Dagur - 05.11.1997, Blaðsíða 5
X^T'
MIÐVIKUDAGUR S.NÓVEMBER 1997 - S
Aðeins 397 af 602
sjóðiun og stofnunum
höfðu staðið skil á
ársreikninguin til
Ríldsendurskoðunar.
Elsti sjóðurinn er frá
1662. Sjóðum fækk-
ar.
í ársbyrjun í fyrra höfðu aðeins
397 sjóðir og stofnanir af 602
staðið skil á ársreikningum til
Ríkisendurskoðunar fyrir árið
1995. Þetta eru lakari skil en var
að meðaltali á árunum 1991-
1994. Heildareignir þeirra skil-
vísu námu 6,1 milljarði króna en
skuldir 2,3 milljörðum króna.
Tíu stærstu sjóðirnir voru með
tæplega 40% af eignum og um
55% af heildartekjum.
Ríkisendurskoðun telur koma
til álita að birta skrá yfir þá sem
ekki standa í skilum og jafnvel
vísa málinu til frekari meðferðar
hjá dómsmálaráðuneyti. Þá geta
menn átt það á hættu að Iögregl-
an rannsaki fjárreiður viðkom-
andi sjóða og stofnana og taki
einnig í sína vörslu skjöl og eign-
ir og hafi umsjón með fjárvörslu.
Sigurdi Þórðarsyni ríkisendurskoðanda er að bresta þolinmædi vegna óskiivísra sjóða og stofnana á ársreikningum. Hótar aö
siga lögreglu á trassana.
Stofnunin hyggst hinsvegar ekki
fara með þá óskilvísu fyrir dóms-
málaráðuneytið að svo stöddu,
heldur reyna að fá lögboðin
reikningsgögn með því að gefa
trössunum einhvern frest.
Þetta kemur fram í riti Ríkis-
endurskoðunar um eftirlit með
sjóðum og stofnunum sem starfa
samkvæmt staðfestri skipulags-
skrá. Þá fagnar stofnunin því að
innan skamms er von á frum-
varpi til laga um sjóði og sjálfs-
eignarstofnanir sem stunda at-
vinnurekstur.
560 sjóðir aflagðir
I ritinu kemur fram að á síðustu
árum hefur sjóðum fækkað tölu-
vert í framhaldi af lögum sem
heimila dómsmálaráðuneyti að
leggja niður sjóði sem ekki áttu
eignir sem námu að minnsta
kosti 50 þúsund krónum. Þá hef-
ur ráðuneytið beitt sér fyrir sam-
einingu sjóða og stofnana þar
sem það hefur átt við. Þetta hef-
ur gert það að verkum að frá árs-
byijun 1989 til ársloka í fyrra
voru alls 560 sjóðir lagðir niður
af 1168. A sama tímabili voru
hinsvegar stofnaðir alls 147 nýir
sjóðir. Elsti skráði sjóðurinn í
sjóðaskrá er Reynislegat sem
stofnaður var árið 1662.
Margir þeirra sjóða sem enn
eru við lýði eiga sér þó tæpast
viðreisnar von. Um sl. áramót
voru t.d. 52 sjóðir sem áttu
minna en 100 þúsund krónur og
155 sjóðir sem áttu minna en
500 þúsund krónur. Þá eru
margir sjóðir aðeins með vörslu-
menn en engar stjórnir. Ríkis-
endurskoðun telur einnig um-
hugsunarvert hvort ekki eigi að
hækka lágmarksstofnfé sjóða
sem er 462 þúsund krónur.
Stofnunin telur að sjóðir sem
ekki eiga meira stofnfé og hafa
ekki aðrar tekjur en ávöxtun þess
séu ekki líklegir til stórræða.
- GRH
FRETTIR
RíMsendtirskoðun hótar
trössum í sjððakerfínu
Vísar félags-
stuldi á hug
Vistrými eftir kjördæmum 1996 fyrir hverja 100 ellilífeyrisþega.
Vistrýmum aldraöra er mjög misskipt milli landshluta, eins og myndin leiðir í Ijós. Fjöldinn er um 3.500 i landinu öllu, eða liðlega
15 rými fyrir hverja 100 ellilífeyrisþega að meðaltali.
