Alþýðublaðið - 28.10.1966, Blaðsíða 2
VÍETNAM - TILLAGA:
Einar Olgeirsson (K) og
tveir flokksbræður hans þeir
Gils Guðmundsson og Ragnar
Arnalds háfa lagt fraip tillögu
til þingsályktunar um, að Al-
þingi lýsi samþykki sínu við
tillögu U Thants til lausnar
á. styrjöldinni í Víetnam.
HÍKISBORGARAR:
• Frumvarp til laga um all-
maiga nýja ríkisborgara kom
til fyrstu umræðu i neðri deild
í dag og mælti Jóhann Haf-
steins dómsmálaráðherra fyr-
ir málinu, sem var vísað til 2.
umræðu og allsherjarnefndar.
LANDHELGISSEKTIR:
Frumvarp til laga um breyt
ingu á lögum um bann gegn
botnvörpuveiðum kom til 1.
umræðu í neðri deild í dag og
mælti Jóhann Hafstein dóms-
málaráðherra fyrir málinu, og
gerði grein fyrir efni þess, en
frumvarpið gerir ráð fyrir að
isektir fyrir landhelgisbrot
verði hækkaðar allverulega,
og ráðstafanir gerðar til að
unnt verði að koma fram við-
urlögum í tilfellum þar sem
erfitt væri um vik samkvæmt
núgildandi ákvæðum.
Lúðvík Jósefsson )K) kvað
þetta frumvarp koma til móts
við hugmyndir sínar í þessum
«fnum, en þó teldi hann að
hækka þyrfti sektirnar ennþá
meira, og ætti nefndin, sem
málið fær til athugunar að í-
huga hvort ekki væri rétt að
hafa sektirnar enn hærri.
Lúðvík hefur verið fjarver-
andi það sem af er vegna veik-
irtda, en hann tók aftur sæti
þar í gær,
ffÝ MÁL:
Lögð var fram á Alþingi í
gær tillaga til þingsályktunar
•frá Þórarni Þórarinssyni
<F),og Einari Ágústsyni (F) um
það að rannsókn fari fram á
kaupanaStti tömakaupis verka-
manna í dagvinnu, og gert ráð
fyrir að kjararannsóknarnefnd
muþi falið það verkefni,
og ; verði athugun þess lokið
serp fyrst.
Enn eitt eyðijarðarsölufrum
varp var lagt fram á þingi í
gæ;\ Fjallar það um að ríkis-
stjorninni verði veitt heimild-
til að selja eyðijörðina Vola
í íiraungerðishreppi. Ráðgert
er 'að bóndinn á næstu jörð,
Laék, fái jörijina keypta.
Flutningsmenn þessa frum
vái|>s eru þeir Ágúst Þorvalds
són* (F) og Ragnar Jónsson (S).
Kínverskum
ráðherra
vikið frá
Búdapest og Peking: 27. 10 (NTB
AFP.) — Blað rauðu varóliðanna
í Peking hefur skýrt frá því að
Liu Ssin Chuen aðstoðarutanríkis
ráðherra hafi verið vikið úr em
bætti, þar sem liann hefði torveld
að’ frainsókn menningarbyltingar
innar, að sögn fréttaritara ung
versku fréttastofunnar MTI í Pek
ing í dag.
Liu Hsin Chuen hefur gegnt
mikilvægum embættum í kín
versku utanríkisþjónustunni. Hann
i varð’ ^lstcaarutaifríl'íisráðljierra)
19G4.
Mótmælaaðgerðirnar fyrir utan
sovézka sendiráðið í Peking fjör
uðu út í dag, en þær hafa staðið
alla þessa viku, hermir Reuter.
Gatan, sem sendiráðsbyggingin
stendur við er enn full af áróð
ursspjöldum með árásum á hina
sovézku endurskoðunarstefnu. Bú
ast má við nýjum mótmælaaðgerð
um gegn Rússum, þegar kínversku
stúdentarnir, sem vísað var úr
landi í Sovétríkjunum, koma til
Kína einhvem næstu daga.
Stúdentarnir fóru frá Moskvu í
járnbrautarlest í morgun. Fleiri
kínverskir stúdentar bætast í hóp
inn í Irkutsk.
Þúsundir rauSra varðliða eru nú
farnir frá Peking vegna mikilla
kulda í höfuðborginni. En í.þeirra
stað komu unglingar frá öðrum
landshlutum
Frá Moskvu berast þær fréttir
að sovétstjórnin hafi í dag mót
mælt mótmælaaðgerðunum fyrir
utan sovézka sendiráðið í Peking
Mótmælaorðsending var afhent
kínverska sendifulltrúanum í
Moskvu að sögn Tass.
□ BONN: — Vestur þýzka stjórn
in hefur staðfest stuðning sinn
við beiðni Spánverja um aukaað
ild að Efnahagsbandalaginu. Þetta
var staðfest að loknum viðræðum
utanríkisráðherra landanna.
Skáldkonan Sara Lidman í heimsókn hér
Rvík, SJO.
Iliugað er kominn til lands-
ins sænska skáldkonan Sara.
Lidman og mun hún flytja
fyrirlestur um ástandið í Víet-
nam. Kemur hún hér í boði
Mennlngar- og friðarsamtaka
íslenzkra kvenna, en þessi fél-
agsskapur hefur mikið reynt
til að fá hana hingað. Var leit
að til 24 verkalýðsfélaga t'il
styrktar þessn málefni og
lögSu 18 þeirra þegar fram fé
til þess. Einnig hefur IUthöf-
undasamband islands lagt
þessu máli sinn stuðning.
