Dagur - 07.11.1997, Page 11
X^wr
FÖSTUDAGUR 7.1WÚVEMBER 1997 - 27
LÍFIÐ í LANDINU
íslendingarhafa
löngum borðað
seytt rúgbrauð og
þóttþað gott.
Hverman t.d.
ekki eftirþví að
hafafengið seytt
rúgbrauð og
franskbrauð í
samloku?
íslenskir bakarar með
þeim bestu í heimi
SMÁTT OG STÓRT
Þrjóska
Eins og kunnugt er þá hafa fulltrúar Grósku
verið á ferð um landið að kynna hugmyndir sín-
ar og stefnumál. Róbert Marshall einn úr hópn-
um setti fram hugmynd á fundinum á Akureyri
sem gekk út á það að sameinað félagshyggjufólk
myndu ekki slá af kröfum sínum í samstarfi við
Framsóltnarflokk og Sjálfstæðis-
flolck, heldur sitja í stjórnarand-
stöðu þar til allt yrði í kaldakoli
eftir núverandi ríkisstjórnar-
flokka. Þá hæfist gifturíkt tíma-
bil endurreisnar meirihluta-
stjórnar jafnaðarmanna. Mönn-
um þótti þetta athyglisverð hug-
mynd, en einn fundarmanna
velti því fyrir sér hvort í fram-
haldinu væri ekki eðlilegt að
breyta nafni félagsskaparins úr
Grósku í Þrjósku.
Skoðanir for-
senda ágreinings
Halldór Asgrímsson tekur undir
hugmynd Róbert Marshall í við-
tali í Degi og sér ekki að Fram-
sóknarflokkurinn geti unnið
með flokki sem vísi ágreinings-
málum til þjóðaratkvæðis.
Halldór setur það hins vegar
ekki fyrir sig að vinna með
flokki þar sem ágreiningsmálin
eru ekki á dagskrá. Einn gárunginn sagði að Framsóknarflokkur-
inn þyrfti ekki að kljást við ágreining, vegna þess að forsenda
ágreinings væri sú að menn hefðu skoðanir
Nú hafa Norðmenn uppgötvað
rúgbrauðið okkar og komið því á
framfæri við heiminn. Fyrir
nokkru voru hér á ferð gestir frá
IDUN, stórfyrirtæki í Noregi,
sem meðal annars framleiðir
kornvörur og pressuger ásamt
ýmsu öðru.
Þeir heimsóttu 26 bakarí á Is-
landi og ræddu við starfsfólk
þess og fengu sýnishorn af
brauði. Einn bakaranna sem
heimsóttur var, er Herman
Bridde, sem rekur Miðbæjar-
bakarí á Háleitisbraut. Her-
mann hefur verið við bakstur
síðan 1944 og hefur lagt mikla
áherslu á tilraunabakstur úr ís-
lensku mjöli. Hann bakaði í 12
ár brauð úr íslensku byggi og
þóttu þau brauð ákaflega góð.
Honum er mjög í huga gæði ís-
lenskra brauða og bakara.
„Það er löngu kominn tími til
þess að fólk sjái hversu íslenskir
„Gottbrauð erekki
bara undirlagfyrir
álegg. “
bakarar eru góðir, þeir eru á
heimsmælikvarða," segir Her-
mann. „Þessi heimsókn Norð-
mannanna sýndi okkur betur en
margt annað hversu frábær
brauð okkar eru, þeir hrósuðu
þeim mikið og í kjölfarið birtist
grein í fagblaðinu BK-Baker-
Kondition, þar sem það er full-
yrt að Island sé gósenland þeirra
sem vilja góð brauð. Svo sannar-
lega rós í hnappagat íslenskra
bakara."
Gamaldags seytt rúgbrauð frá
Miðbæjarbakaríinu var eitt
þeirra brauða sem Norðmenn
féllu fyrir og í þessu blaði birta
þeir uppskrift að því og hrósa
því mjög.
Gott braud, góð undirstaða
Brauð er mikil undirstöðufæða
og víða er því gert hátt undir
höfði. Gott brauð með súpu er
herramannsmatur og brauð með
kjöti eða fiski í stað þess að nota
kartöflur er líka gott.
