Dagur - 03.01.1998, Page 6

Dagur - 03.01.1998, Page 6
6 - LAUGARDAGUR 3.JANÚAK 1998 ÞJÓÐMÁL Útgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjórar: Aðstoðarritstjóri: Framkvæmdastjóri: Skrifstofur: Símar: DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEINSSON stefAn jón hafstein ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GUÐMUNDSSON MARFEINN JÓNASSON STRANDGÖTU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVIK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK 460 6100 OG 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: i.eao KR. Á mánuði Lausasöiuverð: iso kr. og 200 kr. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símbréf ritstjórnar: 460 617KAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK) Markveröur í fyrsta lagi Forseti Islands og forsætisráðherra töluðu með mjög ólíkum hætti um umhverfismál og tilefni Kyoto-ráðstefnunnar um loftslagsbreytingar í áramótaávörpum sínum. Viðvörun forseta og lögeggjan var sterk og afdráttarlaus: Sérstaða Islands um- fram aðrar þjóðir felst fyrst og fremst í því að gangi viðvaranir fremstu vísindamanna eftir verður landið óbyggilegt. Forseti skipaði sér með ótvíræðum hætti í raðir þeirra sem talað hafa fyrir gagnlegu alþjóðlegu samkomulagi um mengunarvarnir, og að Island eigi að vera með - þar í felist tækifæri okkar í framtíðinni. í öðru lagi „Málum ekki skrattann á vegginn,“ sagði forsætisráðherra. Tónn hans var áberandi ólíkur þeim sem var hjá forseta: Sleg- ið úr og í. Eigi að síður má greina þegar rýnt er í orðin að for- sætisráðherra gerir sér grein fyrir þeim áhyggjum sem almenn- ingur hefur af stefnu Islands. Hann bendir á, eins og hörðustu umhverfisverndarsinnar, að ráðstefnan í Kyoto er fráleitt trygging fyrir minni mengun. „Bersýnilegt er, að í framhalds- vinnunni stendur til að tryggja þeim þjóðum, sem nú menga mest, ríkulegast svigrúm til að menga áfram.“ Þetta er rétt, og við því á ísland að bregðast í alþjóðlegu samstarfi. Verður það gert? Forseti hvatti til þess að þar tækjum við forystu. í þriðjja lagi Forsætisráðherra slær nú varnagla sem ekki hefur verið sleg- inn svo eftir hafi verið tekið af hans hálfu áður, varðandi stór- iðju: „Þegar stórákvarðanir um nýtingu vatnsafls og varma verða næst teknar, þarf að ríkja um þær sem víðtækust sátt meðal þjóðarinnar og við landið, sem okkur er treyst fyrir.“ Ráðherra gerir sér væntanlega grein fyrir að gangi alþjóðlegar kröfur um hertar mengunarvarnir eftir verða orkulindir lands- ins mildu verðmætari en áður. En meginatriði er, að forystu- menn landsins beri gæfu til að gefa fyrirheiti forsætisráðherra um sátt lands og þjóðar að raunverulegu inntaki í stefnu sinni. Stefán Jón Hafstein. Hættuástandi aflýst Garra Iétti mikið við að hlusta á Davíð Oddsson forsætisráð- herra um áramótin. Satt að segja voru stöðugar fréttir af þessum gróðurhúsaáhrifum farnar að taka á sálina. Það hef- ur vissulega ekki bætt úr skák að heimurinn og heimspressan er uppfull af þessu tali vegna Kyotoráðstefnunnar og hver gæðingurinn á fætur öðr- um stígur á stokk og talar um ógn við vistkerfi jarð- arinnar. Vísindamenn úr öllum heimshornum hafa stillt sér upp í þess- um kór og tekið svo djúpt í árinni að segja framtíð heilu landsvæðanna í bráðri hættu. Þannig hefur verið talað um að e)jar í Kyrrahafi muni sökkva í sæ þegar yfirborð sjáv- ar hækkar. Sama gæti víst gerst í Hollandi. Golfstraumurinn er sagður Iíklegur til að breyta um farveg með skelfilegum afleið- ingum fyrir byggðina á íslandi. Bíllinn í gangi Allt hefur þetta orðið tilþess að Garri er nánast hættur að skilja