Dagur - 13.12.1997, Síða 6
6 -LAUGARDAGUR 13.DESEMBER 199 7
ro^tr
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag: DAGSPRENT
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjórar: stefAn jón hafstein
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Aðstoðarritstjóri: BIRGIR GUÐMUNDSSON
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6ioo og soo 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjaid m. vsk.: 1.680 kr. á mánuði
Lausasöiuverð: íso kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: soo 7080
Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Simbréf ritstjórnar: 460 617icakureyrij 551 6270 creykjavíkj
ÁfeHisdómur
í fyrsta lagi
Kaupmennska jólanna er að komast í hámark. Nýtt kortatíma-
bil er hafíð og önnur stærsta viðskiptahelgi ársins gengin í
garð. Verslanir eru opnar alla daga og langt fram á kvöld. Allir
hamast við að kaupa til jólanna; dýrindis mat, glæsilegan fatn-
að, fallegar og íjölbreyttar jólagjafir og skraut og glingur. Og
þó. Allir er víst of mikið sagt. Þeir skipta nefnilega þúsundum
sem ekki geta leyft sér neinn munað um þessi jól. Sem verða
þess í stað að leita sér aðstoðar hjá hjálparstofnunum og fé-
lagsmálayfírvöldum. Sem þurfa hjálp samborgara sinna til að
geta haldið sér og sínum gleðileg jól.
í ööru lagi
Unnur Jónasdóttir hjá Mæðrastyrksnefnd dró helstu ástæður
neyðarinnar saman í nokkur meginatriði í viðtali sem birtist í
Degi á dögunum: Atvinnuleysi kvenna í Reykjavík er 5.3%.
Landsbyggðarfólk sem kemur til höfuðborgarsvæðisins á erfítt
með að koma sér fyrir. Mikið er um hjónaskilnaði sem sundra
fjölskyldunum. Öryrkjar og veikt fólk býr við mikinn lyfja-
kostnað og læknisþjónustu sem aldrei hefur verið dýrari. Og
margir verða að sætta sig við afar léleg laun sem duga ekki fyr-
ir nauðþurftum heimilisins.
í þriðja lagi
Það er mikill vandi í þjóðfélaginu. En margir hafa það líka
betra en nokkru sinni fyrr. Og hið opinbera kerfi heldur áfram
að tútna út. Sem sagt: það er mikið af peningum í umferð, en
þeim er afar misskipt. Þess vegna verða samtök og stofnanir á
borð við Hjálparstofnun kirkjunnar, Rauða krossinn, Caritas
og Mæðrastyrksnefnd að gefa hundruðum ef ekki þúsundum
manna mat og fatnað fyrir þessi jól. Talsmönnum hjálparsam-
taka ber saman um að neyðin sé enn meiri núna en á síðasta
ári. A tímum góðæris er slíkt ástand áfellisdómur yfír íslensku
samfélagi.
Elias Snæland Jónsson.
Leynivimir Friðriks
Garri er óðum að komast í
jólaskap sem lýsir sér í því að
hann horfir stöðugt af meiri
hluttekningu til sinna
minnstu bræðra. Þetta er ekki
fyrirhafnarlaust þar sem Garri
lítur samborgara sína al-
mennt kaldhæðnum augum.
í desember leitar Garri oft
einhvern uppi sem hann get-
ur vorkennt mátulega og
hugsað hlýlega til. I hjarta
sínu fínnur Garri þá hvernig
kærleiksblómin spretta og
nýtur því hátíðarinnar betur
vitandi um hlutdeild
sína í kristilegum anda
jólanna. Þetta er ekki á
allra vitorði og vera
kann að nánustu vinir
og fjölskylda Garra
verði ekki vör við þessa
stefnubreytingu í til-
efni jólanna. Garri veit
hins vegar að Drottinn rann-
sakar hjörtun og nýrun.
Skiplum
skoðim í Friðrik
Garri lendir samt stundum í
vandræðum við að fínna ein-
hvem sem þarf á hlýhug að
halda. Nú er sá fundinn og
Garri mun kappkosta að vera
einn af fáum sem hugsa hlý-
lega til hans og reyna að um-
gangast verk hans af þeirri
virðingu sem engum öðrum
finnst þau eiga skilið. Leyni-
vinur ársins hjá Garra er Frið-
rik Sophusson, sem ævinlega
verður fyrir barðinu á sam-
heijum sínum og andstæðing-
um.
