Dagur - 05.11.1997, Blaðsíða 11

Dagur - 05.11.1997, Blaðsíða 11
Tk^ur- MIÐVIKUDAGUR S .NÓVEMBER 1997 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR L. A Tveir laumufarþegar, sem sögðust vera frá Búrúndí, í íslenskri höfn. <• * Menn fyrir borð Þrír sjómenn á dönsku kaup- skipi, stýrimaður og tveir háset- ar, voru nýlega fyrir rétti í Esbjerg fundnir sekir um að hafa varpað fyrir horð úti á rúmsjó afrískum laumufarþega, er kom- ist hafði um borð í skipið og falið sig í því í höfn í Vestur-Afríku. Stýrimaðurinn var dæmdur til tíu mánaða fangelsisvistar en há- setarnir sluppu með skilorðs- bundinn dóm. Gróði fyrir mafíur Vitað er að undanfarið hefur ver- ið nokkuð um að áhafnir kaup- skipa hafi varpað laumufarþeg- um fyrir borð. Fyrir nokkru skýrðu filippínskir skipverjar á Mærsk Dubai, skipi sem mun vera í danskri eigu, yfirvöldum í Kanada svo frá að skipstjóri skipsins, sem var Taívani, hefði látið kasta þremur laumufarþeg- um frá Rúmeníu fyrir borð úti á rúmsjó. Kanada framseldi af þessu tilefni skipstjórann og fimm skipverja aðra, sem einnig voru Taívanar, yfirvöldum lands þeirra, en síðan mun lítið hafa gerst í því máli. Aður hafði komist upp að afrískum laumufarþegum hafði verið varpað íyrir horð af m.a. spænskum, úkraínskum og þýsk- um skipum. Þeir sem um þessar mundir gerast laumufarþegar með skip- um eiga það flestir sameiginlegt að þeir vilja komast til Vestur- Ianda og fá landvistarleyfi þar. Af fréttuin að dæma virðast tiltölu- lega margir þeirra vera Afríku- menn. Þetta er þáttur í þjóð- flutningum til Vesturlanda sem staðið hafa í áratugi. Sumir um- ræddra Iaumufarþega eru alveg á eigin vegum, aðrir njóta til þessa aðstoðar mafíuhópa. Hjá mafí- um er smygl á fólki til Vestur- landa fyrir löngu orðin meiri- háttar viðskiptagrein og sam- kvæmt sumum fréttum hafa þær nú meira upp úr því en sölu á eiturnautnaefnum. Því fer sem sé fjarri að þriðjaheimsfólk það, sem flytjast vill til Vesturlanda, sé allt úr fátækari lögum samfé- Iaga. Ymislegt bendir til þess að sumt af því fólki flytji ekki vegna þess að það búist endilega við betri efnahag á Vesturlöndum en það bjó við í ættlandinu, heldur af því að það telji samfélög Vest- urlanda „rnýkri" og tilhliðrunar- samari en samfélög eigin ætt- landa og því auðveldara að koma ár sinni fyrir borð í vestrænu samfélögunum. Vegabréfslausir Talið er að sumir umræddra far- þega komist um borð með mút- um sem þeir eða mafíur reiði af höndum við skipverja. Það heyr- ist að ekki hvað síst farmenn frá fyrrverandi sovétblokk séu grun- aðir um að vera veikir fyrir slíku. Erik Dossing, yfirmaður ferða- mannaeftirlits við hafnir Kaup- mannahafnar, segir skipstjóra nokkurra skipa frá þeim löndum hafa beðið það eftirlit leyfis til þess að leggjast að hafnargarði Baksvið Tala laiuimfarþega á ársgrandvelli lieíiir meira en fjórfaldast á 6-7 áram. Þeir era ekki aufúsugestir og skipaútgerðir verða oft fyrir verulegum fjárútlátum þeirra vegna. gagngert til þess að sleppa í land 8-10 laumufarþegum. Hafnaryf- irvöld þar telja engum vafa bundið að í slíkum tilvikum sé uin mannasmygl að ræða. En algengara er líklega að laumufarþegar séu skipverjum ekki aufúsugestir. Þungvæg ástæða til þess er að erfitt getur orðið að losna við farþega þessa. A Vesturlöndum vilja yfirvöld ekki taka við þeim og þaðan af síður yfirvöld annarra landa. Menn þessir eru margir vega- bréfslausir, einhverjir kannski vegna þess að þeir hafi ekki feng- ið vegabréf í Iandi sínu en aðrir af því að þeir telji að vegabréfs- leysið auðveldi þeim að fá land- vistarleyfi á Vesturlöndum. Ríki, sem laumufarþegarnir eru frá (eða segjast vera frá), nota vega- bréfsleysi þeirra sem átyllu til þess að neita að taka við þeim, og von margra slíkra farþega kvað vera að þetta leiði til þess að þeir fái um síðir landvistar- leyfi í einhverju vesturlandarík- inu af mannúðarástæðum, eins og það er gjarnan orðað í slíkum tilvikum. Refsað með uppsögn Ekki er víst að það gangi því að mörg ríki taka ekki við laumufar- þegum af skipum og önnur hleypa þeim því aðeins í land, að fyrirtækin er gera út skipin borgi háa fjárhæð með farþegum þess- um út í hönd og ábyrgist allan kostnað þeirra vegna langt fram í tímann. Skipin tefjast oft út af laumufarþegum eða sitja í lengri tíma uppi með þá, af því að þeim er hvergi hleypt í land. Allt þetta þýðir