Dagur - 08.01.1998, Blaðsíða 2

Dagur - 08.01.1998, Blaðsíða 2
2 -FIMMTUDAGUR 8.JANÚAR 19 9 8 1Dja^wr' FRÉTTIR Framboðsfundur eða j ólas veinahátlð ? Fra jólahátídinni á Selfossi þar sem stjórnmáiamenn gripu tækifærið og töluðu lengi um samein- ingu sveitarfélaga o.fl. Gagnrýnt er að börnin hafi verið orðin köld í trekkinum undir stjórnmála- ræðunum á meðan þau biðu jólasveinanna! Á innfelldu myndinni er Kristján Einarsson, sem bókaði mótmæli á bæjarstjórnarfundi. Fulltnu minnihlutans í bæjarstjórn Selfoss segir að meirihlutamenn hafi misnotað aðstöðu sína á jólahátíð bæjarins, og rætt um sameiningu sveitarfélaga. Á meðan biðu bömin í kuldatrekki. Kristján Einarsson, oddviti minnihluta Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Sel- foss, átelur ákveðna bæjarfulltrúa meirihlutans fyrir að hafa slegið mót- töku í miðbæ Selfoss þann 13. desem- ber sl., í tilefni af komu jólasveinanna í bæinn, upp í hálfgildings framboðs- fund. Segir Kristján að móttakan hafi farið fyrir ofan garð, þar sem bæjarfull- trúarnir hafi varið drjúgum tíma í að upplýsa gesti, börn í miklum meiri- hluta, um ýmis bæjarmálefni. Samkvæmt heimildum Dags beinir Kristján Einarsson hér spjótum sínum að tveimur bæjarfulltrúum Sjálfstæðis- flokks, Sigurði Jónssyni og Birni Gísla- syni. Avörp, meðal annars um samein- ingarmál sveitarfélaga, fluttu þeir á meðan fjöldi barna og foreldra biðu í leiðinda kuldagarra eftir jólasveinun- um. Mun koma þeirra í bæinn hafa dregist vegna þessa um allt að hálfa klukkustund. „Eg var þarna stödd með lítinn ömmustrák og barninu var orðið hrollkalt að standa þarna undir ræðu- höldunum. Mér fundust ræðuhöld af þessum toga orka mjög tvímælis á þessari stundu," sagði Sigríður Karls- dóttir, húsmóðir á Selfossi, í samtali við Dag um þetta. I bókun um þetta mál, sem Kristján lagði fram á síðasta bæjarstjórnar- fundi, segir að jólasveinaráðherra Sel- fossbæjar hafi haft farsímasamband við Kertasníki í bústað hans í Ingólfs- fjalli og beðið karlana um að koma til bæjarins um kl. 15. „Karlagreyin lögðu tímanlega af stað, en voru stoppaðir af við eina sjoppuna utan ár, þar sem ræðuhöld voru enn í gangi við bæjar- jólatréð vestan Trygg\'atorgs og koma þeirra myndi trufla dagskrána. Á með- an biðu karlarnir í sjoppunni í nánast FRÉTTA VIÐ TALIÐ klukkutíma eftir að grænt ljós kæmi á áframhald ferðarinnar úr Ingólfsfjalli til Selfoss. Að þessu sinni voru börnin og foreldrar þeirra orðin köld og Ieið á biðinni eftir aðalatriði dagskrárinnar og þeir Stekkjastaur, Giljagaur og hin- ir jólasveinarnir orðnir hálf Ieiðir á að- gerðaleysinu, vitandi af vinnu nætur- innar við að fylla í skóna hjá börnun- um,“ segir í bókuninni. Kristján sagði um þetta mál í samtali við Dag að fleiri atvik af þessu tagi hefðu á kjörtímabilinu komið upp hjá bæjarfulltrúum meirihlutans. Sér hefði því þótt rétt að vekja máls á þessu. „Þeir sem í hlut eiga voru ekk- ert ánægðir að fá þessa bókun, en ég átti heldur ekki von á því,“ sagði Krist- ján. -SBS. Einn pottverja sló um sig með orðatiltækjum eins og hann væri forsætisráð- herra i gær og sagði: „Sjald an launar kálfur ofbeldið." Hann var leiðréttur - ofeldið. Hann sagðist hér eiga við Guð- rúnu Pétursdóttur, sem nú væri talað um að ætlaði að taka 8. sætið á lista Sjálfstæðis- flokksins við borgarstjómar- kosningarnar í vor. Ef hún gerði það yrði kosningabaráttan ein- vígi milli hemiar og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, sem mun skipa 8. sætið á R-listanum. Það vill svo til að Ingibjörg Sólrún skipaði Guðrúnu Pétursdóttur sem sinn fulltrúa í stjóm Aflavaka og þar situr Guðrún enn í skjóli Ingibjargar Sólrúnar. Þar fyrir utan var Guðrún áköf stuðningsmanneskja Ingibjargar Sólrúnar og R-Iistans fyrir síðustu borgarstjómarkosn- ingar. Guðrún dvaldi þá í Noregi og fóra mörg símtöl á milli ineðan á kosningabaráttunni stóð... Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Var verið að ræða Skorradals- málin. Glöggir menn hafa kom- ist að því aö sú opinbera rann- sókn sem meirihluti hrepps- nefndar Skorradals fór fram á kemur til með að snerta flest heimili í hreppnum, eða níu af tólf. Annað hvort hefur fólk flutt lögheimili sitt inn á viðkoinandi heimili eða út af þvi á síðasta ári. Þar á meðal era heim- ili allra hreppsnefndannanna nema eins, þess er sat hjá þegar greidd vom atkvæði um kæm hreppsnefndar til sýslumanns. í pottinum vom inenn að segja að Bjöm Snæ- bjömsson, verklýðsforingi á Akurcyri, ætti erf- iða daga núna. Verkalýðshreyfingin æf út í mjólkurhækkunina og búin að draga til baka fulltrúa sína í fimmmannanefnd, neina Bjöm sem situr í nefndinni sem fulltrúi framsóknar- maxmal.... Jíikob Bjöms- son bæjarstjóri á Akureyri. Hugmyndireru uppi um öflugan Nýsköpunarsjóð Jyr- ir atvinnulífið á Akureyri. Bæjarstjórinn áAkureyri er fylgjandi því að bærinn leggi til hálfan mílljarð kr. í stofnfé. Brýnt að styrkj a atviimulmð — Telurðu tnikla þörf d stojnun sltks sjóðs fyrir atvinnultfið? „Eg vil fyrst segja að það er ekki búið að ganga frá þessu máli þannig að það sé kom- ið formlega inn á borð bæjarstjórnar Akur- eyrar. Eg tel hins vegar mjög skynsamlegt að þetta sé rætt. Það er brýnt að hægt sé að fá áhættufé til atvinnuþróunar í verkefni sem ekki er auðvelt að Ijármagna með öðrum hætti. Menn eru ragir við að fara út í ýmis- legt vegna þess að peninga vantar. Mér dett- ur í hug í því sambandi öflugri markaðssetn- ingu á framleiðsluvörum eða samstarfsverk- efni með erlendum aðilum. Eins má nefna ýmsa hluti í ferðaþjónustu og margt fleira.“ — Og það er brýnt að styrkja atvinnulíf- ið á Akureyri? „Já það er brýnt að hafa tækifæri til að gera tilraunir. Eg er ekki að tala um að dæla út peningum til að tapa þeim, heldur þurfa menn að geta farið af stað með góðar hug- myndir án þess að Ieggja allt undir persónu- lega. Tímaþröng kreppir að mörgum, við værum að tala um „þolinmóða peninga" eins og sagt er og sjóðurinn gæfi mönnum aukið svigrúm. Það verður að segjast eins og er að á Akureyri gera menn ekki meira en svo að halda sjó varðandi mannfjölda, þrátt fyrir alla þá þjónustu sem hér er veitt og uppbyggingu sem orðið hefur. Það j)arf fleiri breið bök til að standa undir því að byggðin styrkist og eflist." — Þú ert fylgjandi ef af stofnun verður að sjóðurinn fái hálfan milljarð Itr. úr bæjarsjóði. Hvaðan ættu þeir peningar að koma? „Menn horfa aðallega til framkvæmda- sjóðs Akureyrar í þeim efnum en sjóðurinn hefur það skilgreinda hlutverk að stuðla að atvinnuuppbyggingu. Helstu eignir hans eru hlutabréf í fyrirtækjum og uppistaðan er í ÚA.“ — En efbærinn selur enn stærri hlut en þegar er orðið í ÚA, er þá ekki hætta á að staða fyrirtækisins veikist? „Vissulega hefur maður heyrt að sumir óttist j>að og ég ítreka í jæssu samhengi að bæjarstjórn Akureyrar hefur enn ekki tekið málið formlega til umfjöllunar. Margir hafa sagt að ef Akureyrarbær ætti ekki meirihluta í ÚA, væri hætta á að dregið yrði úr atvinnu- starfseminni og fyrirtækið flutt eitthvað annað.“ Með tilheyrandi keðjuáhrifum á at- vinnulífið... „Já, en á þeim tíma sem liðinn er frá því að bréf bæjarins voru seld hefur ekkert bent til stefnubreytingar þótt eignaraðildin hafi breyst þannig að það hefði verið framkvæm- anlegt. Starfsstöð ÚA og fjárfestingar eru hér á staðnum og á því ári sem liðið er frá sölu bæjarins á bréfunum, hefur verið lagð- ur mikill peningur í fjárfestingar fyrirtækis- ins á Akureyri til að styrkja hag þess hér enn frekar.“ - BU

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.