Alþýðublaðið - 18.12.1966, Qupperneq 1
Sunnudagur 18. desember 1966 - 47. árg. 285. tbi. - VERÐ 7 KR.
MMMM)
SEUA RUSLIÐ EN GEYMA
GÖÐU KARTORURNAR
Reykjavík, EG.
Mikil og almenn óá-
nægja hefur lengi ríkt
með viðskipti Grænmet-
isverzlunar landbúnaðar-
ins, sem meðal annars sér
um sölu og dreifingu á
kartöflum til borgarbúa.
Um skeið hefur það verið svo,
1 að einu kartöflurnar, sem hér hafa
(fengizt í verzlunum hafa verið
smælki, sem erlendis þætti varla
bjóðandi til manneldis.
Nú er búið að flytjá til landsins
rúml. 400 smál. af gijðum kart-
öflum frá Danmörku og Póllandl,
en þær hafa ekki sézt í verzlunum
Framhald á bls. 14.
♦
Þingfundum frest
að til 1. febrúar
t
Reykjavík.
Síðustu fundir Alþingis
nú fyrir jólin voru haldnir
síðdegis í gær, en að þeim
loknum var þinghaldi frest
að og kemur þing saman
að nýju 1. febrúar á næsta
ári.
Fundur var i sameinuðu þingi í
gærdag og var þar fyrst afgreidd
)
tillaga um samþykki ^til frestunar
á fundum Alþingis, eþ siðan var á
dagskrá kosning í Nmðurlandaráð
nýbýlastjórn, stjórn jiburðarverk-
smiðjunnar, og einnig átti að kjósa
endurskoðendur reilaiinga Lands
bankans, Útvegsbankans og Bún-
aðarbankans og þrjá endurskoðend
ur ríkisreikninga.
í janúar, áður en þing kemur
saman til funda að nýju þarf sem
kunnugt er að ákveða fiskverð.
f}r talið að þar muni verða á all
miklir erfiðleikar og muni jafnvel
vandamál togaranna blandast þar
inn í.
JÖLABLADID
Fjórði og síðasti hlíiti jólablaðsins er borinn til kaupenda
með blaðinu í dag. Séra Grímur Grímsson ritar þar jólahug-
lciðirgu, birt er smásaga eftir Stefán Júlíusson og ljóðmæli
eftir Gest Guðfinnsson og Gretar Fells. Þá ritar Anna K.
Brynjólfsdóttir frásögu um heimsókn til Puerto Rico, og enn
fremur birtast í blaðinu kökuuppskriftir og skemmtilegt spil
fyrir yngstu lesendurna.
TÓNLIST
í OPNU
Kveikt á jólatrjánum
Þessi mynd á að minna okkur á það að nú er aðeins tæp
vika til jóla. Um alla borgina hefur að undanförnu veriö'
unnið að því að koma fyrir jólatrjám og öðru jólaski auti. svo
að hinn ytri búniingur að minnsta kosti sé eius og vera ber
um jólin.
................
BREYTINGAi!
I SVÍÞJÓÐ?
Málmey 17. 12. (NTB-TT.)
Verkalýðssambandið í Svíþjóð
hefur beint þeim eindregnu til
mælum til Erlanders forsætisráð
herra að hann geri breytingar á
stjórn sinni, að sögn jafnaðar-
mannablaðsins „Arbeitet". Blaðið
segir að verkalýðssambandið sé ó-
ánægt með stjómina og geri sig
ekki ánægt með að aðeins verði
skipt um einn eða tvo ráðherra
heldur telji nauðsynlegt að gerðar
verði víðtækar breytingar.
Niðurstöður viðræðua sem fram
hafa farið milli stjórnarinnar og
verkalýðssambandsins um málið'
geta orðið til þess að margir nýir
ráðherrar verði skipaöir og marg
ir gamlir ráðherrar segi af sér, seg
ir blaðið. Búast má við að stofnað
verði sérstakt atvinnumálaráðu-
neyti og að vinnuskiptingu hinna
ýmsu ráðuneyta verði breytt. Blað
i ið spáir því, að stórtíðindi fnuni
jgerast í sænskum stjórnmálum í
I janúarbyrjun.