Dagur - 05.11.1997, Qupperneq 3

Dagur - 05.11.1997, Qupperneq 3
Xk^MT' MIBVIKUDAGUR S.NÓVEMBER 1997 - 3 FRÉTTIR Fjárfest fyrir 11 nullj arða erlendis íslendingar stefna í 11 mUljarða króna fjárfestingu erlendis á þessn ári. Lands- menn hafa keypt hús í útlöndum fyrir 300 milljónir á þremur árum. Samkvæmt upplýsingum gjald- eyriseftirlits Seðlabankans hafa landsmenn fjárfest erlendis fyrir um 5,7 milljarða króna á fyrri helmingi þessa árs og með sama áframhaldi stefnir fjárfestingin erlendis í rúma 11 milljarða á ár- inu. Það samsvarar nær tíund af Ijárlögum. Hér er átt við nettó- hreyfingar beinna fjárfestinga Is- lendinga erlendis, einstaklinga og fyrirtækja, ásamt nettókaup- um íslendinga á verðbréfum út- ASI ræður upp- lýsingafulltrua Alþýðusamband Islands hefur ráðið Arnar Guðmundsson, frá- farandi ritstjóra Vinnunnar, sem upplýsingafulltrúa samhands- ins. Þá hefur Brynhildur Þórarins- dóttir blaðamaður verið ráðin ritstjóri Vinnunnar og Edda Rós Karlsdóttir hefur verið ráðin hagfræðingur hjá ASI frá og með síðustu mánaðamótum. Edda var áður forstöðumaður hjá Kjararannsóknanefnd og þar á undan deildarsérfræðingur hjá Ríldsendurskoðun. -GRH Baiiki biðst af- sökunar Samvinnuferðir-Landsýn vísa algjörlega á bug vangaveltum um að óeðlilega hefði verið stað- ið að milliuppgjöri fyrirtækisins, eins og ýjað er að í fréttum frá viðskiptastofu Islandsbanka. Kristján Gunnarsson fjármála- stjóri vísar einnig á bug að lakari afkoma félagsins vegna óhag- stæðrar gengisþróunar stafi af vankunnáttu í áhættustýringu. Ilann segir fyrirtækið hafa tryggt sig með framvirkum samningum á kostnaðarliðum, en erfiðara sé að tryggja sig gagnvart tekjum, því ekki sé hægt að greina það með löngum fyrirvara hvaðan þeir ferðamenn sem fyrirtækið flytur til landsins koma. Tryggvi Pálsson, fram- kvæmdastjóri Islandsbanka, seg- ir að morgunfréttir viðskipta- stofu bankans flytji fréttir af því sem markvert sé á gjaldeyris- og verðbréfamörkuðum. Stefnan sé að flytja ábyrgar fréttir af stað- reyndum og sú stefna sé óbreytt, öðrum sé svo látið það eftir að túlka slíkar fréttir. í fréttinni um Samvinnuferðir-Landsýn hafi staðreyndir vissulega verið birt- ar, en þar hafi einnig verið farið út í vangaveltur um ástæður seinkunar á birtingu milliupp- gjörs sem ekki hafi verið viðeig- andi. Bankinn hafi því beðið Samvinnulerðir-Landsýn afsök- unar á því orðalagi. —HH gefnum erlendis samkvæmt greiðslujafnaðaruppgjöri. Líkleg útkoma ársins samsvarar því að hvert einasta mannsbarn fjár- festi erlendis fyrir 42 þúsund krónur eða að hver fjögurra manna fjölskylda fjárfesti fyrir nær 170 þúsund krónur. Verslimardómstóll í París felldi í gær þanit úrskurð að krafa Sölu- miðstöðvar hrað- frystihúsanna (SH) um kyrrsetningu á hlutahréfum ís- lenskra sjávarafurða (ÍS) var ekki tekin til greina. Höfnun dómstólsins þýðir að hlutabréf ÍS verða áfram í þeirra höndum þ.e. sá samingur sem gerður var milli meirihlutaeig- enda Gelmersverksmiðjunnar og ÍS stendur. Málið heldurengu að Fjárfesting erlendis hefur vax- ið gríðarlega á undanförnum þremur árum. Arið 1995 hljóð- aði hún upp á 4,8 milljarða, hún fór upp í 6,1 milljarð árið 1996 og fyrstu sex mánuði þessa árs voru Iandsmenn búnir að fjár- festa fyrir 5,7 milljarða í útlönd- síður, þar sem fjallað verður um þá kröfu SH að sú samnings- gjörð, sem SH-menn telja að komin hafi verið milli þeirra og Gelmers, stand, og sé löglegurog samningurinn sem gerður var við ÍS verði ógiltur. Ef dómurinn fellst ekki á þau rök lögmanna SH er til vara far- ið fram á skaðabætur vegna rift- unar á samningi, þ.e. hvort ein- hver skaðsemi hljótist af því að ÍS eigi meirihluta í fyrirtækinu. Fransld dómstóllinn álítur því að ÍS hafi verið í góðri trú þegar það fjárfesti í franska fyrirtækinu, fulltrúar þess hafi ekki vitað að SH hafi verið að kaupa sömu bréf á sama tíma en verið rnjög fljótir að athafna sig, eða innan við 24 tíma. Dómsúrskurðar vegna kröfu um og stefna því í 11,4 milljarða á árinu. Verði það niðurstaðan hafa fjárfestingar erlendis vaxið um 137% á aðeins tveimur árum og verða alls 22,4 milljarðar á þremur árum. Meðal fjárfestinga Islendinga erlendis eru húsakaup, en þar