Dagur - 08.01.1998, Síða 10

Dagur - 08.01.1998, Síða 10
10- FIMMTUDAGUR 8.JANÚAR 1998 Leikfélag Akureyrar Á ferð með frú Daisy eftirAIfred Uhrv Hjörtum mannanna svipar saman í Atlanta og á Akureyri. Úr leikdómum: .Sigurvcig ... mcr ha-ðum ... ckki síst í lokaatriðum í nánum samlcik vift Þráin Karlsson." Haukur Agústsson í Degi. „Það cr ótrúlcgt hvc Þráni teksl vel að komast inn í persónuna." Sveinn Haraldsson í Morgunblaðinu. „... cinlæg og hugvckjandi sýning sem fyllsta ástæða cr til að sjá." Þórgnýr Dýrfjörð í Rfkisútvarpinu. Sýnt á Renniverkstæðinu að Strandgötu 39. 5. sýning 10. janúar kl. 20.30 UPPSELT 6. sýning 16. janúar kl. 20.30 7. sýning 17.janúar kl. 20.30 8. sýning 18. janúar kl. 16.00 V Söngvaseiður 6. rnars verður Samkomu- húsið við Hafnarstræti opnað gestum eftir gagngera endurnýjun á áhorfendasal með frumsýningu á þessu hugþekka verki þeirra Rodgers og Hammersteins. Aðalhlutverk: Þóra Einarsdóttir Hinrik Olafsson Hrönn Hafliðadóttir Jóna Fanney Svavarsdóttir. 4 Markúsar- guðspjall Einleikur Aðaisteins Bergdal. Frumsýning á Renniverk- stæðinu um páska. Gjafakort í leikhúsið. Gjöf sem gleður. Kortasala í miðasölu Leikfélagsins, í Blómabúð Akureyrar, Bókvali og á Café Karólínu. Sími 462 1400 Gleðilegt nýár. er styrktaraðili Leíkfélags Akureyrar FRÉTTIR Hert eftírlit firamveg- is vegna blysamálsms „Við vissum það fyrst eftir að þessi slys urðu að hluti sending- arinnar hafði lent í einhverjum raka. Blysin áttu ekki að hafa skemmst en nú þarf að rannsaka hvort gallinn er vegna raka eða einhvers annars. Eg er nú ekki frá því að e.t.v. séu orsakirnar aðrar,“ segir Geir Jón Þórisson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni í Rcykjavík. í gær kom fram í Degi að flug- eldar sem voru í sama gámi og gölluðu handblysin höfðu verið teknir úr umferð áður en þeir fóru á markað vegna raka. Þeir voru stórhættulegir og sprungu í 2-3 metra hæð. Geir Jón segir rannsókn ekki aðeins beinast að rakaþættinum heldur sé hugsan- legt að blysin séu hreinlega illa hönnuð, að „innmaturinn" sé of sterkur miðað táð umbúðirnar. framleiðslunni. Hver sem orsök- in er, verður breyting á eftirliti með innflutningi í framtíðinni vegna blysamálsins að sögn Geirs Jóns: „Já ég á von á því. Við höfum treyst þeim mönnum sem hafa verið í þessu í áraraðir en nú þurfum við að gera ráð- stafanir til að tryggja að svona hlutir endurtaki sig ekki. Hvern- ig veit ég ekki, en við þurfum að bæta vinnubrögðin.“ I gær höfðu 15 kært vegna blysanna. Rétt er að leiðrétta innsláttarvillu sem kom fram í frétt blaðsins í gær varðandi fjölda seldra blysa. Þar var talað um 63.000 blys í staðinn fyrir rúmlega 6 þúsund blys sem er hið rétta. Er beðist velvirðingar á þessum mistökum. — BÞ Blysin eru búin að vera í sölu í ekki kunnugt um hvort einhverj- sex ár á Islandi en lögreglunni er ar breytingar hafa átt sér stað í : .......''■w'': '. „ ' ■■■■■■: r. ....» vv.vX.»,,».....