Það eru allir að argaþrasast
í Friðrik og setja ofan í við
hann. Hann er ekki fyrr búinn
að gefa út stefnufasta yfirlýs-
ingu um ráðstafanir til þess
að veija fjárhag ríkissóðs, en
Davíð tilkynnir að Friðrik hafí
skipt um skoðun. Davíð gefur
svo til kynna í föðurlegum tón
að það hafi verið hann sjálfur
sem skipti um skoðun í Frið-
rik. Friðrik nýtur því ekki
þeirra sjálfsögðu mannrétt-
inda að fá að skipta um skoð-
un sjálfur sem er miklu
skemmtilegra
Einelti
Davíð gerir þetta í ljósi þess
að allir eru að argast í Friðriki
með alla hluti og hann á sér
formælendur fáa.
Þetta hét að nfðast á
minnimáttar þegar
Garri var ungur og
þótti Ijótt, en er kallað
einelti af sálspeking-
um þjóðarinnar (þ.e.
þeirra sem skoða eitt-
hvað annað en eigin
nafla og líffærin neðan hans)
og þykir sjúkt.
Hvað með það þó Friðrik
vilji láta sjálftökulið eins og
blaðsölubörn borga skatta?
Hvað með það þó fjárlög séu
með halla í miðju góðærinu?
Hvað eru menn að ergja sig
yfír því þó skattar einstaklinga
séu sífellt að hækka? Hvað
eru fjármagnseigendur og fyr-
irtæki sem hafa notið skatta-
ívilnanna að ergja sig yfír því
að hægt gangi að selja þeim
ríkisfyrirtækin? Garri vill
hugga Friðrik með því að
Olafur Ragnar varð líka svona
vinsælt bitbein þegar hann
var fjármálaráðherra og nú er
hann forseti. Hann slapp
reyndar við að forsætisráð-
herrann kæmi í bakið á hon-
um, en það er önnur saga.
Þessi hughreystingarorð til
Friðriks, eru framlag Garra til
mannkærleika á jólum.
GARRI.
Sameign og ofund
STEFÁNJÓN
HAFSTEIN
skrifar
Er það öfund þeirra sem fá ekki
að róa til fískjar að sjá ofsjónum
yfír því að aðrir skuli fá til þess
einkaleyfí? Eða réttlætiskennd?
Þeir sem vilja breytt fyrirkomulag
fískveiða vísa í réttlæti, hinir sem
veijast vísa f öfund þegar fýkur í
þá. Og þá svellur hinum móður,
eins og Jóhanni Ársælssyni í grein
í blaðinu í vikunni.
I leiðara Dags fyrir nokkru
(höf: sjh), var „réttlætið" haft
innan tilvitnunarmerkja og öf-
undin kölluð þjóðfélagsafl - ekki
beinlínis til að taka afstöðu í því
deilumáli hvort orðalagið væri
betra, heldur til að koma þeirri
skoðun á fTamfæri að engu skipti
lengur hvað menn kölluðu hlut-
ina. Ákveðin niðurstaða væri
fengin. Hún væri sú að hvort sem
menn töluðu um öfund eða rétt-
læti væri sú staða uppi í þjóðfé-
Iaginu að einkaleyfi til að gera út
á Islandsmið yrði í framtíðinni
háð gjaldtöku almannavaldsins.
Jóhann er talsmaður gjaldtöku.
Jóhann skrifar málefnalega grein
hér í blaðið á miðvikudag þar
sem hann les full mikið í rithátt
leiðarahöfundar, en of lítið f efn-
islega niðurstöðu. Meginþunginn
í ræðu Jóhanns er mikilsverður í
þeirri umræðu sem fram fer. Álit
hans er að verði sett á veiðileyfa-
gjald staðfesti það eignangildi út-
gerðarmanna á auðlindinni. Þeir
sem ekki átti sig á þessu séu ekki
málsvarar almennings, hafí lítinn
skilning á því hvað „sameign
þjóðarinnar" skipti miklu.