liggja stærstu upphæðirnar þó ekki. Upp úr 1990 jukust húsa- kaup landsmanna í útlöndum, en síðan dró úr þeim aftur. Arið 1995 festu landsmenn kaup á 21 fasteign erlendis og boiguðu 1 I 6 milljónir króna fyrir. Arið 1996 voru 18 fasteignir keyptar fyrir 59 milljónir og fjTStu níu mán- uði þessa árs höfðu 20 fasteignir verið keyptar fyrir 103 milljónir. Líklegt er að fasteignirnar verði 26 á þessu ári og að heildarfjár- festingin á árunum þremur verði um 300 milljónir króna. Gjarnan er um sumarhús að ræða, t.d. á Spáni eða Florida. um ógildingu samningsins eða skaðabóta er ekki að vænta fyrr en milli jóla og nýárs, þ.e. í lok ársins, þrátt fyrir að samþykkt hafi verið flýtimeðferð í málinu. A fyrsta fundi nýrrar stjórnar Gelmer S.A., sem haldinn var í Boulogne-sur-Mer sl. föstudag ,var Höskuldur Asgeirsson ráð- inn til að gegna stöðu forstjóra fyrirtækisins næstu þrjá mánuði og hefur hann þegar hafið störf. Hann hefur verið framkvæmda- stjóri sölu- og markaðss\áðs IS frá síðustu áramótum. Stjórnar- formaður er Benedikt Sveinsson, forstjóri ÍS, en aðrir stjórnar- menn Hermann Hansson, Gísli Jónatansson, Höskuldur Ásgeirs- son og Francis Lanoy. — GG Gagnrýni Frið- riks vísað á bug Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri vísar á bug þeim full- yrðingum fjármálaráðherra að borgarstjóri hafi ekki gert minnstu tilraun til að efna sam- komulagið sem borgin gerði \áð stjórnvöld vegna fjárhagsvand- ræða Sjúkrahúss Reykjavíkur. I bréfi borgarstjóra til íjármálaráð- herra kemur fram að ráðherra hafi verið fullkunnugt um að samkomulagið frá 12. september sl. leysti ekki að fullu fjárhags- vanda sjúkrahúsanna í Reykjavík á þessu ári. Bent er á að fjárhags- vandi Sjúkrahúss Reykjavíkur er áætlaður um 144 milljónir króna og halli á Ríkisspítölunum 155 milljónir króna á þessu ári. Borgarstjóri minnir ráðherra einnig á að það sé heilbrigðis- og tryggingaráðuneytis að hafa eftir- lit með framkvæmd þeirra hag- ræðingaraðgerða sem stefnt er að. Jafnframt geta stjórnendur Sjúkrahúss Reykjavíkur ekki bor- ið ábyrgð á þeim þáttum sam- komulagsins sem varða tilflutn- ing verkefna á milli sjúkrahúsa. Einföld borgaxá- byrgð Borgarráð hefur samþykkt að Ieita tilboða f skuldabréf að nafnvirði 1.635.993.100 krónur sem yrðu framseld með einfaldri ábyrgð borgarsjóðs. Þarna er um að ræða skuldabréf sem borgar- sjóður eignast vegna sölu félags- Iegra íbúða til Félagsbústaða hf., þar sem Félagsbústaðir er skuldari. Ástæðan fyrir þessari einföldu ábyrgð borgarsjóðs er til þess gerð að ná sem lægstri ávöxtunarkröfu, þ.e. að lág- marka kostnað borgarsjóðs við sölu bréfanna. I samræmi við fjárhagsáætlun 1997 hefur borgarsjóður í hyggju að Ieita til- boða í 800 milljónir króna að söluvirði. Jafnframt mun borg- arsjóður áskilja sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða bafna þeim öllum. Þannig er hægt að komast að þvf hvernig kaupendur meta ábyrgðina í krónum talið. Fasteignir Félags- bústaða hf. eru metnar að nettó- verðmæti um 3 milljarðar króna. 596,1 milljón króna í viðbótar- fjárveitingar Viðbótarfján'eitingar vegna fjár- hagsáætlunar á yfirstandandi ári nema samtals um 596,1 milljón- um króna. Þar af nema aukaljár- veitingar vegna skólamála 178 milljónum og vegna félagsmála 151,6 milljónum króna. Yfir- stjórn borgarinnar hefur fengið 45 milljónir aukalega og þar af eru 12,5 milljónir króna vegna kjarasamninga og 32,6 milljónir króna til hærra innheimtugjalds af staðgreiðslu en áætlað var. Af öðrum viðbótarfjárveitingum má nefna að æskulýðs-, tómstunda- og íþróltamál hafa fengið 54 milljónir króna, Dagvist barna 40 milljónir króna, öldrunarmál 46,2 milljónir, menningarmál 14,4 milljónir, hreinlætismál 17.8 milljónir og önnur útgjöld 13.9 milljónir króna svo dæmi séu tekin úr samþykkt borgar- ráðs um viðbótarfjárveitingar. - FÞG Höskuldur Ásgeirsson forstjóri og stjórnarmaöur í Geimers (t.v.) sést hér ásamt Benedikt Sveinssyni stjórnarformanni Geimers og forstjóra ÍS. Þeir líta svo á að kaupin hafi gengið eðlilega fyrir sig og um það sé í raun ekkert að segja. mynd: -bg Kröfu tim kyrrsetningu hlutabréfa varhafnað

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.