bílinn sinn eftir í gangi fyrir utan stofnanir og fyrirtæki meðan hann sinnir hinum ýmsu erindum. Það jaðrar meira að segja við að maður kjósi frekar að ganga útí sjoppu en keyra þangað, svo umhugað er manni orðið um að bjarga vistkerfi jarðar og forða því að Golfsstraumurinn yfirgefi Is- landsstrendur. Slíkur er máttur vísindanna. Þegar allir fræg- ustu og virtustu vísindamenn heimsins koma saman og vara við þróuninni er ekki annað hægt en taka tillit til þess sem þeir segja, jafnvel þó það raski Iífsmynstrinu verulega. Davíð reddar málinu Eða hvað? Nú hefur Davíð Oddsson létt þessu þunga fargi af okkur óbreyttum þegnum landsins og meðlimum í vist- kerfi jarðarinnar. Davíð hefur nefnilega aflýst hættuástand- inu og bent á hversu varasamt sé að trúa heimsenda- spám sem sökkva Hollandi og fly tj i „Golfstrauminn góða“ í burtu. Davíð segir að svona langtíma hrakspár setji menn aðeins fram vegna þess að spámenn- irnir viti að þeir þurfi aldrei að svara fyrir hvort þær rætist eða ekki. Það sé nú eitthvað annað en veðurfræðingarnir sem ekki vilji spá nema viku fram í tím- ann vegna þess að þá sé óvissan orðin svo mikil og þeir ætli að vera til staðar eitthvað Iengur en það! Raunar hafa allan tím- ann verið efasemdarmenn í hópi vísindamanna sem ekki hafa viðurkennt að hættan, sem steðjaði að vistkerfinu væri jafn mikil og meirihluti vís- indasamfélagsins hefur haldið fram. Þessar raddir hafa þó ver- ið hjáróma, þar til nú að ofur- vísindamaðurinn Davíð kveður uppúr með það að einmitt þeir viti um hvað málið snýst, en ekki meirihluti hins vísindalega samfélags. Við, þegnar Davíðs, öndum hins vegar léttar, og þökkum foringja vorum fyrir að geta nú haldið áfram að skilja bílinn eftir í gangi á meðan við skreppum inn í sjoppu. Hættan er liðin hjá, aðvaranir vísinda- manna (og forsetans) voru bara plat. Davíð segir það! Garri Nýr lífsstíH og gamlar liunmiir Fyrirmenn ávörpuðu þjóð sína um áramót og höfðu gamalkunn- an boðskap að flytja, að vanda. Forsetinn telur að unglingum sé óhollt að éta eiturlyf og að réttast sé fyrir þá að hætta því. Forsætis- ráðherra er yfir sig lukkulegur með það, að alþýða manna sættir sig við að njóta ekki góðærisins og telur að efnahagsstjórn sinni sé borgið með hóflegum lág- Iaunasamningum, sem gilda eiga fram á næstu öld. Varar hann við öfugri hagvaxtarþróun verði út af brugðið. Biskupinn fárast yfir því að börnum sé ekki sinnt sem skyldi og séu þau afskipt í lífs- gæðakapphlaupinu því foreldrar hafi ekkí tfma til að sinna þeim. Allt er þetta gott og blessað og hefur verið margsagt áður í ræðu og riti, en eins og kerlingin sagði, er góð vísa aldrei of oft kveðin. En 1' hátíðlega orðaðar ræður landsfeðranna vantar lítið annað en greiningu á þeim vandamál- um, sem þeir telja sig vera að fjalla um. Hver er orsök þeirra og hvað er til bóta ef færa skal mál- in til betri vegar? Hvatinn aUs staóar Hver er sá lífsstíll sem nautnafíknin er sprottin úr? Hvers vegna er hætta á að almúg- inn skemmi hagvöxtinn með því að heimta meiri lífsgæði? Hvers vegna gefst foreldrum ekki tími til að sinna afkvæmum sínum, hvar eru þeir og hvar eru börnin? Vilja landsfeðurnir ekki sjá hveijar þær fyrirmyndir eru sem sí og æ er otað að unga fólkinu. Margblessaðar og dásamaðar og forríkar hetjur skemmtanabrans- ans og tískuheims fjölmiðlanna hrynja niður vegna eiturnautna og lífernis sem bera dauðann í sér á ungum aldri. Hvatinn til eiturfíknar er nánast alls staðar í þeim heimi sem lífsstíllinn og fjölmiðlamir segja unga fólkinu að alast upp í. En poppauðvaldið má aldrei gagnrýna, hvorki á Bessastöðum