Dagur - 11.10.1997, Page 1

Dagur - 11.10.1997, Page 1
 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER - 192. TÖLUBLAÐ 1997 Upphaf gullaldar FYRSTU ÍSLANDSMEISTARAR AKURNESINGA 1951 - Fremri röð: Sveinn Teitsson, Sveinn Benediktsson, Magnús Kristjánsson, Ólafur Vilhjálmsson og Guðjón Finnbogason. Aftari röð: Guðmundur Jónsson, Pétur Georgsson, Þórður Þórðarson, Dagbjartur Hannesson, Rikarður Jónsson og Halldór Sigurbjörnsson (DonniJ. KNATTSPYRNA OG Akranes er svo samofið í hugum manna, að engu er líkara en að bærinn byggi til- veru sína á þessari íþróttagrein. En það er auðvit- að Qarri lagi því Akranes var og er mikill útgerð- ar og iðnaðarbær. En fótboltinn var lengstum tómstundagaman, sem allir Skagamenn tóku þátt í, hver með sínum hætti og strákarnir voru stolt byggðarlagsins og þjóðarinnar allrar á gullaldarár- unum. Keppinautarnir og áhangendur annarra liða báru virðingu fyrir Akrenesliðinu og dáðust að því. Það var lengi uppistaðan í landsliðinu og þá var ekki að sökum að spyrja, Akranes var fram- varðarsveitin og jafnvel stækustu KR-ingar æptu áfram Akranes, þegar mest lá við að gæta sóma Islands á leikvellinum. Fullorðnir íþróttaunnendur minnast gullaldar Akranesliðsins sem einstæðs kapítula í íslenskri íþróttasögu. Atvinnumennska var ekki til og stuðningur við íþróttamenn kom nær einvörð- ungu frá áhugasömum áhorfendum. Greiðsla fyr- ir æfingar og leiki var óþekkt. Strákarnir í hinu frábæra gullaldarliði unnu fullan vinnudag, oft langan, og stopular frístundir voru notaðar til æf- inga. En árangurinn var göldrum líkastur. íslendingaþættir munu á næstunni birta grein- arflokk um gullöldina í fótboltanum á Akranesi. Helgi Daníelsson mun rekja aðdragandann og rifja upp atburði og minningar um einhverja fræknustu og dáðustu íþróttamenn sem á sínum tíma báru hróður byggðarlags síns og knattspyrn- unnar um öll foldarból. Helgi var einn af gullald- arliðinu, og þekkir innviði þess flestum betur. Auk þess að varna andstæðingum að skora hjá Akurnesingum, stóð Helgi í marki landsliðsins 25 sinnum. Nýjar draugasögur og gamlar í Viðfiröi hefur verið reimt í margar aldir. Frásaguir af óvættum og afturgöngum á bls. IV.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.