Rök Jóhanns eru ekki sam-
kvæmt niðurstöðu Þorgeirs Ör-
lygssonar lagaprófessors. Hann
Iýsti því á málþingi sem Sjávarút-
vegsstofnun Háskólans stóð fyrir,
að Alþingi gæti gjörbylt fiskveiði-
stjórnunarkerfinu bótalaust í
garð þeirra sem þegar stunda
veiðar. Hleypt fleirum til fískjar
án þess að kæmu til þess bætur,
eða sett á veiðigjald. Þessu var
ekkert sérstaklega til skila haldið
í leiðaranum sem særði réttlætis-
kennd Jóhanns Ársælssonar, en
Dagur er ekki minni málsvari al-
mennings en hann telur sig vera
yfirleitt vegna þess. Þorgeir Iýsti
því ennfremur að Alþingi gaeti
sem best lýst nytjastofna við ís-
land „ríkiseign" og þar með tekið
af öll tvímæli, en lagalega séð
mun hægt að hártoga hvað við sé
átt með „sameign þjóðarinnar".
Alþingi hefði betur kannað það
mál áður en klausan í fyrstu grein
laga um fiskveiðistjórnun var
samþykkt.
Að leigja kvóta
Jóhann Ársælsson setur einnig
ffarn áhugaverðar tillögur um það
hvernig koma mætti á kerfí leigu-
kvóta. Auðsæir kostir við þær til-
lögur eru að eftir ákveðinn aðlög-
unartíma geta allir Islendingar
tekið þátt í útgerð á miðunum
með því að bjóða í leigukvóta,
gjald kæmi fyrir not af auðlind-
inni, hagkvæmni nyti sín, brask
yrði úr sögunni og ekki Iéki vafí á
um eignarhald á fiskinum í sjón-
um. Allt rímar þetta mjög við
margt af því sem gagnrýnendur
núverandi kerfis hafa haldið
fram, og þar hefur Jóhann löng-
um verið í hópi.
Eitt sdngur þó f augun. Leigu-
gjaldið af kvótanum má að mati
Jóhanns alls ekki fara í ríkissjóð,
heldur nýjan sjávarútvegssjóð „til
þarfa sjávarútvegsins". Er það nú
fyllsta gæsla almannahagsmuna?
Að það gjald sem fæst fyrir auð-
lindina skuli aðeins notast „til
þarfa sjávarútvegsins"? Almenn-
ingur hefur langa og dýrkeypta
reynslu af því að greiða fyrir
„þarfir" atvinnuvega. Þær hafa
oft verið skilgreindar með skraut-
Iegu móti. Ágreiningur um þetta
efni færir okkur einmitt á þann
punkt sem leiðarahöfundur Dags
sagði að umræðan væri komin á:
hvert er það gjald sem nægir til
að friðþægja þá sem svíður órétt-
Iætið? Gjaldið sem Jóhann leggur
til að verði sett á er til að borga
þjónustu við þá sem leigja kvóta.
Þá er hans réttlætiskennd svalað.
„Öfund“ ýmissa annarra kann að
vera meiri en svo...
Hvað gafjólasveininn
þér í shóinn í nótt
Nemendur í 1. bekk B
í Oddeyrarskóla teknir tali.
Andrea Björk Hauksdóttir.
Eg fékk súkkulaðistaur í skóinn í
nótt. Já, ég trúi á jólasveinana og
mig langar pínulítið til að toga í
skeggið á þeim. Þeir eiga heima
upp í fjalli.
Lilja Rós Sigurbjörnsdóttir.
Ég fékk svona blómamynd og
pensil til að mála hana. Litina á
ég. Síðan fékk ég líka svona plat
jólasvein, sem er með hönd und-
ir kinn og vinkar mér.
Ragnar Máni Hafþórsson.
Ég fékk jólasveinasúkkulaði og
kúlur. En ég vil fá pening; einn
þúsund kall, einn fímm hundruð
kall og einn hundrað kall.
Óðinn Guðmundsson.
Ég trúi ekki á jólasveininn. Þetta
er mamma. I nótt gaf hún mér
tindátakafara í skóinn.