Alþýðublaðið - 05.01.1967, Blaðsíða 3
Harönandi árásir
í gárð Kínverja
PARÍS, 4. janúar
(NTB-Rcuter).
Franslci kommúnistaleiðtoginn ;
Waldeck Rocliet sagði viíf setn-
Nýárskveðjur
til forsetans
MEÐÁL ÁRNAÐARÓSKA sem for
seta íslands bárust á nýársdag voru
kveðjur frá þessum þjóðhöfðingj-
um:
Frederik IX., konungi Danmerkur
Olav V. konungi Noregs
Gustaf VI. Adolf, konungi Svíþj.
Urho Kekkonen, forseta Finnlands
Franz Jonas, forseta Austurríkis
Lyndon 13. Johnson forseta USA
Georgi Traikov, forseta Bulgariu
Felix H. Boigny fors. Fílabeinsstr.
Charles de Gaulle, forseta Frakkl.
Konstantin, konungi Grikklands
Juliönu, drottningu Hollands.
Framliald á 15. síðu.
ingu 18. þings franska kommún-
istaflokksins í dag að' Rússar
neyddust til að senda Norður-
Vietnammönnum vopn og vistir
með flugvélum til að sneiða hjá
því að Kínverjar torvelduðu þessa
flutninga á landi.
J Moskvu sögðu þrír sovézkir
blaðamenn í dag, að þeir hefðu
verið reknir frá Kína, þar sem
Kínverjar óttuðust að þeir segðu
allan sannleikann um hina svo-
kölluðu menningarbyltingu sem
raunverulega miðaði að því að
treysta völd Mao Tse-tungs her-
væðfi landið og vanvirða alla
hreyfingu kommúnista.
í ályktunartillögu, sem sam_
þyklct var á fundi starfsmanna
sovézka kommúnistaflokksins í
Moskvu í dag segir, að ardsovézk
stefna Kínverja sýni að stórveld
isstefna Mao Tse-tungs sé komin
á alvarlegt stig. Látnar eru í ljós
áhyggjur vegna stefnu kínverskra
leiðtoga í alþjóðamálum. afstöðu
þeirra til annarra sósíalistaríkja
og fjandskapar þeirra við sov-
Framhald á 15. síðu.
Ok brott eftir ákeyrslu
Rvík - SJÓ.
Snemma morguns á gamlársdag
var ekið harkalega á kyrrstæða bif
reið, sem stóð við Kleppsveg nr. 26
Ók sá bifreiðarstjórinn, sem á-
rekstrinum olli, þegar á brott.
Var lögreglunni tilkynnt um,á-
rekstur þennan kl. 7,45 þennan
morgun og fór hún þegar á vett
vang. Eftir nákvæma rannsókn á-
leit lögreglan, að ákeyrslan hefði
orðið með þeim hætti, að ökumað
ur hefði ekið eftir Brekkulæknum
og verið á það hraðri ferð, að hann
hefði ekki náð be.vgjunni og lent
með þeim afleiðingum á Fiat-fólks
bifreið, R-8820, sem stóð þar í
samfelldri röð bifreiða. Við árekst
urinn skemmdist Fiat-fólksbifreið
in töluvert á báðum hliðum en hún
kastaðist við árekstúrinn á Chevró
lét, sem dældaðist við það á ann
ari liliðinni. Er að var komið lágu
grábláar lakkflísar á víð og dreif
um svæðið, sem talið er að séu af
þeirri bifreið, sem árekstrinum
olli, en einnig mátti merkja greini
leg lijólför og eftir þeim að dæma
hefur bifreiðarstjórinn flýtt sér
á brott hið skjótasta.
Ef einliver kynni að hafa séð bif
reið á hraðri ferð á þessu svæði
og um þetta leyti morguns, er sá
hinn sami beðinn að hafa samband
við lögregluna.
I NÝÁRSFAGNAÐUR ALÞÝÐU-
I FLOKKSFÉLAGSINS
s
S NÝÁRSFAGNAÐUR Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur verður
S haldinn í kvöld fimmtudaginn 5. janúar í Lídó og hefst kl.
S 8.30. Dagskrá: Emil Jónsson, utanríkisráðherra, flytur ný-
S ársávarp. Hinn heimskunni töframaður Tom Miller sýnir
S listir sínar og Ómar Ragnarsson flytur nýjan skemmtiþátt.
^ Að lokum vgrður dansað til kl. 1 Hljómsveit Ólafs Gauks
^ leikur, söngvarar Svánhildur Jakebsdóttir og Björn R. Einars
^ son. — Framreiddur verður matur fyrir þá sem þess óska.
^ Aðgöngumiðar í skrifstofu Alþýðuflokksins.