„Gott brauð er ekki bara und-
irlag fyrir álegg, það er matur og
meira að segja mjög góður mat-
ur,“ segir Hermann. „I Þýska-
landi og Noregi sér maður ekki
niðursneitt brauð í handverks-
bakaríum, aðeins þar sem
brauðin eru íjöldaframleidd í
verksmiðjubakaríum. Og ef fólk
ætlar að setja brauð í plastpoka,
þá er betra að hafa þau í bréf-
poka innanvið, brauðið verður
betra þannig," segir Hermann,
bakarmeistarinn í einu af elstu
bakaríum landsins.
Einn í ellefubíó
Ekkert nýtt
Það er merkilegt hvað maður er
vanafastur þegar farið er í bíó.
Eg geng alltaf að sama sætinu.
En þegar ég fór í bíó í vikunni
sem er að líða var annar gestur
kominn í sætið. Nú voru góð ráð
dýr. Ég þurfti að sitja annars-
staðar! Það var ekki nóg að
þurfa að sjá mynd sem „Kolla
fer í bíó“ var búin að skrifa um.
Eg var búinn að missa sætið
„mitt“.
Eina myndin sem ég gat séð
var Air Force One með karl-
menninu Harrison Ford. Og
ekki lagaðist ástandið þegar kom
í ljós að myndin var um forseta
Bandaríkjanna. Það er eitthvað
sem fer í taugarnar á mér. Þetta
er bara hreinskilni. Myndin átti
að vera spennandi en reyndist
vera frekar fyrirsjáanleg. Auðvit-
að er gaman að sjá Harrison
Ford í kvikmynd, enda er hann
góður leikari. En hann er oftast
að Ieika sömu persónuna. Jú jú,
honum tekst veUupp í því. Við
tökum það ekki frá honum.
Myndin er um yfirtöku
hryðjuverkamanna á þotu for-
seta Bandaríkjanna. Gary Old-
man leikur foringja hryðjuverka-
mannanna og sleppur sæmilega
frá því. Fljótlega læddist sá
grunur að mér að forsetinn yrði
hetjan (nú, erfitt að átta sig á
því). Allt frekar fyrirsjáanlegt.
Kannski er það allt í lagi. En
þegar dró að lokum myndarinn-
ar varð hún full „amerísk".
Væmnin var rosaleg. En þrátt
fyrir allt er þetta að sjálfsögðu
mynd sem fólk þarf að sjá enda
er eins og áður sagði alltaf gam-
an að sjá Harrison Ford.
Borgarbíó á Akureyri er enn
að sýna Full Monty. Það er mjög
góð mynd. Mynd sem enginn
má missa af (þetta hljómar eins
og bíóauglýsing). En það er von
á nokkrum góðum myndum til
Akureyrar sem ég hlakka til að
sjá. Þetta er nóg í bili.
Dýrt á milli
landshluta
Það vakti athygli að Davíð Odd-
son gat ekki rætt við Halldór
Blöndal vegna málefna Pósts og
síma, fyrr en Halldór kom til
Reykjavíkur. Halldór var staddur
á Akureyri þegar fyrstu hryðjurn-
ar í málinu gengu yfir.
Mönnum þótti þetta skondið og
sparsemi ríkisstjórnarinnar
komin út yfir allan þjófabálk ef menn tímdu ekki að spandera í
langlínusímtal til að ræða sfn í milli brýn hagsmunamál almenn-
ings.
'________Pgffttr_________________
„Út vil ek“
Sókn íslenskra fyrirtækja á erlenda markaði
Framsögumenn:
Baldur Hjaltason, framkvæmdastjóri Lýsis hf.
Þorgeir Pálsson, forstöðumaður
sjávarútvegssviðs Útflutningsráðs íslands.
Hádegisverðarfundur
á veitingastaðnum Fiðlaranum,
Skipagötu 14,4. hæð, mánudaginn 10. nóv.
1997, kl. 12.15-13.30.
Fundurinn er öllum opinn og skráning fer fram á
staðnum. Hádegisverður og fundargjald kr. 1000,-
Upplýsingar á Atvinnumálaskrifstofu í síma 462 1701.
Atvinnumálanefnd Akureyrar,
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar, Dagur,
Útvarp Norðurlands,
Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri,
Skrifstofa Atvinnulífsins.