Alþýðublaðið - 15.10.1966, Page 10
Menn úr vopnahlésnefnd SÞ rannsaka leifar jeppa, sem sprengdur var í loft upp nálægt landamær
um Sýrlands.
Ótryggur
Framhald af 6. síðu.
Jiafa að undanförnu sýnt mikinn
áhuga á Sýrlandi og sent þangað
mikið magn vopna og fjölmennar
sendinefndir „sérfræðinga" sem
eru á góðri leið með að gera Sýr-
land að geysistórri herstöð.
Að sögn ísraelsku leyniþjónust-
unnar hefur í fyrsta sinn orðið vart
við sovézka taeknifræðinga við
sýrlenzku UHndamærin, en ann-
ars er þess stranglega gætt, að
eníair ókunnir fari'inn á þessi
svæði. Rússarnir eru óbreyiíir
borgarar, en þeir virðast vinna 'Sð
smíði skotpalla fyrir eldflaugar
hjá landamærunum. Þetta fer
fram á svæði, þar sem Sýrlending-
ar, hafa grafið skurði til að „stela
vatni“ frá stíflu þeirri, sem
ísraelsmenn eru að reisa í Jórdan
og á sama svæði hafa ísraelsmenn
tvívegis gert árásir á sýrlenzk
mannvirki
Sýrlendingar fara ekki í laun-
kofa með, að í landinu er mikill
fjöldi sovézkra sérfræðinga og
einnig að minnsta kosti 300 kín-
verskir sérfræðingar. Sumir telja
að ástæðan til þess að Rússar hafa
sent þennan mikla fjölda sérfræð-
inga til Sýrlands sé sú, að þeir
vilji vega upp á móti áhrifum Kín
verja. En Sýrlendingar hafa ekkert
um það sagt, hve víðtæk hern-
aðaraðstoð sú er, sem Rússar veita
þeim.
. Hinn vinstrisinnaði forsætis-
ráðherra Sýrlands, Zouayen, sem
brauzt til valda í 15 stjórnarbylt-
ingunni, sem átt hefur sér stað
í Sýrlandi frá stríðslokum, í marz
sl., fór í heimsókn til Moskvu í
apríl. í fréttatilkynningunni, sem
birt var eftir heimsóknina, sagði
að Rússar hefðu heitið aðstoð við
smíði stíflu i ánni Efrates. Ekkert
var sagt opinberlega um hermála
samning þann, sem einnig var
undirritaður, en á því virðist eng-
inn vafi leika að gert var ráð fyrir
víðtækri aðstoð í þessum samn-
ingi. Hinn 27. september kom að-
stoðarutanríkisráðherra Rússa,
Vladimir Semjonov, í heimsókn til
Sýrlands, og í þessari heimsókn
virðist hafa verið samið um aukna
hernaðaraðstoð.
★ VÍGBÚNAÐUR
i Fyrir marzbyltinguna höfðu Sýr
j lendingar þegar fengið 1100 bryn-
I varða bíla, 145 orrustuflugvélar og
124 hraðbáta frá austantjaldslönd-
unum. Nú herma áreiðanlegar
i heimildir, að Rússar hafi heitið
að útvega Sýrlendingum vopn að
verðmætum 9 milljarðar íslenzkra
króna.
Vopnin, sem send verða eru
m a. þessi: Átta loftvarnaeldflaugar
af igerðinni SAM-2, en sams konar
eldflaugar eru nú sendar til Norð
ur-Víetnam, og verður þeim kom-
ið fyrir 'á sex stöðum i Sýrlandi.
22 fallbyssur til varnar gegn skrið
drekum af gerðinni B-ll, fimm
til sex tundurspillar og 24 rat-
sjárloftkastarar. Seinna fær sýr-
lenzki flugherinn 50 orrustuþotur
af gerðinni MIG-21, og hafa fyrstu
þoturnar verið sendar til Sýr-
lands og Júgóslavíu.
Á undanförnum mánuðum hafa
að minnsta kosti 520 sovézkir liðs
foringjar og 800 tæknifræðingar
verið sendir til Sýrlands, 350
sýrlenzkir liðsforingjar hafa ver-
RÖSKIR SENDISVEINAR
óskast hálfan eða allan daginn.
