Dagur - 17.12.1997, Qupperneq 7

Dagur - 17.12.1997, Qupperneq 7
 Guðrún Helga Sigurðardóttir skrifar Undurfalleg saga Guðrún Helgadóttir og Brian Pilk- ington: Englajól. Vaka-Helgafell 1997. 25 bls. Bókin Englajól er undurfalleg saga um englabörnin á himninum sem leiddist að bíða eftir jólunum og ákváðu að skreyta fallegasta jólatré í heimi á miðju íslandi. Englabörnin tóku skærustu stjörnurnar á himnin- um og lögðu á greinarnar á risastóru trénu. Fuglarnir komu og settust á tréð og engla- börnin sveipuðu næfurþunnum norðurljósum yfir það. A toppinn tyllti sér sjálft tunglið. Oll börnin í heiminum, sem áttu svo bágt, komu til Islands til að dansa í kringum jólatréð. Sagan, sem Vigdís Finnbogadóttir forseti las í Sjónvarpinu á jóladag 1995, er afar vel skrifuð eins og Guðrúnu Helgadóttur er von og vísa. Hún er þrungin boðskap til barna og fullorðinna um að hugsa til allra þeirra sem eiga bágt, ekki bara á jólunum og ekki bara á Islandi heldur um allan heim. Með gæsku, gjafmildi og samhjálp verða mennirnir hamingjusamir og þá líður þeim vel. Hvergi er hægt að finna að texta í bókinni þó að vissulega komi á óvart orðalagið að margir hafi sett ljós „í trén“ í garðinum sínum. Bókarkápa er afar aðlaðandi og falleg og bókina prýðir mikill Ijöldi fallegra lit- mynda Brians Pilkingtons. Það er sómi að svona bók. Hafsjór fróðleiks iiin hvali Sigurður Ægisson, sóknarprestur á Grenj- aðarstað, hefur gefið út bók um hvali sem er allrar athygli verð, höfðar bæði til hins almenna lesenda sem og grúskaranna. Hönnuður bókarinnar er Jón Asgeir í Aðaldal en Jón Baldur Hlíðberg teiknaði myndirnar, sem allflestar eru listilega gerðar. I fyrstu saknaði undirritaður mynda af blásandi hval, en við nánari at- hugun hefði það truflað heildarmyndina. Bókin er haf- sjór af fróðleik um hvali, fjallað ítarlega um íslenskar hvalategundir og einnig eru mjög fróðlegar upplýsingar um sjaldgæfar hvalategundir sem hér sjást stundum. Þrátt fyrir mikinn fróðleik er hún mjög aðgengileg hveijum sem er, mjög góð handbók um hvali. Hver tegund fær sína opnu i bókinni, þar er teikning af tegundinni, útbreiðslukort og greiningareinkenni fyrir þá fyrst og fremst sem nota bókina við hvalaskoð- un, til þess er hún mjög heppileg. Ættbálks, ættar o.fl. viðkomandi tegundar er getið, á íslensku sem og á latínu og nokkurra erlendra heita. I nokkrum tilfellum hefur höfundur íslenskað erlent heiti hvalsins til samræmis. Vera má að heiti hefðu einnig mátt vera á ensku. Upplýsingar um lengd, þyngd, hámarksaldur, stofnstærð, fæðu o.fl. er einnig að finna á opnuninni. I síðari hluta bókarinnar er ítarefni um þær 55 hvalategundir sem eru í hverri opnu og þar er nokkuð um endurtekningar á upplýsingum framar í bókinni, sem er bara kostur því ekki þarf að fletta fram og til baka. Fremst eru upplýsingar um upp- runa hvala, sögu hvalarannsókna og hvali nú á tímum sett fram á mjög Iæsilegan hátt sem vekur lesanda til umhugsunar