Dagur - 01.11.1997, Síða 6

Dagur - 01.11.1997, Síða 6
6- LAUGARDAGUR l.NÓVEMBER 1997 rDgptr ÞJÓÐMÁL Utgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjórar: Aðstoðarritstjóri: Framkvæmdastjóri: Skrifstofur: Slmar: Netfang ritstjórnar: Áskriftargjald m. vsk.: Lausasöluverð: Grænt númer: Símbréf auglýsingadeildar: Símbréf ritstjórnar: DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEINSSON STEFÁN JÓN HAFSTEIN ELfAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GUÐMUNDSSON MARTEINN JÓNASSON STRANDGÖRU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK 460 6100 OG 800 7080 ritstjori@dagur.is 1.680 KR. Á MÁNUÐI 150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ 800 7080 460 6161 460 6171 (AKUREYRi) 551 6270 (REYKJAVÍK) Framtak unga fólksms í fyrsta lagi Ungt fólk í Grósku fer um landið þessa dagana og kynnir bar- áttu sína fyrir samfylkingu félagshyggjufólks við næstu Al- þingiskosningar. I málefnayfirlýsingu samtakanna er lögð áhersla á ríflega tvo tugi stefnumála sem þau vilja að sam- staða náist um. Sumt á þessum óskalista er svo almennt að undir það geta vafalaust flestir skrifað, en um annað eru skiptar skoðanir innan þeirra flokka sem fylkja á saman. Það er líka eftir að útfæra þessi stefnumál efnislega og útskýra hvernig eigi að framkvæma þau. í öðru lagi Það er ánægjulegt að ungt fólk skuli beita sér fyrir umræðu af þessu tagi og ýta á eldri kynslóðina að endurskoða það flokka- kerfi sem ráðið hefur ríkjum í íslenskum stjórnmálum mestan hluta þessarar aldar. Forystumenn í Alþýðuflokki og Alþýðu- bandalagi hafa lýst fullum vilja til þess að ræða saman um náið samstarf. Skemmtilegt dæmi þar um var sú staðreynd að forystumenn úr báðum flokkunum skrifuðu sameiginlega grein í Dag á fimmtudaginn um samfylkingarmálin og þær málefnaviðræður sem framundan eru og hvöttu um leið unga fólkið til dáða. íþriðjalagi Ljóst er að A-flokkarnir munu víða bjóða fram sameiginlega í stærstu bæjarfélögum landsins næsta vor - sums staðar með þátttöku Kvennalistans og fleiri hópa - og Framsóknarflokks- ins í höfuðborginni. Hins vegar er enn mun óvissara hvort víðtækt samkomulag næst um samfylkingu vinstri manna fyr- ir næstu þingkosningar. Það mun væntanlega ráðast af við- ræðum fulltrúa flokkanna um málefnin, auk þess sem úrslit bæjarstjórnarkosninganna geta haft mikil áhrif á framvind- una. Sagan sýnir að þrátt fyrir yfirlýstan vilja um sameiningu félagshyggjufólksins hefur þeirri skútu yfirleitt verið siglt í strand þegar þingkosningar nálgast. Framtak unga fólksins í Grósku er virðingarverð tilraun til að reyna að koma í veg fyr- ir að sú saga endurtaki sig. Elías Snæland Jónsson. Tveir dagar tiljóla Garri er mikið jólabarn. Hann fær stjörnur í augun eftir verslunarmannahelgi ár hvert, fer að búa til jólapoka og sauma út engla í hördúk undir jólatréð; þá sönglar Garri „Litla jólabarn" þegar aðrir landsmenn reyna að átta sig á því hvort þjóðhátíðarlag- ið í Eyjum sé jafn leiðinlegt og það sem var í fyrra. Þegar lands- menn taka slát- ur þá er Garri að skrifa jóla- kort, á síðkvöld- um ómar Bet- Iehemstjarnan með Ólöfu Kol- brúnu Harðar- dóttur og Garri sker út laufa- brauð. Garri tekur undir með gömlu spólunni sinni frá SG- hljómplötum, sem hann tekur alltaf fram þegar fyrstu réttir hefjast: „I dag er glatt t' döprum hjörtum" ómar í