Dagur - 08.01.1998, Síða 1
Mildl ólga og ótti
hj á Flugfélaginu
Starfsmenn Flugfélags
íslands í jöliiieimtu á
hitafund í gær þar sem
stjómendur upplýstu
að til stæði að bjóða
út rekstur hlaðdeildar
FÍ til verktaka. Um 25
mauns starfa í deild-
inui.
Mikill hitafundur og fjölmennur
fór fram í gær með starfsmönn-
um Flugfélags Islands og stjórn-
endum. Vegna erfiðra rekstrar-
skilyrða óttast starfsmenn um at-
vinnuöryggi sitt. Þeir sögðu hug
sinn á fundinum og kröfðust
upplýsinga um framtíðina. „Það
var mjög heitt í kolunum og
menn Iétu allt flakka. Starfs-
menn vildu m.a. fá að sjá rekstr-
artölur en þær lágu ekki fyrir hjá
stjórnendum. Svo vildu menn
vita hvort frekari uppsagnir væru
fyrirhugaðar en það fengust lítil
svör við því,“ segir starfsmaður
Flugfélagsins sem ekki vildi láta
nafns síns getið.
Ekki vissa uin hagkvæmni
Alls fengu 24 uppsagnarbréf um
áramótin hjá FI en 16 voru end-
urráðnir af þeim hópi. I gær var
svo tilkynnt að áætlunarflug FI
milli Akureyrar og Raufarhafnar
yrði hætt. Heimildarmaður
blaðsins segir að það hafi heldur
ekki orðið til að friða starfsmenn
þegar fram kom á fundinum að
stjórnendur Fl væru alvarlega að
athuga að bjóða út hlaðdeildina í
Reykjavík og Iáta verktaka sjá um
þá vinnu. Á þriðja tug manna
starfar í hlaðdeildinni og er at-
vinnuöryggi þeirra ekki tryggt ef
af þessu verður. Dagur bar þetta
undir Pál Halldórsson, fram-
kvæmdastjóra FÍ.
„Það var upplýst já að útboð á
hlaðdeildinni væri einn þeirra
möguleika sem eru til skoðunar
til að ná fram hagræðingu. Við
erum ekki farin að útfæra hug-
myndina í smáatriðum, enda
þurfum við að ræða betur hvort
þetta yrði hagkvæmt fyrir fyrir-
tækið. M.a. hefur þetta með virð-
isaukaskatt að gera. Við fáum
ekki nema hluta af honum til
baka þannig að í sumum tilfell-
um borgar sig ekki fyrir okkur að
vera með verktaka," segir Páll
Halldórsson.
Sársaukafullar aðgerðir
Starfsmenn sem blaðið ræddi við
sögðu það ganga fjöllum hærra
Hugmyndir eru uppi um aö bjóða hiað-
deild Flugfélagsins út og eru þar 25
störf i uppnámi.
þeirra á meðal, að samruni FÍ og
Islandsflugs yrði að veruleika á
árinu. „Það er fjarstæðukennt,"
segir Páll. „Hins vegar kannast
ég Mð að það er mikil ólga meðal
starfsmanna enda væri annað
óeðlilegt. Það gengur enginn í
gegnum svona hluti öðruvísi en
að koma frá því sem breyttur
maður, hvorki undirmenn né yf-
irmenn. Það er alltaf erfitt að
taka svona stóran hóp manna á
einu bretti og eðlilegt að menn
séu óöruggir. En við reyndum að
skýra okkar sjónarmið á fundin-
um og höfum gert eins vel og við
gátum til að standa sem best að
þessu.“
Skiptimiðar miili félagauna
Flugfélögin eru þegar búin að
taka upp samstarf vegna vildar-
kortanna en nánara samstarf er
ekki ákveðið á næstunni að sögn
Omars Benediktssonar, fram-
kvæmdastjóra Islandsflugs.
„Hinu er þó ekki að neita að okk-
ur barst fyrirspurn frá Vest-
mannaeyjum um hvort félögin
tvö myndu leyfa farþegum að
nýta flugmiða milli félaganna. Eg
hringdi í Pál Halldórsson og
spurði hvort við ættum að skoða
þetta, en ekkert hefur komið út
úr því enn. Ef eitthvað verður, sé
ég þetta fyrir mér sem fyrsta
skref í samstarfi.“ — BÞ
Jólatrén
tekrn niður
Olíkt Reykvíkingum fá Akureyr-
ingar enga „jólatrjáaþjónustu“.
„Akureyringar verða sjálfir að
losa sig við jólatrén, fara með
þau í gámana," segir Guðmund-
ur Guðlaugsson, bæjarverkfræð-
ingur á Akureyri. Jólin eru búin
og tímabært að losa sig við trén.
I Reykjavík er sá háttur hafður á
að starfsmenn borgarinnar sjá
um að losa þá borgarbúa við trén
sem fara með þau út fyrir lóðar-
mörk og svipað fyrirkomulag hef-
ur einnig verið reynt á Akureyri
en ekki tekist vel að sögn bæjar-
verkfræðings. Þessi háttur var á
sínum tíma tekinn upp í kjölfar
umræðna og gagnrýni um að
jólatré væru að fjúka um göturn-
ar. „Trén koma út á svo mismun-
andi tímum að við teljum þenn-
an kost ódýrari fyrir samfélagið
ef svo má að orði komast," segir
Guðmundur. — BÞ
Það er nóg fyrir Reykvikinga að henda trjánum út fyrir lóðarmörk og þá sjá starfsmenn gatnamálastjóra um að hirða þau og
koma þeim fyrir. - mynd: e.ól.
Gísli Bragi Hjartarson.
Gísll Bragi
hættir
Gísli Bragi Hjartarson, bæjar-
fulltrúi Alþýðuflokksins á Akur-
eyri, hefur ákveðið gefa ekki kost
á sér við bæjarstjórnarkosningar
í vor, eftir tæplega tólf ára setu í
bæjarstjórn.
„Eg hef lengi haft þann draum
að menn á mínum væng stjórn-
málanna sameinuðust og styð þá
þróun sem er að verða í stjórn-
málunum. Mér hefur oft fundist
að þeir sem hafa verið í forystu í
pólitík hafi oft verið seinir til að
víkja. Eg hét því sem ungur mað-
ur að ég myndi reyna að finna
rninn vitjunartíma og ég vona að
mér hafi tekist það,“ sagði Gísli
Bragi.
Landlæknir
á villigötum
„Það eru engar
nýjar upplýsing-
ar til um það að
endurinnlagnir
séu að aukast.
Að mínu mati
má ekki setja
fram svona
tölulegar upp-
lýsingar án þess
að leitað sé
skýringa á þeim
og þær gerðar eins trúverðugleg-
ar og hægt er. Og það hefur ekki
verið gert í þessu tilfelli," sagði
Kristján Erlendsson, skrifstofu-
stjóri á heilsugæslusviði í heil-
brigðisráðuneytinu. En hann var
spurður um afstöðu þess til
gagnrýni frá landlækni um
ótímabærar útskriftir og mikla
fjölgun endurinnlagna á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur.
„Það er mjög athyglivert að
landlæknir hefur ekki kynnt
þetta fyrir heilbrigðisráðuneyt-
inu,“ segir Kristján. Það komi
líka í ljós að þær tölur sem lagt
sé út af byggist á skoðun frá ár-
unum 1986-95, en engar nýrri
upplýsingar sé þar að finna.
Kristján
Erlendsson.
Vélsleðar
og fjalla-
ferðir
Blað 2
r.’mvi
Perfectao
Neysluvntnsdælur
SINDRI
-sterkur í verki