Dagur - 12.12.1997, Page 12
12 -FÖSTUDAGUR 12.DESEMBER 1997
rD^ftr
ÍÞRÓTTIR
GOLF INNLENT
Keilismenn leita að kennara
Keilismenn eru farnir að svipast um eftir nýjum golfkennara, en Ast-
ráður Sigurðsson, sem kenndi í Hvaleyrinni í fyrra, hefur ráðið sig til
starfa hjá sænskum golfklúbbi. Búast má við lítil hreyfing verði á
golfkennurum á milli klúbba í vetur.
Hættir eftir eUefu ár
Svavar Friðleifsson gaf ekki kost á sér sem formaður á aðalfundi
Goflklúbbs Hellu nýverið og sæti hans tekur Guðmundur Magnús-
son. Svavar hefur verið formaður GHR allar götur frá 1986, eða í ell-
efu ár. Þá urðu nokkrar breytingar á aðalfundi Golfklúbbs Akureyrar.
Ólafur Búi Gunnlaugsson varaformaður gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs, en sæti hans tekur Þórhallur Sigtryggsson. Flestir klúbbar hafa
þegar haldið aðalfund sinn, en aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur
verður haldinn á sunnudaginn. Búist er við litlum breytingum á
stjórn GR.
Níutíu og átta árgerðinni af Nick Faldo er þegar farið að bregða fyrir
á golfvöllunum.
Nýr formaður hjá Keili
Guðmundur Friðrik Sigurðsson var kjörinn formaður Keilis á aðal-
fundi klúbbsins um síðustu helgi, en fráfarandi formaður, Halldór
Halldórsson, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Ulfar Jónsson og Björk
Ingvarsdóttir koma ný inn í stjórn.
Einheriar nálægt 700 talsins
Alls hafa 63 lcylfingar skráð bolu í höggi á árinu og fjöldi kylfinga sem
náð hafa að fara holu í höggi nálgast nú töluna 700 og draumahögg-
in eru vel á áttunda hundraðið, þar sem nokkrir hafa farið holu í
höggi oftar en einu sinni. Einherjaklúbburinn mun standa fyrir ár-
legu hófi sínu á Hótel Borg, þann 30. desember nk. og mun þá veita
viðurkenningarskjöl til þeirra sem urðu einherjar á árinu. Einherjar
ársins munu jafnframt fá sýnishorn af framleiðslu skoska viskífram-
leiðandans Drambuie. Hófið á Hótel Borg hefst kl. 18 og stendur
frameftir kvöldi. Allir kylfingar eru velkomnir.
Golfmót á gamlársdag
Golfklúbburinn Keilir hefur ákveðið að gangast fyrir golfmóti á Hval-
eyrinni á gamlársdag. Ræst verður út frá kl. 11-13 og leiknar verða
tólf holur, ef aðstæður Ieyfa. Mótsgjald verður 1000 kr. og leikinn
verður höggleikur með forgjöf.
Þá munu Vestmannaeyingar gangast fý'rir svokölluðu Flugeldamóti
á gamlársdag, eins og undanfarin ár.
Keimsluhók næsta vor?
Kennslubók sem þeir Arnar Már Ólafsson og Ulfar Jónsson hafa ver-
ið með í smíðum á undanförnum árum mun væntanlega koma út
með vorinu. Upphaflega var stefnt að þ\i að hókin færi í hillur bóka-
verslana fyrir þessi jól.
Breytingar
hja Faldo
Árið sem nú er senn liðið hefur
ekki verið gott fyrir Nick Faldo,
sem komst ekki í gegn um niður-
skurðinn á flestum risamótun-
um. Það getur tæpast talist boð-
legt fyrir Englendinginn sem
sigrað hefur á sex risamótum á
þessum áratug. Faldo hyggur á
breytingar ásamt þjálfara sínum,
David Leadbetter.
Eftir Ryderbikarinn fór Faldo í
nokkurra vikna æfingabúðir til
kennara síns, David Leadbetter,
sem fór fram á það við nemanda
sinn að hann Ieyfði tilfinningun-
um að njóta sín meira en hingað
til og árangurinn er þegar farinn
að skila sér, ef eitthvað er að
marka góða byrjun hans á móti
sem hófst í Japan í vikunni.
