Dagur - 22.10.1997, Side 1
Það varfyrir áeggjan
þáverandi lögreglu-
stjóra íBolungarvík,
Axels Tuliníusar, að
Guðmundur Rós-
mundsson hófrækju-
veiðar haustið 1949.
Sagður „endanlega vit-
laus“þegarhörpu-
diskveiðamar hófust!
Guðmundur segir rækjuna hafa
-
þá verið miklu stærri en þá sem
berst að landi í dag úr Isa-
fjarðarðardjúpi, eða 200 til 220
stykki í kílói en í dag séu bátarn-
ir að koma með rækju sem er
mun smærri, eða allt að 600
stykki í kílói. Það sé alveg rosa-
lega smátt.
„Það var oft erfitt að vera á
rækju á svona litlum báti lengst
inni í Djúpi og oft þurfti að liggja
inni við Reykjanes eða Arngerð-
areyri og bíða eftir að veður
lægði. Við sem stunduðum fyrst-
ir rækuveiðar vorum taldir algjör-
ir glæpamenn, margir fullyrtu að
við værum að drepa síli og eyði-
leggja lífríkið. Þeir fóru eitt sinn
saman, sýslumaðurinn á Isafirði,
Einar Guðfinnsson og Bjarni
gamli í Vigur, þegar bátunum fór
að fjölga, og töldu í aflanum.
Þessir stóru karlar urðu alveg
hissa, bæði hvað rækjan var stór
og það skyldi ekki vera neinn
þorskur í aflanum. Eg landaði
alltaf hér heima og rækjan var
handpilluð hjá Einari Guðfinns-
syni. Þetta gaf þá meira af sér en
þorskurinn en þrátt fyrir það
sóttu ekki aðrir í þessar veiðar,
þeir voru fastir í hefðinni að
veiða þorsk,“ segir Guðmundur
Rósmundsson.
Hvernig voru veiðarfærin sem
þú notaðir?
„Elskan mín góða, maður hélt
á þessu undir hendinni, netið var
bara smá bleðill, höfðulínan ekki
nema 10 til 12 metrar og tréhler-
ar með mjög litlum skóm sem
maður gat lyft með handafli. I
dag eru þeir ekki hreyfðir nema
með vélarafli.
Arið 1960 keypti ég stærri bát,
um 30 tonn, en þá komu and-
stæðingar rækjuveiða í veg fyrir
að ég gæti veitt fyrir innan Hóla,
þ.e. út af Óshlíðinni. Seinna
fengum við svo að fara innúr.
Það hefur verið ágæt rækjuveiði
hér þar til þeir fóru að ala
þorskinn í sjónum, bönnuðu
veiðar á honum, þá fór rækjan.
Ég hætti svo á sjó 1984, þá lið-
lega sextugur og strákarnir mínir
tóku við. Þeir eru á snurvoð þeg-
ar ekki er verið á innfjarðar-
rækju. Áður fyrr var allt fullt af
fiski hérna, t.d. í Jökulfjörðun-
um, þar sem nú er allt stein-
dautt. Á þeim árum sem þorskur-
inn hvarf fylltist allt af rækju sem
áður hafði aðeins verið inni á
Mjóafirði og þar í grennd.
Ég var sá fyrsti sem fór að veiða
hörpudisk hér. Þá héldu sumir að
ég væri orðinn endanlega vitlaus.
Þá var dálítið af hörpudiski hér,
t.d. í Jökulfjörðunum en ég fór
hringinn í kringum landið með
Haírannsóknastofnun til að kanna
hörpudisksmið. Eftir það fór áhugi
á þessum veiðiskap að vakna.
Mér Iíst vel á skelfiskveiðar
þeirra á Flateyri, en hræddur er
ég um að þeir brjóti skelina mik-
ið. Það er t.d. allt fullt af fiski á
Aðalvíkinni sem kemur í plógfar-
ið á veiðunum þar, enda erjsorsk-
urinn fullur af kúfiski. Eg hef
ekki trú á þvf að þorskurinn geti
opnað skelina,“ sagði Gummi
Rós að lokum. GG
RéUarhélsi 2 & Skipholti 35
■ðutausu nð Norðdckk oru most seldu dokk d íslnndi, þau oru oinfaldlega góður og öruggur kostur við íslenskar aðstæðu