Ólga í brezka
blaðaheiminum
Mikillar ólgu gætir í brezka blaða
heiminum þar sem blaðið „The Gu
ardian“ birti leyniskýrslur þar sem
jafnt blaðaútgefendur sem verka
lýðsfélög sæta gagnrýni fyrir að
sóa allt að fimm milljónum punda
á ári vegna þess að of fjölmennt
starfslið er látið vinna við blaða
útgáfu.
Tímaritið „The Eeonomist" hef
ur gert nákvæma athugun á kjör
um brezkra blaða, og verður skýrsl
an rædd á fundi í sameiginlegri
nefnd blaðanna á mánudaginn. Har
old Wilson forsætisráðherra skor
aði i gær á blöðin að birta skýrsl
una eftir að hafa sjálfur gagnrýnt
blaðaútgefendur og haldið því fram
ða hömlur verkalýðsfél væru
hneyksli. Skýrslan er samin
skömmu eftir að blaðakóngurinn.
Thomson lávarður tók við rekstrþ
kunnasta blaðs Breta, „The Times“.:
í skýrslunni er blaðaútgefendumi
að miklu leyti kennt um erfiðleika
blaðanna. Þeir hafi sýnt af Iitinn-,
áhuga á nýtízku aðferðum og var
ið óf eftirlátssamir við verkalýðs,
félögin. Jafnframt eru verkalýðsfó
lögin vöruð við því, að andstaðg'
þeirra gegn ráðstöfunum til að.
færa rekstur blaðanna í nýtízkp-
horf geti haft alvarlegar afleiðing
ar.
A æfingu í gær: Talið frá vinstri: Guðlaugur Rósinkranz, Matthías Johannessen, Benedikt Arna-
son, Gísli Alfreðsson, Lárus Pálsson og Valur G .siason. (Mynd: Bjarnl.)
„Leikrit eiga helzt oð
vera miskunnarlaus,.
TVEIR einþáttungar eftir
Matthías Johannesen verða
frumsýndir í Lindarbæ nk.
sunnudag Nefnast þeir Eins
og þér sjáið . . . og Jón gamli.
Eru þetta fyrstu leikrit höfund
arins sem sett eru á svið en
áður hefur komði út eftir hann
leikritið Sólmyrkvi.
Leikstjóri beggja einþáttung
ana er Benedikt Árnason og
eru leikendur þrír, og leika
allir í báðum leikritunum. Eru
það þeir Valur Gíslason Lárus
Pálsson og Gisli Alfreðsson. í
fyrri einþáttungnum leikur Val
ur Jónatan nokkurn, Gísli
prest og Lárus fer með hlut-
verks myrkrahöfðingjans, sem
þarna kemur við sögu eins og
oftar. í síðarnefnda þættinum
fer Valur með titilhlutverkið,
Gísli leikur unglinginn Frissa
sem gengur með hár niður á
axlir eins og tíðkast hjá þeim
aldursfiokki nú til dags og Lár
us leikur Karl, fyrrverandi tog
arasjómann en er orðinn
starfskraftur í b.akaríi.
Kvisast hefur að Matthías
taki í leikþáttum þessum á-
kveðna menn og ákveðin atvik
úr nútímalífinu til meðferðar.
Aðspurður sagði hann, að hann
hefði í huga vissar persónur
sem hann hefur kynnzt, enda
væri ekkert launungamál að
rithöfundar skrifa sjaldnast um
það sem þeir ekki þekkja..
Sagði hann að í þessum þátt
um væyi margt óþægilegt sem
sagt er, — en leikrit eiga að
vera miskunnarlaus og engin
vella. Og ætti fólk að geta
lært af þeim. Anhars er samn
ing þessarra þátta tilraun af
minni hálfu.
— Fyrri einþáttungurinn
varð til upp úr inspírasjón sem
mér datt í hug þegar ég var
á rölti fram hjá gamla kirkju
garðinum. Mér varð á' að
brosa og hugsaði að gaman
væri að gera svolítið grín, og
skrifaði síðan einþáttungana og
sýndi Benedikt Árnasyni þá.
Hann hringi skömmu r.íðar og
sagðist halda að þetta væru
bara leikrit.
Þá varð ég hissa. Siðan
sýndi Benedikt þjóðleikhús-
stjóra skrifin og hann var á
sama máli og nú eru þættirn-
ir að verða fullæfðir
Matthías sagði að leikþátt
unum hefði verið töluvert
breytt frá fyrstu gerð er far
ið var að æfa þá enda hefði
hann notið góðra ábendinga í
því efni hjá leikstjóra ng leik
urum.
5. janúar 1967 ~ ALÞÝÐUBLAÐÝÐ ^