Dagur - 11.10.1997, Page 6

Dagur - 11.10.1997, Page 6
VI- LAUGARDAGVR 24.SEPTEMBER 1997 MIN.NINGARGREINAR ro^tr Jónas Geir Jónsson JÓNAS Geir JÓNSSON fæddist 31. mars 1910 á Rifkelsstöðum í Eyja- firði. Foreldrar hans voru Jón Jónsson og Aðalbjörg Hallgríms- dóttir. Móður sína missti Jónas fjögurra ára gamall. Frá 6 ára aldri ólst hann upp í Kaupangi hjá Bergsteini bónda þar Kolbeinssyni og konu hans Ingibjörgu Sölva- dóttur. Lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskólanum á Akureyri 1930, íþróttakennaraprófi 1933 og almennu kennaraprófi frá kenn- araskólanum 1942. Stundaði kennslu á Húsavík við skólana þar frá 1933-1977, fyrst sem stunda- kennari en síðar sem fastur kenn- ari. Jónas Geir kvæntist Friðnýju Steingrímsdóttur frá Hóli á Mel- rakkasléttu 9. okt. 1943, hún lést 10. júní 1984. Þau eignuðust tvær dætur, Olgu, sem er kennari, og Gunni, sem er læknaritari, báðar búsettar í Reykjavík. Einnig ólu þau upp Bergstein Karlsson, syst- urson Friðnýjar. Fyrir hjónaband sitt eignaðist Jónas son, sem hét Bjami Þór, látinn fyrir nokkrum árum. Jónas Geir hlaut viðurkenningu fyrir störf sín að félags- og fþrótta- málum, m.a. var hann sæmdur gullmerki Í.S.Í. 1977. Við vorum ekki ýkja háir í lofti sumir, sem laust fyrir miðjan 4. áratuginn hófum leikfimi í fyrsta sinn í litla sal samkomuhússins á Húsavík, sem lokið var byggingu á 1928. Salurinn litli var 6 x 12 metrar að gólffleti og lofthæð 3 m. Engin sturta eða bað var í húsinu, engir sturta fyrir ytri föt, aðeins flekar á búkkum þar sem fötum var dembt í hrúgu með afleiðing- um sem mæður okkar voru lítt hrifnar af þegar heim kom. En við þóttumst sannarlega menn með mönnum í leikfimibuxum sem náðu niður að hné og klæddumst margvíslegum skyrtum, ýmist með ermum eða ermalausar. Hverju máli skipti líka þótt okkur klæjaði smávegis á skrokkinn undan óboðnum gestum eða gætum ekki farið í bað til að hreinsa af okkur svitann, þegar við komumst í kynni við jakahlaup, höfðabolta og steinahlaup í salnum litla undir stjórn ungs íþróttakennara sem komið hafði frá Akureyri til Húsa- víkur 1933, þá nýútskrifaður frá íþróttaskólanum á Laugarvatni. Þessi nýi kennari var ráðinn til að kenna leikfimi við bamaskólann á Húsavík svo og íþróttir hjá Iþrótta- félaginu Völsungi. Þegar hann kynnti sig húsráð- anda sem hann leigði hjá á Húsa- vfk og kvaðst heita Jónas Jónsson svaraði húsráðandi að það dyggði skammt hér um slóðir að bera slíkt nafn því að í vitund Þingeyinga væri aðeins einn maður með því nafni. Kvaðst íþróttakennarinn þá einnig heita Geir. „Jónas Geir, lát- um það duga,“ sagði húsráðandi. Og undir því nafni gekk hann eða Jónas G. á Húsavík til hinstu stundar. Það varð okkur mörgum til- hlökkunarefni að sækja leikfimi- tímana hjá Jónasi næstu árin, ekki síst þegar ný tæki bættust við til kennslu í litla salinn, rimlar, kista stökkrár, hestur og dýna þar sem hægt var að iðka kollastökk, kraft- stökk, svifstökk, heljarstökk og flikk-flakk. Hvert tæki sem bættist við vakti gleði og fögnuð þeirra sem ekki höfðu áður þekkt annað betra. Og rýmið var nóg til að gleðjast í. Svo afstætt er það sem við köllum gott og vont. Nýi kennarinn flutti með sér hressandi blæ í íþróttalíf þorpsins þar sem íbúar voru þá um 900. Smám saman færði hann út kví- arnar, stofnaði fimleikaflokka, tók þátt í skíðaiðkun