Dagur - 08.01.1998, Síða 5
FIMMTUDAGUR 8 .JANÚAR 1998 - S
Ðagur
FRÉTTIR
Tugmilljóna gróði
af skattsvikum ÞÞÞ
Þórður Þ. Þórðarson afplánaði tvo afþremur mánuðum i áfangaheimili Verndar við Laugateig. Hann vann fulla vinnu á daginn og greiddi að-
eins 1.000 krónur á dag i fæðis- og dvalarkostnað.
Þórður Þ. Þórðarson
var dæmdur fyrir að
skjóta 108 milljóniiiit
iindan skatti en ríkið
fær aðeins 50 milljón-
ir til baka. Refsivist-
in var takmörkuð og
tilhliðrun ríkisvalds-
ins forðar Þórði frá
frekari afplánun.
Þórður Þ. Þórðarson, fyrrum for-
stjóri ÞÞÞ á Akranesi, fékk að
mati lögfræðinga, sem Dagur
ræddi við, alla þá bestu fyrir-
greiðslu til „mjúkrar lendingar"
sem ríkisvaldið og dómskerfið
höfðu upp á að bjóða dæmdum
skattsvikara. Höfuðstóll undan-
dreginna skatta Þórðar var 108
milljónir króna, en aðeins 50
milljónir fást upp í þetta eða að-
eins helmingur af því sem svikið
var undan.
Undran er meðal lögfræðing-
anna og megn óánægja innan
embættis Skattrannsóknarstjóra
ríkisins með að sýslumaður á
Akranesi hafi í fjárnámsmáli
hleypt 50 milljóna króna skatt-
sektum fram fyrir 140 milljóna
króna skattaálagningu. Fjár-
málaráðuneytið gerði ekki aðra
athugasemd við þessa tilfærslu
en að benda á að það væri dóms-
málaráðuneytisins að innheimta
sektir. Tilfærslan þýðir í raun að
Þórður losnar undan skatta-
greiðslunum en getur forðað sér
frá fangelsi með því að standa
við sektargreiðslurnar. Annars
hefði Þórður mátt byrja á að
greiða skattana og orðið að sitja
sektina af sér í fangelsi.
Einn starfsmanna Skattrann-
sóknarstjóra orðaði það svo að
„embættinu hefði verið gefið
langt nef' eftir mikla rannsókn-
arvinnu. Fullyrt er að mál Þórð-
ar beri síst í sér skilaboð um að
það borgi sig ekki að svíkja und-
an skatti.
Sektin greidd með iuidan
skotinu?
Auk „helmingunar" hins undan-
skotna skatts sat Þórður aðeins
einn mánuð í fangelsi. Og með
þ\4 að sýslumaður færði sektina
fram fyrir skattálagninguna var
try'ggt að Þórður gæti samið um
50 milljóna króna skattsvikasekt-
ir sínar og komist þannig hjá
frekari fangelsisafplánun. Sektin
er síðan greidd með fjármunum
sem urðu til þegar Þórður seldi
eigin hlutafélagi rekstur ÞÞÞ;
hún er í raun greidd með hinum
undanskotna skatti.
Þegar upp er staðið er refsing
Þórðar sú að dvelja einn mánuð
í fangelsi, tvo mánuði í „mjúkri"
afjilánun á áfangaheimili Vernd-
ar og greiða helming skatt-
svikanna til baka. Auk þess verð-
ur Þórður persónulega gjald-
þrota. Aftur á móti er fyrirtækið -
með miklum húseignum og flota
flutningabíla - enn innan fjöl-
skyldunnar og sömuleiðis einbýl-
ishús Þórðar.
Margrét Frímannsdóttir, for-
maður Alþýðubandalagsins, rit-
aði bæði fjármála- og dómsmála-
ráðuneytunum bréf í gær með
kröfu um skýringar á ýmsum at-
riðum þessa máls. „Mér finnst
að meðferð þessa máls hafi verið
mjög undarleg af hálfu ráðuneyt-
anna beggja og mér sýnist að það
hafi bitnað á hagsmunum ríkis-
ins. Eg vil fá skýr svör um með-
ferðina og hef einnig óskað eftir
áliti Ríkisendurskoðunar á mál-
inu,“ segir Margrét. - fþg
Laiidsniálin Iicilla
Guðrnnu líka
Guðrún Pétursdottir
segist vera að íhuga
hvort og þá með hvaða
hætti hún vilji taka
þátt í pólitík, það séu
fleiri en eiuu mögu-
leihi í því efni.
Áhrifamenn innan Sjálfstæðis-
flokksins halda því ffam að ástæð-
an fyrir því hvað það dregst að
Guðrún Pétursdóttir gefi svar um
það hvort hún taki 8. sætið á borg-
arstjórnarlista Sjálfstæðisflokks-
ins í vor sé sú að hún sé að hugsa
um að fara
frekar út í
lands-
málapólitíkina
að ári þegar
kosið verður til
Alþingis. Dag-
ur spurði Guð-
rúnu í gær
hvort þetta
væri rétt?
