Dagur - 11.10.1997, Blaðsíða 5
Tfc^ur
LAUGARDAGUR 24.SEPTEMBER 199 7 - V
>
SÖGUR OG SAGNIR
hann selshaus. Honum var hent til
baka. Þá fær hann kvenmannshaus
í hausinn og honum henti hann til
baka og varð að orði, hvort and-
skotanum væri alvara. Við svo búið
hafði Bjarni sig á brott, vansvefta
og reynslunni ríkari.
Glæsidraugur
Vel þekkt er sagan af draugnum
sem kallaður var Glæsir á meðan
einhver máttur var í honum. Það
var vegna þess að hann var svo
miklu fi'nni í tauinu en aðrir draug-
ar, enda útlendur og af öðru sauð-
arhúsi en vaðmálsklæddir draugar,
íslenskir.
Fyrr á öldum bar við sem oftar að
hafís Iá fyrir landi. Sáu menn þá
skip hrekjast úti fyrir landi og bar
loks upp að Gerpi og brotnaði þar.
Sumir þóttust sjá menn á ísnum.
Ein sögnin um Glæsi segir, að
bóndi í Sandvík hafi fundið mann
rekinn á sandfjöru, og hafi hann
verið með lífsmarki. Augljóslega var
þetta skipstjórinn á þ\i hinu mikla
skipi, sem hafisinn grandaði. Hann
var vel búinn, með gullhringa, í
leðurstígvélum, hattur lá í sandin-
um og var maðurinn með glæsi-
bringu, sem mun hafa verið flott
skyrta og hálstau. Sá fíni hélt um
kistil, sem bóndi sá að í voru pen-
ingar. Hirti hann öll verðmæti og
kastaði nöktum manninum aftur í
sjó.
Ekki leið á löngu þar til höfðing-
legur maður fór að gera vart við sig
í Sandvík. Hann gekk um með
glæsibringu, flottan hatt, í hnéstfg-
vélum með staf og gullhringa, svo
hringlaði í. Brátt þóttust menn sjá
hvers kyns var og játað bóndi ódæði
sitt.
Glæsir sást allvíða á Austfjörðum
og fóru menn ekki draugavillt, því
svo auðkenndur var hann frá inn-
lendu afturgöngunum fyrir sakir
hofmannlegra tilburða og glæsi-
Ieika. En leiður var hann að mörgu
leiti og hrekkjóttur. Stundum tók
hann ofan hattinn með miklum
tilburðum og fylgdi þá höfuðið
með. Sand\a'kurmenn drukku sig
stunum fulla og þegar svo bar til
var Glæsir oft í för með þeim og
var þá sjálfur vel slompaður. Að
einu leyti skar hann sig ekki frá
íslenskum draugum. Hann hélt
þeim þjóðlega sið að drepa gripi
í húsum þar sem hann átti lið
um.
Oft gerði Glæsir vart við sig í
Viðfirði og gerði þar margan
óskunda. Það kvað vera í manna
minnum, að eitt sinn kom hann
í Viðfjörð um hábjartan dag,
rauk mð bægslagangi í fjósið,
leysti kýrnar af básunum, hellti
úr vatnsstampi og flórsletturnar
gengu um allt húsið.
Yfirleitt sýnast allar t ;undir
reimleika og fyrirburða hafa átt
sér stað £ Viðfirði. Dýr birtast og
hverfa, hauslaust fólk gengur um
garða og alls kyns hljóð og fyrir-
burðir heyrast þar og sjást.
I september 1936 drukknuðu
fjórir heimamenn frá Viðfirði út
af Norðfjarðarflóa. Það sást síð-
ast til bátsins frá landi, að í hon-
um voru fimm menn, og veit
enginn hvernig á því undri
stendur. Ekki þótti reimleikum
linna við þann atburð og voru
frægir spíritistar fengnir til að
bægja ófögnuðinum á brott.
Sagnir af reimleikum í Viðfirði
eru margvíslegar og eru frá ýms-
um öldum og tímum. Vættir,
tröll og afturgöngur koma þar við
sögur. En síðasta sögnin um
hvítu veruna, sem dansar kring-
um logandi bálköst, sem samt
brennur ekki, er engri annarri
lík. Er nú greinilega hafið nýtt
tímabil dularfullra atburða í Við-
firði, og verður fróðlegt að fylgj-
ast með framvindu eilífðarmál-
anna þar.
Evrópakeppni
„ „ KA-Kannas
w
▼ Sunnudaginn 12. október kl. 16.
Mætum öll, gul og glöð!
Miðavarð kr. 300 fyrir börn og kr. 1000 fyrir fullorðna.
Ég er engmn milljóner.
Eg er virkur viðskiptavinur!
Þess vegna er ég í Vörðunni!
L
Landsbanki Islands
Einstaklingsviðskipti
Traustið er h j i þér og ibyrgðin hji okkur