Dagur - 12.12.1997, Qupperneq 11

Dagur - 12.12.1997, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 12.DESEMBER 1997 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR Samkomulag á síðustu stundu Ekki eru allir jafn vissir um að jörðin sé einhverju bættari með samninginn frá Kyoto. Umhverfissiimar eru afar ósáttir við samn- iiigiim, en fulltrúar iöiiríkjaiiiia eru dauð- fegnir að niðurstaða hafi fengist. Eftir ellefu daga samningavið- ræður og tveggja sólarhringa nærri stanslausa lotu í lokin sam- þykktu fulltrúar á loftslagsráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna í Kyoto í Japan að 38 helstu iðnríki jarðar skyldu draga úr losun svo- nefndra gróðurhúsalofttegunda um 5,2 prósent að meðaltali frá því sem var árið 1990. Samkvæmt samkomulaginu eiga ríki Evrópusambandsins, ásamt Sviss og mörgum ríkjum í Mið- og Austur-Evrópu, að hafa dregið úr losuninni um 8% á ár- unum 2008 til 2012 miðað við það sem hún var árið 1990. Bandaríkin eiga að draga úr los- uninni um 7%, en Kanada, Jap- an, Pólland og Ungverjaland um 6%. Rússland, Nýja-Sjáland og Úkraína eiga hins vegar að koma Iosuninni aftur í það horf sem hún var árið 1990. Og loks hafa þrú ríki heimild til að auka hana frá því sem var árið 1990, Island um 10%, Ástralía um 8% og Nor- egur um 1%. Margt er þó enn óljóst um framkvæmd samningsins, því í honum er ekkert kveðið á um það með hvaða hætti ríkin eigi að draga úr losuninni. Bill Clinton, forseti Bandaríkj- anna, var afar ánægður með nið- urstöðu ráðstefnunnar, talaði um „sögulegan samning“ og leit svo á að Bandaríkin hefðu náð fram öllum markmiðum sínum. Ritt Bjerregaard, umhverfis- málastjóri Evrópusambandsins, sagði samninginn hins vegar ekki fullnægjandi þegar til lengri tíma er litið, þótt vissulega væri ánægjulegt að öll helstu iðnríkin hefðu fengist til að skuldbinda sig til að draga úr losun gróður- húsalofttegunda. Fiillt af „smugum“ Umhverfissinnar voru hins vegar afar gagnrýnir á samkomulagið. Fulltrúar Grænfriðunga sögðu samninginn svo fullan af „smug- um“ að í raun og veru verði ekki um neinn árangur að ræða ef miðað er við árið 1990. Charles Secrett frá umhverfis- samtökunum Friends of the Earth sagði fáránlegt að „láta sem þetta væri góður samningur" - frá sjónarhóli samtakanna væru þetta „engar framfarir í raun“ því bæði væri markið sett allt of Iágt og svo væru undanþágurnar og smugurnar allt of margar. Auk þess að miða við losun frá iðnaði og annarri starfsemi manna þá verður einnig tekið mið af aukningu koltvíildis í and- rúmsloftinu af völdum minnk- andi skóga og sömuleiðis bind- ingu koltvíildis vegna trjáræktar. Þá eru þróunarríkin ekki skuld- bundin af samningnum. Þótt svartsýni á að samkomulag næðist hafi verið ríkjandi framan af ráðstefnunni var svo komið á miðvikudaginn var að stutt virtist í að takast myndi að hamra sam- an samkomulagi. Afturkippur kom hins vegar í samningavið- ræðurnar þegar Kína og Indland kröfðust þess að ekki yrðu í samningnum ákvæði um viðskipti með mengunarkvóta, en Vestur- Iönd höfðu lagt mikla áherslu á að slík ákvæði yrðu með. Að loknu stuttu hléi var hins vegar samið um að ákvæðin um kvótaviðskipti væru með en að fram færu ítarlegar rannsóknir á því með hvaða hætti slík viðskipti yrðu útfærð. „Hafðist á ofþreytunni“ Lokaatriði samningsins voru síð- an hnoðuð saman nokkru eftir sólarupprás á fimmtudag, daginn eftir að ráðstefnunni hafði átt að ljúka. Sumir samningamanna höfðu þá ekki sofið í nokkra daga og áhugi útkeyrðra fulltrúa aðild- arríkjanna á því að ná samkomu- lagi hafði farið æ dvínandi. „Þetta virðist vera samkomulag sem fékkst fram með ofþreyt- unni,“ sagði MarkJ. Mwandosya, fulltrúi Tansaníu, þegar hann var að þræla sér í gegnum smáatriði samningsins. Alls er gert ráð fyrir að 149 ríki verði aðilar