í dag heldur Sara Lidman til
Akureyrai- og mun halda þar
sinn fyrsta fund um kvöldið.
N.k. sunnudagskvöld heldur
hún fyrirlestur í Austurbæjar-
bíói og mun þá einnig sýna
kvikmynd frá Suður-Viet-
nam. Síðasti fyrirlestur henn
ar hérlendis verður svo á veg
Hm sænsk-íslenzka félagsins,
sem verður á miðvikudaginn.
Sama Ikvöld mun félagsskapur
inn Menningar- og friðarsam
tök íslenzkra kvenna kveðja
hana með kaffidrykkju, en'
skáldkonan dvelst hér aðeins
í eina viku.
Á fundi með fréttamönnum
í gærdag, sagðist Sara Lidman
lengi hafa dreymt um að koma
hingað til íslands. Sagði hún
að erindi þau, er hún héldi
hérna fjölluðu um atburði síð
ustu ára í Viet Nam og ihvern
ig hinir friðsömu Viet Nam
búar hefðu orðið fyrir alvar
legum áföllum vegna hemað
ar Bandaríkjanna Lagði hún
mikla áherzlu á, að fram kæmu
Ifyrirspujrnir á þessum fyrír
lestmm frá áheyrendum.
Sara Lidman hefur dvalist
■eitt ár í Norður Vietnam og
kynnzt þjóðinni mikið af eig
in raun. Undraði hana, hversu
atvinnulíf og raunar félagslíf
líka stæði þar með miklum
blóma. Hvernig fólkið þar
væri yfirleitt toamingjusamt,
þrátt fyrir sprengjuárásir
Bandaríkjamanna. Börn sæktu
skóla og menn gengju til vinnu
eins og toverjir aðrir borgar
búar. Sara hefur einnig ferð
ast vlðar, m.a. til Kína og Afr
iku. Þá hefur hún og haldið
fyrirlestra um flest Norður-
löndin. í|}
Sara Lidman er ættuð frá
Vestbotten í Svíþjóð og lauk
fil. kand. prófi frá háskólanum
í Stokkhólmi. Fyrstu þrjár bæk
ur hennar eru frá bernskustöðv
um hennar og kom sú fyrsta
þeirra ,,Tjardalen“, út 1953.
Síðustu bækur hennar eru hins
vegar frá ýmsum þjóðernum
og þá lituðum þjóðum. Meðal
íslenzikra lesenda er „Sanur
minn og ég“ hennar kunnasta
bók. Nýjasta bók hennar fjall
ar um 'áistandið í vlietnam,
„Samtöl í Hanoi", og kom hún
út 8. okt sl.
I
Flng¥ÍHlnriiiii fuSEgerður
en vígsSan hefur dregizt
Raufarhöfn GÁ
OO.
Nær tveir mánuðir eru nú lið-
nir síðan flugvöllurinn hér var
fullgerður en hann hefur ekki
verið tekinn i notkun enn sem
komið er Ástæðan mun vera sú
að til stendur, og hefur reyndar
staðið til lengi, að vígja nýja flug
völlinn með athöfn. Skömmu eftir
að verkinu lauk var væntanlegur
hingað 30 manna 'hópur að sunnan
til að framkvæma og vera við-
staddur vígsluna. Búið var að
panta húsnæði fyrir veizluhöld og
baka mikið af kökum. En þetta
fór ekki betur en svo að á fyrir-
huguðum veizludegi versnaði veð-
ur og ekki var flugfært.
Allt síðan hafa Raufarhafnar-
búar beðið eftir vígsluihópnum,
en erfiðlega gengur að koma hon-
um norður vegna anna vígslu-
manna. Þegar að því kemur að
flugvöllurinn, sem er vandaður að
allri igerð og fullkominn, verður
Framhald á 15. síðu.
Áldan þakkar Fiskifélaginu
Skipstjóra og stýrimannafélagig
Aldan. hefur sent Fiskifélagi ís-
lands þakkir fyrir þá framkvæmd
að ráða tæknifróðan mann, lir.
Hörð Frímannsson, meðal annars
til ráðuneytis útvegs- og skipstjórn
armönnum um meðferð og viðliald
hinna margvíslegu og viðkvæmu
fiskileitar- og ratsjártækja. Jafn
framt þessu hefur félagið lagt til
að sérstök námskeið þessu viðvíkj
Framhald á 10. síðu.
Aðalfundur FUJ
í Hafnarfirði á
mánudagskvöld
Aðalfundur FUJ í Hafnar-
firði verður haldinn næstkom
andi ínánudagstovöld kl. 8,30
síðdegis í Alþýðuhúsinu, Hafn
arKrði. Venjuleg alðalfundar-
störf. Félagar eru beðnir að
fjölmenna og mæta tímanlega.
Stjórnin.
□ KENNEDYHÖFÐA: - Banda
ríkjamenn hafa skotið á loft nýrri
Centaur-eldflaúg, og er hér um
að ræða lið í undirbúningi fyrir
hugaðrar tunglferðar ómannaðs
geimfafs „Surveýor-3“ í janúar.
2 28. október 1966 - ALÞÝÐUBLAOIÐ