Dagur - 03.01.1998, Page 8
8- LAUGARDAGVR 3. JANÚAR 1998
ÞJÓÐMÁL
rD^fir
í áramótaávörpion
Ólafs Ragnars Gríms-
sonar forseta og
Daviðs Oddssonar
forsætisráðherra
komu fram gjörólík-
ar áherslur í umsögn-
um um Kyoto-ráð-
stefnuna og um-
hverfismál. Dagur
hirtir hér hluta úr
ávörpum þeirra.
Ástandið i umhverfismálum íAustur-Evrópu er víða hrikalegt. Loftmengun í þesum heimshluta er víða mikil eins og meðfylgjandi mynd ber með sér.
Ólafur Ragnar, Davíð og Kyoto
„Nú lítur ... út fyrir að flestir séu að
fara fram úr okkur og Isiendingar að
lenda aftast í sveit þeirra sem bjarga
vilja Iífsskilyrðum mannkyns.
í umræðum hér
heima um hætturnar
á breyttu loftslagi og
samningana í hinni
fjarlægu borg Kyoto
hefur gleymst um of
að geta þess sem í
húfi er fyrir okkur ís-
lendinga - ekki í
formi undantekninga
frá nýjum sáttmála
þjóðanna, heldur í
þeirri ógn sem steðjar
að lífsskilyrðum í
landi okkar beri
mannkyn ekki gæfu
til að grípa til gagnað-
gerða sem duga.
Sveit fremstu vís-
indamanna heims,
formlega valdir sem
fulltrúar þjóðríkja,
hefur skilað niður-
stöðum um breyting-
ar á hitastigi, hækkun
á yfirborði sjávar, um-
turnun hafstrauma, gróðurfars og lífs-
skilyrða jarðarbúa. Ef svo heldur fram
sem horfir gæti hitaaukning víða um
heim gert gróðursvæði að eyðimörk en
annars staðar yrði kólnun í ætt við ís-
aldartíma.
Lega íslands og lykilhlutverk
Golfstraumsins á okkar slóðum eru á
þann veg að áhrif loftslagsbreytinganna
myndu koma hvað harðast niður á okk-
ur íslendin'gum og gera landið nánast
óbyggilegt fyrir barnabörn okkar og af-
komendur þeirra.
Þessi lýsing er ekki heimsendaspá
eða efnisþráður í skáldlega hryllings-
sögu heldur kjarninn í vísindalegum
niðurstöðum fræðimanna sem skipa
hina formlegu ráðgjafasveit ríkja
heims, niðurstöðum sem lýsa því sem
gæti hafist á æviskeiði þeirra íslend-
inga sem nú eru börn í skóla.
Island hefur einmitt í þessari vísinda-
umræðu verið tekið sérstaklega sem
dæmi um hrikalegar afleiðingar lofts-
lagsbreytinganna.
Virtur vísindamaður,
sérfræðingur við Col-
umbia háskólann í
Bandaríkjunum,
sagði nýlega í viðtali
við eitt helsta dagblað
heims: „Island yrði
þakið jöklum allt til
stranda. íbúarnir
yrðu að yfirgefa það.“
- Landið okkar góða
yrði þá í raun og sann
ísa fold.
ísland 1 farar-
broddi
Við íslendingar ætt-
um því að vera í farar-
broddi þeirra sem á
alþjóðavettvangi
kreljast þess að tafar-
laust verði gripið til
róttækustu gagnað-
gerða til að forða
heiminum frá slíkri
loftslagsbreytingu. Við ættum að fagna
þeim vilja sem þjóðir heims sýna nú til
samstarfs, hefja með öðrum breytingar
á eldsneytisnotkun skipa og bifreiða og
beita nýrri tækni sem auðveldar lofts-
lagsvæna framleiðsluhætti. Við eigum
að gleðjast yfir þeim tækifærum sem
öld umhverfisverndar getur fært okkur
íslendingum ef við sjálf höfum vit og
vilja til að nýta kosti íslands.
Illa tekist til
Það er annars sérkennilegt hve illa okk-
ur hefur gengið að sýna í verki hollustu
við vernd umhverfis, lífríkis og Iand-
gæða. Við höfum látið ættjörð okkar
blása upp og eytt svo gróðri með óhóf-
Iegri beit hrossa og sauðfjár að Island
er nú mesta eyðimörk álfunnar."