>» . -......jjjjSBSI Gölluðu blysin munu verða til þess að eftirlit með innflutningi verður hert. Þrétt- ánda- brenna Þórs Árleg þrettánda- breioia íþróttafálags- ins Þórs, sem frestað var vegna hlýinda, fer fram á Þórssvæðinu næsta sunnudag klukkan 17.00. Þrettándabrennan, sem almennt gengur undir nafninu álfa- brenna, þó þar sé enginn álfur brenndur, átti að fara fram á þrettándanum, en vegna hlýinda var henni frestað þar sem hætta var talin á að íþróttasvæðið þyldi ekki umferðina. Að venju mæta alls kyns furðuverur á vettvang, m.a. tröll og púkar, álfakóngur og álfadrottning en kannski verða jólasveinarnir horfnir til fjalla, nema ef vera skyldi að Kertasník- ir og Giljagaur hefðu orðið seinir fyrir. Kirkjukór Glerárkirkju mun leiða söng og leikarinn Felix Bergsson mætir á svæðið. I lok skemmtunarinnar verður mikil flugeldasýning á svæðinu. - GG Mikil for myndaðist vegna hlýindanna á Þórsvellinum og varð til þess að menn seinkuðu þrettándahátíðarhöidum til sunnudags. Veiðitölur svæðisgreindar Sú nýbreytni er fyrirhuguð hjá Veiðistjóraembættinu að veiði- menn geri í framtíðinni grein fyr- ir því í veiðiskýrslum hvar á land- inu menn fái sinn feng. Þessi svæðisgreining er að ósk vísinda- manna en fram til þessa hafa heildartölur á Iandinu verið látn- ar duga. „Við erum að tala um grófa skiptingu, ekld ólíkt spá- svæðunum," segir Asbjörn Dag- bjartsson veiðistjóri. Fleiri nýjungar eru á döfinni og má nefna sem dæmi að mönnum gefst nú kostur á að setja mynd í veiðikort sín og hafa veiðimenn sýnt þeirri hugmynd mikinn áhuga að sögn veiði- stjóra. Þá hefur kostnaður við veiðikortið hækkað um 100 kr. vegna breytingar á vísitölu. Kort kostar nú 1.600 kr. Alls hafa rúm 1 5.000 veiðikort verið gefin út, en að sögn veiði- stjóra eru ekki allir virkir. Þeir sem hafa byssuleyfi eru að lík- indum hátt í 25.000 á landinu. Veiðistjóri vill ítreka að veiði- menn reyni að senda inn veiði- skýrslur sem fyrst. „Það eru margir sem trassa þetta. Rétt fyr- ir rjúpnaveiðitímann kom veru- Iegt álag sem auðveldlega hefði verið hægt að komast hjá. Eg vil brýna skilvísi fyrir mönnum." - BÞ íþrótta- maður KA Knattspyrnufélag Akureyrar er sjötugt í dag, 8. janúar, en sem kunnugt er hefur verið gefin út bók sem að mestu spannar sögu félagsins síðasta áratug og er hún til sölu f félagsheimili KA. A Iaugardaginn klukkan 15.00 verður öllum félagsmönnum KA og stuðningsmönnum boðið í kaffihlaðborð í KA-heimilinu. Þar verður lýst kjöri íþrótta- manns KA 1997 en tilnefnd hafa verið Björgvin Þór Björg- vinsson handknattleik, Brynja Þorsteinsdóttir sktði, Dagný Kristjánsdóttir skíði, Eggert Sig- mundsson knattspyrna, Davíð Búi Halldórsson blak, Kristinn Magnússon skíði, Leó Orn Þor- Ieifsson handknattleik, Stein- grímur Eiðsson knattspyrna, Birna Baldursdóttir hlak, Jónas Blöndal júdó, Sævar Sigur- steinsson jiídó og Jóhann Gunn- ar Jóhannsson handknattleik. - GG Emt á Suð- urskauts- laudinu Islendingarnir sem náðu á Suð- urpólinn á nýársdag eru enn í Patriot Hill-búðunum á Suður- skautslandinu, þaðan sem gang- an hófst í nóvembermánuði, eft- ir flug þangað frá Suðurpólnum. I gær var þarna mjög slæmt veð- ur, 12 vindstig í mestu hviðun- um, og alls ekki flugveður. Sam- kvæmt veðurspá átti vindinn að Iægja eitthvað svo e.t.v. viðrar til flugs til Chile í dag og þaðan til íslands gegnum Florida. — GG

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.