Alþýðublaðið - 08.09.1966, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 08.09.1966, Blaðsíða 16
Eldur hins opinbera f>að kom upp eldur fast við bæj ardyrnar hjá Reykvíkingum, en elökkviliðið hreyfði sig ekki út úr nýju slökkvistöðinni, þótt -tnargir hringdu í það og létu það Vita. Það voru nefnilega bara Þæjarhúsin í Engey, sem voru að fcrenna, og í þeim átti alls ekki að slökkva, (enda vandséð hvern- ig siökkviliðið hefði komizt þang aö, hefði það verið sent af stað), -jþví að bruninn var af manna- völdum. Nú hefur það að vísu komið fyrir áður, að kviknað hafi I af mannavöldum, og það ekki verið látið aftra því, að slökkvi- 4i(Öð kæmi á vettvang, en þessi Hruni var ekki aðeins af manna ■Völdum, hann var af fyrirmanna völdum, gerður samkvæmt skip- un hins opinbera. Hér var sem eé úm lögleg í kvekju að ræða og áuðvitað hafði slökkvilliðið íengið fyrirmæli um að skipta eér ekki af brunanum. Engeyjarhúsin voru orðin göm úl og úr sér gengin og hafa löng- tim verið höfuðstaðarbúum þyrnir I augum, því að þeir vilja hafa •ollt snyrtilegt og fallegt í kring- ^ tim sig. Upp á þetta var .þó lapp- að í fyrra, en þá brugðu nokkrir tmgir menn sér út í húsin og máJuðu. þau. Eftir þá aðgerð.litu þaö þokkalega út úr fjarska, þótt Ijafta blekkti vitanlega engan, eem kom nálægt þeim. En nú lielur málningin líklega verið farln að flagna af, því að stjórn- ervöldin ákvörðuðu allt í einu að láta brenna húsin og sendu bygg- ingameistara úr í eyna til að framkvæma þann verknað. Ekki er gott að segja, hvers vegna byggingameistari var val- lnn til íkveikjunnar. Helzt er að skilja af blaðafregnum, að hann hafi átt að athuga, hvort ekki kynni að vera nein nýtileg spýta í húsunum, og þá að bjarga henni, og sést bezt af þessu, hve hirðu- söm og nýtin á smámuni stjórn- arvöld vor eru. Hins vegar mun ekkert hafa verið þarna nýtilegt af viði, og var byggingameistar- inn þá Iátinn bera eld að öllu saman. Var í gærmorgun ekkert eftir í eynni nema rjúkandi rúst- ir og enn ■ fremur hluti af fjósi og byrgi frá hernámsárunum. Verður fjósið sjálfsagt jafnað við jörðu innan tíðar, en trúlega verður byrgið látið standa því að slikar bj'ggingar eru meðal þeirra fornminja, sem bezt eru varðveittar á þessu landi. Engeyjarbruninn var að sjálf sögðu allmikið ræddur manna á meðal í gær. Sumir létu í ljós furðú sína á því, að slökkviliðið skyldi ekki hafa verið látið ann- ast eldsvoðann, en það hefur auð vitað mesta þjálfun í að með- höndla eld. En auðvitað kom það ekki til greina af þeim nýtniá- stæðum, sem fyrr eru nefndar, og þeirri staðreynd, að ekki hefði verið hægt að aka á brunabílun- um á staðinn. Enn fremur hefði sú hætta verið fyrir hendi, að slökkviliðið hefði gleymt hlut- verki sínu og farið að hamast við að slökkva, þegar sízt skyldi, Nei, aðrir aðilar en slökkviliðið urðu auðvitað að framkvæma þetta. Hitt er réttmætari gagnrýni, sem einnig hefur heyrzt, að brun inn hafi verið látinn fara of snemma fram. Það hefði engan skemmt að leyfa húsunum að hanga uppi fáeinum mánuðum lengur. Þann tíma hefði mátt nota til að fylla þau af benzíni og öðrum eldmat og síðan hefði átt að kveikja í öllu saman á gamlárskvöld. Það hefði getað orðið áramótabrenna aldarinnar, og sjálfsagt hefði einnig verið að bjóða Guðlaugi Rósinkranz að kvikmynda brunana. en hann hefði getað notað hann fyrir Njálsbrennu í þeirri Njálumynd, sem hann ku dreyma um að búa til. En Engeyjarhúsin eru sem sagt fallin, og ólíklegt er að þar verði önnur hús reist í bráð. Kallarn- ir sem um langan aldur liafa not að húsin fyrir mið, verða að róa á aðrar fiskislóðir eða fara í land, ef þeir læra þá ekki bara að miða í öskuhauginn. — Eg þori að veðja, að Rússar geta ekki sýnt neitt þessu líkt. Glaður ég geng ei . sem glöggt á mér sér: húsin í Engey horfin eni mér. Og sjást eklci framar. Segir ljótt um það. En hrossfé sig hamar á höfðingjastað. Eyjan sú hin væna er öllu gengi firrt sem hauslaus hæna, hædd og Iítilsvirt. Gömlum manni vefst tunga um tönn, þegar hann les fréttir þess efnis, að gömlu húsin í Engey hafi verið brennd af stjórnarvöldimum. Þess verður sennilega ekki langt að bíða að hætt verði að setja gamalmenni á elli- heimilið. Það verður of dýrt. Ætli þeim verði þá bara ekki Iógað ósköp pent? Með öðrum orðum: ég vona að sem flestir sjái sinn vitj unartíma — við megum ekki ganga sofandi að feigðarósi... Þjóðviljinn Litli bróðir var settur í smá barnaskóla 1. september. Það fyrsta sem hann sagði við kennarann var svaka góð spæl ing. Hann sagði: — Kanntu nokkuð að kenna... Nú ætla þeir víst að loka fyr ir Kanasjónvarpið! Aumingja sextíumenningarnir! Fyrir hverju geta þeir nú barizt?

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.