um þessar stórkostlegu skepnur úthafanna. Bókin er ekki skrifuð fyrir vísindamenn, heldur allan almenning, það er stærsti kost- ur hennar. Höfundur mun einnig hafa undir höndum ýmsan fróðleik um þjóðtrú sem tengist hvölum, sem hefði ekki fallið inn í heildarmynd bókarinnar, en birtist kannski við annað tækifæri. Siguröur Ægisson gaf út fyrir nokkrum árum Isfyglu, mikinn fróðleik um fugla. Vonandi heldur hann áfram á þessari braut, búi hann yfir upplýsingum um fleiri dýr, á láði sem legi. Ámaðarósk frá Sverri Stormsker - Ljóðabók „Með ósk um bjarta framtíð“ er all hlálegt heiti á nýrri ljóða- bók eftir Sverri Stormsker sem Fjölvi gefur út. Titillinn er árnaðarósk til reifabarnsins, sem liggur ekki lengur í jötu, heldur fæðist í blóðugt gin úlfsins sem Stormsker túlkar jafnframt í málverki og forsíðumynd, sláandi tákn um þann ógnarheim sem við höfum skapað börnum okkar. Sverrir skreytir ljóðin með nokkrum málverkum í fullum litum og fjölda blýantsteikninga eftir Jón Ara Helgason. Nýja ljóðabókin er æði kröftug. Sverrir fer eins og storm- sveipur um ýmsar furður samfélagsgerðar okkar og kreistir ótal kýli mannlífsins, dregur sundur og saman í háði allskyns forkólfa og lætur svipuhögg dynja á vanabundinni lífssýn og trúarþrugli. Óskin um bjarta framtíð er ein viðamesta ljóðabók sem út hefur komið á sfðari árum, veglega innbundin með um 150 ljóðum (eða óljóðum) og tekur þar laglega í lurginn á okkur öllum. Hún er prentuð hjá Grafík hf. Verð kr. 2.480. Ný ljóðabók Ut er komin ný ljóðabók eftir Valdimar Lárusson og er það þriðja ljóðabókin sem kemur út eftir hann. Sú fyrsta kom út árið 1990 og nefndist „Rjálað við rím og stuðla“ og seinni bókin „Laust og bundið" kom út 1993 og eru þær báðar Iöngu uppseldar. Nú kemur þriðja bókin og ber nafnið „Tært drýpur vatnið“. Bókina gefur höfundur út á eigin konstnað og verður hún ekki látin í bókaverslanir, utan eina, Vedu í Hamraborg 5. MIÐVIKUDAGUR 17 .DESEMBER 1997 - 23 fftfm-ÓÖ þvottavé! 1000 snúnunga sparnaðarkerfi, ullarkerfi og margt, margt fleira Verð áður 55.900 kæti- og frystisKapur H: 167, B: 55, D: 60 Verð áöur 76.900 Frystikista 248L H: 85, B: 110, D: 60 Rétt verð 45.990 Einnig234L, 462L og570L. (gjBtAJM Kæiiskápur H: 154, B: 60, D: 60 Kæiir324 L. Rétt verö 69.890 mHötpotntí ísskápur H: 146, B: 55, D: 60 Frystir að neðan Réttverð 62.900 CgJFtAJW ísskápur H: 175, B: 60,0:60 Kseiir275L, frystir55L. Rétt verð 83.100 I íulfjuud /A„ r ' Hoipomi’ ísskápur272L Kæiiskápur 248L FHr^flÍÍp„uL173L Rétt verð 60.900 .. 'g'rí. fsskápur 224L H: 135, B: 55, D: 60 Frystir að ofan Rétt verð 55.900 . : % * isskápur 259L H: 143, B: 60, D: 60 Frystir að ofan Rétt verð 67.500 isskápur 271L H: 143, B: 60, D: 60 Rétt verð 61.900 isskápur 284L H: 155, B: 60, D: 60 Frystiraö neðan Rétt verð 75.900 ísskápur 330L H: 177, B: 60, D: 60 Frystir að neðan Rétt verð 85.900 JÉ4U! :||||ji : i | ? U—:

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.