Alþýðublaðið - 05.10.1966, Side 6
Auðvitað ert þú mesti
fyrirmyndar eiginmaður í
víðri veröld. Þú hlýðir
andaktugur á hvert ein-
asta guilkorn, sem hrýtur
af vörum konu þinnar. Þú
kemur alltaf öðru hverju
með eitthvað óvænt
handa henni. Þú ert um-
burðarlyndastur allra eig-
inmanna. Þú svíkst aldrei
um að raka þig fyrir há-
degismatinn á sunnudög-
um, — já, — þú ert sann-
arlega ' gæddur öllum
þeim dyggðum* sem góð-
an eiginmann mega prýða.
Svaraðu spurningunum
hér á sfðunni — áður en
konan þín kemst í bær.
1. Hver eftirtalinna eiginleika
telur þú að sé ákjósanlegastur hjá
fyrirmyndar eiginmanni?
a) að vera vel til fara
•b) að vera þolinmóður og
skilningsríkur
'c) að standa hótt í mannfé-
lagsstiganum
d) að hafa ábyrgðartilfinningu
e) að þykja vænt um börn
f) að vera metorðagjarn
g) láta fjölskyldulífið sitja í
fyrirrúmi fyrir metorða-
girndinni
i
2. Hvaða eiginleikar skipta
mestu máli hjá eiginkonunni? Á
hún að vera:
a) uppáfinningasöm og
skemmtileg
b) kynþokkafull gyðja
c) góð og skilningsrík móðir
d) þykja vænt um börn?
e) góður félagi
3. Þú gleymdir brúðkaupsdcg-
inum ykkar. Hvernig er bezt að
bjarga málinu?
a) segja við hana: Það er hver
einasti dagur hátíðisdagur í
samlífi okkar
b) viðurkenna gleymskuna og
þykja það leiðinlegt
c) verða gramur yfir því að
vera minntur á minnisleys-
ið, eða kæruleysið
4. Ert þú maðurinn, sem
a) „er sannarlega maður til að
sjá fyrir konu sinni”?
b) ekki gæti þolað, að kona
hans hefði betri eða betur
borgaða stöðu en hann sjálf-
ur
c) hjálpar konunni við hús-
verkin, ef hún vinnur úti
eins og þú
5. Ef konan dáist að yfirmanni
sínum :
a) verður þú þá afbrýðissamur
og bannar henni að minnast
. á hann
b) vilt gjarnan heyra um hans
ágætu eiginleika og hefðir
ekki á móti því að hitta hann
við tækifæri
c) finnst þér stöðu þinni sem
húsbónda ógnað — og biður
þú konuna um að fá sér
annað starf
6. Dagurinn Þ vinnunni var erf-
iöur:
a) ertu geðvondur, þegar þú
kemur heim, og læturðu
konuna og börnin óspart
finna það?
b) reynirðu að bæla geðvonzk-
una niður og hugsar sem
svo: Það skal enginn taka
eftir rieinu óvenjulegu
c) ræðirðu málin í rólegheitum
við konu þína seinna um
kvöldið
d) eða heldurðu fjölskyldunni
alveg fyrir utan vandamál
vinnunnar
7. Konan þín hefur þegið boð
fyrir þína hönd um fjölskyldu-
heimsókn til hennar fólks:
a) Skamníastu í marga daga
fyrirfrám, en ferð samt, er
þar að kemur
b) neitarðu að fara, og þvingar
konuna til að senda afboð,
þótt það komi henni í tals-
verð vandræði
c) læturðu í ljós ánægju konu
þinnar vegna
8. Þér berast fréttir, eða
kjaftasögur um einhver atvik í
lífi konu þinnar áður en þið
kynntust, sem hún aldrei hefur
minnzt á. Hvað gerirðu?
a) kannar málið án vitundar
hennar
b) spyrð hana nánar um það
í ró og næði
c) lítur svo á að það, sem
skeði áður en þið giftuð
ykkur, komi þér ekki við
d) sakar hana um að hafa leynt
þig einhverju, sem máli
skipti
9. Þið eruð í gleðskap, og þú
ert ekkert dansljón, en konan
dansar hins vegar mikið við hina
og þessa. Hvernig bregzt þú við?
a) leyfir henni óátalið að
dansa eins og hún vill
b) skemmir fyrir henni með
því að heimta að þið farið
snemma heim
c) finnst heiður að því, að kon-
an þín skuli vera svona vin-
sæl
d) ertu fúll við hana í fleiri
daga á eftir
10. Hvers konar kýmnigáfu
hefur þú? (svarist með já eða nei):
a) Skellihlærðu, ef þið eruð
að fara í samkvæmi og renni
lás á kjól konu þinnar bil-
ar rétt áður en þið eruð að
leggja af stað
b) hefurðu skemmtun af því,
ef krakkarnir þínir hafa
svarað geðvondu kerling-
unni í næsta húsi sniðug-
lega, en þó ekki með fullri
kurteisi
c) finnst þér sniðugt, ef konan
þín hrasar á götu?
d) geturðu hlegið, ef þú sjálfur
mismælir þig illilega
11. Hvaða afstöðu hefurðu til
klæðnaðar konu þinnar (svarið
öllu):
a) heimtar að hún klæði sig
eins og þér finnst fallegt
b) tekurðu ef til vill alls ekki
eftir því hvernig hún lítur
út
c) viltu að konan þín sé vel-
klædd, -jafnvel þótt það kosti
dálítið
d) ertu stoltur, eða verðurðu
vandræðalegur, ef konan þín
vekur athygli fyrir að vera
vel og smekklega klædd
12. Hvernig ertu á morgnana:
a) leyfirðu konunni óátalið, að
6
vera svolítið súi'ri, þegar þið
eruð nývöknuð
b) heimtarðu að hún stjani við
þig, ef þið bæði viljið lúra
fram eftir (svarið báðum)
13: Læturðu konuna um að-
skapa huggulegt andrúmsloft á •
heimilinu:
a) Kemurðu stundum óvænt
heim með flösku af borðvíni
á leiðinlegum miðvikudegi
b) sleppirðu því að raka þig-
og bursta tennurnar á sunnu
dögum, þegar þú ætlar
„bara að vera heima.” 1
c) hugsarðu vel um börnin, ef
þú ert barnapía, meðan hún
fer í saumaklúbb
14. Ferðu oft út einn, og á
hvaða forsendum :
a) nei
b) Já, vegna þess að hjón hafa
rétt til ákveðins einkalífs
hvort um sig.
c) til að sýna vinum þínum að
þú sért ekki konuþræll
d) af því að konan vill helzt
alltaf vera heima
e) af því að það eru alltaf svo
mikil læti í krökkunum?
15. Hefur þú síðastliðinn mánuð
af sjálfsdáðun.
a) komið krökkunum í rúmið
b) þvegið upp eftir matinn
c) fært frúnni morgunkaffi í
í'úmið'
d) gert við ýmislegt smálegt á
heimilinu
(kross fyrir hvert jákvætt
svar) j
16. Ef konan hefur eytt um-
fram það sem henni var ætlað til
að framreiða eftirlætismatinn
þinn, segirðu þá:
a) heldur þú, að peningar vaxi
Framhald á bls. 11
5. október 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