Dagur - 08.01.1998, Qupperneq 7

Dagur - 08.01.1998, Qupperneq 7
 FIMMTUDAGUR 8 . J ANÚAR 19 9 8 - 7 ÞJÓÐMÁL Af einstökum verkefnum sem fengu aukin framlög við afgreiðslu fjárlaga má nefna að framlag til jöfnunar á námskostnaði var hækkað um 50 milljónir króna. Einnig var framlag til Háskóla íslands og Háskólans á Akureyri hækkað," segir Jón Kristjánsson m.a. í grein sinni. Fj árlagaafgreiðslan J0N KRIST- JANSSON FORMAÐUR FJÁRLAGA- NEFNDAR ALÞINGIS Að venju var Ijárlagafrumvarp fyr- ir árið 1998 síðasta málið sem var afgreitt á Alþingi fyrir jól. Um- ræður um fj'árlögin á lokastigi voru um margt athyglisverðar. Skýrar línur komu fram í mál- flutningi stjórnar og stjórnarand- stöðu og er rétt að rifja upp þær áherslur. Það vakti athygli við lokaumræðuna að greinilegur munur var á málflutningi Alþýðu- flokksins og Alþýðubandalagsins, þannig að ekki virtist stjórnarand- staðan ganga með sömu áhersl- una til þessara umræðna. For- maður Alþýðuflokksins lagði mikla áherslu á að fjárlögin sýndu að efnahagsstefna ríkisstjórnar- innar væri farin úr böndunum og árangurinn væri slakur og afkoma ríkissjóðs þyrfti að vera betri. Talsmcnn Alþýðubandalagsins töluðu fyrir skattlagningu á fyrir- tæki til þess að standa undir auknum útgjöldum rfkissjóðs. Það vakti einnig athygli, þrátt fyrir þennan málflutning, að gagnrýnt var harðlega að ganga ekld lengra í aukningu útgjalda og stjórnarandstaðan flutti breyting- artillögur um allt að þriggja millj- arða króna útgjaldaauka, án þess að leggjast á móti einni einustu tillögu stjórnarliðsins um aukin útgjöld. Niðurstaða fjárlaga og efnahagsmálm Afgreiðsla Ijárlaga var í járnum, með tekjuafgangi upp á um 140 milljónir króna. Þegar þessi af- koma er metin verður að hafa nokkur atriði í huga. I fyrsta lagi eru fjárlög nú af- greidd á rekstrargrunni. Það þýð- ir að reiknað er með áföllnum skuldbindingum og áföllnum tekjum. Þessi afkoma er því mun betri en á síðasta ári, þegar gert var upp á greiðslugrunni, sem þýðir að reiknað var með útgjöld- um og tekjum innan ársins. Með sömu aðferð og á fyrra ári væri af- koman nú jákvæð um allt að þrjá milljarða. I öðru lagi er gert ráð fyrir að greiða niður skuldir um fimm milljarða króna á þessu ári. Það eru þáttaskil, þar sem hallarekst- ur liðinna ára á ríkissjóði hefur þýtt mikla skuldasöfnuii og vax- andi vaxtabyrði ríkissjóðs. I þrið- ja Iagi fer lánsfjárþörfin minnk- andi sem nemur milljörðum á þessu ári. I íjórða Iagi hefur verið varið allt að 8 milljörðum króna á síð- ustu tveimur árum til þess að inn- kalla ríkisskuldabréf á óhagstæð- um kjörum. Þetta sparar vaxta- kostnað upp á um 2 milljarða króna á þremur árum. í fimmta lagi hafa verið ákveðn- ar skattalækkanir upp á fimm milljarða króna og tekist hafa kjarasamningar til aldamóta. Þeir samningar kosta ríkissjóð að sjálf- sögðu aukin launaútgjöld eins og síðar verður vikið að. Útgjalda- og tekjuhlió Fjárlagafrumvarpið í haust var lagt fram með hagnaði sem nam 521 milljón króna. I meðförum Alþingis var tekju- og gjaldahlið endurmetin. Ekki þótti ástæða til þess að gera nýja þjóhagsspá þannig að tekjur voru endurreikn- aðar út frá þeim horfum um hag- vöxt sem þjóðhagsspá frá síðasta hausti gerði ráð fyrir og inn- heimtuhorfum yfirstandandi árs. Sá endurreikningur sýndi aukn- ingu tekna upp á 2,3 milljarða króna á rekstrargrunni. Alþingi samþykkti breytingartil- Iögur við fjárlagafrumvarpið sem námu um 2.6 milljörðum króna. Stærstur hluti þeirra varðaði auk- in útgjöld til heilbrigðiskerfisins, menntamála og útgjalda vegna kjarasamninga sem gerðir hafa verið síðan fjárlög voru lögð fram í haust. Breýtingartillögurnar vegna kjarasamninganna námu um 370 milljónum króna, og vegna sjúkrahúsanna allt að 500 milljónum á fjárlögum til viðbótar við um 600 milljónir á Ijárauka- lögum. Samningar um fjárhags- leg samskipti ríkis og sveitarfélaga höfðu í för með sér útgjöld upp á Það vaJkti einnig at- hygli, þrátt fyrir Jjennan málflutning að gagnrýnt var harð- lega að ganga ekki lengra í aukningu út- gjalda og stjórnar- andstaðan flutti hreytingartillögur nm allt að þriggja milljarða króna út- gjaldaauka, án þess að leggjast á móti einni einustu tillögu stjómarliðsins uin aukin útgjöld. 