sjónvarpsholinu hjá Garra. Og hann tárast. Þegar alþingismenn steðja prúðbúnir til þings er Garri á fullu blússi að klastra saman piparkökuhúsi. Undir stefnu- ræðu forsætisráðherra er Garri orðinn rallhálfur af glöggi og syngur „Ég sá mömmu kyssa jólasvein". Marsípankonfektið fær svo fallegan gljáa þegar stjórnar- andstaðan málar skrattann á vegginn. „O litla jólatré" með Krist- V _____________________________ ínu LiIIendal er fastur liður á heimili Garra þegar ójólalegir landsmenn fara í haustlita- ferð í Vaglaskóg eða Þórs- mörk. Garri verður klökkur á meðan hann pakkar inn gjöf- um, sníður borða og dregur fram gamla jólasveina sem margar dýrmætar bernskuminningar eru tengd- ar. Októberfest heima hjá Garra er þrungið hangikjötsilmi, negulnaglaseyð og frómasið stífnar. Og Garri skrifar kort í all- ar áttir og send- ir vinum og kunningjum sem staddir eru í helgarferðum erlendis: „Gleði- leg jól!“ Savanna tríóið með „Kááátt er á jólunum" meðan maður situr af sér þennan ör- þreytta einslds nýta mánuð sem í gær var loksins liðinn. Og það er ekki fyrr en fyrsta nóvember að Garra finnst hann vera hluti af þjóðlífinu, eða þjóðlifið sé orðið hluti af Garra. Kertin loga í krans, englaraddir syngja og Jesú- barnið Iiggur í jötu Garra í dag, því það er einsog allir kaupmenn vita ekki ráð nema í tíma sé tekið: í dag eru að- eins tveir dagar til jóla. Tveir útborgunardagar. GARRI. Sigurvegarar óskast ÁSGEIR HANNES T '2*$ 08j EIRÍKSSON SKRIFAR Aðdragandi kosninga til borgar- stjórnar í Reykjavík á næsta ári er hafinn og bráðum hálfnaður. Ihaldið hefur skilið sauðina frá höfrunum í flokkshestaprófkjöri og meirihluti flokksmanna lét prófkjörið liggja á milli hluta. Úrslitin eru því ekki bindandi og eigendur Sjálfstæðisflokksins geta ráðskast með frambjóðend- ur á D listanum eftir eigin höfði. Að því Ieyti er prófkjörið stórvel heppnað flokkseigenda- prófkjör og flokkseigendafélag- inu hefur alltaf verið illa við of mikið lífsmark í flokknum sfn- um. Úrslit prófkjörins eru hefðbundin að vanda. Erfða- prins flokksformanns úr Eyjum hlaut sína rússnesku kosningu eins og lög gera ráð fyrir og hátt á annað hundrað prósent at- kvæða. Konur kusu ekki konur og ungt fólk kaus ekki ungt fólk. Karlar, konur og ungt fólk kaus gamlar karlrembur eins og venjulega. Eða eins og erfða- prinsinn úr Eyjum sagði í frétt- um þó hann meinti líldega eitt- hvað allt annað: - Sjálfstæðis- flokkurinn skiptist ekki lengur í konur og karla heldur í ungt fólk og gamalt fólk og listinn er sigur unga fólksins! Og auðvitað stóðu ungu sigurvegararnir upp fyrir gamla fólkinu eins og kurt- eis börn í strætó. Einu gildir hvernig flokkseig- endur velta listanum á milli handa sér og hann verður seint hnoðaður til sigurs að óbreyttu. Þó kjósendur séu taldir þjást af pólitísku minnisleysi hafa Reyk- víkingar ekki gleymt úrslitum síðustu byggðakosninga. Sama fólkið Ieiðir nú D listann og tap- aði þá fyrir R listanum og Iistinn verður því ekki leiddur af sigur- vegurum heldur hinum sigruðu. Allir gömlu borgarfulltrúarnir sem nú óska eftir endurkjöri voru sigraðir í síðustu kosning- um. Sjálfstæðisflokkurinn getur alveg eins sótt gamla og þreytta borgarstjórann sinn frá ósigrin- um ’78 niður í Seðlabanka og dubbað upp í fyrsta sætið. Að einu leyti hafa kjósendur í prófkjörinu rétt fyrir sér. Kven- semi er ekki í loftinu fyrir kosn- ingarnar frekar en fyrir forseta- kjörið i fyrra og frú Vigdís Finn- bogadóttir var þá ekki endurtek- in þrátt fyrir tilraunir. