Dagur - 05.11.1997, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 5 .NÓVEMBER 1997 - 13
ÍÞRÓTTIR
Haukar
heiðradir
Knattspyrnufélagið Haukar veitti
viðurkenningar fyrir góðan ár-
angur á árshátíð sinni sem hald-
in var þann 25. október sl. Vald-
ir voru íþróttamenn félagsins og
féll sá heiður í skaut þeirra Gúst-
afs Bjarnasonar handknattleiks-
manns, Hönnu G. Stefánsdóttur
knattspyrnukonu, Péturs Ingv-
arssonar körfuknattleiksmanns,
Ara Sverrissonar karatemanns og
skíðakonunnar Kristrúnar Lind-
ar Helgadóttur.
Asbjarnarbikarinn hlaut Haf-
steinn Ellertsson fyrir gott starf
að unglinga- og æskulýðsmálum,
Haukafjölskylda ársins voru
hjónin Anna Guðmundsdóttir og
Bjarni Jónasson ásamt börnum.
Þá var Anna Ólafsdóttir valin
stuðningsmaður ársins. Allir
verðlaunahafar fengu táknrænt
listaverk sem myndlistarkonan
Sigríður Erla hannaði fyrir félag-
ið.
I/erðlaunahafarnir ásamt formanni Hauka. Frá vinstri: Bjarni Jónasson, Anna Guömundsdóttir, Hafsteinn Ellertsson, Gústaf
Bjarnason, Pétur Ingvarsson, Hanna R. Stefánsdóttir, Anna Ólafsdóttir og Lúðvík Geirsson, formaður Hauka.
:• . %", : P't*. ff4
is iý* ; t Ék ÍíteðÉsb f • *
\ £7 (S
! . | tf .mh'-i
Zinelik kemur hingað
til lands
Heimsmeistarinn í sjöþraut, Ro-
bert Zmelik frá Tékklandi, hefur
gefið Frjálsíþróttadeild ÍR já-
kvætt svar um að hann muni
koma hingað til lands og keppa á
innanhússmóti félagsins, sem
haldið verður í janúar nk. í Laug-
ardalshöll.
Zmelik, sem er 28 ára og
þekktastur fyrir að verða Ólymp-
íumeistari á leikunum í
Barcelona fyrir fimm árum, mun
keppa í þremur greinum gegn
Jóni Arnari Magnússyni, Chris
Huffins og Ólafi Guðmundssyni,
auk þess sem ekki er loku fyrir
það skotið að fleiri erlendir tug-
þrautargarpar bætist í hópinn.
FRI fékk mest í sinn
hlut
Frjálsíþróttasamband fslands,
hefur fengið hæsta styrk allra
sérsambanda það sem af er ára-
tugarins frá Afreksmannasjóði.
íslenskt frjálsíþróttafólk hefur
fengið 23,7 milljónir af sjötíu
milljóna kr. styrkveitingum
nefndarinnar á átta árum. Þetta
kom fram í ársskýrslu nefndar-
innar sem lögð var fyrir fyrsta
þing Iþrótta- og Ólympíusam-
bands Islands. Eftirtalin sérsam-
bönd fengu styrki frá sjóðnum á
árunum 1990-97:
1. Frjálsíþr.samband.
23.720.000
2. Handkn.leikssamb.
20.250.000
3. Sundsamband 6.105.000
4. Skíðasamband 5.230.000
5. Júdósamband 5.210.000
6. Badmintonsamb. 3.040.000
7. Knattspyrnusamb. 1.600.000
8. íþr.samb. fatlaðra 1.458.000
9. Golfsamband 1.340.000
10. Fimleikasamband 1.230.000
1 1. Borðtennissamband 800.000
12. Körfuknattleikssamb. 650.000
13. Karatesamband 250.000
- FE
O’Neffl kýldi mið-
herja Utah í gólfið
Shaquille O’NeilI var dæmdur í
eins leiks bann og tíu þúsund
dala sekt fyrir að slá Greg
Ostertag, miðherja Utah Jazz,
fyrir leik liðanna á föstudag. Ein-
hver orðaskipti áttu sér stað á
milli þeirra áður en O’Neill sló
hinn 140 kílóa Ostertag í gólfið.
Ostertag var sfðan svipur hjá
sjón framan af leiknum og hitti
aðeins úr einu af ellefu fyrstu
skotum sínum. Lakers sigraði
leiknum og batt enda á 2-leikja
sigurgöngu Utah í NBA-deild-
inni.
O’NeilI bað hlutaðeigandi
afsökunar á hegðun sinni. „Ég
gerði mistök. I staðinn fyrir að
einbeita mér að því sem best
var fyrir liðið, gleymdi ég mér í
hita augnabliksins og fór eftir
tilfinningum mínum í stað
þess að hugsa,“ sagði
O’Neill, sem hefur enn
ekki leikið með Los
Angeles Lakers í vet-
ur, vegna meiðsla.
Fyrsti leikur hans
átti að vera gegn
Sacramento
Kings í nótt, en
hann tekur út
bann sitt í þeim
leik.
Löngum hefur
verið stirt á milli
O’Neill og
Ostertag, en Utah
liðið sló LA Lakers
út úr úrslitakeppn-
inni í fyrra, þar sem
varnarleikur
Ostertag gegn
O’Neill var talinn
eiga stóran þátt í
sigrinum.
