Dagur - 01.11.1997, Side 1

Dagur - 01.11.1997, Side 1
Blondal beygð- ur af Davíd „Nú er Blöndal beygður/og bældur í sínu fleti/toginn er og teygður/týndur á IntemetiÞessar hendingar mátti heyra við Alþingishúsið igær hjá einum mótmælendanna sem afhentu ráðherra undirskriftalista gegn gjaldskrárhækkunum Pósts-og sima. mynd eúl Forráðamenn Pósts og síma hafa ákveðið að hækka staðarsímtöl niinna en til stóð, eft- ir kröftug mótmæli margra laiidsmaima og tiltal forsætisráð- herra. Samgönguráðherra og ráðamenn Pósts og síma voru í gær neyddir til að draga í land og hækkar gjaldskrá innanlands símtala minna en áður hafði verið boðað. Landið verður allt að einu gjald- svæði í dag og áður boðuð gjald- skrá tekur gildi. Mínútan í inn- anlandssímtali kostar þá 1,99 krónur. Það verður þó ekki lengi, því taxtinn verður lækkaður í 1,56 á mínútu innan skamms. Davíð Oddsson forsætisráðherra kallaði Halldór Blöndal sam- gönguráðherra og forstjóra og stjórnarformann Pósts og síma á teppið í gær. I framhaldi af því hélt samgönguráðherra blaða- mannafund og tilkynnti að nýju gjaldskránni yrði breytt. Halldór sagði að ákveðið hefði verið að samræma gjaldskrána innan- lands og sú breyting yrði að stan- da undir sér. Hinsvegar yrði hækkun á staðarsímtölum ekki látin greiða kostnaðinn við veru- Iega lækkun á símtölum til út- Ianda. Þau eiga að Iækka um rúm 22% og það kostar 380 milljónir og verður tekið af hagnaði Pósts og síma. Djðrf tilraim Halldór sagði að þetta væri „djörf tilraun" og hann og forsvars- menn Pósts og síma vildu með þessu koma til móts við kröfur fólksins, en gjaldskrárhækkunum hefur verið kröftuglega mótmælt víða, m.a. á útifundi á Ingólfs- torgi í gær. Það vekur hins vegar athygli að þessi vilji ráðamanna fyrirtækisins kom ekki fram fyrr en eftir að forsætisráðherra hafði kallað þá á sinn fund til að út- skýra málið. Dagur spurði sam- gönguráðherra hvort það hefðu verið mótmælin eða fundurinn með Davíð sem hefðu fengið hann til að skipta um skoðun. „Þessi ákvörðun er tekin vegna þess að við teljum að rök séu fyr- ir þessum breytingum. Það er auðvitað pólitísk ákvörðun að taka þá áhættu sem hér er tekin.“ Forsendui kynntar Ráðherra boðaði að forsendur gjaldskrárbreytinganna yrðu kynntar á næstunni og tók fram að hann efaðist ekki um að þær væru réttar. Þessi stefnubreyting vekur óneitanlega athygli því Halldór sagði í Degi í fyrradag að forsendurnar væru viðskipta- Ieyndarmál og það myndi skaða hagsmuni fyrirtækisins og þjóð- arinnar að gefa þær upp. Ólafur Ragnar Ólafsson, fram- kvæmdstjóri Ægis, afhenti sam- gönguráðherra í gær mótmæli netverja gegn hækkun símgjald- a.nna. Hann er ekki sáttur við boðaðar breytingar. „Eg þarf að skoða þetta nákvæmlega, en ég tel að þeir hefðu getað gengið lengra. Þeir eru að fela eitthvað." FÞG/vj Sjd pólitt'sk viðbrögð bls. 3 Þorsteinn Jónsson. Bætiir fyrir bíósýningar Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Þorsteini Jónssyni kvik- myndagerðarmanni 400 þúsund króna bætur úr ríkissjóði vegna sýninga á kvikmyndunum Atóm- stöðin og Punktur punktur komma strik. Þetta getur þó vart talist sigur fyrir Þorstein, þvf hann fór fram á að sér yrði greidd skuld upp á 5,4 milljónir króna. Kvikmyndafélagið Óðinn framleiddi myndirnar, en félagið varð gjaldþrota. Þorsteinn keypti höfundar- og sýningar- réttinn og gerði samning við rík- ið um sýningar á myndunum. Samningurinn rann síðan út, en ríkið hélt áfram að Ieigja út og sýna myndirnar og neitaði að borga. Samningar tókust ekki og því höfðaði Þorsteinn mál með ofangreindri kröfu. -FGÞ Ólöglegur hreppa- fLutnmgur Hæstiréttur hefur dæmt til- kynningu oddvita Fljótsdals- hrepps til Hagstofunnar um breytt aðsetur Harðar G. Ing- ólfssonar dauða og ómerkaOdd- vitinn tilkynnti Hagstofunni að Hörður væri fluttur til Reykja- víkur í júní í fyrra og var hann skráður óstaðsettur í hús f Reykjavík. Hörður hélt því hins vegar fram að hann hefði leigt að Núpi I í hreppnum og haft þar sitt lögheimili, en hann var borinn þaðan út í september 1996. Hæstiréttur taldi sannað að Hörður hefði átt lögheimili að Núpi þegar tilkynning um flutn- ing hans var send Hagstofunni og ekkert hefði komið fram sem styddi fullyrðingar Fljótshlíðar- hrepps um annað. Hreppnum var gert að greiða Herði 80 þús- und krónur í málskostnað og til- kynningin dæmd dauð og ómerk. Alfa Laval Varmaskiptar SINDRI -sterkur í verki BORGARTUNl 31 • SIMI 552 7222 • BREFASIMI 562 1024 Kjör eldri boigara bls. 8-9

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.