Dagur - 12.12.1997, Síða 3

Dagur - 12.12.1997, Síða 3
 FÖSTUDAGUR 12.DESEMBER 1997 - 3 FRÉTTIR L. Fydrtæld kuima að hætta að flokka sorp Mörg fyrirtæki hafa fjárfest gríðarlega í búnaði til að fiokka byigjupappa, enda var ódýrara að losa sig viö fiokkaðan pappfr, en annan umbúðaúrgang. Nú krefst Sorpa sama gjaids fyrir söfnun og móttöku. Miklu hafi líka verið til kostað að fá menn til þess að taka þátt I þessu. Sorpa krefst nú orðið sama gjalds fyrir flokkaðan bylgjn- pappa og annan um- búðaúrgang og fyrir- tæki sjá sér litinn hag í að ílokka pappír. „Menn ottast það verulega að með þessum hækkunum geti hrunið allt það kerfi sem búið er að byggja hér upp við flokkun og söfnun á pappír, því hinn fjár- hagslegi hvati fyrirtækjanna er horfinn," sagði Olafur Kjartans- son hjá Samtökum iðnaðarins. Sorpa tilkynnti fyrirtækjum ný- lega að gjald fyrir flokkaðan bylgjupappa mundi nær tvöfald- ast, í 5,91 kr./kg., eins og fyrir blandaðan umbúðaúrgang. „Þrátt fyrir þá staðreynd vill Sorpa ein- dregið hvetja úrgangsframleið- endur til að stíga ekki skrefið til baka í flokkunarmálun sínum,“ segir í bréfi Sorpu. Olafur segir bæði fyrirtæki og söfnunarfyrirtækin og sömuleiðis móttökurnar, ekki síst Sorpu, búin að fjárfesta gríðarlega í bún- aði og græjum fyrir þessa flokk- un, söfnun og móttöku. Miklu hafi líka verið til kostað að fá menn til þess að taka þátt í þessu. Skelfilegt ef þyrfti að fleygja þessu „Málið snýst um það að mark- aðsverð á bylgjupappa til endur- vinnslu hrundi, þannig að við erum í bili hættir að flytja þetta út heldur safnast þetta upp hjá okkur. Það er búið að vera að byggja þessa flokkun upp á und- anförnum árum, svo það yrði mjög vont mál ef þessu yrði al- gerlega hætt,“ sagði Asmundur Reykdal, stöðvarstjóri Sorpu. Enn sem komið er hafi ekki dregið áberandi úr flokkun fyrir- tækja á bylgjupappa. Menn væru að veðja á að málið leysist; ann- að hvort að markaðurinn breytist til hins betra, eða að það finnist aðrar lausnir, kannski innlendar. „Því það er auðvitað skelfilegt ef það þyrfti að fara að fleygja þessu.“ Að jörðu skal hann aftur verða Benoný Ólafsson hjá Gámaþjón- ustunni hf. er sama sinnis. „Okkur fannst ekki réttlætanlegt að hækka verðið svona rnikið við okkar viðskiptavini heldur ákváð- um að halda gjaldskránni óbreyttri (3,22 kr./kg.) og hætt- um þess vegna að keyra þessu í Sorpu. Við ætlum að reyna að tæta pappann niður og reyna að nýta hann í jarðgerð sem við erum að fara af stað með.“ Ólafur Kjartansson segir um- hverfisráðuneytið hafa skipað starfshóp til að leita leiða til að mæta þessu vandamáli bæði í bráð og lengd. „Þ.e.a.s. reyna að átta sig á því hvernig hægt er að bregðast við þeim vanda sem við stöndum frammi fyrir í dag, og jafnframt hvernig hægt er að byggja þetta upp til framtíðar.“ Enn sé engin niðurstaða fengin. Endurvinnanlegur 8 siniiiiui Bylgjupappi er gott hráefni að sögn Asmundar, því hægt sé að endurvinna hann allt að 8 sin- num áður en verulega fari að slakna á gæðunum. Hann segir Sorpu hafa borist um 3.000 tonn af bylgjupappa á ári. Og síðan annað eins af dagblöðum, tíma- ritum og öðrum pappír, sem enn sé í alveg þokkalegum málum. - HEI Akureyrmgar óvenju heppnir Hjðn á Akureyri græddu 35 miUjónir í happdrætti. Voru beð- in að setjast niður áður en þau fengu tíðindin. „Þegar ljóst var að 35 milljónir myndu