Jordan hitti á
réttum tíma
Michael Jord-
an hitti að-
eins úr 12
skotum af
29 utan af
velli þegar
Chicago
Bulls lagði San Antonio Spurs,
87:83, á heimavelli sínum í fyrri-
nótt. Chicago þurfti að hafa
mikið fyrir sigrinum, því tvífram-
lengja þurfti leikinn. Þrátt fyrir
að hittni Jordan hafi verið í lak-
ara lagi, var hann engu að síður
hetja Chicago, hann knúði fram
framlengingu með þriggja stiga
körfu, skoraði síð-
ustu körfu
meistaranna
í fyrri fram-
lengingunni
og gull-
tryggði síðan
sigur
meistaranna með síðustu körf-
unni.
Dennis Rodman, fyrrum leik-
maður San Antonio, tók 22 frá-
köst áður en hann fékk sína
sjöttu villu og Jordan tók 13 frá-
köst. David Robinson var at-
kvæðamestur gestanna með 21
stig. Nýliðinn Tim Duncan skor-
aði nítján stig og var með 22 frá-
köst.
Ekki misst úr leik í ellefu ár!
AC Green, framherji Dallas Ma-
vericks, er á góðri Ieið með að
komast á spjöld sögunnar í NBA-
deildinni. Green hefur ekki
misst úr leik með liðum sínum,
LA Lakers, Phoenix Suns og
Dallas Mavericks sem hann
gekk til liðs við í sumar, í
ellefu ár, eða síðan 19.
nóvember 1986.
Green hefur leikið
896 leiki á þessu
tímabili en metið er
906 leikir, sett af
Randy Smith. Ef allt
gengur að óskum
mun Green leika
sinn 907. leik gegn
Golden State
Warriors þann 20.
þessa mánaðar.
„Það er mikill heið-
að hafa leikið
svo marga leiki í
röð. Ég hef verið
heppinn, lent hjá
góðum liðum sem
hafa haft góða
þjálfara og
lækna í þjón-
ustu sinni,"
sagði
Green
sem tví-
vegis varð
NBA-
meistari
með
Lakers.
- FE
KNATTSPYRNA
Atkinson líklegur eftir-
inaður Pleat
Ron Atkinson er talinn líklegur
til að taka við framkvæmda-
stjórastöðunni hjá enska úrvals-
deildarliðinu Sheffield Wednes-
day, en framkvæmdastjóra liðs-
ins, David Pleat, var sem kunn-
ugt er sagt upp á Iaugardag.
Ron Atkinson stjórnaði Sheffi-
eld Wednesday um tveggja og
hálfs árs skeið, en hætti með lið-
ið 1991. Atkinson vur uppnefnd-
ur „Júdas” af stuðningsmönnum
Wednesday-liðsins þegar hann
fór frá klúbbnum til Aston Villa
fyrir sex árum.
Bobby Robson, tæknilegur
ráðgjafi hjá Barcelona, var einn-
ig orðaður við stöðuna, en sendi
frá sér fréttatilkynningu þar sem
hann sagðist ekki vera á leið til
Sheffield, en félagið segir að nýr
framkvæmdastjóri verði ráðinn
fyrir helgina.
Wenger vlll kaupa fleiri
leikmenn
Arsene Wenger, franski fram-
kvæmdastjórinn hjá enska úr-
valsdeildarliðinu Arsenal, býr sig
undir að taka upp tékkheftið,
eftir slaka leiki að undanförnu.
Talið er að Wenger hafi tíu millj-
ónir punda til umráða til kaupa á
Ieikmönnum. Stjórinn sagði að í
3:0 tapleiknum gegn Derby sl.
laugardag hefði lið hans vantað
sköpunargleði, aga, þolinmæði
og sjálfstraust. „Við höfum Ieikið
þijá leiki án þess að skora mark
og það er áhyggjuefni, vegna
þess að það sýnir veikleika. Ég
mun finna lausn og við þurfum
að kaupa nýja leikmenn, vegna
þess að við erum ekki nógu
sterkir á sumum sviðum."
Markvörðnr skoraði
Markvörður spænska 3. deildar-
liðsins Racing Ferrol, Inigo
Arteaga að nafni, komst í meta-
bækurnar um síðustu helgi, þeg-
ar útspark hans rataði í mark
andstæðinganna, í 100 metra
fjarlægð. Þetta er í fyrsta skipti
sem mark kemur beint upp úr
markspyrnu á Spáni.
Tromsö hélt sætinu
Tromsö lagði Eik Toensberg að
velli 2:1 í síðari aukaleik liðanna
um sæti í norsku 1. deildinni í
knattspyrnu. Leikið var á heima-
velli Eik, en fyrri leiknum lyktaði
með 4:0 sigri Tromsö. Hilmar
Björnsson, leikmaður KR, mun
væntanlega leika með Tromsö á
næsta keppnistímabili.
GOLF
Monty áfram í Evrópu
Skoski kylfingurinn Colin
Montgomerie, sem unnið hefur
meira verðlaunafé á Evrópu-
mótaröðinni undanfarin fimm ár
heldur en nokkur annar, hefur
ákveðið að gerast ekki meðlimur
á bandarísku mótaröðinni á
næsta ári. Montgomerie mun
engu að síður taka þátt í
nokkrum mótum vestanhafs, en
hann mun hafa aðsetur í Bret-
landi, eins og undanfarin ár.