og renndi sér ásamt félögum sfnum niður Húsa- víkurfjall beinustu leið, gengið var á Krubbsíjall og upp á Gyðuhnjúk og lögð leið á skíðum austur í Kelduhverfi og víðar. Þá stuðlaði íþróttakennarinn að því að leið- beinandi var fenginn, kunnur skíðagarpur, til að kenna ungum Húsvíkingum svig. En það sem lengst mun halda á loft nafni kennarans á íþróttasviðinu var starf hans við iðkun handbolta meðal stúlkna þar sem lið undir hans stjórn og þjálfun gerðu garð- inn frægan á sinni tíð. Sú grein íþrótta var iðkuð á sumrum úti á Höfða, íþróttasvæði Völsunga um langa hríð. Þar voru löngum glaðir hópar íþróttaiðkenda og þar fjöl- menntu Húsvíkingar til að hvetja keppendur eða tóku þátt í hátíða- höldum sem þar fóru fram. Árið 1936 gafst Jónasi Geir kostur á ásamt fleiri íþróttakenn- urum íslenskum að sækja Ólymp- íuleikana sem það ár voru haldnir í Berlín. Sú ferð varð Jónasi óþrot- Ieg uppspretta næstu árin til að miðla nemendum sínum fróðleik frá þessum miklu leikum. Sú frá- sögn varð lifandi í munni Jónasar, studd myndum úr blöðum og blaðaúrklippum, sem hann hafði safnað saman, og geymt var í möppu, sem gekk milli borða í bekknum eftir því sem sögunni vatt fram - og nemendur hlustuðu á bergnumdir. Og ekki man undir- ritaður annað betur úr heilsu- fræðitímum hjá Jónasi en þessar frásagnir hans. Og mun svo vera um fleiri. Um 20 ára skeið lét Jónas að sér kveða sem íþróttakennari en þá tók hann að draga sig í hlé á þeim vettvangi en jók bóklega kennslu sína við barna- og unglingaskól- ann. Varð hann síðar fastur kenn- ari við Gagnfræðaskóla Húsavíkur og kenndi þar til ársins 1977 er hann lét af starfi sökum aldurs. hafði þá kennt yfir 40 ár við skól- ann á Húsavík. Almennt kennara- próf hafði hann tekið 1942. Við Gagnfræðaskóla Húsavíkur kenndi Jónas stærðfræði um árabil og á orði haft hve kennsla hans var ljós og greinargóð. Annaðist einnig kennslu í náttúrufræði þar sem fjallað var aðallega um dýr og plöntur. Sú kennsla lét Jónasi vel. Islensk náttúra var honum hug- leikin svo og ræktunarstörf. Hann hefði komið upp við hús sitt falleg- um blóma og tijágarði sem hann annaðist með mikilli prýði og hlatu viðurkenningu fyrir eitt sinn. Var vel að sér í íslenskri grasafræði. A ferðum sínum með Ferðafélagi Húsavíkur þar sem hann var virk- ur um skeið, hafði margt borið fyr- ir augu og eyru vökulum ferðalang. Jónas átti lítinn bát í félagi við aðra og skrapp stundum á sjó þar sem kynnast mátti ýmsum skepnum. Á haustin _ stundaði hann rjúpna- veiði. Allt það sem hér hefir verið nefnt auðveldaði Jónasi að lífga náttúrufræðikennsluna með því sem hann sjálfur hafði reynt. Hon- um var létt um að segja sögur og gera þær lifandi með fi'nu skapi sem hann óf inn í frásögn sína hvort sem var í mæltu máli eða rit- uðu, skopi sem engan særði en kryddaði mál hans. Ungur kynntist ég Jónasi í leik- fimitímum í litlasal samkomu- hússins, síðan sem nemandi hans í bóklegum fræðum í barna- og ung- lingaskóla og á sumrum unnum við saman í síldarverksmiðju á Raufarhöfn. Að lokum urðum við samstarfsmenn við Gagnfræða- skóla Húsavíkur frá 1957-1977. Þegar ég setti skólann í fyrsta sinn, þá ungur maður, fór um mig nota- leg tilfinning þegar Jónas, minn gamli kennari, stóð upp, bauð mig velkominn, minntist fyrri kynna og árnaði mér heilla í starfi. Ávallt fór vel á með okkur frá