né annars staðar. Það Iið allt á aðeins að upphefja. Samtímis því að forsætisráð- herra dáist að góðæri og velmeg- un, hrósar hann happi yfir því að allur fjöldinn er reiðubúinn að slaka ekki á sultarólinni, enda standa yfir hagræðingar miklar og uppsagnir og hótanir um at- vinnumissi vofa yfir á almennum vinnumarkaði. Góðæri hálauna- manna og auðmagnseigenda eykst að sama skapi. Uppeldisstofnanir Tilraunir vinnulýðsins til að fá að taka þátt í lífsgæðakapphlaupinu eru taldar óþjóðhollar á sama tíma og eyðslan er talin af hinu góða fyrir hagvöxt og fyrirtækja- rekstur. Biskup telur að börnum sé ekki sinnt sem skyldi. Samt eru her- skarar kvenkynsfrelsara sífellt að dást að því hve barnaheimilum af öllu tagi fjölgar og pólitíkusar keppast við að lofa meiri og meiri framlögum til að foreldrar þurfi ekki að eyða tíma sínum með af- kvæmunum. Fífstíll og vinnumarkaður leyf- ir ekki að börn séu á heimilum foreldra sinna, ef einhver eru. Sí- fellt fækkar þeim heimilum þar sem báðir foreldrar barns standa fyrir búi. Fólk á barnseignaraldri er að mennta sig og undirbúa lífsstíl þar sem gamalt fjölskyldu- mynstur er úrelt. Hvar, herra biskup, er rúm og tími fyrir börn í slíku samfélagi? Og hver biður um að foreldrar og börn fái að njóta samvista? Fæðingarorlof er prump og Iímlaus plástur og ekki boðleg af- sökun fyrir það sinnuleysi sem börnum er gert að alast upp við. Fallega voru áramótaræður fluttar og búningar og leikmynd- ir með miklum ágætum, en það sem eftir situr er eitthvað í ætt við þjóðlegt spakmæli: „Ekki er kyn þótt keraldið leki ...“. ro^n Hafa menn sofið á vímuefnaverðinum eins ogfram kom hjáforseta íslands í nýársávarp- inu? Dögg Pálsdóttir formaður verkefuastjómar átáksins ís- land án eiturlyfja árið 2002: „Eg mundi nú ekki taka undir það en betur má ef duga skal og það er það sem við erum að vinna að. Það er hinsvegar mikið fagnaðarefni að hann skyldi hafa helgað þessu máli svona mikið rúm í þessu ávarpi. Það styrkir okkur í því sem við erum að gera og mjög gott að fá svona öflugan stuðningsmann eins og forset- ann í þessa baráttu.“ Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlögregluþjónn: „Sumir hafa ef- laust gert það en ekki allir. Eg held að allmargir séu meðvitaðir um það ástand sem þarf að takast á við. Margir hafa sýnt það bæði í orði og verki að þess sé full þörf. Hinsvegar er alltaf gott að fá góðan stuðning og þá ekki síst frá þeim sem mikils mega sín eins og forsetinn. Því fleiri máls- metandi konur og karlar sem taka þessa afstöðu og tjá sig um hana, þá aukast líkurnar fyrir því að hægt verði að nota almenn- ingsálitið í baráttunni gegn vímuefnum." Þórarinn Tyrfingsson yfirixknir SÁÁ: „Ég get tekið heilshugar undir það sem forset- inn sagði. Þá ítreka ég það sem ég hef áður sagt að í stað þess að setja 50 milijónir króna í forvarnasjóð, þá ættu að vera þar 500 milljónir króna. Það þarf því að leggja enn meiri áherslu á þessi mál en við höfum gert vegna þess að vímu- efnin eru enn meira vandamál eins og við sjáum það en menn gera sér almennt grein fyrir.“ Ólafur Ólafsson landlæknir: „Það hefur margt verið mjög vel gert í vímu- efnavörnum. I því sambandi má benda á að vímu- efna- og áfengis- neysla er minnst á Islandi miðað við vestræn lönd. Hinsvegar stunda fyrirmyndir stórs hluta unglinga helgar- drykkju. Það er vandi sem þarf að bregðast við. A hinn bóginn eru stundum settar fram rangar og óraunsæjar áherslur eins og Island vímuefnalaust árið 2002. Margir hafa ekki trú á slíku og þá flautar maður stundum á það.“

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.