Dagur - 17.12.1997, Page 2
18-miðvikudagur n.desember 1997
Tfaptr
LIFÍÐ I LANDINU
Dagur • Strandgötu 31 • 600 Akureyri
og Þverholti 14 • 105 Reykjavík
íJíVJ'J ;
Þessir hringdu...
Endumýting
hluta
Umhverfisvænn iesandi vill vekja athygli á hvað mengun væri fjarri
hugsunarhætti okkar
Umhverfisvænn lesandi hringdi
og vildi vekja athygli á því hvað
endurvinnsla og það að draga úr
mengun væri fjarri hugsunar-
hætti okkar. Hann vildi stinga
upp á því að sveitafélögin tækju
öll upp þá stefnu, að á móttöku-
stöðum þeim sem taka við sorpi,
væri einhver sem tæki við not-
hæfum hlutum og að spurt væri
hvort fólki væri ekki sama þó
hlutirnir færu ekki í rusl, heldur
væri öðrum gert kleift að nýta
þá.
Þetta mætti gera hvort heldur
sem væri þannig að um beina
sölu væri að ræða, eins og hjá
Sorpu og RKI í Reykjavík og
hins vegar með því að hafa
skiptimarkað, þar sem fólk gæti
komið með hluti og skipt á þeim
og öðrum.
Jólatilboð
Til okkar hringdi maður sem var
að velta fyrir sér öllum þessum
jólatilboðum. „Hvað verður eftir
jól,“ sagði hann, „þegar útsöl-
urnar byrja? Lækka þá allar vör-
ur meira eða hækka þær
kannski? Gilda engar reglur um
þessi jólatilboð eins og með út-
sölur, að vörur verði að hafa ver-
ið á fullu verði svo fólk sjái verð-
lækkunina? Eg hef það á tilfinn-
ingunni að það sé verið að plata
okkur neytendur með þessu öllu
^ Rangar upplýsingar
aVb Uppflettirit eiga að vera áreiðanleg enda er fátt jafn
ergilegt og þegar í ljós kemur að upplýsingar sem treyst
r er á reynast rangar eða gamlar og úr sér gengnar.
Þannig var t.d. með skipaskrá sem nýlega var gefin út,
en kannski hefur Meinhyrningur bara verið óheppinn með upp-
lýsingarnar sem hann vantaði.
Samlterji ekM ríMstryggður
Sumir kaupendur hlutabréfa í Samherja hafa verið að
ergja sig, og ekki síður viðmælendur sína, á því að bréf-
' in hafa fallið í verði. Gleymdu þessir nöldrarar því að
þeir voru að kaupa hlutabréf í sjávarútvegsfyrirtæki en ekki ríkis-
tryggð bréf? Aðrir gleðjast nú, bréfin ættu að vera aftur á uppleið,
eða hvað?
Læra ekkert
JPSk Forsvarsmenn margra íþróttafélaga læra ekkert, því
enn á ný eru mörg félaganna farin að slaka á þeirri
r samfélagslegu skyldu að gefa t.d. upp Iaun þjálfara.
Það er gjörsamlega óveijandi að á sama tíma teygja
þessir „kóngar" sig niður í vasa okkar samborgaranna eftir meiri
eyðslufé. Nei takk!!
Súnlnu hjá lesendáþjónustunni:
S63 1626netfang : ritstjori@dagur.
Símbréf:4g0 g!7l 5S1 6270
is
Bréf frá
Aldraðir hafa sirin eigin mæiikvarða sem ekki iýgur, og það er buddan.
Aldnir hafa orðið
Nú hefur fjárlagafrumvarp fyrir
árið 1998 verið Iagt fram á Al-
þingi og kemur þar í Ijós að
festa á í sessi það óhappaverk
síðasta þings, að afnema
tengingu bóta Tryggingastofn-
unar, svo sem ellilaun, við
launaþróunina í landinu.
Nú þurfa aldraðir og aðrir
þeir sem á að gera að ölmusu-
þegum vegna þessarar tillögu í
frumvarpinu að vera vel á verði
og fylgjast rheð því hvaða af-
stöðu þingmenn sem þeir kusu
sína fulltrúa við síðustu kosn-
ingar taka á málinu við af-
greiðslu þingsins, það er hægt
að gera t.d. með því að horfa á
beina útsendingu frá þingfund-
um í Sjónvarpinu og með því að
kynna sér atkvæðagreiðslur
þegar þær birtast í fjölmiðlum.
Gervitaxtar
Þingmenn munu reyna að telja
fólki trú um að laun aldraðra
hafi hækkað í samræmi við
launin á almenna markaðnum
og er því nauðsynlegt að Iáta
ekki blekkjast af reiknikúnstum
kerfiskalla. Aldraðir hafa sinn
eigin mælikvarða sem ekki lýg-
ur, og það er buddan.
Arni Brynjólfsson, félagi í Að-
gerðahópi aldraðra, hefur sýnt
fram á það hvernig blekkinga-
Ieikur valdhafa gengur fyrir sig
- samkvæmt kaupgjaldsskrá VSI
nr. 94 segir að viðmiðunartaxta-
laun hafi hækkað um 4,7%, en
þá er áður búið að taka inn í
þau ýmsa dulda launaliði svo
sem beinar yfirborganir, óunna
eftirvinnu, námskeiðsálag,
bónusa, launaskrið o.fl., þannig
finnst talan sem ríkisstjórnin
hangir á eins og hundur á roði,
þannig eru blekkingarnar búnar
til.
