Dagur - 03.01.1998, Síða 5
LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998 - S
FRÉTTIR
Breyttu símaiiúnieri
fyrirtækis í leyninúmer
Ragnar Björnsson, bólstrari í Hafnarfirði, er afar óhress með mistök Pósts og sima,
sem hann telur hafa kostað sig stórfé. - mynd: hilmar
Síiiianúmeri og heim-
ilisfangi Ragnars
Bjömssonar hf. í
Hafnarfirdi var kippt
út úr síðustu síma-
skránni og hreytt í
leyninúmer. Viðskipt-
in minnkuðu um sem
nemiir 3 miHjónum
króna fyrsta mánuð-
inn eftir að símaskrá-
in kom út. Póstur og
sími svarar ekki hréf-
iim og ræðir ekki við
Ragnar.
„Þannig var að ég var ekki
ánægður með uppsetninguna á
nafni og númeri fyrirtækisins í
símaskránni og vildi breyta því í
skránni sem kom út 1997. Það
var alls konar ruglingur á númer-
um og heimilisföngum mínum
og fyrirtækisins og ég Iét Iaga
þetta. Það gekk greiðlega og
stúlka sem annaðist þetta búin
að senda mér staðfestingu á
skráningunni. Síðan hringdi hún
aftur og sagðist ætla að senda
mér aðra skýrslu og bað mig að
fylla hana út. Eg gerði það og
ekki meira um það að segja fyrr
en símaskráin kom út, þá var
nafn og símanúmer fyrirtækis
míns, Ragnar Björnsson hf., ekki
í skránni. Eg fór að gennslast fyr-
ir um þetta og stúlka sem kann-
aði málið fyrir mig bað mig
senda sér skráningarskýrsluna á
faxi. Síðan fékk ég þau svör að
símanúmer fyrirtækisins væri
leyninúmer ogjþess vegna ekki í
símaskránni. Eg veit að sam-
keppnin í mínu fagi er hörð, eins
og í öðrum greinum, og það
vaknar hjá mér spurning hvort
um skemmdarstarfsemi sé að
ræða,“ sagði Ragnar Björnsson,
bólstrari í Hafnarfirði, í samtali
við Dag um óskemmtilega
reynslu hans af viðskiptum við
Póst og síma hf.
Hann segist strax hafa beðið
lögfræðing sinn að fara í málið.
Hann sendi Pósti og sima bréf
sem fyrirtækinu hefur ekki þótt
ástæða til að svara.
„Eg hef einnig marg reynt að
ná sambandi við þann mann sem
mér var vísað á með þetta mál. í
hvert sinn sem ég hringi og nefni
nafn mitt er svarið að hann sé
því miður ekki við,“ segir Ragnar.
Hann segir að fyrsta mánuð-
inn eftir að símaskráin kom út
án þess að nafn og númer fyrir-
tækis hans væri þar í hefðu við-
skipin minnkað um 3 milljónir
króna miðað við mánuðina á
undan. Ragnar segist reikna með
að hafa tapað 10 til 15 milljón-
um króna á því að nafn og núm-
er fyrirtækisins er ekki í skránni.
Hann segir að vonlaust sé að
sækja bætur í hendur Pósts og
síma vegna þess að ekki varð tap
á rekstri fyrirtækisins á árinu.
„Ég hef verið með keyptar aug-
lýsingar í símaskránni undan far-
in ár. Og nú eru þeir farnir að
ræða \að mig um það hvort ég
vilji ekki kaupa auglýsingar
áfram. Og meira að segja hefur
mér verið bent á nýjan aðila inn-
an fyrirtækisins til að ræða við
um mitt mál. Ég hef von um að
ná tali af honum eftir helgina,"
sagði Ragnar Björnsson. — S.DÓR
Takmarki göngugarpanna íslensku var
náð á nýársdag.
íslenski
fáninná
Suður-
pólnum
Islendingarnir Ingþór Bjarna-
son, Olafur Örn Haraldsson og
Haraldur Ólafsson náðu á Suð-
urpólinn að kvöldi nýársdags
klukkan 21.01, fyrstir Islend-
inga og 10. hópurinn sem þang-
að kemst án utanaðkomandi að-
stoðar. A Suðurpólnum höfðu
þeir félagar lagt að baki 1.200
km, jafnvel meira, því oft þurftu
þeir að leggja lykkju á leið sína,
og oft við erfiðar aðstæður og
þungt færi. Þetta er svipuð vega-
lengd og ef gengið væri frá
Reykjanestá austur á Langanes-
font, til baka á Reykjanestá og
þaðan að HveravöIIum. „Ég var
í símasambandi við eiginkonur
þeirra Ólafs og Haraldar og vissi
á þeirri stundu þegar þeir stóðu
á pólnum. Það var mikill léttir
að vita af þeim þar en ég var
aldrei í vafa um að þeim tækist
þetta,“ sagði Ragna Finnsdóttir
á Akureyri, eiginkona Ingþórs.
Hvað tekur við hjcí þeim næst,
kannski ganga ú Norðurpólinn?
