Dagur - 05.11.1997, Qupperneq 16
Reykjavík
°9 Mið Fim Fös Lau mm
5 -------f-15
■10 J
NNA3 ASA4 A4 ANA5 ANA4
SA3 ASA4 A5 ANA4
Stykkishólmur
"9 Mið Fim Fös Lau mm_
5 "1 ....1—15
A5 ANA5 ANA4
A4 ANA5 ANA4
Bolungarvík
9 Mið Fim
Fös
-10 J
NNA2 NA6 ANA6 NA5 ANA3
A3 NA4 NA5 ANA4
Blönduós
9 Mið
5
Fim
Fös
Lau
-10
- 5
N2 ANA1 ANA3 NA3 ANA1
ASA2 A2 ANA4 ANA3
Akureyri
‘9 Mið
0
-5-
Fim
Fös
Lau mm
-----H15
-10
- 5
0
Egilsstaðir
Mið Fim Fös Lau mm
NNV3 ASA3 NA3 NNA4 NA3
ANA2 A3 NA4 NA4
Kirkjubæjarklaustur
19 Mið Fim Fös Lau mm
N2 SA2 A3 ANA3 ANA3
SSA2 ASA3 ANA3 ANA3
Stórhöfði
Lau mm
Miðvikudagur 5. nóvember 1997
Veðrið í dag...
Hæg breytileg eöa suðaustlæg átt. Skýjað með köflum vlða
um land og að mestu þurrt. Þó rigniug eða súld á annesjum
vestanlands þegar líður á daginn og eins skúrir á
Austfjörðum.
Hiti 1 til 6 stig.
Stoke vill gera 18 mán.
samning við Krístján
Enska úrvalsdeildarliðið Stoke hefur lýst yfir
áhuga á að gera eins og hálfs árs atvinnumanna-
samning við Kristján Öm Sigurðsson, leikmann
KA í knattspymu. Kristján Öm liefur æft með
unglingaliði Stoke í einn mánuð og talið var lík-
legt að hann skrifaði undir unglingasamning
við félagið til vors. Forráðamenn Stoke vilja
gera gott betur, ]iví þeir hafa boðið Kristjáni
þennan atvinnumannasamning.
Ef skrifað verður undir, sem flest
bendir til, þá verður Kristján
Orn yngsti atvinnumaður Is-
lands í knattspyrnu, en hann
varð sautján ára fyrir tveimur
vikum. Þrátt fyrir ungan aldur
hefur hann aflað sér nokkurrar
reynslu, með Völsungi og KA,
sem hann hefur leikið með und-
ir stjórn föðurs síns, Sigurður
Lárussonar. Sigurður hefur haft
veg og vanda af samningamálun-
um fyrir son sinn.
„Upphaflega var rætt um að
Kristján fengi unglingasamning
til vors og aetlunin hjá mér var að
hann fengi að kynnast lífinu
þarna. Þeir hafa hins vegar sýnt
Kristján Örn Sigurðsson.
því mikinn áhuga að setja hann
beint á eins og hálfs árs atvinnu-
mannasamning. Það hafa verið
skeytasendingar á milli mín og
enska félagsins að undanförnu,
en ég á von á því að þessi mál
verði komin á hreint eftir viku,“
sagði Sigurður þegar rætt var við
hann í gær.
Kristján Örn hefur æft með
unglingaliði Stoke tvisvar á dag,
en einnig leikið með blönduðu
varaliði og unglingaliði félagsins.
Samkvæmt enskum knatt-
spyrnureglum telst hann ungl-
ingur fram til þar næstu ára-
móta.
Eldri bróðir Kristjáns er Lárus
Orri, sem verið hefur einn af Iyk-
ilmönnum liðsins á undanförn-
um árum og svo kann að fara að
hann eigi eftir að leika með
Kristjáni. „Ekki er ólíklegt að
forráðamenn Stoke hafi séð „lít-
inn Lárus Orra“ í Kristjáni, enda
hafa þeir haft orð á sér fyrir að
vera mjög líkir á leikvelli. — FE
Heimir á for
um£ráKR?
Páll Guðlaugsson, Itinn nýráðni þjálfari Leifturs, er þegar farinn að styrkja leik-
mannahópinn. - mynd: bg
Liðsstyrkur til
Leiftursmaima
Flest bendir til þess að miðju-
maðurinn Heimir Guðjónsson
muni yfirgefa KR-Iiðið í vetur.
Heimir á enn eftir tvö ár af
samningi sínum við Vesturbæjar-
liðið, en vilji virðist vera til breyt-
inga hjá vesturbæjarfélaginu.
Heimir hefur lengi verið einn
lykilmanna KR-liðsins og á
nokkra leiki að baki með lands-
liðinu. Hann náði sér hins vegar
ekki á strik sl. sumar, meðal ann-
ars vegna meiðsla sem héldu aft-
ur af honum í byrjun móts.
Björgólfur Guðmundsson, for-
maður knattspyrnudeildar KR,
vildi hvorki játa því né neita að
Heimir væri á förum frá KR.
„Við höfum rætt við Heimi um
breytingar á samningnum og að
hann muni jafnvel leika annars
staðar. Málin hafa verið rædd í
góðu og við munum reyna að ná
lausn sem báðir eru ánægðir
með, hvort sem hún feli það í sér
að Heimir spili hér á landi eða
erlendis,“ sagði Björgólfur. — FE
Heimir Guðjónsson.
Leiftursmenn gengu í gær frá
samningi við Uni Arge, færeysk-
an sóknarleikmann sem lék með
HB á síðasta keppnistímabili.
Arge skoraði 22 mörk í færeysku
deildinni í sumar og kemur án
efa til með að hressa upp á fram-
Iínu Leiftursmanna, sem vænt-
anlega verður einnig skipuð
þeim Rastilav Lazorik og Þor-
valdi Makan Sigbjörnssyni. Sá
síðastnefndi er reyndar ekki
samningsbundinn, en Leifturs-
menn vonast til þess að hann
gangi frá samningi á næstu dög-
um.
Arge er þriðji Færeyingurinn
sem gengur í raðir Leifturs á
skömmum tíma. Jens Martin
Knutsen markvörður og varnar-
maðurinn Össur Hansen hafa
þegar gengið til liðs við Leiftur.
Færeyingarnir hafa allir átt fast
sæti í færeyska landsliðinu, sem
náð hefur athyglisverðum ár-
angri á síðustu misserum.
Leiftursmenn hafa einnig
skoðað nokkra Ieikmenn á Norð-
urlandi. Settur var upp sérstakur
æfingaleikur á Dalvík á föstu-
daginn. Páll Guðlaugsson, hinn
nýráðni þjálfari Leiftursmanna,
fylgdist með nokkrum norð-
lenskum leikmönnum.