Dagur - 05.11.1997, Side 1
Verð ílausasölu 150 kr.
80. og 81. árgangur - 209. tölublað
Boðar enn híekkun
á staðarsímtöliun
StjómarformaðiLr
Pósts og síma segir
það stefnu fyrirtæk-
isins að hækka verð á
staðarsímtölum en
lækka verð á lang-
línusímtölum.
Islenskir símnotendur geta bú-
ist við að sú 20% hækkun á
staðarsímtölum sem Póstur og
sími segir að muni verða, þegar
ný gjaldskrá tekur gildi á föstu-
dag, sé einungis fyrsta skrefið í
enn frekari hækkunum á næstu
misserum. Stjórnarformaður
fyrirtækisins, Pétur Reimars-
son, boðar í samtali við Dag enn
frekari hækkanir staðarsímtala
á næstu misserum. „Okkar
stefna er að útlendu símtölin
muni halda áfram að lækka, en
staðarsímtölin hækka á næstu
árum,“ sagði Pétur. Hann segir
þetta vera í samræmi við alþjóð-
lega þróun. Samkvæmt upplýs-
ingum stjórnarformannsins
mun tekjumissir Pósts og síma
eftir breytingarnar sem boðaðar
voru eftir fund með Davíð
Pétur Reimarsson. Neytendur geta átt
von á enn frekari hækkunum staðar-
símtala.
Oddssyni á föstudag verða um
380 milljónir króna. Jóhann-
es Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Neytendasamtakanna,
gagnrýnir harðlega gjaldskrár-
hækkanirnar og segir það sér-
kennilegan leik að menn telji
stórfelldar hækkanir í lagi, ein-
ungis vegna þess að dregið hafi
verið úr enn stórfelldari hækk-
unum. Jóhannes gagnrýnir
harðlega framgöngu Halldórs
Blöndal samgönguráðherra.
„Málflutningur Halldórs Blön-
dal í liðinni viku var með þeim
hætti að víða erlendis hefðu
ráðherrar fokið,“ sagði Jóhann-
es í samtali við Dag í gær.
Utandagskrárumræða af
lengri gerðinni fór fram á Al-
þingi í gær og sættu Halldór og
Póstur og sími þar líka mjög
harðri gagnrýni. Málshefjandi
var Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir, þingflokki jafnaðar-
manna, en það vakti sérstaka
athygli að forseti þurfti að
áminna ráðherra vegna þess að
hann fór fjórum sinnum rangt
með nafn þingmannsins í ræðu-
stóli!
Sjá ttarlega utnfjöllun á blað-
síðum 8-9.
Byggða-
stomim á
Krókmn
Stjórn Byggðastofnunar sam-
þykkti í gær að flytja þróunar-
svið stofnunarinnar til Sauðár-
króks. Starfsmenn þróunarsviðs
Byggðastofnunar segja að ekkert
samráð hafi verið haft við þá um
flutninginn og ekki Ieitað eftir
upplýsingum um verkefni þró-
unarsviðsins, né hver áhrif
flutningurinn hefði á þau.
Starfsmenn undrast þessa
ákvörðun.
Kristinn H. Gunnarsson,
stjórnarmaður í Byggðastofnun,
segir þetta samhljóða ákvörðun
stjórnar Byggðastofnunar. Hann
segist líta svo á að þetta sé Iiður
í að flytja stofnunina alla út á
land. Hann segir að ef Byggða-
stofnun geti ekki verið úti á
Iandi, þá séu ekki margar stofn-
anir sem þangað geti farið.
Kristinn segir nokkuð um lið-
ið síðan tillagan kom fram og
starfsmönnum hefði verið kynnt
þessi ákvörðun. Hann segir að á
dagskrá á fundinum í gær hafi
verið gert ráð fyrir greinargerð
frá starfsmönnum, en hún hafi
ekki komið fram. Hann segist
telja þessa ákvörðun styrkja bæði
stofnunina og Sauðárkrók. — HH
Snjórinn er misjafnlega kærkominn mönnunum. Bílstjórar og bændur hafa verið að bölva honum síðustu daga en blessuð
börnin kunna að meta hann. Á brekkunni á Akureyri voru krakkarnir komnir í snjókast og skemmtu sér konunglega.
- MYND BfílNK
Hallvarður Einvarðsson.
Hallvaröur
hættir
Dómsmálaráðherra veitti í gær
Hallvarði Einvarðssyni ríkissak-
sóknara lausn frá störfum frá og
með næstu áramótum. Hall-
varður óskaði ekki sérstaklega
eftir lausn frá embætti, en emb-
ættið verður auglýst á næstu
dögum.
Oljóst hefur verið hvort ríkis-
saksóknari gæti fengið lausn frá
embætti við 65 ára aldur og
haldið fullum kjörum, eins og
gildir um hæstaréttardómara.
Lagastofnun úrskurðaði í haust
að svo væri og ákvörðun ráð-
herrans byggist á því. Ríkissak-
sóknari heldur fullum emb-
ættislaunum til æviloka, en
hann verður 66 ára í desember.
W j Fjárhiuida-
fflutabréfÍS
t'kki kyrrsett
bls. 8 9
Vnmmsltiptnr
SINDRI |
Alfa Laval
■sterkur í verki
1 • SÍMI 562 7222 • BRÉFASÍMI 562 1024