fyrstu tíð og til loka og á ég honum margt að þakka á þeirri leið. Við Gagnfræðaskólann kenndi Jónas teikningu um árabil og auð- vitað var áhugi nemenda þar mis- jafn eins og í öðrum greinum. Jónas tók upp á því að Iesa fyrir nemendur stund og stund í tíman- um og notaði lengi sem framhalds- sögu Milljónamæringur í atvinnu- leit eftir Ernest Blitz. Sú saga varð mörgum eftirminnileg og þegar nemendur, sem ekki sátu samtímis í skólanum, hittust síðar og riíjuðu upp skólaárin, áttu þeir a.m.k. eina sameiginlega minningu það- an, að hafa hlýtt á upplestur Jónasar Geirs á sögunni Milljóna- mæringur í atvinnuleit eftir Ernest Blitz. Svipaða sögu má vafalítið segja úr starfi annarra kennara. Óðum þynnist sú fylking Hús- víkinga sem forðum átti ófá sporin út á Höfða til leikja á 4. og 5. ára- tug þessarar aldar. Einn af öðrum eru þeir lagðir til hvílu ofar og hærra í Höfðann þaðan sem sér yfir svæðið þar sem æska Húsavík- ur átti margar gleðistundir. Nú er þar fátt sem minnir á þá liðnu tfð. Þar blasa við verkstæði af ýmsum toga svo og hús þar sem þurrkaðir eru tijábolir, um langan veg til landsins fluttir. Tákn um nýja tíma. Og komin til önnur svæði og önnur hús þar sem húsvísk æska Ieitar til leika eins og forðum. A afmælishátíð Völsunga 1947 þegar minnst var 20 ára afmælis félagsins hélt Jónas ræðu þar sem hann sagði frá því er hann kom sem ungur maður til Húsavíkur, óráðinn hve lengi hann myndi þar starfa. Gat hann þess í ræðu sinni að hvergi hefði sér liðið betur, orð- inn inngróinn Húsvíkingur, og þaðan myndi hann ekki hverfa. Nú þegar hann er allur, horfinn af sjónarsviðinu og lagður til hvíld- ar í Höfðann, leiftra í minning- unni stundir frá gamla vellinum, iðandi af mannlífi, þar sem Jónas Geir fór fyrir um skeið. Blessuð sé minning Jónasar Geirs Jónssonar. Sigurjón Jóhannsson Bjöm Stefánsson Minn kæri vinur Björn Stefáns- son. Mig langar að minnast þín með nokkrum orðum, þó kveðjan sé síðbúin, en það er ekki mín sök. Eg sendi Degi-Tímanum minningagrein um þig, sem átti að birtast í því blaði laugardaginn 23. ágúst en af einhverjum ástæðum virðist hún hafa týnst hjá blaðinu. Þessvegna sendi ég nú aðra grein sem ég hef loforð blaðsins að birt verði næstkomandi Iaug- ardag 4. október. Ungur gekk Björn Stefánsson í Samvinnuskólann en hann var mikill samvinnumaður alla ævi. Hann byijaði að starfa hjá frænda sínum og nafna sem þá var kaup- félagsstjóri á Fáskrúðsfirði. Síðan lá leið hans suður á Akranes þar sem hann var kaup- félagsstjóri í eitt eða tvö ár. 1939 var hann ráðinn kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Stöðfirðinga á Stöðvarfirði. En um áramótin 1936-7 var stofnuð sérstök deild úr Kaupfélagi Stöðfirðinga á Breiðdalshreppi, sem hafði sölu- búð á Breiðdalsvík. Þá voru að- eins 10-12 íbúðarhús á Breið- dalsvík en strax á næstu árum fór þeim fjölgandi. Hinsvegar voru þá 34 jarðir byggðar í Breiðdal og tvíbýli á nokkrum þeirra. Mann- fjöldi í Breiðdalshreppi mun þá hafa verið um 400. I Breiðdals- deildina gengu nokkrir bændur á utanverðri Berufjarðarströnd. Um sama leyti eða áður var líka stofnuð deild úr Kaupfélagi Stöð- firðinga við sunnanverðan Fá- skrúðsíjörð, þar með talið Hafn- arnes, sem er yst sunnan Fá- skrúðsfjarðar en þar var þá smá þorp, með 40-50 íbúa. Þeir stunduðu sjó á smábátum og höfðu einnig smá