Dagur - 18.11.1997, Síða 1
„Stíga saman styðja. Allir í beina röð og nú dönsum við á línunni. Einn, tveir, einn, tveir, þrír, fjór,“ segir danskennarinn. myndir: brink.
íslcindsmet í línu-
dansi! Ekkifærri en
202 tókuþátt í línu-
dansi á Akureyri á
laugardag. Fjöltnenn-
asti dans hérá landi
fyrrogsíðar?
Sögulegt Islandsmet var slegið
síðasta laugardag þegar fjöl-
mennasti línudans á Islandi fyrr
og síðar var dansaður. í risastóru
flugskýli Flugfélags Islands á Ak-
ureyrarflugvelli stigu hvorki fleiri
né færri en 202 manns línudans
undir laginu Ut í sveit, eftir
Bjarna Hafþór Helgason, sem er
að finna á geisladiski hans sem
kemur út nú si'ðar í vikunni.
Dansinn var sérsaminn af Jó-
hanni Erni Olafssyni, danskenn-
ara, en hann hefur verið manna
fremstur í flokki hér á landi að
boða fagnaðarerindi línudansa,
sem nú hafa hertekið nýjunga-
girni landans.
Flotkví eða flugskýli?
Það var af sérstökum ástæðum
að boðið var upp í þennan dans.
Verið var að taka upp myndband
af áðurnefndu lagi Bjarna Haf-
þórs og þar sem mikinn fjölda
þátttakenda þurfi með í gamnið
þurfti stór húsakynni. „Fyrst vor-
um við að spá í að taka mynd-
bandið upp í flotkv/ Slippstöðvar-
innar Odda, en það var ýmsum
annmörkum háð, þar sem flot-
kvíin er undir beru lofti og þvi
hefðum við verið háð veðri. Fljót-
lega beindust sjónir okkar því að
flugskýlinu stóra á Akureyrar-
flugvelli. Þar fengum við svo inni
með góðri liðveislu Flugfélags ís-
lands,“ segir Bjarni Hafþór
Helgason.
Bjarni HafJjór er ánægður með
hvernig til tókst á laugardaginn,
og ekki síst þann mikla fjölda
þátttakenda sem var með i Ieikn-
um, alls 202 manns. Sá fjöldi var
staðfestur af Hörpu Ævarsdóttur,
fulltrúa Sýslumannsins á Akur-
eyri.
Heimsmetið er 2000
Heimsmetið í fjölda þátttakenda
í línudansi er 2000 og var það
sett vestur í Bandaríkjunum fyrir
nokkrum misserum. Þvá v'aknaði
hugmyndin að þessari sérstöku
uppákomu á Akureyri sl. Iaugar-
ardag — og þar setti fólk stefnuna
á íslandsmet, sem náðist svo
glæsilega. En miðað við fjölda
þátttakenda og höfðatöluregluna
víðfrægu var þarna líka slegið
heimsmet. Sambærilegur fjöldi
vestur í Bandaríkjunum hefði
orðið 200 þúsund! Allt er línu-
dansandi íslendingum fært...
Æði í gangi
Á Akureyri geysar nú æði línu-
dansa. I haust var stofnaður Kán-
trýklúhbur Akureyrar, sem hefur
höfuðstöðvar sínar í líkams-
ræktinni að Bjargi í Glerárhverfi.
Fjöldi fólks dansar þar línudansa
og það fólk kom á þessa
skemmtilegu samkomu í flug-
skýlinu á Akureyri. Einnig kom
til leiks fólks sem lítið hefur
reynt fyrir sér í línudansi áður, en
var engu að síður fljótt að ná
takti og spori.
„Ég er ánægð með þátttöku.
Fyrst nefndi ég að við vildum fá
500 manns til þátttöku, en auð-
vitað var það fjarstæðukennd
tala. Það rými flugskýlisins sem
við fengum tekur ekld meira en
200 manns. En auðvitað var her-
tæki f því að nefnda hálft þúsund
frekar en einhverja hallærislega
tölu, því slíkt trekkir að,“ segir
Aðalbjörg Hafsteindóttir, sem er í
forsvari fyrir klúbbinn.
Boðberar línudans
Aðalhjörg segir að Akureyringar
ætli að halda sínum sessi sem
boðberar h'nudans á íslandi. Ekk-
ert annað komi til greina enda
þótt nú hafi kántrýklúbbar verið
stofnaðir í Kópavogi og suður
með sjó - þar sem fólk dansar á
línunni af hjartans list. Vart mun
langt að bíða að reynt verði við
metið sem var sett á Akureyri um
helgina? -SBS.
Veitum hagstæð
lán til kaupa á :1
landbúnaðarvélum
vrjýá
Reiknaðu með
' SP-FJÁRMÖGNUN HF
Þaö tekur aöeins jSS einn ■ ■ " < _ IVirkan^^F jna
dag aö kotna póstinum -^0^ þínum til skila pústurogsímihf WDftLOVme EXPRESS EITT NÚMER AÐ MUNA 5351100