Talið við afgreiðsluna, sími 14900.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ.
Minningarorð
Framhald af 7. síðu.
um, jafnt í hinum minnstu sem
og í hinum meiri ábyrgðarstörf-
um.
Þegar á kreppuárunum fyrir
t '
síðari heimsstyrjölaina, er atvinnu
leysi og fátækt kreppti að mörg-
um, var mér vel kunnugt um
gjafmildi Guðmundar og hjálp-
semi við þá, er erfíðast áttu, og
var hann ávallt frekar veitandi en
þiggjandi. Erú mér ennþá minnis-
stæð mörg slík atvik frá þeim
tíma.
Þegar ég nú við leiðarlok lít
yfir samstarf okkur Guðmundar
heitins um áratugi, hlýt ég að
tjá honum látnum beztu þakkir
mínar fyrir það, sem ég af honum
lærði, því að ávallt var fram-
koma hans mannbætandi.
Það lætur að líkum, að þar sem
aðalævistarf Guðmundar var
verkstjórn, hafði hann oft yfir
fjölmennum hópi að segja — og
bygg ég að fáa eða enga óvildar-
menn muni hann eiga úr þeim
hópi, enda bar hann ávallt hag
starfsmanna sinna fyrir brjósti,
jafnt og hann þjónaði húsbændum
sínum af trúmennsku, hver sem
þegar sézt til ferða þriggja slíkra * h*uí: átti, slíkt er ávallt
ið sendir til þjálfunar í Sovétrík-
junum.
Sovézkir ratsjárkafbátar hafa
fasta bækistöð í hafnarbænum
Ras-ibn-Hani í Sýrlandi, og hefur
kafbáta.
Rússar munu hafa sett það skil-
yrði fyrir þessari ‘hernaðaraðstoð,
að enginn hinna kínversku sér-
fræðinga í Sýrlandi fái aðgang
að vopnunum eða að sjá þau.
Rússar gera sér ekki einungis
grein fyrir möguleikunum á því,
að til styrjaldár kunni að draga
með Sýrlendingum og ísraels-
mönnum, heldur einnig fyrir mikil
vægi þess að hafa herbækistöð í
Miðausturlöndum í öðru tilliti.
Skammt frá E1 Hasseja í Norð
ur-Sýrlandi vinna hundruð sýr-
lenzkra verkamanna að smíði
risastórrar ratsjárstöðvar og
stjórna sovézkir verkfræðingar
yerkinu oig hermenn hafa gætur
á verkamönnunum. Ratsjárstöðin
verður aðeins 200 km. frá hinni
afar mikilvægu herstöð NATO hjá
Diyarbakir í Austur Tyrklandi.
★ EGYPTAR
Vopnasendingar Rússa og hinar
auknu árásir ísraelsmanna á
landamærunum, sem af þeim leið
ir, hafa orðið til þess, að Egypt
ar hafa á ný friðmælst • við Sýr
lendinga, en til þess er leikurinn
"f til vill gerður. Hinar sífelldu
byltingar í Sýrlandi og hið ótrygga
innanlandsástand har hefur Ieitt
til þess á undanförnum árum, að
Egyptar hafa dregið til muna úr
vopnasendingum sínum til Sýr-
lendinga og hætt þeim að mestu.
En fyrir nokkrum dögum kom
egypzk hermálasendinefnd í heim
sókn til Sýrlands, og á næstunni
fer sýrlenzk ráðherranefnd í
heimsókn til Kairo.
Allt þetta oig hið ótrygga ástand
á landamærum ísraels sýnir að
ástandið fyrir botni Miðjarða-
hafs hefur sjaldan verið eins ugg- I
vænlegt. ísraelsmenn kunna að
komast að þeirri niðurstöðu, að
þeir verði að koma í veg fyrir að
árásarvopn haldi áfram að hrúg
ast upp í grannríkjunum. Ekki er
endalaust hægt að svara ítrekuðum
ögrunum með mótmælaorðsend-
ingum.
vandfarin leið, svo að báðum
líki, en ég fullyrði, að það tókst
Guðmundi Jónassyni prýðilega.
