Dagur - 12.12.1997, Page 7

Dagur - 12.12.1997, Page 7
T^mt' FÖSTVDAGVS 12. DESEMBER 1997 - 7 ÞJÓÐMÁL Eldvama og slysavama- mál einkavædd SVEINBJORN GUÐMUNDS SON FYRRVERANDI UMDÆM- ISEFTIRUTSMAÐUR A AUSTURLANDI SKRIFAR Fram til ársins 1993 hafði Raf- magnseftirlit ríkisins (RER) um- sjón með rafmagnseftirliti í land- inu auk þess sem rafveiturnar voru með rekstrareftirlit á sínum svæðum. Þetta fyrirkomulag hafði gefist mjög vel, verið bæði skilvirkt og ódýrt, enda mikil reynsla komin af því þar sem Rafmagnseftirlitið hafði verið starfrækt frá árinu 1933. Um eða upp úr 1990 ákvað iðnaðarráðu- neytið, ásamt hagsýslustofnun og nokkrum áhugamönnum um einkavæðingu að setja á laggirnar ráðgjafanefnd. Flestir nefndar- manna reyndust eiga hagsmuna að gæta í þessu máli þar sem þeir urðu sfðar eigendur eða starfs- menn „eftirlitsstofanna", sem ákveðið var að tækju við raf- magnseftirlitinu af RER. Þetta geta menn kynnt sér enda var nefndin opinberlega skipuð af iðnaðarráðherra. Yfirráðgjafar nefndarinnar stærðu sig svo af því að vita ekkert um rafmagns- eftirlit, enda aldrei nálægt slík- um málum komið. Þrátt fyrir mjög hörð og rök- studd mótmæli fjölda kunnáttu- manna og samtaka var ákveðið að einkavæða rafmagnseftirlitið og eftirleikurinn hefur verið sorglegur. Nú eru liðin fjögur ár síðan ævintýrið hófst. Hér átti að ríkja samkeppni er tryggði skilvirkara og ódýrara öryggiseftirlit en áður þekktist og átti það að ná til allra landsmanna. Menn gerðu sér miklar vonir um peningagróða af skoðunarstofunum enda urðu þær von bráðar fimm. Þrír aðilar heltust svo úr lestinni og eru nú einungis tvær skoðunarstofur starfandi og önnur þeirra í eigu Bifreiðaskoðunar ríkisins. Þann- ig fór nú fyrir samkeppninni sem var ein höfuðröksemdin fyrir breytingunni. Þjónustan versnað Fyrir breytinguna störfuðu um 40 manns að þessu eftirliti í landinu, þ.m.t. úttektar- og um- sjónarmenn með raforkudreif- ingu, þ.e. háspennulínum, spennu og orkuvirkjum o.fl. Auk þess var á vegum RER rekið fræðslustarf fyrir almenning og fagmenn um hættur af völdum rafmagns, m.a. í skólum. Veiga- mesti þátturinn í starfseminni var þó að efla gagnkvæm tengsl og skilning milli notenda raf- magns, fagmanna og eftirlitsað- ila. Auk þess skar RER úr ágrein- ingi, rannsakaði rafmagnsbruna, slys o.fl. Undanfarin fjögur ár hefur lít- ið borið á þessum þáttum eftir- litsins. Aður var öllum neyslu- veitum skipt í vissa áhættuhópa. Frystihús, verksmiðjur, bænda- býli og hvers kyns útvirki voru skoðuð oftar og af meiri ná- kvæmni en vönduð íbúðarhús. Þó var vandað til upphaflegrar úttektar og nýtengingar híbýla fólks. Fyrir þetta greiddu menn í raforkureikningum sínum. Reyndar greiða menn enn þenn- an lið í reikningnum þrátt fyrir að þessi öryggisþjónusta hafi nánast öll verið lögð fyrir róða. Ef rafveitur, atvinnurekendur eða almennir notendur telja sig þurfa á rafmagnseftirliti að halda, en fram til þessa hefur það verið talið góð slysa- og brunatrygging, þá verða