Alþýðublaðið - 28.09.1966, Qupperneq 11
Valbjörn varð 2. og náði bezta árangri ársins, hann stökk 4,20 á stöng og sigraði.
Chelsea hefur for-
ystu í I. deild
Chelsea hefur nú forystu í I.
deild ensku knattspyrnunnar. Þeir
sigruðu Arsenal á laugardag með
3-1 og hafa ekki tapað leik á keppn
istímabilinu. Tambling, sem skor
aði fimm af mörkum Chelsea í
síðustu viku bætti tveim við í
leiknum á laugardag.
Stoke er í öðru sæti og vann
West Bromwich með 1-0.
Úrslit um helgina:
I. deild.
Blackpool—Manshester C. 0-1.
Chelsea—Arsenal 3-1. Leeds— Ev
eton 1-1. Leicster—Aston Villa
5-0. Liverpool—Sunderland 2-2
Manchester U.—Burnley 4-1. Néw
castle—Fulham 1-1. Sheffield W.
—Sheffield U. 2-2, Tottenham —
Nottingham F. 2-1. West Bromwieh
—Stoke 0-1. Westham Ham—So
uthhampton 2-2 . t
II deild. f-
Birmingham—Rother- ham 2-3.
Blackburn—Ipswich 1-2. Boltouu,
Framhald á 15. síðu. Vr--i
Frá frriggjalandakeppninni í tugjjraut:
Svíþjöð vann, en Island
hlauf 2. sæti og vann Dani
Ólafur Gudmundsson
setti tvö unglingamet
ÍSLENZKU tugþrautarmennirn-)
ir, sem þátt tóku í þriggja landa
keppninni í Olofström í Svíþjóð
um helgina stóðu sig með ágætum.
Að vísu sigruðu Svíar naumlega
en íslenzka sveitin vann Dani ör
ugglega. Svíþjóð hlaut 20638 stig,
ísland kom næst með 20417 stig,
en Danir voru þriðju með 20113
stig.
Valbjörn Þorláksson varð annar
í keppninni á eftir hinum efni
lega Dana, Jens Schmidt Jens
en, sem hlaut 7112 stig og setti
glæsilegt danskt met. Valbjörn
hlaut 6949 stig, sem er hans bezti
árangur á árinu og bezti árangur
íslendings í sumar. Þegar tekið
er tillit til þess, að Valbjörn hefur
lítið getað æft í mánuð vegna
meiðsla er árangur hans góður.
Hann reyndi að fylgja Dananum
eftir í síðustu grein tugþrautarinn
ar ,1500 m. hlaupinu, en þegar
hlaupið var rúmlega hálfnað var
hann hreinlega þrotinn að kröft
um og náði lakari tíma en venju-
lega enda var byrjunarhraðinn of
mikill fyrir Valbjörn.
Ólafur Guðmundsson stóð sig
mjög vel og hafði forystu eftir
fyrri dag og lauk keppninni á
nýju glæsilegu unglingameti, hlaut
6750 stig. Gamla metið átti Kjart
an Guðjónsson. 6703 stig. Þess
má geta hér, að sænska unglinga
metið er mun lakara erf afrek Ó1
afs. Ólafur sigraði í fjórum grein
um tugþrautarinnar og náði sín
um bezta árangri í tveim greinum
í fyrsta lagi í langstökki, en þar
setti hann nýtt unglingamet, stökk
7,23 m. Gamla metið átti Þor-
valdur Jónasson KR, en það var
7,16 m. Þá náði Ólafur sínum
bezta árangri í hástökki, stökk
1,75 m. Loks náði Ólafur sínum
bezta árangri í tugþrautarkeppni
í sex greinum.
Kjartan Guðjónsson hefur að-
eins einu sinni náð betra afreki í
tugþraut. Hann hlaut nú 6718 stig
Kjartan hóf keppnina heldur illa,
en sótti sig mjög síðari daginn
og náði þá sínum bezta árangri
í tveimur greinum, stangarstökki
stökk 3,65 m. og í 1500 m. hlaupi
hljóp á 4.47,3 mín.
Eftir fyrri dag keppninnar
höfðu íslendingar hlotið tveim stig
um meira en Svíar 10626 gegn
10624. Svíar tóku forystu í fyrstu
gein síðari dags, 110 m. grinda-
hlaupi. Eftir það sóttu íslending
ar mjög á og þegar síðasta greinin
hófst var munurinn aðeins 70 stig
19077 stig 19007. Svíarnir voru
sterkari í 1500 m. hlaupinu og þó
börðust landarnir mjög vel, en við
ofurefli var að etja. Sænskir frjáls
íþróttaleiðtogar voru ánægðir með
árangur sinna manná, af fjórum
keppendum náðu þrír sínum bezta
árangri, og sá fjórði sinni næst
beztu tugþraut. Tveir af Svíunum
voru nálægt því að bæta þrjátíu
ára gamalt met Olle Bexell.
Að keppni lokinni hélt bæjar
stjórn Olofström samsæti, þar
voru ræður fluttar og skipzt á
gjöfum.
ÚRSLIT:
Jens S. Jensen D. 7112 stig danskt
met.
Valbjörn Þorláksson, í. 6949 stig.
J. O. Lindkvist S. 6948 stig
T. Carbe, S. 6860 stig.
Á. Mattisson S. 6830 stig.
Ólafur Guðm.s. í. 6750 (ísl. ungl.
met.)
Kjartan Guðjónsson í., 6718 stig
Preben Olsen D. 6560,. stig.
Börge Nilsen D. 6441 stig.
Árangur vara manna:
Per von Scheele S. 6791,
A. SUnksen D. 6349.
Árangur Islendinga í einstök-
um greinum:
Valbjörn Þorláksson: 100 m.
hlaup 11,3 sek. langstökk: 6,76
m., kúluvarp 13.01 m. hástökk 1,78
m., 400 m. hlaup 51,0 sek. 110 m.
grindahlaup 15,8 sek., kringlukast
37,48 m., stangarstökk 4,20 m.
spjótkast 60,50 m. og 1500 m.
hlaup 5:15,2 mín.
Ólafur Guðmundsson: 11,0 — 7,23
— 10,99 - 1,75 - 49,9 — 16,6
— 30,82 — 3,40 — 52,93 - 4:28,3.
Kjartan Guðjónsson: 11,6 — 6,42
— 13,18 — 1,84 — 54,1 — 16,2
— 38,56 — 3,65 — 58,82 - 4:47,3.
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON.
setti 2 unglingamet.
KJARTAN GUÐJÓNSSON
næstbezta tugþrautarafrekið
28. september 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ ||jh