landbúskap eins og algengnt var í smáþorpum á Austurlandi á þeim árum. A verslunarsvæði K.S.F. voru þá um það bil 800 íbúar eða rúmlega það. Þannig var það þegar Björn tók við kaupfélagsstjórastarfinu á Stöðvarfirði. Björn var 15 ár kaupfélagsstjóri á Stöðvarfirði og ég fullyrði að margir félagsmenn kaupfélagsins hefðu gjarnan vilj- að hafa hann kaupfélagsstjóra í önnur 15 ár, því hann var mjög vinsæll og vandaður maður í alla staði. En um áramótin 1954-5 fékk framkvæmdastjóri SIS hann til að gerast kaupfélagsstjóri á Siglufirði vegna þess að kaupfé- lagið þar átti í einhveijum erfið- leikum eftir því sem mér hefur verið sagt. Fljótlega eftir að Bjöm var orð- inn kaupfélagsstjóri tók hann upp þann sið að ferðast um félags- svæðið að hitta félagsmennina, a.m.k. bændurna, ræða við þá um viðskipamálin og margt fleira. Eg minnist þess að við hlökk- uðum alltaf mikið til að fá hann í heimsókn því okkur fannst hann svo glaðvær og skemmtilegur. Svo ræddum við auðvitað við hann um framkvæmdir sem við stóðum í hverju sinni og fengum góð ráð og bendingar hjá honum. Allir bændur í Breiðdalshreppi voru í félaginu og ég held á öllu kaupfé- lagssvæðinu. Eftir stríðslokin 1945 tóku flestir bændurnir til óspilltra málanna við að rækta og byggja upp jarðir sínar. Þá var Björn betri en enginn. Hann út- vegaði mest allt efni til bygging- anna gegn því að kaupfélagið fengi þau lán sem menn þurftu að taka til framkvæmdanna. Það gerði flestum fært að byggja upp íbúðarhús á jörðum sínum og einnig hús yfir búpening. Þessi þáttur í starfi Björns var ómetanlegur að mínum dómi. Eins og áður getur tók Björn við kaupfélagsstjórastarfi á Siglufirði í ársbyijun 1955 og var þar kaup- félagsstjóri í 7 ár eða til ársloka 1962 en þá var hann ráðinn kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Héraðsbúa á Egilsstöðum. Því starfi gegndi hann í 5 ár eða til 1967. Stuttu síðar var hann ráð- inn erindreki hjá Afengisvarnar- ráði. Það starf rækti hann af mikilli trúmennsku og samviskusemi eins og öll störf sem hann tók að sér. hann ferðaðist milli skóla víðs- vegar um landið og hélt þar fyrir- lestra og ræddi við nemendur og benti þeim á hversu áfengisneysla leiddi oft til mikillar bölvunar og endaði oft með ofdrykkju. Björn var alla ævi bindindis- maður bæði á vín og tóbak. Að löngu og farsælu ævistarfi Ioknu flutti hann til Stöðvarfjarð- ar og keypti húsið Hól þar. En Björn var mikill vinnuþjark- ur og settist ekki í helgan stein. Hann stundaði sjóróðra á litlum bát með syni sínum mörg sumur á meðan hann gegndi starfi er- indreka, ef ég man rétt, og eftir að hann hætti sjósókn vann hann mörg ár í landi við fiskvinnu. Björn var eitt kjörtímabil vara- þingmaður Framsóknarflokksins í Suður-Múlasýslu og sat á Alþingi nokkrar vikur haustið 1950. Björn kvæntist 9. maí 1941 Þor- björgu Einarsdóttur frá Ekru í Stöðvarfirði, mikilli ágætiskonu, hún er fædd 16. ágúst 1915 og lifir hún mann sinn. Ég og kona mín vottum henni og börnum þeirra okkar dýpstu samúð. Góði vinur, þú hefur lokið löngu og giftudijúgu starfi. Við hjónin þökkum þér af öllu hjarta frábær kynni. Við vitum að þér hefur verið tekið með opnum örmum handan móðunnar miklu. Farðu ifriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Sigurður og Flerdís, frá Gilsá.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.