M.ö.o. þeir taxtar sem hafðir
hafa verið til viðmiðunar á und-
anförnum árum voru meira og
minna marklausir vegna fram-
antalinna dulinna greiðslna, en
voru nú fyrir afnám viðmiðunar
færðir upp með þessum greiðsl-
um og þannig fundin sú pró-
senta sem hentaði stjórnvöld-
um við að hafa fé af elli- og ör-
orkuþegum og öðrum sem
fengið hafa hækkanir eftir
þeim, ef þessar duldu greiðslur
hefðu ekki verið teknar nú inn í
taxtaútreikninginn hefði hækk-
unin átt að vera 19,6-25,1% .
Þessum útreikningum hefur
verið komið á framfæri af Að-
gerðahópi aldraðra við fjármála-
ráðherra og hans reiknimeistara
ogþeir hafa ekki hrakið þá.
Arni hefur sýnt fram á að
laun aldraðra einstaklinga áttu
að hækka a.m.k. um 10.211 kr.
í stað 6.775 kr. - hjóna og sam-
býlisfólks hvors um sig um
7.181 kr. í stað 2.227 kr.
BlekkingaleiMr
Það má semsagt færa að því rök
að gervitaxtar þeir sem hafa
verið hafðir til viðmiðunar um
Iangan aldur, hafi verið blekk-
ing ein, og það sem verra er
með fullri vitund stjórnvalda
hverju sinni.
Aldraðir geta verið vissir urn
það, að ef þeir refsa ekki fyrir
þessar atlögur að lífskjörum
þeirra með afgerandi hætti við
fyrsta tækifæri, þá er það víst
eins og dagur fylgir nótt að
áfram mun verða haldið að
ganga á rétt þeirra, blekkinga-
leikir sumra þingmanna um að
nú ætli þeir að stofna sérdeild
innan síns flokks til að berjast
fyrir bættum kjörum aldraðra
innan þeirra, er ekkert annað
en ein blekkingin í viðbót, látið
ekki blekkjast, fylgist vel með
framgangi þingmannanna á
þeirra vinnustað, þar finnst
sannleikurinn - í gjörðum
þeirra á þingi. Þessir lands-
byggðarþingmenn felldu tillögu
um að EKKI yrði rofið sam-
hengi elli- og örorkugreiðslna
við almenna launaþróun í land-
Guðjón Guðmundsson
4. þm. Vesturlands
Valgerður Sverrisdóttir
3. þm. Norðurlands eystra
Ingibjörg Pálmadóttir
1. þm. Vesturlands
Halldór Blöndal
2. þm. Norðurlands eystra
Magnús Stefánsson
3. þm. Vesturlands
Guðmundur Bjarnason
1. þm. Norðurlands eystra.
Sturla Böðvarsson
2. þm. Vesturlands
Tómas Ingi Olrich
5. þm. Norðurlands eystra
Einar Oddur Kristjánsson
3. þm. Vestfjarða
Arnbjörg Sveinsdóttir
5. þm. Austurlands
Gunnlaugur M. Sigmundsson
2. þm. Vestfjarða
Halldór Asgrímsson
1. þm. Austurlands
Páll Pétursson
1. þm. Norðurlands vestra
Isólfur G. Pálmason
4. þm. Suðurlands
Vilhjálmur Egilsson
5. þm. Norðurlands vestra
Guðni Agústsson
2. þm. Suðurlands
Hjálmar Jónsson
2. þm. Norðurlands vestra
Þorsteinn Pálsson
1. þm. Suðurlands
Stefán Guðmundsson
3. þm. Norðurlands vestra
Samþykkir tillöguiuii voru:
Sighvatur Björgvinsson
4. þm. Vestfjarða
Ragnar Arnalds
4. þm. Norðurlands vestra
Kristinn H. Gunnarsson
5. þm. Vestfjarða
Gísli S. Einarsson
5. þm. Vesturlands
Svanfríður Jónasdóttir
6. þm. Norðurlands eystra
Hjörleifur Guttormsson
4. þm. Austurlands
Steingrímur J. Sigfússon
4. þm. Norðurlands eystra
Egill Jónsson
3. þm. Austurlands
Fjarverandi voru:
Lúðvík Bergvinsson
6. þm. Suðurlands
Jón Kristjánsson
2. þm. Austurlands
Margrét Frímannsdóttir
5. þm. Suðurlands
Einar K. Guðfinnsson
1. þm. Vestfjarða
ArniJohnsen
3. þm. Suðurlands
Þessar tölur eru unnar upp úr
úr Alþingistíðindum og fór at-
kvæðagreiðslan fram 21. des-
ember 1995 og var því sann-
kölluð jólagjöf til aldraðra frá
stjórnvöldum það árið. Þennan
lista væri gott að geyma og hafa
við hendina næst þegar þing-
menn sækjast eftir endurkjöri
eða gefa kost á sér í prófkjör.