Dagur - 01.11.1997, Blaðsíða 3

Dagur - 01.11.1997, Blaðsíða 3
ro^tr LAUGARDAGUR 1 . N Ó V E M B F. R 1997 - 3 FRÉTTIR Vbeyíia Halldors Forsætisráðherra gegn gjaldskrárhækk- un hjá Pósti og síma. Stjómarandstæðingar segja Halldór heygð- an, formaður sam- göngunefndar talar um skynsamlega ákvörðun. Breyting verður á áður boðaðri gjaldskrá Pósts og síma. Þetta kom fram í máli forsætisráð- herra, Davíðs Oddssonar, eftir fund með forsvarsmönnum fyrir- tækisins og Halldóri Blöndal samgönguráðherra. Þjóðfélagið hefur mótmælt gjaldhækkunum á símtölum innanlands með ýmsum hætti að undanförnu en samgönguráðherra hefur staðið með vilja Pósts og síma í hví- vetna og hvergi látið sig. I gær kallaði forsætisráðherra hann til sín og upplýsti eftir fundinn að við yrði ekki unað. „Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Davíð tekur sína fagráð- herra og snýr þá niður í duftið. Friðrik hefur lent í þessari með- höndlun og fleiri flokksbræður hans. Meginat- riðið er að gjald- skrárbreyting P&S og viðhorfin þar á bæ hafa vakið svo hörð mótmæli í þjóð- félaginu að odd- viti ríkisstjómar- innar hefur áttað sig á að draga þurfi í land. Við jafnaðarmenn munum reka þennan flótta og athuga hvort raunveruleg breyting verður á gjaldskránni en ekki bara ein- hveijir plástrar," segir Guðmund- ur Árni Stefáns- son, þingmaður jafnaðarmanna, sem situr í sam- göngunefnd Alþingis. Formaður samgöngunefndar, Einar K. Guðfinnsson sagðist ekki hafa forsendur til að dæma um hvað hefði farið á milli Halldórs og Davíðs en vildi ekki kannast við að Halldór hafi verið á villigöt- um. „Hann var einfaldlega að framfylgja ákvörðun Alþingis um eitt gjaldskrársvæði og hafi hann komist að því að einhverjir gallar hafi verið á útfærslunni var ekki nema sjálfsagt að leiðrétta þá,“ sagði Einar. Aðspurður hvort það væri ekki sérkennilegt að Hall- dór þyrfti hjálp Davíðs til að finna slíka útfærslugalla, sagðist Einar ekki vilja um það segja enda aðalatriðið að að ná syn- samlegri niðurstöðu. Einar kvaðst ekki hafa trú á að þetta mál myndi skaða pólitíska stöðu Halldórs í flokknum eða ríkisstjórn. Hall- dór hafi haft for- göngu um form- breytinguna á Pósti og síma, breytingu sem sé nú að skila sér til almenn- ings í formi lægri gjaldskrár. Þvættingur og vitleysa Póstur og sími beitti ekki í fyrsta skipti fyrir sig upplýsinga- leynd í þessu til- viki. Minna má á þegar fyrirtæk- ið neitaði þingmönnum um upp- lýsingar á launakjörum æðstu embættismanna. Guðmundur Arni segist verða fyrsti flutnings- maður nýs frumvarps um hluta- félög og ársreikninga sem lagt verður fram á þingi nk. mánu- dag. Það varðar málefni hlutafé- laga í eigu ríkisins, 50% eða meira og segir að þau skuli telj- ast opinber. „Þar með hefur ráð- herra þess málafokks upplýs- ingaskyldu gagnvart spurningum þingmanna sem gulltryggir að þvættingurinn og vitleysan nú geti ekki endurtekið sig. Að öðru leyti vil ég sem minnst segja um framgöngu samgönguráðherra. Hún er gjörsamlega út í hött,“ segir Guðmundur. Sítninn á að opna sig Mér er óhætt að segja að það er algjörlega mín skoðun að það sé ekki í þágu Pósts og síma að veita ekki gleggri upplýsingar en þeir hafa gert,“ sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra í sam- tali við blaðið í gær. Dagur spurði Davíð hvort ekkert hefði verið aðhafst innan ríkisstjórnar- innar ef hann hefði ekki haft frumkvæði að málinu. „Það skal ég ekki um segja,“ svaraði Davíð. Hann vildi ekki meta strax hvort fyrirhuguð breyting gjaldskrár- hækkunarinnar hefði þýtt aukn- ar tekjur fyrir P&S. „Við skulum sjá hvernig málið verður þegar allt er komið á yfirborðið og ákvörðun liggur fyrir, en við telj- um nauðsynlegt að almenningur fái allar