Hann var trúmaður mikill og
trúði staðfastlega á framhald lífs
að þessu loknu. Nú hefur hann
fengið fullgildingu þeirrar trú-
arvissu við brottförina af jarð-
neska tilverusviðinu á æðri svið
lifsins. Og ég efast ekki um að
þar muni leið hins látna vinar
míns liggja hærra — eins og þrá
okkar allra, mannanna barna,
leitar, hærra, hærra og meira að
starfa Guðs um geim.
Ég kveð þennan látna heiðurs-
mann og þakka honum fyrir allt
samstarfið og samveruna.
Ég sendi aðstandendum hans
samúðarkveðjur við fráfall þessa
mæta manns. — Minningu hans
mun ég ávallt geyma en aldrei
gleyma.
Hafnarfirði í október 1966.
Óskar Jónsson.
Umbraumbamba
Frambald af 7. síðu.
mun hafa seilzt. Stutkú seinna
kemur þessi setning: „Hún horfir
ertnislega á piltinn, en hann
hugsar um partíið á eftir og
skyldi vera gott að sofa hjá
henni.” Hvaðan skyldi pró-
gramshöfundur hafa þá vit-
neskju? Tveimur línum neðár
stendur ennfremur: „Aðskorin
peysa að síðbuxum opinberar
margt, en hann fyllir upp í það,
sem á vantar.” Hann hver? og
fyllir upp í hvað? Og aðeins
einni línu neðar kemur þessi
setning: „Trúlofunarhringurinn
í vasanum.” Ekki var ég nú var
við það. Þá má ennfremur finna:
„Lögregluþjónninn fær sér í nef-
ið og veltir vöngum yfir því,
hvort að hann hafi krossað rétt á
kosningadaginn.” Ekki einn ein-
asti lögregluþjónn fyrirfinnst í
kvikmyndinni, ennþá síður, að
vart verði við, að einhver brúki
þar neftóbak. Ég ráðlegg Benedikt
Yiggóssyni að endurskoða mynd
þessa.
Eftir Umbarumbamba var sýnd
dönsk herragarðsvella með róman-
tískri væmni og yfirfull af
heimskulegum atriðum. Hefði ver
ið frekari ástæða til að sýna með
þá kvikmynd, er sýnd var með
Hljóma-myndinni út um lands-
byggðina, en eftir því, sem ég
bezt veit, var það músikmyndin
Jazz on a summer’s day eftir
Bert Stem, en ég bið þó menn
leiðrétta mig, fari ég með rangt
mál. Svo við snúum okkur aftur
að hugmyndafátækt Dananna, þá
hefur ekki verið haft fyrir því að
setja íslenzkt nafn á kvikmynd-
ina, heldur en hið danska heiti,
„Hallöj i himmelsengen“ látið
haldast við. Menn hefðu þess vegna
alveg eins getað sleppt því að
vera nokkuö að burðast við að
sýna þessa mynd á annað borð.
Eíniságripið af henni er að
uppsetningu til alveg í stíl við
efniságripið af Umbarumbamba,
þar sem hvergi er getið þeirra,
er að gerð myndarinnar hafa
staðið, ná heldur að minnzt sé á
einstaka leikara. Reyndar er leik-
stjóri þessarar myndar vinur
vor, Erik Balling, sem stjórnaði
79 af stöðinni, sem frægt er orð-
ið. Leikstjórn hans í Hallöj i
himmelsengen” er öll í molum
og handritið er greinilega gert
af fávita. En það er kvikmynda-
tökumaðurinn, sem sleppur til-
tölulega billegast út úr þessu öllu
saman. Látum svo útrætt um
„Halló í himnasænginni."
Sigurður Jón Ólafsson.
Vinnuvélar
TIL LEIGU.
Leigrjum ftt pússinsa-steypB-
brserivélar og hýólbörur.
Rafknúnir grjót- og múrhamnur
með borum og fleygiun.
Steinborvélar — Vibratorar.
Vatnsdælur o.m.fl.
LEIGAN S.F
Simj 23480.
áskriffasuniiiii er 14900
Rennibekkir til sölu
Nokkrir notaðir re’nnibekkir af mismun-
andi stæiðum. — Upplýsingar hjá Kolbeihi
Jónssyni tæknifræðing, sími 24260.
VÉLSMIÐJAN
J0 15. október 1966 /tLÞÞÝOUBLAÐIÐ