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er nú þegar við stjórnvölinn í Reykjavík og kjósendur sem vilja konu í borg- arstjórastólnum veðja á R lista frekar en freista gæfunnar á D lista. Aðeins firnasterk karl- remba getur ógnað goðsögninni Ingibjörgu Sólrúnu og sá karl- peningur er ekki fyrir hendi hjá Sjalianum. Stelpan ofan af Skipaskaga átti því ekki erindi sem erfiði á mölinni í þetta sinn. Reykvíkingurinn í Sjálfstæðis- flokknum hafnaði hins vegar í öðru sæti prófkjörsins. I svo vonlausri stöðu verður að finna djarfar lausnir og halda hinum sigruðu til hlés við kosn- ingabaráttuna. Ungur bílasali náði íjórða sæti prófkjörsins og á honum eru engin þreytumerki. Maður úr einkarekstri hefur ekki setið í borgarstjórn fyrir Sjallann síðan Albert heitinn Guðmundsson var og hét. Bíla- salinn á rætur í menningarlífi borgarinnar á sama hátt og Al- bert tengdist íþróttum. Kjör- nefnd á tvo leiki á borði: Annað hvort að finna listanum nýja for- ystusveit eða mynda oddaflug með syngjandi bílasalann í broddi fylkingar og útvarpsstjór- ann og blaðamanninn úr sjö- unda og áttunda sæti siglandi í kjölfarið. Strákarmir tveir eru með urrandi pólitískan metnað og nokkra reynslu en allir þrír eru sigurvegarar og hafa ekki ennþá beðið ósigur á þessum vígstöðvum. Ef þremenningarnir tækju framboðið föstum tökum og lærðu heimadæmin sín fyrir kosningar gætu þeir staðið yfir höfuðsvörðum R listans á kjör- dag. svauraö Erujólaauglýsingar of snemma áferðinni hjá kaupmönnum í ár? Sólveig Ólafsdóttir Jfamkvæmdastjóri Sambands ís- lenskra auglýsingastofa. Samband íslenskra auglýsinga- stofa hefur enga skoðun eða stefnu i þessu og þetta truflar mig ekki persónulega. En ég varð svolítið hissa á því að bæklingar með jólaauglýsingum skyldu berast mér í október. Hinsvegar skil ég vel að kaupmenn þurfi að koma jólavörum á framfæri í nóvem- ber. Jón Ellert Lárusson kaupmaður í Bókvali á Akureyri. Ég veit að þetta stuðar suma, en við kaupmenn á Akureyri höfum reynt að stilla þessu í hóf. Erlendis bytja þessar auglýsingar miklu fyrr en hér. Og þeir siðir, sem eru ríkjandi erlendis, hljóta fyrr eða sfðar að koma hingað til lands. Magnús L. Sveinsson fonnaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur. Nei, það held ég eldd. Kaupmenn hér eru í samkeppni við kaup- menn er- lendis og talað er um að fólk geri einhver innkaup í ferðum t.d. til Bretlandseyja, þó ég haldi að slíkt fari minnkandi. Ef íslenskir kaupmenn vilja standast erlenda samkeppni er nauðsynlegt að Iáta neytendur vita hvað hérlendis er á boðstól- um þannig að þeir hafi saman- burð á verði og vöruúrvali. Sr. Jón Helgi Þórarinsson prestur í Langlwltskirkju í Reykjavtk. Já, mér finnst of snemmt og ótímabært að vitna til jólanna í auglýsingum í októberlok og þegar jólaskraut má sjá í búðarglugg- um. Ég vil hvetja kaupmenn og almenning til að taka jólin ekki út fyrirfram, en hafa undirbún- ing í hófi. Mér finnst að Þjóð- kirkjan eigi að minna á þau gildi sem skipta máli; á boðskap Jesú Krists og ekki síst að hvetja fjöl- skyldur til að undirbúa komu jólanna saman og gefa börnun- um góða tíma.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.