forsendur P&S í þessu máli í gegnum fjölmiðla,“ sagði forsætisráðherra. Bþ/fþg Pólfararnir taka hér við stuðningi frá versiuninni Útilíf í Glæsibæ í gær þegar þeir gerðu formlega heyrinkunnugt um för sfna. Ferðin er að öðrum þræði farin til styrktar fötiuðum íþróttamönnum. mynd: hilmar Suðurpólmn í stöð- ugum mótvtndl Ólafur Öm Haralds- son, Haraldur Öm Ólafsson og Ingþór Bjamason leggja í hann á Suðurpólinn og mun ferðalagið taka tvo mánuði. Ingþór Bjarnason segir að ferð þeirra félaga á Suðurpólinn hafi verið í undirbúningi síðastliðinn tvö ár. Ólafur Örn og hann gengu yfir Grænlandsjökul fyrir fjórum árum síðan, en sú leið er 600 km eða helmingi styttri en ferðin á Suðurpólinn. Nú vorar á Suðurskautinu og sagði Ingþór að frostið yrði á bil- inu -15 til -40 stig, en það hefur mælst -89 að vetrinum. Hann segir þá félaga vel útbúna og þeir hafi notið góðrar ráðgjafar sem og stuðnings fyrirtækja hér á landi. Engar birgðastöðvar verða á leiðinni og færið er svipað því og að ganga í sandi, auk þess sem þeir geta búist við sköflum á Ieiðinni. Gengið verður í nokkuð stöðugum mótvindi. Þeir hafa með sér búnað, þan- nig að hægt verður að fylgjast með för þeirra, auk þess sem neyðarsendir er með í för. Upp- lýsingar um hvernig ferðin geng- ur verður hægt að nálgast á Internetinu. Innipúkar spyija sig hvað fái menn til að leggja á sig langa og erfiða göngu í grimmdar frosti. Ingþór segir það vera ævintýra- þrá sem knýi menn áfram til að takast á við sífellt stærri verk- efni, auk þess sem þeir styrki íþróttasamband fatlaðra með áheitum í ferðinni. Hann segir að þeir séu enn ekki farnir að huga að ferð á Norðurpólinn, en vill ekki útiloka neitt í þvf sam- bandi. — HH Vantar fólk í vinnu Atvinnurekendur vantar rúmlega 500 manns í vinnu, samkvæmt at- vinnukönnun Þjóðhagsstofnunar í september og hefur eftirspurn efstir vinnuafli ekki verið jafnmikil í 6 ár. Eftirspurnin er mest eftir fólki í þjónustu og iðnaði, en helst að menn vilji fækka starfsfólki á sjúkrahúsum. Atvinnurekendur á höfuðborgarsvæðinu telja æskilegt að íjölga starfsfólki um 330 og á landsbyggðinni vilja atvinnurekendur Ijölga um rúmlega 200 manns. Pétur Maack framkvæmdastjóri Loft- ferðaeftirlitsius Pétur K. Maack, verkfræðiprófessor, hefur ver- ið settur framkvæmdastjóri Loftferðaeftirlits Flugmálastjórnar. Pétur er tæplega fimmtugur doktor í iðnaðarverkfræði frá Tækniháskólan- um í Kaupmannahöfn. Hann hefur undanfarið starfað hjá Iðntæknistofnun og við verkfærði- deild Háskóla Islands. Pétri er einkum ætlað að huga að gæðastjórn- un loftferðaeftirlits og hjá Flugmálastjórn sem stofnun. Hann hefur fengið ársleyfi frá Háskól- anum, en mun annast nokkra kennslu þar áfram. Vilja vera í Sjómanna- skólahúsinu Kennarafélag Vélskólans tekur undir mótmæli gegn flutningi Stýri- manna- og Vélskólans að Höfðabakka í Reykjavík. Mennta- málaráðuneytið hefur lagt til að skólarnir verði báðir fluttir þangað, en það hefur mætt harðri mótspyrnu víða. Kennarar í Vélskólanum segja tillöguna „ósvinnu" og segja m.a. Ijóst að ekki sé verið að flytja skólana í hentugra húsnæði, né verið að efla starfsemi þeirra, heldur sé einungis verið að rýma fyrir annarri starfsemi.“ Þá segir í ályktun kennarafélagsins að talað hafi verið af lítilsvirðingu um að tilfinning- ar megi ekld hafa áhrif á ákvörðun sem þessa en „Kennarar skólans bera hlýjan hug til Sjómannaskólahússins... Við lítum svo á að Sjó- mannaskólahúsið, sem kennslustaður fyrir sjómenn, sé hluti af sögu þjóðarinnar og fastur punktur í tilveru hennar. Og það má spyija: Hvað er saga þjóðar án tilfinninga?" Pétur K Maack nýr fram- kvæmdastjórí Loftferðaeftir- iitsins.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.