Úlafur Ragnar: Hvetur íslendinga til að
fara / broddi fylkingar þeirra sem vilja rót-
tækustu aðgerðirnar gegn loftslagsbreyt-
ingum.
„Alþjóðlega umhverfisráðstefnan í
Kyoto vakti töluverða athygli og umræð-
ur hér á landi. Því miður bafa þær um-
ræður verið með nokkrum Iosarabrag.
Allmargir menn, sem
ættu að vera færir um
að fjalla um slík mál
af ábyrgð og festu,
breyttust í stjórnlítil
tilfinningabúnt og
fjölluðu um íslenskan
inálatilbúnað með
einkennilegum
hætti.“ (Morgun-
blaðsgrein)
„Umræður um
Ieyndardóma loft-
hjúpsins, vistkerfi og
veðurfar þurfa að
byggjast á hógværð,
en ekki á hleypidóm-
um. Við þurfum að
viðurkenna að þekk-
ing okkar er brota-
kennd. Við höfum
ekkert leyfi til að
mála skrattann í sí-
fellu á vegginn. Skoll-
inn er æði leiðigjarnt veggskraut."
(Sj ónvarpsávarp)
„...Þeir, sem til að mynda þykjast sjá
fyrir að Golfstraumurinn góði muni
kveðja ísland og koma sér annað á
seinni hluta næstu aldar, ellegar að það
flata Holland verði þá ekki þar, sem það
er nú, geta treyst því að þurfa ekki að
verja spár sínar. Menn verða að fara
afar sparlega með stórslysaspárnar og
forðast að skapa ótta hjá fólki með vís-
un til fræða, sem byggja á veikum
grunni." (Sjónvarpsávarp)
„...I alþjóðlegri umræðu hefur orðið
bakslag í hræðsluáróðrinum um hin
svokölluðu gróðurhúsaáhrif. Rækilega
hefur verið bent á að vísindalegur
grundvöllur sumra svæsnustu fyllyrð-
inganna um það sem mætti búast við,
væri býsna hæpinn... „ (Morgunblaðs-
grein)
Ljótur leilair
„...þeir stunda Ijótan leik sem úthrópa
íslendinga að ósekju sem umhverfis-
sóða og hreykja sér síðan af því, að róg-
ur þeirra sjálfra um
afstöðu íslands hafi
náð að komast inn í
víðfræg erlend blöð
fyrir meðalgöngu við-
hlægjenda sinna hér á
landi." (Morgunblaðs-
grein)
„...Þess var nánast
krafist að íslenskir
fulltrúar lýstu yfir £
upphafi ráðstefnunar
að við myndum engar
kröfur gera um
nokkra sanngirni í
okkar garð... rétt eins
og íslendingar væru
fremstir í röð þeirra
sakamanna sem and-
rúmslofti spilla... Allt
var þetta með miklum
ólíkindum."
„Þá má spyrja: Er
okkur jarðarbúum,
með hliðsjón af þessu, óhætt að ganga
hugsana- og fyrirhyggjulaust áfram
mengunargönguna á enda? Því fer auð-
vitað fjarri. Hvað sem um skort á vís-
indalegum sönnunum má segja, getum
við nánast af fullkomnu öryggi trúað
því, að sívaxandi mengun og losun
óhollustu í andrúmsloftið er til mikillar
bölvunar. Því þarf að bregðast við og
breyta um háttalag.11 (Sjónvarpsárvarp)
ísland stendur sig vel
„Osanngjarnar reglur, svo sem hrossa-
kaup á útblásturskvótum og hagsmuna-
bundnar undanþágur, eru ekki réttu
viðbrögðin. I slíkum samþykktum kann
að felast friðþæging en bætt er við að
þær muni skila litlum eða engum ár-
angri. íslendingar hafa haldið á sínum
málum á þessu sviði, í senn af festu og
ábyrgðartilfínningu, og það munu þeir
gera áfram." (Sjónvarpsárvarp)
Davíð Oddsson: Menn verða að fara afar
sparlega með stórslysaspárnar og forðast
að skapa ótta hjá fólki.