Þúsund vistrýmum færraá
SV-hominu
Jón Gauti Jónsson, fram-
kvæmdastjóri og fyrrum bæjar-
stjóri, segir að hvorki hann né
Hrafn Sigurðsson séu viðriðnir
meintan stuld á hlutafélagi
Emanúels Morthens, sem greint
var frá í Degi í
gær.
„Olafur Geirs-
son hafði milli-
göngu um kaup
á þessu hlutafé-
lagi af Bjarna
Þór Sigurðssyni,
sem rak bók-
haldsskrifstofu
hér í bæ. Það
hvarflaði aldrei
annað að mér en
að þar væri allt
með eðlilegum
hætti. Við Hrafn
fórum út úr fé-
laginu og það
var elvki fyrr en
ári síðar að það
uppgötvaðist að
félagið væri illa
fengið. Við lögð-
um þá mikla
áherslu á að félaginu yrði strax
skilað," segir Jón Gauti. Hann
segir það mikla brotalöm að
menn hafi getað Iabbað inn í op-
inbera skráningarstofu og skráð
á sig félag án þess að raunveru-
legir eigendur væru spurðir.
Ólafur Geirsson staðfestir orð
Jóns Gauta. „Það liggur inni hjá
rannsóknarlögreglunni kvittun
um að við höfum keypt félagið af
Bjarna Þór. Eg sá um þetta en
var biekktur og skil ekkert í því af
hverju Bjarni Þór var ekki ákærð-
ur, enda voru fleiri mál í gangi
gegn honum á þessum tíma,“
segir Ólafur.
I frétt Dags í gær kom fram að
Emanúel og Þorbjörg Morthens
hafi höfðað
einkamál gegn
Jóni Gauta,
Hrafni Sigurðs-
syni og Ólafi
Geirssyni og
krafist bóta
vegna óþæginda
sem þau urðu
fyrir eftir að
hlutafélag hafði
verið hirt af
þeim. Þau gera
kröfu upp á 500
þúsund króna
greiðslu vegna
óþæginda og
kostnaðar.
„Ég get bara
harmað það ef
þau hjónin hafa
orðið fyrir
óþægindum og
ef til vill hefði
verið rétt að kynna sér álit fyrri
eigenda hlutafélagsins. En við
vorum að kaupa félag af bók-
haldsskrifstofu, sem við töldum
að treysta mætti. Við vorum
grandalausir og ég skil ekki af
hverju kærunni er beint til okkar
en ekki Bjarna Þórs,“ segir Jón
Gauti. - FÞG
Um þúsund vistrými
fyrir aldraða vantar á
SV-hom landsins til
þess að hlutfallið sá
það sama og á lands-
hyggðinni.
Eru vistrými fyrir aldraða allt of
fá í höfuðborginni eða kannski
of mörg á landsbyggðinni? Mið-
að við fjölda ellilífeyrisþega vant-
ar um 770 rými í Reykjavík og
hátt í 200 í Reykjaneskjördæmi
til þess að ná meðaltali lands-
byggðarinnar; um 1 vistrými fyr-
ir hverja 5 ellilífeyrisþega. 1
Reykjavík eru 8 aldraðir uni
hvert rými, en aðeins liðlega 4 á
Suðurlandi, samkvæmt upplýs-
ingum Tryggingastofnunar.
Ellilífeyrisþegar eru hlutfalls-
lega flestir á Norðurlandi-vestra
en hins vegar langfæstir í
Reykjaneskjördæmi. I heild er
hlutfall aldraðra líka heidur
hærra á landsbyggðinni en sam-
anlagt í R-kjördæmunum á SV-
horninu, þar sem næstum 66%
landsmanna eru búsettir, en
bara 65% ellilífeyrisþeganna. Þar
eru þó einungis 55% af vistrým-
um aldraðra.
Ellilífeyrisþegar voru um 23
þúsund á síðasta ári (8,6% lands-
manna) samkvæmt tölum
Tryggingastofnunar. Vistrými
aldraðra voru þá rúmlega 3.500,
sem þýðir að 6-7 aldraðir eru um
hvert vistrými. - HEI
Jón Gauti Jónsson: Skil ekki af hverju
við erum kærðir en ekki Bjarni Þór
Sigurðsson.