kvenskór Ný sending - fallegt úrval SKÓVAL Austurstræti 18 (Eymundssonarkjallara) Karlmannaskór frá Þýzkalandi Ný sending + / SKOBUÐ AUSTURBÆJAR Laugavegi 100. á krossgötum ★ EIN ÞÝÐINGARMESTA BÓKAÚTGÁFAN. Ríkisútgáfa námsbóka er ein þýð- ingarmesta útgáfustarfsemi á íslandi. Hún sér fyrir bókakosti fyrir nemendur skyldunámsstigs og er það mikið hlutverk. Kennslubókin skiptir nemendur miklu og getur haft áhrif á áhuga þeirra og námsárangur. Þess vegna er ólijákvæmi- legt að leggja ríka álierzlu á útgáfu og notkun góðra kennslubóka. Fyrir nakkrum árum heyrðist oft sú gagnrýni, að kennslubatkur ríkisútgáfunnar væru langt frá því að vera góðar. Þótti frágangur þeirra fátæklegur og myndskreyting oft harla ó- fullkomin, en bækurnar í heild ólíklegar til að vekja virðingu og áhuga nemenda. Á þessu hefur orðið mikil breyt- ing til batnaðar undanfarin ár. Kennslubókunum befur farið fram hröðum skrefum og frágangur þeirra allur batnað. Er þetta mikið ánægjuefni og hefur vaki'ð athygli bæði kennara og foreldra. Er rétt að halda áfram að hlúa að þessari útgáfu, því að menningarþjóð á að fá börnum sínum góðar og vel gerðar bækur til náms. ★ BÓK UM STARFSFRÆÐI. Auk þess aö bókunum fer fram eru að koma til skjalanna ýmsar nýjar kennslu- greinar, sem nauðsynlegar eru fyrlr ungt fólk í nú- tíma þjóðfélagi. Þetta eru ekki allt greinar, sem kenndar eru samfellt heil skólaár, heldur má bæta þeim við annað og koma þeim að. Nýjasta dæmið um slíka fjöl- hreytni er kennslubók í starfsfræði. Er starfs- fræðslan — uppfræðsla unglinga um starfsval — þannig að festa rætur í skólakerfinu. Samkvæmt upplýsingum bókarinnar eru 1-2000 störf til á ís- landi, svo að úr miklu er að velja og fer ört vax- andi. Er störfum skipt í 10 flokka eða starfshópa og er hætt við, að þeir flokkar þurfi fljótlega að x'erða eitthvað fleiri. En einstök atriði skipta hér ekki eins miklu máli og sú staðreynd, að bók er komin út og á að notast í skólunum. Um starfs- val segir í inngangi bókarinnar: „Verkaskiptingin er í rauninni samvinna og samhjálp allra þegna þjóðfélagsins í lífsbaráttunni. Því er það mikilvægt, að hver ein- staklingur leggi sitt af mörkum í þessari samvinnu og bregðist ekki því hlutverki, sem honum hefur verið falið. ÖIl erum við háð því, að aðrir ræld störf sín sem skyldi. Sjálfum ber okkur því að gera slikt hið sama.”

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.