Dagur - 08.01.1998, Síða 3
FIMMTUDAGUR 8.JANÚAR 1998 - 3
FRÉTTIR
Góðæríð sniðgengið
verkakonumar
40%
30%
31%
k.
3
O
2*
3
(0
KO
s
<
30%
14%
:0.v- ■■■:
SttPBi
O
!||gi
|
£
JS
n
I
•m£m
0)
>
30%
25%
..111
JS
3
U)
o
iiiMmmwii
O
mimm
a>
5
24%
ís
JS
o
+->
</>
JJ—
Ihn
w
' ' ' \
mm
'
■ ■ .
Línuritið sýnir hækkun meðalmánaðarlauna ASÍ-stétta frá 2. ársfjórðungi 1993 til annars ársfjórðungs 1997. Um 20 þús. kr. launamunur
verkakvenna og verkakarla 1993 hafði aukist i rúmlega 50 þús. kr. mun á síðasta vori, eins og sjá má á Ifnuritinu um þróun mánaðartekna
ASÍ félaga.
Tekjur verkakveima
hafa síðustu áriu
hækkað iniklu iiiiiina
en allra annarra.
Verkakarlamir hafa á
hinn hóginn aflað
hest.
Mánaðarlaun verkakarla hafa
hækkað um nær 44 þús. kr. en
verkakvenna aðeins 12 þús. kr. á
fjórum árum. Kaupmáttur laun-
anna jókst að jafnaði fimmfalt
meira hjá verkakörlum (30%) en
verkakonum (6%) frá 2. árs-
fjórðungi 1993 til sama tíma
1997. Tekjur verkakvenna hafa í
mörg ár hækkað miklu minna en
allra annarra ASI stétta, en
starfsbræður þeirra hins vegar
borið mest úr bítum. Kemur
þarna tvennt til: um 8% meiri
hækkun á greiddu tímakaupi
karlanna auk þess sem vinnuvik-
an hefur lengst hjá þeim en styst
hjá konunum. Verkakonur
hefðu nú 23.000 kr. hærri mán-
aðarlaun hefðu þau hækkað um
sama hlutfall og hjá starfsbræðr-
um þeirra síðan 1993.
Mikill iiimiur milli stétta
Nýjustu tölur Kjararannsóknar-
nefndar sýndu um tvöfaldan
mun á launahækkun ASI stétt-
anna milli 2. ársfjórðungs 1996
og sama tíma 1997 - hvort sem
litið var á greitt tímakaup eða
mánaðarlaun fólks í fullu starfi.
Munurinn á hækkun meðallaun-
anna vex enn ef litið er nokkrum
árum Iengra aftur í tímann.
Styttri vinnuvika verkakvenna og
Iengri hjá verka- og iðnaðar-
mönnum hefur þarna umtals-
verð áhrif.
Á þessu fjögurra ára tímabili hef-
ur almennt verðlag (vísitala
neysluverðs) hækkað um tæp
8%. Greitt tímakaup ASÍ fólks
hækkaði á sama tíma um 24% að
meðaltali og heildartekjurnar um
30%. Þetta þýðir 21% aukningu
á kaupmætti mánaðarlauna
landverkafólks innan ASÍ.
Hlutur stéttanna í þessum
kaupmáttarauka er hins vegar
afar mismunandi. Aðeins 6% hjá
verkakonunum, 15-16% hjá körl-
um við afgreiðslu- og skrifstofu-
störf, um 20-21% hjá konum við
afgreiðslu- og skrifstofustörf og
iðnaðarmönnum og 30% hjá
verkakörlunum.
Góðærið sniðgengið buddur
verkakvenna
Þar sem hér er um meðaltalstöl-
ur að ræða sýnist alveg ljóst að
margar verkakonurnar a.m.k.
geti með sanni sagt að góðæri
undanfarinna ára hafi aldrei
komist í launaumslagið þeirra.
