Dagur - 30.12.1997, Page 11

Dagur - 30.12.1997, Page 11
 ÞSIÐJUDAGUR 30.DESEMBER 1997 - 27 LÍFIÐ í LANDINU Eftir stórhátíðir eins ogjól og ám- mót,þarsem mík- iláherslaerlögð ámatogdrykk, er mörgum ofarlega í huga hvemig losna eigi við aukakílóin. SPJAIX „Fólk verður að sætta sig við það að það getur ekki brennt mörgum kílóum affítu á stuttum tíma, hún er svo orkurik að það er bara ekki hægt, “ segir Borghiidur Sigurbergsdóttir næringarráðgjafí. fara í megrun! „Fólk verður að sætta sig við það að það getur ekki brennt mörg- um kílóum af fitu á stuttum tíma, hún er svo orkurík að það er bara ekki hægt,“ segir Borg- hildur Sigurbergsdóttir næring- arráðgjafi. „Þegar líkaminn býr við sveltiástand, þá aðlagast hann því og brennir upp kol- vetnaforðanum og með honum tapast vatn, en um leið og jafn- vægi kemst á aftur, þá þyngist fólk.“ Ef fólk ætlar að losna við mörg kíló, þá verður það að ger- ast frekar hægt, konur um 'A kg. á viku að hámarki, en karlar sem brenna miklu um 1 kg. á viku að hámarki. Fólk brennir mismildu og t.d. konur í kyrrsetustörfum brenna frá 1600-2300 hitaein- ingum á sólarhring. „Heilbrigður iíkami hefur mjög fullkomna stjórnun og bætir sér upp næringarskort með því að nýta fæðuna betur. „Það telurmest sem maður gerir dags daglega, “ segir Borghildur. Yfirleitt er betra að borða 4-5 máltíðir á dag og hafa þær frek- ar smáar, en að svelta sig meiri- hluta dags og borða eina stóra máltíð,“ segir Borghildur. „Mál- tíðirnar um hádegi og kvöld ættu að vera nokkuð jafnar að stærð og hitaeiningainnihaldi, en morgunmáltíðin kannski heldur minni,“ bætir hún við. „Það er ekki mjög gott að borða eitt salatblað og vatnsglas í há- deginu og svo þunga kvöldmál- tíð, eins og svo margir gera og telja sig vera að halda í við sig með því.“ Vilji landinn svo missa einhver aukakfló er langbesta ráðið að auka brennslu líkamans um leið og fitu- og sykurneyslu er haldið í lágmarki. „Það telur mest sem maður gerir dags daglega,“ segir Borghildur. „Að ganga út í búð, hlaupa á milli staða og yfirleitt að hreyfa sig daglega. Það er miklu betra að hlaupa upp stig- ann á hverjum degi en að f'ara vikulega í líkamsrækt," segir hún. „Líkaminn brennir meiru við hreyfingu og það hentar honum betur að auka brennsl- una og borða betur, en að hætta að borða og hreyfa sig lítið eða ekki.“ Þá höfum við það. Tökum sprettinn þegar um stuttar vega- Iengdir er að ræða, göngum í vinnuna ef hægt er, sleppum bílnum og göngum í búðina og hlaupum upp stigana í stað þess að taka lyftu. Þá ættu jólakílóin að fjúka hratt og vel. VS YÝJAR ÍSLENSKAR ÞJÓÐSÖGUR Sambandsskip og sýknudómur Fyrir svo sem þremur áratugum kom flutningaskip inn til Þor- lákshafnar eftir siglingu erlendis frá. Var þetta eitt af skipum Sambandsins, en margir minn- ast þess að það var Egill Thorarensen, kaupfélagsstjóri á Selfossi, sem öðrum mönnum fremur stóð að uppbyggingu þess byggðarlags. Það sem bar til tíðinda við þessa skipakomu var að nokkuð af smyglvarningi fannst um borð í skipinu, sem var vitaskuld grafalvarlegt mál. Hringdu toll- verðir í Pál Hallgrímsson, sýslu- mann Arnesinga, sem þótti afar milt yfirvald og réttarheimspeki hans var sú að koma málunum út úr heiminum áður en í hart færi. A vettvang í Þorlákshöfn mætti Snorri heitinn Árnason, fulltrúi sýslumanns, bauð fljótt í grun hvaða pörpupiltur í áhöfn skipsins hefði ætlað að smygla góssinu til landsins. Setið var lengi dags og reynt að fá fram játningu í málinu. Allt kom fyrir ekki og alltaf var þrætt. Á end- anum sagði Snorri að ekki væri annar möguleiki í stöðunni en að efna til dómþings í málinu. Var í framhaldinu farið inn á kaffistofu í fiskvinnslustöð Meit- ilsins, þar sem dómþing skyldi háð. En það bar til tíðinda á leið- inni inn í dómsalinn að hinn grunaði maður játaði allar syndir sínar og viðurkenndi fúslega að hann ætti allt „búsið“ í skipinu. Leit þá Snorri snöggt á manninn og sagði síðan nokkuð hvatlega: „Heyrðu, hafðu þig nú aðeins hægan. Eg sem ætlaði að fara að kveða upp sýknudóm yfir þér.