Alþýðublaðið - 22.10.1966, Síða 7
| É| v.V<v,;
:x:S:-::::::i:;:::;:í:i:i';::í
',vX;.,
■ ■
•' ' :
lÍliil^PÍIÍBIlllSÍÍ
llÍllllllMllglMM
MINNINGÁRORÐ:
Sigurður Jónsson frá Tálknafirði
og dáttursonur hans
í DAG, 22. október fer fram
frá Stóra-Laugardalskirkju í
Tálknafirði útför Sigurðar Jóns-
sonar frá Innstu-Tungu í Tálkna-
firði, og dóttursonar hans, Sig-
urðar Theodórssonar, Réttarholts
vegi 55, vélvirkjanema úr Lands-
smiðjunni, sem hvarf af dansleik
frá félagsheimilinu Birkimel á
Barðaströnd 24. júlí sl.
Sigurður Jónsson var fæddur
29. ágúst 1878 að Dynjanda í Arn-
aríirði, sonur hjónanna Jóns
bónda á Dynjanda Bjarnasonar
ættaður frá Söndum í Dýrafirði,
og konu hans, Þorbjargar Sigurð-
ardóttur frá Hagakoti í Ögursveit
Guðmundssonar sterka á Kleifum
í Skötufirði.
Sigurður Jónsson ólst upp í föð-
urhúsum í stórum systkinahópi.
Snemma fór Sigurður til sjós,
bæði á opin skip sem þilskip, eins
og títt var á þeim árum.
Árið 1905 gekk Sigurður Jóns-
son að eiga eftirlifandi konu sína
Sigríði Guðmundsdóttur úr Hok-
insdal í Arnarfirði. Þau áttu þrjú
börn: Þorbjörgu, gifta Andrési
Pinnbogasyni skipstjóra í Reykja-
vík, Karólínu, gifta Theodóri ÓL
afssyni vélvirkja í Reykjavík, og
Guðmund, sem þau misstu á ferm-
ingaraldri. Tóku þau þá fósturson,
Guðmund S. Guðmundsson, sem
bætti þeim upp sonarmissirinn og
hefur æ síðan búið með þeim.
Sigurður Jónsson bjó á ýmsum
stöðum í Arnarfirði fram til árs-
ins 1920, er þau hjón fluttu að
Litlu-Eyri í Bíldudal, þar sem þau
bjuggu til ársins 1925, er þau
fluttu til Tálknafjarðar og bjuggu
þar lengst af í Ínnstu-Tungu. En
Framhald á bls. 15
Sigurður Theódórsson
Sigurður Jónsson
NÝJUNG FLUGFÉLAGSINS - 5U% AFSLÁTTUR AF FLUG-
FARGJÖLDUM TIL SKANDINAVIU FYRIR FJÖLSKYLDUNA
lð6#c--- ALþÝDUBLADiÐ '%
5
Fyrirsvarsmaður Ijölskyldu greiðir fullt fargjald - aðrir f jölskylduiiðar hálf^
Kynnið yður hin nýju fjölskyldufargjöld Flugfélagsins, sem gilda frá 1. nóv-’
ember til 31. marz Ailar nánari upplýsingar veita FSugfélagið og ferðaskrif
stofurnar
FLUCFELAG ÍSEJLMlUS