Meðallaun þeirra hafa aðeins
hækkað um rúm 12 þús. kr. á
mánuði á þessu fjögurra ára
tímabili borið saman við 26-30
þús. kr. hjá afgreiðslu- og skrif-
stofukonum og 44-46 þús. kr.
hjá verka- og iðnaðarmönnum.
Auk minni launahækkunum en
aðrir eru verkakonurnar líka sá
hópur sem hvað harðast varð úti
í atvinnuleysi undanfarinna ára.
Vakin skal athygli á að úrtak
Kjararannsóknarnefndar 1997
nær ekki til þeirra sem fá greitt
samkvæmt nýtilkomnum ung-
Iingataxta. Þótt 16-18 ára ung-
lingar séu varla stórt hlutfall
fullvinnandi fólks gæti þetta
hugsanlega sýnt hlutfallslega
heldur meiri kauphækkanir hjá
afgreiðslufólki 1997 en ella.
Áhrifin munu Iítil sem engin í
öðrum stéttum þar sem ekki er
t.d. um unglingataxta að ræða í
fiskvinnslu og því síður iðnaðar-
menn á unglingsaldri. -HEI
Eitrið
kemur
umalda-
mót
Geislavamir ríMsins
telja að geislavirk
efni iiiuiii ekki ógna
lífríki sjávaríns, svo
mjðg verði það út-
jjynnt. Uggur í mörg-
um hagsmunaaðilum.
Fjölmargir hafa áhyggjur af
þeirri hættu sem þeir telja að
stafa kunni af geislavirkum eit-
urefnum frá Sellafield í
Englandi, sem náð hafa Noregs-
ströndum og munu í áranna rás
ná til íslands. Forsvarsmaður
Geislavarna vill ekki hrópa úlf-
ur, úlfur. Hann segir ástand og
horfur ekki þess eðlis að menn
þurfi að örvænta. Aukin vöktun
hafsvæðanna þurfi hins vegar að
koma til.
„Við megum eiga von á þess-
um efnum á hafsvæðin fyrir
norðan ísland um eða eftir alda-
mótin. Fjarlægðin frá írska haf-
inu gerir það að verkum að
þynningin er feykilega mikil. Við
erum ekki að tala um heilsufars-
lega hættu sem getur fylgt þessu
hingað. Styrkur efnanna verður
væntanlega orðinn það lítill. En
þau geta safnast upp í þangi,
rækju, humri og öðrum skel-
fiski, en styrkurinn verður svo
Iítill að hann spillir ekki afurð-
um,“ sagði Sigurður Magnús-
son, forstöðumaður Geislavarna
ríkisins, í gær.
í fréttum frá Noregi segir frá
því að eitrið frá Sellafield sé far-
ið að eitra þaragróður við vestur-
strönd Noregs. Þangað berst
eitrið teknisfum með haf-
straumunum. -JBP
Stxíði afstýrt í Smáraniun
Hreyfihamlaðir fagna sigri i Kópavogi eftir að eigendur Rúmfataiagersins og BYKÚ hafa
failist á að setja upp lyftu fyrir starfsmenn í nýju versiunarbyggingunni að Smáratorgi 1.
Bygging hússins hefur gengið vel og viðbúið að það verði tilbúið jafnvel í mars nk mynd:
Ferlinefud Kópavogs
beygir verslimarrisa.
Lyfta fyrir starfs-
menn. Hreyfihamlað-
ir fagna sigri.
„Eg geri ekki ráð fyrir að Bónus
og Hagkaup muni skerast úr leik
eftir að Rúmfatalagerinn og
BYKÓ hafa fallist á þá lausn að
setja upp lyftu fyrir starfsmenn í
nýja verslunarhúsinu að Smára-
torgi 1. Ef þeir gera það þá verð-
ur stríð," segir Hrafn Sæmunds-
son, nefndarmaður f ferlinefnd
Kópavogs.