viðkom- andi aðilar að panta menn frá skoðunarstofunum í Reykjavík. Þrátt fyrir að greitt sé fyrir þessa þjónustu með rafmagnsreikn- ingnum þarf að greiða eftirlits- mönnunum 6 til 8 þúsund krón- ur á tímann í dagvinnu, en inni- falið í því er ferðakostnaður og virðisaukaskattur. Kostnaður aukist Ein dagsferð út á land kostaði samkvæmt reikningi 111 þúsund krónur í júlí 1994 og er þá allur kostnaður innifalinn. Þá má benda á fimm daga „stofuheim- sókn“ eins manns til RARIK á Austurlandi í október 1996 sem kostaði 956.270 kr. RARIK þurfti að greiða þarna tæpa millj- ón og væri því ómaksins vert fyr- ir áhugamenn um „sparnað" að kynna sér þann árangur og þá skilvirkni sem þessi ferð skiiaði. Auk þess sem kostnaður raf- orkunotenda hefur aukist hefur kostnaður ríkisins af eftirlitinu stóraukist. I frumvarpi til fjárlaga næsta árs er gert ráð fyrir að rík- issjóður greiði Löggildingastof- unni tæpar 108 milljónir króna, þar af 82,9 milljónir vegna yfir- eftirlits og úrtaksskoðana og 25 milljónir vegna skoðunar á eftir- litsskyldum rafföngum. Engu að síður er rafmagnseftirlitsdeild Löggildingarstofunnar varla ann- að en pappírs- og eyðublaða- stofnun, auk þess sem hún ann- ast vinnumiðlun fyrir einkarekn- ar skoðunarstofur. Þrátt fyrir þetta framlag ríkisins til raf- magnseftirlitsins verða þeir sem þurfa á eftirliti að halda að greiða þá þjónustu fullu verði, svo vægt sé til orða tekið. Þá má ekki gleyma því að með þessum breyt- ingum hafa landsmenn verið sviftir sjálfsagðri og áður lögboð- inni vernd og öryggi. Hver hagnast? Arið 1996 var gerð úrtaksskoðun á 228 neysluveitum í 1. áhættu- flokki á landinu. Meðaltalskostn- aður hverrar veitu var 22.877 kr. Arið 1990 voru skoðaðar alls 8.584 neysluveitur í landinu og var meðaltalskostnaður 6.407 kr. á veitu. Virk skoðun rýrnar því milli þessara ára fertugfalt og kostnaður á hverja skoðun hækk- ar um 166%. Hver var þá tilgangurinn með þessum breytingum fyrst eftirlit- ið versnaði svona mikið samfara því að kostnaður rauk upp úr öllu valdi? Hver hagnaðist á þessari breytingu? Eftirlit með neysluveitum fólks, svo ekki sé talað um há- spennueftirlit, er ein brýnasta bruna- og slysavörn sem þekkist. Þess vegna Iögðum við mikið upp úr því að sem tryggilegast væri um þessa hluti búið og í það var lögð mikil vinna og kostnaður. Nú sýnist það uppbyggingarstarf ætla að fara fyrir lítið. Menn standa því beinlínis agndofa og ráðþrota. Hvernig litist mönnum á 10% stikkprufueftirlit á ári með öryggi flugvéla og skipa? Okjörum af mótmælum hefur rignt yfir iðnaðarráðuneytið og þingmenn vegna þessa. Heil starfsstétt, rafverktakar, sér fram á upplausn og öngþveiti, enda hefur yfirgnæfandi meirihluti þeirra mótmælt þessari gjörð. Ymis hagsmunasamtök hafa einnig sent mótmæli og fleiri eru á döfinni. Þess er krafist af al- þingismönnum að þeir gæti hagsmuna umbjóðenda sinna og táki tillit til áskorana og þeirra raka, sem fram hafa verið færð gegn þessari breytingu. í framhaldi