að samningnum. Undirritun getur hafist þann 16. mars 1998, og samningurinn gengur í gildi eftir að a.m.k. 6 ríki sem báru ábyrgð á samtals 55% af heildarlosun iðnríkja á gróður- húsalofttegundum árið 1990, hafa staðfest hann. Næsta lofts- lagsráðstefna Sameinuðu þjóð- anna verður haldin í nóvember á næsta ári, en undirbúningsfundir verða í Bonn í Þýskalandi í júní næstkomandi. Múslimar fordæma hryðjuverk IRAN - Fulltrúar á ráðstefnu íslamskra ríkja sem fram fór í Iran for- dæmdu í lokayfirlýsingu ráðstefnunnar öll hryðjuverk sem framin eru í nafni íslamstrúar. „Morð á saklausu fólki eru bönnuð í íslam," seg- ir í yfirlýsingunni. Þar eru íslömsk ríki einnig hvött til þess að neita hryðjuverkamönnum um hæli. I yfirlýsingunni var þess einnig krafist að ísraelsmenn hættu þegar í stað byggingarframkvæmdum á her- numdu svæðunum, og þá sérstaklega í austurhluta Jerúsalemborgar. Sögulegur íiiiidur í Bretlandi BRETLAND - Það þótti sögulegt handtak þeg- ar Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, tók í höndina á Gerry Adams, leiðtoga Sinn Fein í gær. Þetta var í fyrsta sinn í 76 ár sem breskur forsætisráðherra tekur á móti leiðtoga stjórn- málaarms írska lýðveldishersins í bústað sínum í Downing-stræti. Fundurinn þykir vera tákn- ræn viðurkenning á Sinn Fein sem fullgildum stjórnmálaflokki á Norður-írlandi, en fimm mánuðir eru frá því IRA Iýsti yfir vopnahléi í annað sinn. IRA-fangi slapp úr fangelsi NORÐUR-ÍRLAND - Meðlimur írska lýðveldishersins (IRA) slapp í gær úr Maze-fangelsinu í Belfast, en hann var að afplána dóm fyrir morð á tveimur mönnum í desember 1995. Svo virðist sem hann hafi komist á brott með rútu sem flutti hóp af eiginkonum og börnum fanga á leið í jólaveislu. Forsætisráðherra sleppnr með skrekkinn JAPAN - Forsætisráðherra Japans, Ryutaro Hashimoto, stóð af sér kosningar um vantrauststillögu í neðri deild þjóðþings landsins í gær. Þetta var fyrsta vantrauststillaga sem lögð var fram gegn Hashimoto frá því hann tók við völdum í ársbyijun 1996. Það var stærsti stjórn- arandstöðuflokkurinn sem lagði fram vantrauststillöguna vegna þess að forsætisráðherranum hafi ekki tekist að koma böndum á efnahags- líf landsins. Jeltsín hættir við vikulegt ávarp RÚSSLAND - Boris Jeltsín Rússlandsforseti hætti í gær við að flytja vikulegt útvarpsávarp sitt til rússnesku þjóðarinnar að ráði lækna, en forsetinn er nú á sjúkrahúsi rétt utan við Moskvu vegna veirusýkingar í öndunarfærum. „Forsetanum líður ekki vel,“ sagði í yfirlýsingu frá stjórninni. Armhand í stað fangelsis FRAKKLAND - Efri deild franska pjóðþingsins samþykkti í gær lög sem gera ráð fyrir því að í ákveðnum refsimálum verði heimilt að í stað fangelsisvistar verði sakfelldum gert að bera armband sem gerir lögreglu kleift að fylgjast með ferðum þeirra. Neðri deildin hafði þeg- ar veitt frumvarpinu samþykki sitt. Heimild þessi gildir um þá sem dæmdir eru í eins árs fangelsi eða minna, eða þá ef fangar eiga eftir að afplána 12 mánuði eða minna af lengri fangelsisdómum. Boris Jeltsín. PERSONULEG ÞIÓNUSTA - FRÁBÆRT ÚRVAL A MORGUN LAUGARDAG FRA KL. 16.00 TIL 17.30 MUNU EFTIRTALDIR HÖFUNDAR ÁRITA BÆKUR SÍNAR í VERSLUNINNI: HILDUR EINARSDÓTTIR - "í ÖÐRUM HEIMI" HAFLIÐI VILHELMSSON - "BLÓÐIÐ RENNUR TIL SKYLDUNNAR" j JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR - "KÆRI KEITH" ÞÁ MUN GUNNAR HELGASON ÁRITA BÓK SÍNA "GRÝLA" Á MORGUN, LAUGARDAG KLUKKAN 16.30. I DAG FÖSTUDAG, A MILLI KL.13.00 OG 18.00 KYNNA HJONIN GUÐRUN OG GULU BERGMAN BÆKUR SÍNAR, "HVAÐ VILJA KONUR FÁ FRÁ KÖRLUM" "ÁSTARFÍKN" OG "SÖNN AUGNBLIK ELSKENDA" EINNIG í DAG FÖSTUDAG, Á MILLI KL. 14.00 OG 16.00 ÁRITAR ÓTTAR SVEINSSON NÝÚTKOMNA BÓK SÍNA, "ÚTKALL TF-LÍF" HAFNARSTRÆTI £ ázL BÓKVÁ 91-93 - SIMI 461 5050

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.