Alþýðublaðið - 18.12.1966, Síða 15
Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐIB-18. desember 1966
11
Börn í bókum
Framhald af 10. síðu.
lakari höfurida en Anthony Hope
var. Svo mikið er víst að enginn
er svikinn af mannraunum og æv
intyrum sogunnar frekar en bless
aðri ástinni; landið Rúritanía er
líka miklu skemmtilegra land og
fráleitt fjær veruleikanum en hið
góða og kristilega Grænland Kar
enar Plovgaards; baksvið sögunnar
hjá enskri yfirstétt á öldinni sem
leið með tilheyrandi drenglyndis
og karlmennskuhugsjónum kann
einnig núorðið að heyra til heimi
barnasögunnar. Fanginn á Zenda
er bók sem margur lesandi mun
minnast með kærleikum úr sinni
eigin bernzku; liún kemur hér
út í flokki sem nefiiist „Sígildar
sögur Iðunnar“, og má þar 'sjá
margan annan góðan kunningja,
sjálfar Skytturnar, Baskerville-
hundinn og ívar hlújárn.
JjRJÁR bækur er lokum er allar
rmunu vera ætlaðar yngstu les
endunum:
Ævintýri barnanna (Æskan, 120
bls.) er heimslengja af bók, há og
rennileg með mörgum fallegum
myndum. Þar er úrval úr gömlum
og góðum ævintýrum sitt úr hverri
átt, Rauðhetta og Ljóti andarung
inn og Litla gula hænan sjálf, og
er enginn lesandi svikinn af þeim
frásögnum. Þetta er ein þeirra
bóka sem gerðar eru erlendis að
verulegu leyti, þáttur í alþjóðlegu
útgáfustarfi: myndir og myndprent
un eriend en textinn síðan sam-
inn að þeim. Myndirnar í þessari
bók eftir listamann með rússnesku
nafni, Feodor Rojankovsky, eru
í alþjóðlegum ævintýrastíl og hver
annarri skemmtilegri, en Þórir Guð
bergsson hefur þýtt textann á
þokkalégt skólamál Kemur sumt
í málinu á bókinni að óvörum
þeim lesendum sem muna ævintýr
in frá fyrri tíð, og hefði þýðand
inn að vísu mátt hafa hliðsjón af
eldri þýðingum sagnanna. ,,Með
hornum mínum mun ég stanga úr
þér augun og með sterkum fótum
mínum mun ég merja í þér hvert
einasta bein,“ segir stóri geithafur
inn við ,,álfinn“ undir brúnni sem
ætlaði að lirekkja liann. Svona
held ég að enginn almennilegur
geithafur talaði ef honum væri
sjálfrátt; og raunar er það engum
íslenzkum ölfi líkt að vera að svona
löguðum hrekkjum. En með þess
um fyrirvara um málið á bókinni
er frágangur hennar hinn bezti.
í íslenzkri barnabókagerð þekk
ist ekki annað eins myndaval, jafn
góð litprentun og er á þessari bók,
en tveir íslenzkir myndlistarmenn
leggja hönd að barnabókum í
haust. í Ljóöabók barnanna (ísa
fold. 87 bls.) liafa Guðrún P. Helga
dóttir og Vaíborg Sigurðardóttir
valið furðu fjölbreytt og skemmti
legt úrval úr kveðskap við hæfi
barna, vísur þulur, kvæði og gát
ur „en Barbara Árnadóttir teiknar
myndirnar, rarnma um liverja
síðu og nokkrar myndir sérstakar.
Þctta verk er með fallegu og fág
uðu handbragði Barböru og lengi
hægt að rýna í myndiruar sér til
yndis, börn að leik og starfi dreg
in þeirri fínu fimlegu línu sem
hún er ein urn í íslenzkri mynd-
skreytingu. Og með kveðskapnum
sjálfum þarf varla að mæla. Hins
vegar orka litirnir á bókinni tví-
mælis, teikningin nyti sín að lík
indum betur í svörtu. Og hún kann
að vera fullstór: óbreyttur ramm
inn um hverja síðu, sem Barbara
tengir oft snillilega við heilar
myndir á gagnstæðum síðum, verð
ur óneitanlega fulltilbreytingarlaus
áður en lýkur bókinni, En þeir sem
kjósa íslenzkt bóklistarverk fram
yfir erlenda bókiðju taka þessa bók
líkast til fram yfir ævintýrabókina
miklu.