70 milljónir fyrir ríkissjóð, auk uppreiknings tekjustofns jöfnun- arsjóðs sveitarfélaga upp á 39 milljónir króna. Ný lög um fæð- ingarorlof höfðu í för með sér 75 milljóna króna útgjöld, svo dæmi séu nefnd. Af einstökum verkefnum sem fengu aukin framlög við af- greiðslu fjárlaga má nefna að framlag til jöfnunar á námskostn- aði var hækkað um 50 milljónir króna. Einnig var framlag til Há- skóla Islands og Háskólans á Akureyri hækkað, auk þess sem framlög til tækjakaupa í sérskól- um voru hækkuð. A fjáraukaiög- um var veitt 50 milljónum króna til þess að eyða áhrifum gjald- skrárhækkunar Landsvirkjunar, þannig að orkuverð þarf ekki að hækka um áramótin eins og gert var ráð fyrir. Sjúkrahúsm Það kom í ljós í fjárlagagerðinni að sjúkrahúsarekstur landsmanna er víðast hvar í miklum vanda. A fjárlögum og í fjáraukalögum var lagt fram viöbótarfjármagn sem nemur um einum milljarði króna til þess að mæta honum. Af þess- ari upphæð er óskipt á fjárauka- lögum um 200 milljónir króna, sem ætlaðar eru til þess að mæta vanda landsbyggðarsjúkrahúsa og 300 milljónir króna árið 1998. Ætlast er til að hópur fagmanna fari yfir málefni sjúkrahúsanna og geri tillögur um skiptingu þessara fjármuna. Þessi aðferðafræði var mjög rædd við afgreiðslu fjárlag- anna. Hún er nauðsymleg vegna þess að hallatölur sjúkrahúsanna voru að koma fram á síðustu mánuðum og nauðsyn ber til þess að fara yfir áætlanagerð þeirra og meta þann grunn sem ætlunin er að byggja á. Að þessari vinnu er ætlunin að kalla fólk með sér- þekldngu bæði á málefnum landsbyggðarsjúkrahúsanna og stóru hátæknisjúkrahúsanna á höfuðborgarsvæðinu. Það er tvf- mælalaust eitt brýnasta verkefnið í ríkisfjármálum að búa svo um hnútana að áætlanir um rekstur sjúkrahúsanna séu raunhæfar. Meiri hluti fjárlaganefndar gat með engu móti staðið frammi fyr- ir almennum hallarekstri þorra sjúkrahúsa, án þess að setja vinnu í það að greina ástæðurnar til hlítar. Miklar upplýsingar Iiggja fyrir, sem geta myndað grundvöll að henni, og það er í þágu beggja aðila, ríkissjóðs og þeirra stofn- ana sem eiga hlut að máli að gera samkomulag um umfang og fjár- lagagrunn sjúkrahúsanna sem byggist á þeim verkefnum sem þar þarf að vinna. Fjárlög í þágu stöðugleika Þau fjárlög sem afgreidd voru fyr- ir jól eiga að stuðla að stöðugleika í efnahagsmálum. Minnkandi Iánsfjárþörf stuðlar að lægri vöxt- um, og lækkun skulda treystir af- komu ríkissjóðs til frambúðar. Áróður stjórnarandstöðunnar um slakan árangur í ríkisfjármálum kemur því úr hörðustu átt, því ekkert hefur heyrst úr þeirri átt- inni um hvaða útgjöld hefði átt að skera niður, en allur málflutning- urinn hefur hnigið að því að mæta ætti hverri ósk um framlög úr ríkissjóði að fullu. Það hefði að sjálfsögðu verið ávísun á áfram- haldandi hallarekstur og skulda- söfnun. Það er heldur ekki aðgengileg leið að hækka skatta til þess að auka ríkisumsvifin. Einu gildir þótt kastljósinu sé beint að fyrir- tækjunum eins og Alþýðuband- lagið gerði tillögur um. Atvinnu- lífið hefur nýlega tekið á sig kostnaðarauka vegna kjarasamn- inga sem brýnt er að ekld verði velt út í verðlagið. Það þarfnast þess einnig að geta byggt sig upp og lagt fé til framþróunar og upp- byggingar. Uppsveifla í atvinnulíf- inu hefur komið ríkissjóði til góða og mun gera það ef kraftur þess helst. Því er ekki lag fyrir skatca- hækkanir á atvinnuvegina í Lmd-

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.