“Það verður nú smá hvíld nú,
en það hefur ekki verið minnst á
neitt meira, en það er aldrei að
\áta. Þeir hafa örugglega áhuga
á því,“ sagði Ragna. — GG
Sldlyrði að iiicnn
fái viimima aftiir
Hrannar Gíslason og Valdimar Sigþórsson eru í undirmannahópnum sem rekinn var
af Helgafellinu um jólin fyrir það eitt að standa á rétti sínum. Þeir voru mættir i
gærmorgun á skrifstofu Sjómannafélags Reykjavíkur t/l skrafs og ráðagerða.
Sjómaimafélag
Reykjavíkur krefst
þess að imdirmeim-
irnir á HelgafeUinu
verði ráðnir aftur. Að
öðrum kosti verður
öUum samtakamætti
beitt gegn danska
skipafélaginu.
„Það er skilyrði af okkar hálfu að
undirmennirnir sex, sem reknir
voru af Ieiguskipinu Helgafelli
um jólin, verði ráðnir aftur í
vinnu. Við samþykkjum aldrei
neinn sjónleik með það og ég
geri mér vonir um að okkur tak-
ist þetta,“ sagði Birgir Björgvins-
son, hjá Sjómannafélagi Reykja-
víkur, í samtali við Dag um mál
undirmannanna á Helgafellinu
sem sagt var frá í Degi í síðasta
blaði Iiðins árs.
Það hefur nú komið í ljós að
það var ekki fyrst og fremst fær-
eyski afleysingarskipstjórinn á
þessu danska leiguskipi sem stóð
fyrir að reka sex-menningana
fyrir að standa á rétti sínum um
að ganga ekki vaktir um borð í
skipinu yfir hátíðarnar. Það voru
íslensku stýrimennirnir sem
urðu að standa vaktirnar, sem
kröfðust þess að undirmennirnir
yrðu reknir. Þeir sögðust ekki
geta unnið með undirmönnun-
um eftir þetta.
Birgir Björgvinsson segir að
Samskip sé nú með fullum vilja
að reyna að leysa málið þannig
að sex-menningarnir verði aftur
ráðnir á skipið. Eins mun hafa
komið fram sú hugmynd að þeir
skipti \dð undirmenn á öðru skipi
Samskipa, ef það gæti orðið til
þess að Ieysa málið.
„Okkar krafa er sú ein að
mennirnir verði fastráðnir aftur
og fái sín störf. Ef danska skipa-
félagið, sem á skipið, verður ekki
við þeirri kröfu höfum við mörg
ráð til að knýja þá til að virða
ráðningarsamninga íslenskra far-
manna,“ sagði Birgir Björgvins-
son. — S.DÓR
Friðsæl áramót imi allt land
Áramótin voru fremur friðsæl um allt land að sögn Iögreglu. Á höfuð-
borgarsvæðinu komu þó upp tvö alvarleg mál. Liðlega tvítug kona
kærði nauðgun í samkvæmi í miðborginni og hefur einn maður verið
úrskurðaður í viku gæsluvarðhald vegna málsins. Samkvæmt heimild-
um blaðsins stendur þar orð gegn orði. Þá veittust nokkur ungmenni
að manni við brennu á gamlárskvöld og veittu honum áverka. Það mál
telst upplýst. Lögreglan var 8 sinnum kölluð til vegna heimilisófriðar á
gamlárskvöld sem þykir lítið að sögn varðstjóra.
Á Akureyri sagði varðstjóri að menn væru nokkuð ánægðir með
nýársnótt, mikill mannfjöldi hefði safnast saman í miðbænum og tölu-
verður hópur fólks fluttur heim, en fangageymslur staðið Iítt notaðar
og engin alvarleg slys orðið af völdum flugelda. — Bt>
Steiner loks í steininn
Franklin Kristinn Steiner, dæmdur fíkniefnasali, er loks kominn í af-
plánun, en hans hefur verið leitað frá því hann átti að mæta í afplán-
un á Þorláksmessu. Leitin fólst þó einkum í því að heimsækja reglulega
heimili hans og hafa augu og eyru opin.
Það var klukkan tíu mínútur fyrir eitt á nýársdag að Iögreglan í Hafn-
arfirði varð þess vör að sjúkrabíll hafði verið kvaddur að heimili
Franklins og kom í Ijós að það var verið að sækja hann sjálfan. Sam-
kvæmt upplýsingum Dags höfðu lögreglumenn reglulega farið í ibúð
Franklins og talið Ijóst að þangað hefur hann komið í fýrsta lagi
nýársnóttina. „Við vorum með hann undir smásjá og urðum strax varir
við það þegar sjúkrabifreið var komin heim til hans. Við höfðum þetta
undir kontról og vorum margbúnir að Ieita í húsinu," segir lögreglu-
maður í samtali við Dag. Kallað var á sjúkrabifreið vegna magakveisu
Franklins, en eftir stutta spítaladvöl ók lögreglan honum til afplánun-
ar í hegningarhúsinu við Skólavörðustíg.
Að sögn Margrétar Sæmundsdóttur hjá Fangelsismálastofnun er
alltaf eitthvað um að handtökuskipanir séu gefnar út vegna manna sem
ekki mæta á réttum tíma til afplánunar, en ekki vildi hún gefa upp töl-
ur þar um. Henni var heldur ekki kunnugt um hvort það væri einsdæmi
að á lslandi er engin viðbótarrefsing gagnvart þeim sem svíkjast um að
mæta til afplánunar á réttum tíma. - FÞG