Alþýðublaðið - 11.10.1966, Blaðsíða 3
Níimdi október er dagur
Leifs heppna Eiríkssonar og-
var þess mjnzna með stuttri
athöfn við Leifsstyttuna á
Skóiavörðuhæð síðastiiöhin
sunnudag. Þrátt fyrir kalsa-
veður var allmargt fólk þar
■amankomið klukkan laust
fyrir tvö, en þá flutti Þór
hallur Ásgeirsson, ráðuneyt
isstjórf, forseti Íslenzk-Am-
eríska félagsins stutt ávarp
Emil Jónsson utanríkisráðr-
herra hélt eíffan ræðu og
ambassádor Bandai'íkjanna á
ísiandi James K. Penfield
hélt einníg stutta ræðu.
Skátar, íslenzkir og banda-
rfskir, stóðu heiðursvörð
meðan athöfnin fór fram,
en lögreglukórimi söng síð
an undir stjórn Páls Kr. Páls
sonar. Meffal viðstaddra við
athöfnina var forseti íslands
hr. Ásgeir Ásgeirsson.
Samband kennara í verzl-
unarskólum stofnað
Sl. sunnudag, 9. okt. var geng
ið frá stofnun Sambands verzl
unarskólakennara. Forsaga félags
stofnunarinnar ec þessi: Síðast-
liðið voru komu skólastjórar og
kennarar Verzlunarskóla íslands
og Samvinnuskólans á Bifröst sam
an á fund, sem haldinn var í
húsakynnum Verzlunarskólans.
Þar fluttu skólastjórarnir ræður
og hvöttu til nánara samstarfs
verzlunarskólakennara í landinu
Var á fundinum ákveðið að und
irbúa stofnun félagssamtaka
þeirra. Nefnd vor kosin að gera
drög að lögum samtakanna. I
nefndinni áttu sæti Sigurður Ingi
mundarson alþingismaður og Valdi
mar Hergeirsson yfirkennari frá
Verzlunarskóla íslands, en Snorri
Þorsteinsson yfirkennari frá Sam
vinnuskólanum.
Á stofnfundinum, sem haldinn
var í hátíðasal Verzlunarskólans,
gerði Sigurður Ingimundarson
grein fyrir lögum hins nýja sam
bands og skýrði einstakar grein
ar.
Um tilgang samtakann segir svo
í lögum þess:
„Hlutverk sambandsins er að
stuðla að bættri verzlunarmennt
ún í landinu.
Tilgangi sínum hyggst samband
ið ná með því að efla persónu
leg kynni verzlunarskólakennara
og stuðla að samstarfi þeirra um
framfarir og endurbætur á náms
efni og kennsluaðferðum.“
Um aðild að samtökunum gilda
þessi ákvæði:
„Fullgildir félagsmenn eru fast
ir kennarar þeirra sérskóla sem
annast verzlunarmenntun. Stunda
Framhald á bls. 15
Kosin prest-
ur í Hrísey
Prestskosning fór fram í Hrís
eyjarprestakalli í Eyjafjarðarpróf
astsdæmi annan október sl. At
kvæði voru talin í skrifstofu bisk
ups í gær. Á kjörskrá í prestkall
inu voru 328, þar af kusu 121. Um
sækjandi var einn, Séra Kári Vals
son og hlaut hann 120 atkvæði.
Einn seðill var auður. Kosningin
var ekki lögmæt.
Á blaðamannafundi hjá þjóffleikhússstjóra í gær: Frá vinstri: Baldvin Halldórsson, Sigurður Nor :
dal, Gufflaugur Rósinkranz og Palmer. (Mynd.-Bi. Bl.) :
Fjölbreytt leikár aö hefj- |
/
ast i
Tveir einþáttungar eftir Matthías Jóhannessen
sýndir í Lindarbæ
N. k. fimmtudag verður
sjónleikurinn „Uppstigning“
eftir Sigurð Nordal frumsýndur
í Þjóðleikhúsinu. „Uppstign-
ing“ mun vera eina heils
kvölds leikrit höfundar og var
fyrst sýnt í Iðnó fyrir 20 ár-
um. Atburðir leikritsins ger-
ast í þorpi, einhvers staðar á
suðurströnd landsins, í lok sið-
ari heimsstyrjaldar. Leikritið
er nú sýnt í tilefni af áttatíu
ára afmæli höfundar og mun
Baldvin Halldórsson annast
leikstjóm.
Leikendur í „Uppstigningu"
eru 13 talsins; Guðbjörg Þor
bjarnardóttir, Erlingur Gísla-
son, Helga Valtýsdóttir. Mar-
grét Guðmundsdóttir, Anna
Guðmundsdóttir, Kristbjðrg
Kjeld, Bríet Héðinsdóttir R6-
bert Arnfinnsson, Bessi Bjama
son, Rúrik Haraldsson, Valur
Gíslason, Jón Sigurbjörnssan
og Jónína Jónsdóttir.
Framhald á bls. 15
Svo sem á undanförnum árum
mun Sinfóníuhljómsveit íslands
efna til skólatónleika í vetur. Ann
ar flokkur skólatónleikanna verður
fyrir börn á aldrinum 6—12 ára,
en hinn flokkurinn fyrir 16—21
árs skólafólk. í samnáði við
fræðsluyfirvöld Reykjavíkur hefur
verið ákveðið að hafa tónleika
þessa með nokkuð öðrum hætti
en áður. Þeir verða haldnir ut
an skólatíma barnanna, þannig að
þau böm, sem eru í skóla fyrir
hódegi sækja tónleika eftir há
degi, og öfugt. sem sagt kl. 10,30
og 2,30. Foreldrar sjálfir eru því
ábyrgir fyrir því að börnin, sem
áhuga hafa, komist á tónleikana
Önnur hreyting er sú, að í vet
ur gefst börnum kostur á að kaupa
áskriftarskirteini á alla fjóra tón
leikana í einu fyrir kr. 100.00.
Sala áskriftarskírteina þeirra
hefst í Ríkisútvárpinu miðvikudag
inn 12. október og lýkur líj. okt
óber, en fyrstu tónleikarnir verða
20. október. Öilum foreldrum
skólabarna á aldrinum 6—12 ára.
hefur verið sent bréf með aðstoð
skólanna, þar sem þeir gangast
inn á þetta nýja fyrirkomulag wieð
ur^dirskrift sinni. ForeWrurii
yngstu barnanna mun einnig verðá!
heimilt að kaupa áskrift tíl að
geta fylgt bömum sínum ef ósk
að er. t j
Öllum framhaldsskólum hefui’
einnig verið send tilkynning unV
hina átta tónlelka fyrir 16—21
Framhtald á 15. sfíSn.
11. október 1966 - ALÞÝÐUBIAÐIÐ J