„Ef ég svara
þessu hreinskilið þá er að brjót-
ast um í mér hvort og þá með
hvaða hætti ég vil taka þátt í
stjórnmálum. Það eru fleiri en
einn möguleiki í því efni og það
er þetta sem ég hef verið að
leggja niður fyrir mér að undan-
förnu,“ sagði Guðrún. Þunga-
vigtarmenn í Sjálfstæðisflokkn-
um hafa bent á að ef Guðrún
verður fengin til að taka 8. sætið
á listanum, baráttusætið, og ef
flokkurinn vinnur sigur sé það
rökrétt að hún verði borgarstjóri.
Það væri rökleysa að Árni Sigfús-
son, sem flokkurinn treysti ekki
til að leiða listann til sigurs, yrði
þá borgarstjóri. Guðrún var innt
álits á þessu?
„Þetta er auðvitað kenning
eins og aðrar. En ég bendi á að
fólk stekkur ekki fullskapað úr
höfði Seifs eins og konur gerðu í
gamla daga. Það að stjórna borg
er starf sem krefst reynslu," sagði
Guðrún Pétursdóttir. -S.DÓR.
Ikveikjumálið ekki kært
RíMssaksóknari telnr
ekM ástæðu til ákæru
vegna hruna er varð í
prentsmiðjunni
Stuðlaprenti í Ólafs-
firði sl. haust.
Aðstæður á vettvangi þóttu mjög
sterklega benda til að um
íkveikju hefði verið að ræða og
fljótlega beindist grunur að eig-
endum, en þeir höfðu yfirgefið
húsnæðið á sama klukkutíma og
eldurinn kom upp. Björn Rögn-
valdsson sýslumaður segir að
Ríkissaksóknari vísi í 112. gr.
laga og segir m.a. í bréfi hans:
„Að svo stöddu er eigi krafist
frekari aðgerða af hálfu ákæru-
valds en komi eitthvað það fram
sem gæti orðið til frekari upplýs-
inga um eldsupptök og ætlaða
íkveikju eða fram kemur beiðni
vátryggjanda um frekari rann-
sókn beri að taka málið til rann-
sóknar."
Framlögð gögn virðast því ekki
líkleg til sakfellis, hvorki eigenda
né annarra. Sönnunaraðstaða í
íkveikjumáli þykir alltaf mjög erf-
ið fyrir dómi, sem byggist á þeirri
meginreglu að vafi er sökunaut í
hag. Sýslumaður segir að ekki sé
ástæða til þess að halda að rann-
sókn rannsóknarlögreglu á Akur-
eyri hafi verið ábótavant, annars
hefði málið verið endursent og
krafist frekari rannsóknar.
Svokallað „sparisjóðsmál“ er
enn í rannsókn hjá Ríkislög-
reglustjóra og kemur ekki til
milligöngu sýslumanns þar sem
um rannsókn á efnahagsbroti er
að ræða. Fyrrverandi sparisjóðs-
stjóri var kærður af bankaeftirlit-
inu fyrir að lána fjármagn Iangt
út fyrir reglur þar að lútandi.
- GG
Sjómaimadeilan í blindgötu
Enginn árangur varð á sáttafundi undir- og yfirmanna með útvegs-
mönnum í Karphúsinu í gær. Þeir hafa verið boðaðir til nýs fundar á
föstudag og einnig vélstjórar. Atkvæði um verkfallsboðun í félögum
undir- og yfirmanna verða talin í dag. Verði verkfall samþykkt hefst
það 2. febrúar nk. hafi ekki samist fyrir þann tíma. - GRH
Kjörskrá samþykkt í Skorradal
Á fjölsóttum fundi hreppsnefndar Skorradalshrepps samþykkti
hreppsnefnd að heimila oddvita hreppsins að ganga frá kjörskrá í
samræmi við íbúaskrá frá Hagstofu Islands. Það liggur því fyrir að
íbúar í Skorradal munu greiða atkvæði um hvort hreppurinn samein-
ist í sameiningarkosningum sem fram faral7. janúar nk. um samein-
ingu hreppanna í Borgarfjarðarsýslu norðanSkarðsheiðar ásamt
Hvítársíðuhreppi í Mýrasýslu. Framhaldið er hins vegar óljóst. Verði
sameining felld í Skorradalshreppi má fastlega gera ráð fyrir að höfð-
að verði mál til leiðréttingar á íbúaskráhreppsins 1. desember sl.
samkvæmt heimildum Dags. Hve langan tíma slík málaferli tækju og
hver niðurstaðan yrði er óvíst en það er Ijóst að meirihluti hrepps-
nefndar Skorradals telur íbúaskrána ekki sýna raunverulegan íbúa-
fjölda hreppsins. - OHR
Veltuaukning hjá Gummíviun slimiii
Velta Gúmmívinnslunnar á Akur-
eyri jókst um liðlega 11% milli ára,
úr 132 milljónum króna í um 147
milljónir króna árið 1997. Lang-
mest veltuaukning varð í sölu
nýrra hjólbarða en einnig jókst
veltan í sölu dekkja til notkunar í
landbúnaði en samdráttur varð í
framleiðslu og sölu á vörum • til
notkunar í sjávarútvegi. Utflutn-
ingur jókst ekki. Gúmmívinnslan er með einkaumboð fyrir Bridge-
stone-hjólbarða, m.a. naglalausu Ioftbóludekkin, sem sala hefur ver-
ið stöðugt að aukast á. — GG