“ Umsjón: Sigurður Bogi Sævarsson. Missum ekki jólasveininn og Vínlandsfarana Um áramót er gott að líta um öxl og spá í spil- in. Athuga hvernig kort- in voru gefin á líðandi ári og hvort stokka þurfi spilin og gefa upp á nýtt. Fljótt á litið eru Is- lendingar að spila af sér á tveim borðum að minnsta kosti. Finnar eru búnir að stela jóla- sveininum og þúsund ára af- mæli Vínlandsferða er um það bil að ganga Islendingum úr greipum. íslendingar geta haft rífandi tekjur af Jólasveininum ef rétt er á spilum haldið og nú verð- ur að verja ríkisfang Sveinka. Til að byrja með þarf að reisa myndarlegt verkstæði og heim- ili handa stórfjölskyldu Jóla- sveinsins áfast flugstöð Leifs Eirfkssonar svo erlendir sem innlendir biðfarþegar geti eytt þar tímanum. Gott er að reisa mannvirkin um leið og flug- stöðinni er breytt vegna Schengen samkomulags um ytri landamæri Evrópu og þau verði söm að gæðum og mann- virldn í Dinseylandi. Aðstaðan verði svo Ieigð ein- staklingum undir hvers konar rekstur sem tengist jólunum beint eða óbeint og opið allt árið: Verkstæði, verslanir, veit- ingasölu, minjagripi, íslenska hestinn, jafnvel ódýrt jóla- sveinahótel og annað sem and- ríku fólki dettur í hug. Leig- unni verður að stilla í hóf svo rekstur beri sig enda skilar höfuðstóllinn sér í ríkiskass- ann eftir öðrum leiðum. Ríkið verður að eiga mannvirki, vörumerki og önnur réttindi til að rekstur stöðvist ekki eða réttindi verði seld úr landi. Vekja þarf athygli heims- byggðarinnar á lögheimili Jóla- sveinsins með hvers konar samvinnu við flugfélög og ferðaþjón- ustu, framleiðendur leikfanga og annarrar söluvöru, skemmti- garða í öðrum löndum, á veraldarvefnum og eftir öðrum leiðum. Ef vel gengur draga Jóla- sveinaheimarnir fljótt að gesti til Iandsins upp á eig- in spýtur. Vínlandsferðir þola enga bið og verður að setja vinnuhópa strax af stað til að samræma dagskrána og koma öllum framkvæmdum undir einn hatt. Hraða verður endur- byggingu fæðingarbæjar Leifs Eiríkssonar í Dölum og þá er kominn maklegur staður til að beina að ferðafólki. Gömlu Vínlandsfararnir voru land- könnuðir en þó fyrst og fremst sjómenn og verslunarmenn og því er rétt að samtök sjómanna og verslunar og viðskipta taki þátt í afmælinu. Vínlandsferð- ir eru ekki bara íslensk afrek heldur líka sameiginlegur arf- ur Norður Evrópu. Strax má breyta biðsalnum í flugstöð Leifs Eiríkssonar í eina allsherjar Vínlandsstofu og bjóða upp á efni til kynn- ingar og sölu. Enginn farþegi má sleppa um Keflavíkurvöll án þess að vita undan og ofan um ferðir íslendinganna fyrir þúsund árum. Kólumbus er maðurinn sem fann ekki Am- eríku. Jólasveinninn og Vínlands- fararnir eru íslenskar þjóðar- gersemar og ekkert má til spara að halda ríkisfangi þeirra. Farsælt komundi árl UTBOÐ F.h. Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í 325 tölvur og vírusvarnarforrit fyrir grunnskóla Reykjavíkur. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri frá og með mánudegin- um 5. janúar 1998. Opnun tilboða: kl. 11:00 þriðjud. 17. febrúar 1998 á sama stað. 146/7 ÍINNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3-101 Reykjavík Sími 552 5800 - Bréfsími 562 2616 7 oiÁ'iÁ/ftf ao{/u(/?t o/Aa/1 c(j/edi/ee/'S' á/ss' (>(/ fiö/ifui/?i oiJ- 'S'/i/){i/t á á/i/iu 'S e/?t eo a(f /iJa. Flugkaffi, Akureyrarflugvelli.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.