Faldo hefur alltaf verið þekkt-
ur fyrir að fórna lengd íýrir ná-
kvæmni og upphafshöggin hans
eru því oftar en ekki á braul.
Hann á kannski eftir að lenda
oftar í röffinu á næstu misser-
um, ef hann fylgir heilræði
kennara síns um að „láta vaða“
öðru hverju.
„Hann er að slá boltann betur
núna, en hann hefur verið að
gera í að minnsta kosti tvö ár og
er búinn að lengja upphafshögg-
in um 1 5-20 metra. Eg man ekki
eftir því að hafa séð hann svo
áhugasaman lengi og ég held að
hinn „nýi Nick“ gæti átt gott ár
framundan," segir Leadbetter.
„Eg hef verið að slá hundruði
högga og unnið mikið með þrek-
þjálfara og er orðinn mjög
spenntur fyrir framhaldinu,“ seg-
ir Faldo, sem reyndar er kominn í
samkeppni við lærímeistara sinn,
með opnun Faldo-Golf institute,
skóla sem rekinn er á Orlando
svæðinu á Flórída. Hann hyggst
færa út kvíarnar og nýlega keypti
hann eyju út af strönd Irlands á
eina milljón punda.
Upp iim 67 sæti
Scott Verplank bar sigur úr bítum á úrtökumóti kylfinga fyrir bandar-
ísku mótaröðina. Verplank Iék holurnar 108 á einu höggi undir pari
og sex höggum færra en Blane McAllister sem varð í 2. sæti. Báðir
endurheimta þeir því réttinn til að leika á PGA-mótunum. Banda-
ríkjamaðurinn Bob Friend tryggði sér sæti á mótaröðinni með ævin-
týralegum hætti, því fyrir lokahringinn var hann í 100. sætinu ásamt
nokkrum öðrum kylfingum. Friend lék síðasta hringinn á 63 höggum
og stökk upp um 67 sæti og slapp í gegn. Woody Austin, efnilegasti
kylfingur ársins 1995 á PGA-mótaröðinni, er hins vegar úti í kuldan-
um. Ekkert hefur gengið hjá honum í ár, hann missti sæti sitt á móta-
röðinni og tókst ekki að endurheimta það um síðustu helgi.
Teardrop kaupir og kaupir
Búast má við því að pútterframleiðandinn Teardrop, verði innan
skamms eitt af stóru nöfnunum þegar kemur að framleiðslu golfliún-
aðar, en fyrirtækið hefur á skömmum tíma keypt tvö stór fyrirtæki. I
síðasta mánuði festi Teardrop-fyrirtækið kaup á Armour-fyrirtækinu
og hefur hafið drög að því að koma hinum vinsælu 845-járnakylfum
til vegs og virðingar á nýjan Ieik. I síðustu viku festi fyrirtækið kaup
á Ram, sem helst hefur verið þekkt fyrir framleiðslu sína á Zebra-
pútterum.
Keimslubók frá
1957 í 1. sætinu
Tímaritið GOLF Magazine fékk
nýlega fimmtíu af frægustu golf-
kennurum Bandaríkjanna til að
velja bestu kennslubækurnar
um golf. Niðurstöðurnar koma
eflaust mörgum á óvart, en bæk-
ur frá fimmta og sjötta áratugn-
um skipuðu fyrstu tvö sætin.
Bók Ben Hogan, „Five Les-
sons“ frá 1957 varð fyrir valinu
sem besta bókin, en efni hennar
var reyndar fyrst birt í Sport 111-
ustrated, tveimur árum lyrr og
þótti þá valda straumhvörfum. I
2. sæti var bók Percy Boomer;
„On learning golf.“ Litla rauða
bókin hans Harvey Penick, sem
útgefin var 1992, eftir gömlum
minnisblöðum hins látna meist-
ara varð í 3. sætinu.
Aðeins tvær bækur frá þessum
áratug voru á meðal þeirra tfu
efstu. Golf swing eftir David
Leadbetter frá árinu 1990 og
„Golf is not a game of perfect“
eftir íþróttasálfræðinginn Bob
Rotella, sem út kom 1995.