af degi fatlaðra ÁKNIÞÓR SIGURÐSSON BORGARFULLTRÚI SKRIFAR Miðvikudaginn 3. desember sl. var alþjóðlegur dagur fatlaðra. Sá dagur hefur orðið fyrir valinu til að vekja athygli á sérstökum hagsmunamálum fatlaðra en þar er af nógu að taka. í lok hins al- þjóðlega áratugar fatlaðra árið 1993, samþykktu Sameinuðu þjóðirnar meginreglur um jafna möguleika ogjafna þátttöku fatl- aðra. Þessar meginreglur lúta að heilbrigðisþjónustu, menntun, atvinnu, almannatryggingum, aðgengi og íþróttum svo fáeinir þættir séu nefndir. Ljóst er að hér á Iandi er margt ógert í mál- efnum fatlaðra þótt vissulega hafi ýmislegt áunnist á liðnum árum. Málefni fatlaðra til sveitar- félaga Málefni fatlaðra eru verkefni rík- isvaldsins en áform eru uppi um að flytja málaflokkinn til sveitar- félaga, jafnvel árið 1999. Marg- ir sveitarstjórnarmenn hafa efa- semdir um að rétt sé að flytja málaflokkinn til sveitarfélaga strax, reynslan af flutningi grunnskólans kenni okkur ein- faldlega að sveitarfélögin verði að hafa vaðið fyrir neðan sig í fjárhagssamskiptum við ríkið. Brýnt er að þannig verði gengið frá samningum milli ríkis og sveitarfélaga, ef af verkefna- flutningnum verður, að hægt verði að taka af myndarskap á málefnum fatlaðra og bæta stöðu þeirra. I raun þyrftu ríki, sveitarfélög og samtök fatlaðra að vinna langtímastefnumörkun í málefnum fatlaðra þannig að framtíðarverkefnin liggi fyrir þegar og ef sveitarfélögin taka við málaflokknum. Þótt málefni fatlaðra séu á verksviði ríkisins geta sveitarfé- lög lagt sitt af mörkum til að Iétta fötluðum lífið. Vil ég í því sambandi einkum benda á menntamál og aðgengismál. Skipulögð og markviss uppbygg- ing í skóla- og leikskólamálum og efling innra starfs á þessum skólastigum kemur sér vel fyrir fatlaða. Þannig er í fjárhagsá- ætlun Reykjavíkur fyrir árið 1998 gert ráð fýrir að styrkja ráð- gjafarstarf og auka þjónustu við fötluð börn í leikskólum. Niður- skurður ríkisins í þessum mála- flokki hefur komið illilega niður á fötluðum leikskólabörnum og hefur núverandi meirihluti í Reykjavík ákveðið að auka stuðn- ing við þessi börn, enda verður ekki séð að aukið fjármagn komi úr ríkissjóði. Bætt aðgengi Aðgengismál skipta fatlaða vissulega miklu máli. Undanfar- in ár hefur verið sérstök fjárveit- ing í fjárhagsáætlunum Reykja- víkur til að bæta aðgengi fatl- aðra. Svo er einnig f fjárhagsá- ætlun næsta árs. Sérstaka at- hygli hafa vakið umbætur á gangstéttum sem gera fötluðum mun auðveldar að komast leiðar sinnar en áður. Þótt mörg ljón séu enn í veginum má ekki gleyma því sem vel er gert. Eðlilegt er, í tengslum við dag fatlaðra, að menn velti því fyrir sér hvort ekki sé rétt að lögfesta meginreglur Sameinuðu þjóð- anna um réttindi fatlaðra eins og gert er með ýmsar alþjóða sam- þykktir sem ísland á aðild að. Það gæti verið mikilvægur þáttur í að bæta stöðu fatlaðra því vel- ferð þeirra á ekki aðeins að vera í orði heldur einnig á borði.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.