renna til sama eiganda fór ég strax eftir útdráttinn og heimsótti fólkið sem eru hjón á miðjum aldri með uppkomin börn. Eg bað þau að setjast fyrst áður en ég færði þeim tíðindin þannig að þau voru undir ýmis- legt búin. Eðlilega varð þeim þó mikið um og hafa sennilega ekki skynjað strax hvað hafði gerst en þau urðu mjög lukkuleg," segir Gísli Jónsson, umboðsmaður Happdrættis Háskólans á Akur- eyri. Heppnari en aðrir Gísli segir að Akureyringar séu Gísli Jónsson, umboðsmaður Happdrættis Háskóla Islands á Akureyri, segirAkur- eyringa töluvert yfir landsmeðaltali í „happdrættisheppni". með eindæmum Iánsamir í HHÍ síðari ár og langt yfir landsmeð- altali. Fyrir fjórum árum kom 10 milljóna kr. vinningur, í fyrra kom einn fimm milljóna króna vinningur og núna í desember mun happdrættið greiða um 50 milljónir króna til Akureyringa í vinninga. „Á öllu árinu höfum við greitt milli 90 og 100 milljón- ir í vinninga. Við erum ekkert að spila meira en fólk á landsvísu, þannig að við erum bara einstak- lega heppin. Þótt þessi stóri vinningur hefði eldd komið nú, hefðum við staðið mjög vel í ár miðað við landsmeðaltal," segir Gísli. — BÞ Heimsmet! Heimsmet var að öllum líkindum slegið í Kringlunni í Reykjavík í gær þegar hlaðin var risaklukka úr ótölulegum fjölda eintaka bókar- innar Tóta og Tíminn. Ekki er vit- að til að þetta hafi verið gert áður með þessum hætti. Það var höf- undur bókarinnar, Bergljót Arn- alds, ásamt útgefendum, sem stóðu fyrir þessu uppátæki og náði bókaklukkan milli hæða í verslun- arhöllinni. Samhliða þessu verður í gangi getraun fyrir viðskiptavini Kringlunnar um hversu rnörg ein- tök fóru í þennan „bókaskúlptúr". Fjórir sækja um ríkissaksóknaraim Fjórir sóttu um embætti ríkissaksóknara, þar á meðal Bogi Nilsson, ríkislögreglutjóri. Umsóknarfrestur rann út í fyrradag. Auk Boga sóttu um Páll Arnór Pálsson, hæstaréttarlögmaður, Sigurður Gizurarson, sýslumaður og Valtýr Sigurðsson, héraðsdómari. Risaklukka úr bókum. mynd: e.ól AKVA gerir dreifmgarsamning Akva hf., dótturfélag Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri, hefur gengið frá samningum við bandarískt lyrirtæki um yfirtöku á dreifingarrétti Akvavatns £ Bandaríkjunum. Jafnframt var gerður samningur um að Akva hf. myndi sjá um að pakka og fram- leiða vatnið undir Akvanafninu og hugsanlega öðrum nöfnum. „Þetta þýðir að markaðssetn- ing og dreifing í Bandaríkjunum er komin til vatnsíyrirtækis sem hefur mun sterkari stöðu í að selja þetta vatn en við höfum nokkru sinni haft,“ sagði Magn- ús Gauti Gautason, kaupfélags- stjóri KEA, í gærkvöld. „Það ríkir hóflegt bjartsýni hjá mönnum. Möguleikarnir eru a.m.k. betri en þeir hafa verið.“ Mikið tap heliir verið á vatns- útflutningnum en að sögn Magnúsar Gauta var gengið þannig frá málum í fyrra, að ef tap verður í ár, verður um smá- muni að ræða miðað \dð það sem verið hefur. — BÞ Tvö íslensk jafntefli á heimsmeistaramótinu Bæði Jóhann Hjartarson og Helgi Áss Grétarsson gerðu jafntefli í fyrri einvígis- skákum sínum í 2. umferð Heimsmeist- aramótsins í skák sem fram fer í Hollandi. Jóhann tefldi við Hvít-Rússann Alexandro og sömdu þeir um skiptan hlut eftir 62 leiki. Hinn sterki skákmaður Jusupov bauð aftur Helga Áss upp á þrátefli eftir 33 leiki sem þáð var. Jóhann er enn á lifi.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.