Kennararnir voru einnig beðn-
Hen Hogan
Five
Lessons
The
Modem
Fundamentah
ofGolf
ir um að nefna bestu myndbönd-
in. Þar varð myndband, Jack
Nicklaus „Golf my way“ sem
kom út 1989 í 1. sæti. „How I
play golF‘ sem út kom 1994 á
fjórum mynbandsspólum og
unnið er eftir myndum af Bobby
Jones er í 2. sæti og í því þriðja
er „Golf with A1 Geiberger“, sem
út kom 1994.
Fyrsti
sigurlR
Fjórir fyrstu leikirnir í Urvals-
deild karla í körfuknattleik voru
háðir í gærkvöld. IR-ingar unnu
sinn fyrsta sigur í deildinni þeg-
ar liðið lagði Skagamenn að
velli.
Úrslit gærkvöldsins urðu þessi:
Keflavík-Skallagr. 117:73
ÍR-ÍA 86:79
KR-Þór 93:90
Haukar-Valur 100:74
10. umferð deildarinnar lýkur
á morgun með tveimur leikjum.
KFÍ tekur á móti Njarðvík í ís-
jakanum kl. 20 og Tindastóll
mætir Grindavík í toppslag á
Sauðárkróki á sama tíma.
Staðan er nú þessi í deildinni:
Grindavík 9 8 1 829:705 16
Haukar 10 8 2 860:738 16
Tindastóll 9 7 2 695:617 14
Keflavík 10 6 4 962:885 12
KFÍ 9 6 3 791:726 12
Njarðvík 9 5 4 767:728 10
ÍA 10 5 5 775:786 10
Skallagr. 10 4 6 828:935 8
KR 10 4 6 800:855 8
Valur 10 2 8 764:850 4
ÞórAk. 10 2 8 797:936 4
ÍR 10 1 9 827:934 2
Gullit vill fá Negri
Ruud Gullit, framkvæmdastjóri
enska ún'alsdeildarliðsins Chel-
sea, hefur lýst sig reiðbúinn til
að greiða sex milljónir sterl-
ingspunda fyrir markahæsta
mann skosku úrvalsdeildarinn-
ar, Marco Negri, sem Rangers
keyjJti sl. sumar á 3,7 milljónir
punda frá Perugia á Italíu.
Negri, sem skorað hefur þrjátíu
mörk í vetur, hefur lýst yfir
áhugai sinurn að komast frá
Rangers. Ef af kaupunum verð-
ur mun ítalinn íýlla skarð sam-
landa síns, Gianluca Vialli, en
samningur hans við Chelsea
rennur út í vor.
Yorke meiddur
Dwight Yorke, framlínumaður-
inn sterki hjá Aston Villa, hefur
átt við meiðsli að stríða í kálfa á
undanförnum vikum og Ijóst er
að hann leikur ekki með liði
sfnu næstu tvær vikurnar. Yorke
lék ekki með Birminghamliðinu
í Evrópukeppninni og hann
verður fjarri góðu gamni á
mánudagskvöldið, þegar lið
hans leikur gegn Englands-
meisturum Manchester United
á Old Trafford.
Man. Utd. efst
hjá veðbönkiun
Enska úrvalsdeildarliðið
Manchester United er talið sig-
urstranglegasta liðið í Meistara-
keppninni að mati veðbanka.
Hjá William Hill veðbankanum í
London eru líkurnar taldar 5-2
að Manchesterliðið hampi Evr-
ópumeistaratitlinum. Juventus
er næst með Iíkurnar 5-1, Real
Madrid með 6-1, Bayern
Munchen 9-1, Borussia Dort-
mund 12-1, Dynamo 14-1,
Monaco 16-1 og Bayer Leverku-
sen 20-1.
Noregur leikur
til úrslita
Lið Þýskalands og Noregs
komust í gær í undanúrslit á
heimsmeistaramótinu í hand-
knattleik kvenna, sem nú stend-
ur yfir í Þýskalandi. Þýskídand
sigraði Makedóníu, 24:19, og
Noregur lagði Suður-Kóreu,
sem er núverandi heimsmeist-
ari, 27:21.