kostnað fyrir útgerðirnar og oft talsverðan. Þetta leiðir til þess að skipverjar á skipi, sem fær laumufarþega um borð, eiga á hættu að útgerðin refsi þeim fyrir meint aðgæsluleysi með því að segja þeim upp. I þeim tilvik- um munu yfirmenn vera taldir bera mesta ábyrgð. Sennilegt er að það hafi verið með hliðsjón af þessu sem áð- uráminnstir sjómenn í Esbjerg fengu vægan dóm. Á Vesturlönd- um hika menn við að slaka á reglum um laumufarþega, af ótta við að slíkt leiddi til stór- felldra fólksflutninga með þessu móti til Vesturlanda. West of England, fremst í heimi í skipatryggingum, segir að í upphafi áratugsins hafi um 3200-3300 laumufarþegar upp- götvast á ári. Nú finnist um 15.000 laumufarþegar árlega. Við þetta er að bæta, eins og tryggingafyrirtæki þetta orðar það, þeim heppnu sem komast leiðar sinnar án þess að yfirvöld viti og þeim óheppnu, sem varp- að er fyrir borð. Enginn veit hve margir þeir eru. Míkið maimtjón eftir fellibyl VIETNAM - Fellibylurinn Linda gekk yfir suðurhluta Víetnams á þriðjudag og skildi eftir sig slóð eyðileggingar og varð a.m.k. 120 manns að fjörtjóni. Að auki var yfir 1000 manns saknað á hafi úti og var talið að stór hluti þeirra hefðu farist. Eftir að hafa lokið yfirreið sinni um Víetnam hélt fellibylurinn inn í Burma og þaðan út yfir Bengalflóa. Sendinefnd SÞ enn vísað á brott ÍRAK - Stjórnvöld vísuðu í gær vopnaeftirlitsnefnd frá Samein- uðu þjóðunum í annað sinn á brott frá landamærunum og sögð- ust ekki veita neinni sendinefnd aðgang að landinu ef í henni væru einhverjir Bandaríkjamenn. Sendinefndarmönnunum var hins vegar tilkynnt á vinsamlegan hátt að þeim væri frjálst að sinna störfum sínum, ef Bandaríkja- mennirnir yrðu skildir eftir. írakar hafa einnig hótað því að skjóta nið- ur eftirlitsflugvélar Bandaríkjanna ef þær fljúga inn í lofthelgi íraks. Saddam Hussein: vill enga Bandaríkja- menn inn fyrir landamærin. 40 þúsirnd Fíateigendur yfirheyrðir FRAKKLAND - Franska lögreglan tók á mánudag þá ákvörðun að hafa samband við eigendur fjörutíu þúsund Fiat Uno bifreiða og spyrja þá spurninga í tengslum við rannsókn á láti Díönu prinsessu af Wales, en hugsanlegt er talið að ein af þessum bifreiðum hafi rekist utan í Mercedes bifreiðina sem Dfana var í rétt áður en slysið varð. Það gæti tekið margar vikur að yfirheyra alla Fíateigendurna, en byij- að verður á þeim sem búa í París og nágrenni. Dómarinn tekur sér meiri tíina BANDARÍKIN - Dómarinn í máli hresku barnfóstrunnar Louise Woodward sagð- ist í gær ekki myndu fella neinn endan- legan dóm í málinu strax, en hann hafði þá hlýtt á rök veijenda stúlkunnar fyrir því að úrskurður kviðdómsins frá í síð- ustu viku verði dæmdur ógildur eða mildaður verulega. Woodward má því enn um sinn bíða endanlegs úrskurðar í málinu, sem vakið hefur heimsathygli. Louise Woodward: þarf aö bíða enn eftir dómi. Farþegaflugvél nauölendir ÞÝSKALAND - Farþegaflugvél með 136 manns innanborðs nauðlenti á flugvellinum í Múnchen í gær, en flugmaður hennar hélt að eldur hefði komið upp í einum hreyfli vélarinnar. Vélin var á leið til Kaíró, en flugmaðurinn sneri henni við þegar í stað til Múnchen og var hafður mikill viðbúnaður á flugvellinum. Eftir lendingu kom í ljós að enginn bruni hafði verið, en bilun í mælabúnaði olli því að aðvörun- arljós kviknaði. Kvótatillögum Simonsens misvel tekið DANMÖRK - Hugmyndum Thorkilds Simonsens, nýja innanríkisráð- herrans í Danmörku, um að sveitarfélögin fái hvert um sig ákveðinn kvóta af þeim flóttamönnum, sem veitt er viðtöku í Danmörku ár hvert, hafa fengið misjafnar undirtektir. Svend Áge Hansen, formað- ur sveitarfélaga á Fjóni, segir tillögurnar vera óframkvæmanlegar, þar sem flóttamennirnir myndu síðar meir hvort eð er leita í þéttbýlið þar sem myndast hafa samfélög flóttamanna. Ráðherrum ríkisstjórnar- innar hefur verið gefinn viku frestur til að komast að niðurstöðu um kvótatillögurnar. Frítt í strætó og einkabílar baimaðir NOREGUR - Sósíalíski vinstriflokkurinn í Noregi vill að á þeim dög- um, þegar mengun er hvað mest í Osló, verði almenningssamgöngur í borginni ókeypis og jafnframt verði notkun einkabíla bönnuð í mið- borginni. Loftmengun í Osló hefur verið með mesta móti undanfar- ið, með vaxandi þrýsting á ráðamenn um að eitthvað verði gert til að draga úr henni.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.