Og svo hefur Nína Tryggva
dóttir gefið út barnabók, Skjóna
(Helgafell) með skemmtilegum
dýramyndum; Skjóni hennar er af
bragðs manneskjulegur og skemmtl
legur hestur. En frágangur heftis
ins er fráleitur: slíka bók þarf að
gera svo úr garði að lesendunum
sé óhætt að handleika hana, á þykk
um pappír og í sterkri heftingu.
Saga Nínu af Skjóna er dáskemmti
leg. En gætu ekki myndlistarmenn
og rithöfundar tekið höndum sam
an um barnabækur af þessu tagi?
Þáð yi’ði minnsta kosti skemmti
leg nýjung og tilbreyting í ís
lenzkri bókgerð, gæfu báðum aðilj
um ný tækifæri að njóta sín, og
lesandanum kannski eitthvað nýtt í
aðra hönd.
ýM FRAijjvivOi xyrrgreindra
bók: : X'tti eliegar rita langt
mál þo og ..e nú komið. Nægir að
segja ao og Una Ragnheiðar
Jónsdóttui d vönduðust, vel prent
uð á góðan pappír, handhægt og
traustlegt band, ágætar myndir eft
ir Sigrúnu Guðjónsdóttur. Bræð
urnir eru lakast úr garði gerð,
groddalegur pappír og frágangur,
þokkalegar myndir eftir ónafngr.
höfund. í bók Ingibjargar Jónsdótt
ur eru myndir eftir Halldór
Pétursson, sjálfum sér líkar. Fang
inn í Zenda og Gaukur Atlason eru
hvorttveggja snyrtilegar bækur,
Drengirnir á Gjögri með venjulegu
skáldsögulagi frá ísafold, traustleg
bók — Ó.J.
ANNALÍSA
í KKFIULEIKUM
ANNALÍSA í
ERFIÐLEIKUM.
eftir dönsku skáldkon
una frægu Tove Ditl-
evsen. Bók þessi hefur
selzt í mörgum upplög
um á Norðurlöndum.
ÆSKAN.
Vélabókhald
Óskum eftir að ráða stúlku hálfan daginn til starfa við
vélabókhald frá og með næstu áramótum. Æskilegt væri að
umsækjandi hefði einhverja starfsreynslu.
Umsóknir merktar „vélabókhald“ leggist inn á afgreiðslu
blaðsins fyrir 23. 12. 1966.
Bréfaskóli S.Í.S. og A.S.Í:
Nýr kennslubréfaflokkur er kominn út á vegum Bréfaskói-
ans: Ensk verzlunarbréf. Bréfin eru samin af Snorra Þor-
steinssyni yfirkennara Samvinnuskólans að Bifröst, og ann-
ast hann kennsiu í þessari námsgrein.
Ensk verzlunqrbréf er flokkur sem margir liafa beðið eft-
ír.
BRÉFASKÓLI S.Í.S. og A.S.Í.
FJÖLBREYTT ÖRVAL
JÓLAGJAFA í
Aldrei áður höfum við haft annað
eins úrval jólagjafa.
Sem dæmi má nefna:
í kvennadeild:
Peysur, blússur, undirkjóla, náttkjóla, náttföt,
greiðslusloppa, síðbuxur.
í snyrtivörudeild:
Gjafakassa, snyrtisett, ilmvötn, ilmkrem og
margt fleira, sem konurnar girnast
Eiginmenn!
>að borgar sig að líta á úrvalið hjá
okkur. Viðleggjum einnig áherzlu á fljóta
og góða afgreiðslu.
Pökkum inn í skrautpappír ef óskað er.
Gjafavörur:
* Kristal
* Keramik
* Kerti
[útlendj
'k'k'k-k'k-A'k-A'k'k-A'AicA'k'k'A'k'k'k'kX'k'k'k'A'k-kJdt+C'kk
Jólaskraut og
skreytingar,
litiö i glugg -
ana um
helgsna
Hafnarstræti 3.
simi
12717
23317
Blóm & Avextir
Auglýsingasíminn er 14906