Ferlinefnd Kópavogs fagnar
sigri yfir ráðamönnum þessara
verslana sem upphaflega ætluðu
að spara sér allt að tvær milljón-
ir króna og hafa enga lyftu upp á
millipall á 2. hæð f þessu 17 þús-
und fermetra verslunarhúsi. Á
hæðinni er gert ráð fyrir aðstöðu
fyrir starfsmenn. Þrátt fyrir ný-
samþykkt byggingarlög frá AI-
þingi sem kveða á um að lyfta
skuli vera í þjónustuhúsnæði
sem er tvær hæðir og meira, var
gildistöku reglugerðar þar að lút-
andi frestað. Af þeim sökum bar
þeim engin skylda til að setja
upp lyftu. Þessu vildi ferlinefnd
Kópavogs ekki una og hefur
taðið í mikilli haráttu við for-
ráðamenn fyrrnefndra verslana
til að koma í veg fyrir að hreyfi-
hamlaðir gætu ekld unnið í nýja
verslunarhúsinu vegna skorts á
aðgengi. Hinsvegar hafa arki-
tektar hússins tekið ábendingum
ferlinefndarinnar vel.
ímynd í hættu
Hrafn Sæmundsson segist vera
afar ánægður með lyktir þessa
máls eins og þær blasa við. Hann
segist ekki trúa því að óreyndu
að forráðamenn Hagkaups og
Bónuss muni skerast úr leik. Ef
svo ólíklega mundi vilja til þá
verður öllu tjaldað til í því stríði
m.a. með fulltingi Öryrkjabanda-
lagsins og Sjálfsbjargar. Þar fyrir
utan væri ímynd þessara tveggja
verslana í hættu sem hingað til
hafa talið sig bera hagsmuni al-
mennings fyrir brjósti og þeirra
sem minna mega sín með hag-
stæðu vöruverði.
Þetta nýja og stóra verslunar-
hús hefur risið með undrahraða
í Smáranum í Kópavogi. Ef að
líkum lætur mun það opna inn-
an tíðar, jafnvel í mars. Því til
viðbótar ráðgerir Smáralind að
byggja enn stærri verslunarhöll í
næsta nágrenni sem verður allt
að 44 þúsund fermetrar að
stærð. -GRH
Nýr kikskol i í Kópavogi
Nýr leikskóli var opnaður í Kópavogi í gær og voru það væntanlegir
nemendur þar sem sáu um að klippa á borðann. Leikskólinn heitir
Arnarsmári og þar munu dvelja um 130 börn. Skólann byggði fyrir-
tækið Desember, en Kristinn Ragnarsson, arkitekt, hannaði húsið og
Ingibjörg Kristjánsdóttir, arkitekt, hannaði lóðina. Kostnaður við
byggingu leikskólans nemur rúmum 60 miiljónum króna.
Nauögim í Timglinu
Tvítugur maður hefur verið dæmdur í gæsluvarðhald vegna gruns um
nauðgun á veitingastaðnum Tunglinu á nýársnótt. Hæstiréttur stað-
festi gæsluvarðhald yfir manninum til föstudags.
Stúlka á svipuðu reld kærði manninn og samkvæmt framburði
hennar stakk maðurinn, sem hún kannast við, upp á því að þau færu
í hliðarherbergi til að geta talað saman vegna hávaða. Þar kom mað-
urinn fram vilja sínum. Maðurinn hefur borið við minnisleysi sökum
ölvunar.
íslandsbanM efstur
Viðskiptablaðið hefur gert úttekt á árangri hlutafélaga á Verðbréfa-
þingi Islands á síðasta ári. Samkvæmt þessari úttekt hafa hluthafar
Islandsbanka notið 94,8% ávöxtunar á hlutafé sínu á síðasta ári.
Hluthafar í Marel geta líka vel \ið unað því ávöxtun þeirra var 77,5%.
I næstu sætum eru Samvinnusjóðurinn, Nýherji og Jarðboranir.
En menn högnuðust ekki bara á eign sinni í fyrirtækjum. Eigend-
ur bréfa í Islenskum sjávarafurðum hafa mátt horfa á fé sitt rýrna um
47,9% og eigendur bréfa í Vinnslustöðinni um 40%. Næstu fyrirtæki
eru Plastprent, Hampiðjan og Sanninnuferðir-Landsýn.